Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
LAUFASVEGUR x - 101 REYKJAVÍK
INNRITUN STENDUR YFIR
Baldýring 3. okt.
Þjóðbúningasaumur 7. okt.
Getum einnig bætt við nokkrum nemendum í vefn-
að, fatasaum, leðursmíði, tauþrykk, prjónatækni og
knipl.
Innritun fer fram á skrifstofu skólans, Laufásvegi 2,
II. hæð, frá kl. 16.15-19.00 daglega. Nánari upplýs-
ingar í síma 17800 á sama tíma. Utan skrifstofutíma
tekur símsvari við skráningu.
Einstaklingar - fyrirtæki
Leitað er tilboða í vélar og tæki þrotabús Saumastofunnar Víólu hf.
á Skagaströnd.
Vélar sem seldar verða: Beinsaums- og overlocksaumavélar. Sníða-
hnifar, ýmsar stærðir. Hillur og hjólakörfur. Kaffibúnaður.
Lager: Nokkrir kassar af peysum, fóðurstrangar. Vélarnar eru nánar
tiltekið:
1. stk. hálsmálavél UNION SPECIAL 34700 KAZ árg. 1983
1. stk. loksaumsvél UNION SPECIAL 6m árg. 1985
4. stk. loksaumsvélar UNION SPECIAL Mark 4 árg. 1979
1. stk. beinsaumsvél m/kl JUKI DLN 415-4 árg. 1980
3. stk. beinsaumsvél m/kl PFAFF 463-6/01 -900/57 BS árg. 1983
Ofangreindir munir eru til sýnis í húsnæði þrotabús Saumastofunn-
ar Víólu hf. á Skagaströnd.
Óskað er tilboða í einstaka muni eða safn muna. Skila ber skrifleg-
um tilboðum fyrir kl. 12.00 þann 14. októþer nk. á skrifstofu emb-
ættisins, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi. Allar nánari upplýsingar verða
veittar á skrifstofu sýslumanns, s. 95-4157.
Skiptaráðandinn Húnavatnssýslu
Nauðungaruppboð
Að kröfu ýmissa lögmanna og sveitarfélaga verður haldið uppboð
til sölu á eftirtöldu lausafé:
Fólksbifreiðir og vörubifreiðir:
H-516, R-15385, H-2873, H-2077, H-2359, H-1349, H-3405,
H-817, H-2908, H-1607, H-2024, (Chevrolet Suburban 79), Y-
17807, Þ-8181.
Dráttarvél: Hd-253
Grundig litsjónvarp, sófasett, skápasamstæða, JVC myndband, 2
Nordmende litsjónvörp, Nordmende video, Finlux litsjónvarp, Tom-
son litsjónvarp, Yamaha hljómflutningstæki, samb. segulb., plötu-
spilari, hátalarar.
18. stk. sumarhjólbarðar og loftræstikerfi með rana.
Uppboðið fer fram föstudaginn 30. sept. nk. kl. 16.00 við lögreglu-
stöðina á Hvammstanga. Uppboðsmunir verða til sýnis við lögreglu-
stöðina.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis á sýsluskrifstofunni, Hnjúkabyggð
33, Blönduósi, S. 95-4157.
Munir seljast I því ástandi sem þeir eru í við uppþoðið.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Húnavatnssýslu
Nauðungaruppboð
Að kröfu ýmissa lögmanna og sveitarfélaga verður haldið uppboð
til sölu á eftirtöldu lausafé:
Fólksbifreiðir og vörubifreiðir:
H-1884, H-1709, H-3740, H-2042, H-2696, H-3736, M-1779,
H-378, H-3654, H-1541, R-23350.
Fjórhjól: Kawasaki 110 cub.
Rennibekkur: TOZ SN55 (til sýnis hjá Mánavör hf. Skagaströnd).
Plaststeypuvél: HF Cannon 26, Poly-uretan (til sýnis hjá Mánavör
hf., Skagaströnd).
Fisher VHS myndband, 2 Nordmende litsjónvörp, 2 Hitachi, 2
Sanyo, Philips, Nesco, Finlux, Sony.
Goodyear hjólbarðar, ýmsar stærðir, 2 toghlerar, norskir (rimla).
Fjórhjól: Kawasaki Mojave KZF 110 árg. '87.
Uppboðið fer fram föstudaginn 30. sept. nk. kl. 11.00 við lögreglu-
stöðina á Blönduósi. Uppboðsmunir verða til sýnis við lögreglustöð-
ina.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis á sýsluskrifstofunni, Hnjúkabyggð
33, s. 95-4157.
Munir seljast í því ástandi sem þeir eru í við uppboð.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Húnavatnssýslu
Fréttir________________________________________________dv
Lyflaneysla á Litla-Hraimi:
80 prósent fanga
háðir lyfjum
- girðing kemur ekki í veg fyrir strok úr fangelsinu
„Þetta er oft blásið upp og alhæft
út frá því. Um 80 prósent þeirra
manna sem þarna dvelja eru háðir
lyflum. Það eru því alltof oft ólögleg
lyf á Litla-Hrauni. Ég held þó að
þarna sé tiltölulega lítið magn í einu.
Ég geri greinarmun á lyfjum sem
fangelsislæknar gefa föngunum eða
hvort þeir eru með lögleg lyf sem
smyglað er inn á Litla-Hraun,“ sagði
Þorsteinn A. Jónsson, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu.
Þorsteinn, eins og flestir sem rætt
hefur verið við, kannast við aö lyfja-
neysla sé vandamál á Litla-Hrauni.
Hann taldi vandamálið ekki eins
mikið og margir hafa haldið fram.
- Er mikið um lyíjanotkun meðal
fanganna samkvæmt ráði fangelsis-
lækna?
„Þaö er umdeilt atriði en staðreynd
að læknar hafa mismunandi skoðun
á því hversu mikið á að gefa af lyfj-
um. Þeir gefa mismikið af lyfium en
hver hefur rétt fyrir sér í þeim efnum
get ég ekki dæmt um. Þetta er eilíft
ágreiningsefni, bæði okkar og lækn-
anna og eins þeirra lækna sem sinna
þessum mönnum. Það er ekkert nýtt
mál.“
Forstöðumaðurinn á Litla-Hrauni
sagði í samtali við DV að fangar
gætu gengiö frá Litla-Hrauni þegar
þeim sýndist. Er fangelsið ekki
mannhelt?
„Maður, sem ætlar að strjúka og
undirbýr flótta, getur strokið. Þetta
kemur fyrir nokkrum sinnum á ári,
þó merkilega sjaldan miðað við hvaö
þetta er auðvelt. Þetta er spurning
um hvort við viljum verja tugum
milljóna í girðingu til að koma í veg
fyrir aö þrír til fjórir fangar strjúki
á ári. Það er líka spurning um hvað
fangarnir hafa upp úr því að strjúka.
Flestir þeirra gera sér grein fyrir aö
ávinningurinn er enginn. Þó svo
girðing yrði sett upp væri hægt að
finna leiðir til að strjúka. Það er líka
tækifæri til að strjúka þegar verið
er að flytja menn á milli. Girðing
kemur ekki í veg fyrir strok. Því er
spurningin hvort þetta er fram-
kvæmd sem þörf er á,“ sagði Þor-
steinn A. Jónsson.
-sme
Ólympíuleíkur DV:
Vinningur-
inn til
Akraness
Dregið var úr innsendum fjörk-
um með nafni Helga Ólafssonar
í beinni útsendingu á Bylgjunni
á laugardaginn. Upp úr hrúgunni
kom íjarki með nafni Ragnheiðar
Ólafsdóttur, Sóleyjargötu 15 á
Akranesi.
Næst verður dregið í þessum
leik DV, Fjarkans, Bylgjunnar og
Flugleiða í beinni útsendingu í
dag á milli klukkan þrjú og frnim
í þætti Þorsteins Ásgeirssonar á
Bylgjunni. í dag er dregiö úr
fjörkum með nafni Kristjáns Ara-
sonar.
Togarinn Snorri Sturluson kom til Reykjavíkur eftir endurbætur i lok síð-
ustu viku. Búið er að breyta skipinu í frystitogara. Af því tilefni var starfs-
fólki Granda boðið aö skoða breytingarnar. Á myndinni eru starfsstúlkur
að stíga á skipsfjöl. Þær eiga kannski eftir að fara til sjós? DV-mynd S
Ný reglugerð um atvlnnuleyfi leigubflstjóra:
Frammistaða í prófi ræður forgangsröð
Matthías Á. Mathiesen samgöngu-
ráðherra hefur gefið út nýja reglu-
gerð um tilhögun leigubifreiðaakst-
urs í Reykjavík og nágrenni. Helstu
nýmæli reglugerðarinnar felast í því
að haldin verða námskeið fyrir þá
bifreiðastjóra sem óska þess að fá
atvinnuleyfi sem leigubifreiðastjór-
ar. Gefin veröur einkunn og ræður
frammistaða viðkomandi í prófl því
forgangsröð um úthlutun atvinnu-
leyfis.
Ingólfur Ingólfsson, formaöur
Frama, segir þessa reglugerö vera til
bóta miðað við núverandi tilhögun.
„Þarna er sett í vald sjálfs próftak-
anda hvernig hann stendur sig í stað
þess sem áður var að einhverjir aðr-
ir aðilar réðu því hvort hann fékk
atvinnuleyfi eða ekki. Námskeiðin
miða einnig að því að bílstjórum
veröi t.d. gerð grein fyrir mikilvægi
mannlegra samskipta og fleiri þátta
sem koma starfmu viö. Þessar reglur
eru því til bóta,“ segir Ingólfur.
Á námskeiðunum verður lögð
áhersla á lög og reglur um leigubif-
reiðar, bókhald, rekstur bílanna,
gatnakerfi, hjálp í viölögum og und-
irstöðuatriði í ensku. Að námskeið-
unum loknum verða þreytt próf sem
úthlufun ræðst af.
í tilkynningu frá samgönguráöu-
neytinu segir að tilgangur breyting-
anna sé öðru fremur að auka jafn-
rétti umsækjenda um atvinnuleyfi.
Úthlutun byggist nú á hæfni um-
sækjanda en ekki frjálsu mati stjórn-
valdahverjusinni. -ÓTT
Fyrir utan að vera keppnisíþrótt er golf vinsæl tóm-
stundaiðja þúsunda manna sem ekki stefna að verðlaun-
um á kappmótum. Fjórmenningarnir Hjalti Þórarinsson
læknir, Magnús Þ. Torfason hæstaréttardómari, Guðjón
Ingvi Sigurðsson hæstaréttarlögmaðurog Guðjón Ey-
jólfsson endurskoðandi hafa leikið saman golf í 20 ár.
Þeir eru og stundum kallaðir
„kunnasta golfholl''landsins.
Þegar DV hitti þá félaga að máli voru þeir að fagna
því að Hjalti hafði farið holu í höggi
íannaðsinn á ævinni.
Frá þessu og ýmsu öðru, sem hent hefur þá félaga,
verður skýrt í DV á morgun.
Það þótti aðalsmerki hverrar manneskju hér fyrrum
aðfara vel með, eins og það var kallað. Þetta virðist vera
breytt hjá öllum þorra fólks ef marka má þá miklu fjár-
muni sem kastað er á glæ í formi sorps og rusls. Endur-
vinnsla margs konar úrgangs er allmikið stunduð víða
erlendis.
Hér á landi er það í litlum mæli en virðist þó fara vax-
andi. Á (slandi fellur til ótrúlega mikið af úrgangi sem
hægt er að endurvinna. Má þartil nefna öl- og gos-
drykkjadósir, pappír og ýmislegt fleira sem hægt væri
að endurvinna og gera að verðmætum.
Um þetta mál verður fjallað í DV á morgun.