Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1988, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988. 9 Útlönd Geysilegar varúðarráðstafanir voru viðhafðar vegna sveitarstjórnarkosning- anna í gær. Vopnaðir öryggisverðir voru við alla kjörstaði. Simamynd Reuter Suður-Afríku- stjóm hrósar sigri Þjóðarflokknum, sem er ráðandi í Suður-Afríku, tókst að verjast áhlaupi frá hægri í kosningunum sem fram fóru í gær. Talsmenn flokksins sögöu að nægilega margir svartir kjósendur hefðu greitt at- kvæði þrátt fyrir tilmæli um að snið- ganga kosningarnar. Fyrstu tölur í gær bentu til þess að íhaldsflokkurinn, sem aðhyllist þá kenningu að hvítir séu langt yfir svarta hafnir, bætti við sig á mörgum svæðum, sérstaklega þar sem hvítir mega eingöngu búa. Aukning þeirra var mest í borgum og iðnaðarbæjum. Flokkur Botha forseta hélt sínu í mörgum héruðum og líka í höfuð- borginni Pretoríu. í Jóhannesarborg, sem er ríkasta og stærsta borg lands- ins, náði flokkurinn meirihluta. Ríkisútvarpið sagði í morgun að reiknað væri með að um þriðjungur svartra kjósenda hefði tekið þátt í kosningunum, sem er mun hærra hlutfall en í síðustu sveitarstjórnar- kosningum sem fram fóru árið 1983. Þá tók aðeins um fimmtungur svartra þátt. Ríkisstjórnin sagöi í morgun að nægur. fjöldi svartra kjósenda hefði tekið þátt í kosningunum og snið- gengið tilmæli frá kirkjuleiðtogum og andstæðingum aöskilnaðarstefn- unnar, að stuðningur hefði verið sýndur við áætlun Botha forseta um að auka smám saman takmörkuð mannréttindi svarta meirihlutans. Reuter Kohl móðgar Rússa Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, virtist koma gestgjöfum sínum á óvart þegar hann tilkynnti í ræðu á lokadegi heimsóknar sinnar til Sovétríkjanna að Sovétmenn hefðu fallist á að láta alla pólitíska fanga í landinu lausa. Kohl sagði á fréttamannafundi eftir þriggja daga viðræður í Moskvu aö sovéskir leiðtogar heíðu fullvissaö hann um að þeir væru tilbúnir að láta laust allt þaö fólk sem á Vesturl- öndum er álitiö pólitískir fangar. Gennady Gerasimov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, vildi hins vegar ekki staðfesta að slíkt loforð hefði veriö gefið. Hann sagði að málið heföi ekki verið á efnisskránni í viðræðum Kohls þótt „hugsanlega hafi veriö minnst á það“. Hann sagði að þetta væri vandamál fyrir viðræðunefnd- irnar í Vín. „Ég sagði ekki að neinn hefði rangt fyrir sér,“ sagði Gerasimov þegar hann var spurður að því hvort hann væri að mótmæla yfirlýsingu Kohls. „Ef Vestur-Þjóðveijar hafa fengið upplýsingar um það hvað er aö ger- ast í Vín ætla ég ekki að mótmæla því.“ í Washington var þessari yfirlýs- ingu fagnað en talsmaður utanríkis- ráðuneytis Bandaríkjanna sagði að Vesturlönd og austantjaldsblokkin hefðu nokkuð mismunandi skoðanir á því hvaö teldist vera pólitískur fangi og því væri þetta ennþá vanda- mál. Kohl heldur aftur til síns heima í dag. Reuter Kohl og kona hans hittu Andrei Sakharov í Moskvuheimsókn sinni. Símamynd Reuter i LAUGAVEGI 66, SIMI 25980. Mikið úrval af tískukápum frá ýmsum löndum Subaru station 4x4 árg. 1987, ekinn 35.000 km. EURO - KJÖR I allt að 12 mánuði! Nissan Micra árg. 1987, ekinn 35.000 km. Toyota Tercel station 4x4 árg. 1987, ekinn 20.000 km. Bílarnir fást einnig á skuldabréfi í allt að 18 mánuði. Opið mánud. - laugard. kl. 10-19 Lada 1500 station árg. 1987, ekinn 18.000 km.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.