Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1988, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1988, Side 14
14 FIMMTL'PAGUR .27. OKTÖBER 1988. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÚLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð I lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Velferðarríki fyrirtækja Ríkisstjórnin telur sig þurfa aö auka skuldabyrði þjóðarinnar í útlöndum um eina þrjá milljarða til að mæta halla ríkissjóðs á þessu ári og þar á ofan auka skattabyrði þjóðarinnar um eina fjóra milljarða á næsta ári til að mæta halla, sem annars yrði á því ári. Hinn illa stæði ríkissjóður er hins vegar jafnan fullur af ímynduðu fé, þegar kosta þarf ýmis gæluverkefni eða ráðherrar þurfa að sýna örlæti sitt á annarra manna fé. Hann hefur að meira eða minna leyti verið gerður ábyrgur fyrir hinum nýja sjóði Stefáns Valgeirssonar. Það fer því vel á, að hinn nýi íjármálaráðherra hefur í beinni útsendingu í sjónvarpi lýst yfir hamslausri að- dáun sinni á Stefáni Valgeirssyni. Má nú búast við, að myndir af Stefáni verði settar upp hjá Alþýðubandalag- inu, þar sem áður voru myndir af Marx og Lenín. Athyglisvert er, að fyrrverandi og núverandi hand- hafar ríkisvaldsins telja eðhlegt, að hinn galtómi ríkis- sjóður veiti á hverju ári ýmis fríðindi, er nema miklu fleiri milljörðum en þeim, sem nú á að útvega með því að auka skuldabyrði og skattabyrði þjóðarinnar. Einna hæst ber þar ríkisábyrgðirnar, sem gera gælu- dýrum kleift að fá lán á 2-3% lægri vöxtum en ella. DV hefur lauslega reiknað, að ríkið hafi með ábyrgðum sín- um gefið margvíslegum forgangsaðilum kerfisins vaxta- mun upp á 15 milljarða króna eða þar um bil. Ríkisábyrgðir eru einn af mikilvægustu þáttum þess, sem kallað hefur verið velferðarríki fyrirtækjanna. Hér á landi hefur komizt í vana, að ríkið hafi ekki efni á að reka velferðarríki almennings, af því að það er svo önn- um kafið við að borga velferðarríki atvinnulífsins. Annar þungbær þáttur örlætis hins magnþrota ríkis- sjóðs er rétturinn, sem mönnum er veittur til að ffarn- leiða búvöru, sem almenningur vill ekki kaupa á fram- leiðsluverði. Ríkið hefur sjálft metið þennan rétt til fjár með því að bjóðast til að kaupa hann til baka. Ef ríkið keypti allan framleiðslurétt búvöru á því verði, sem þaö hefur sjálft auglýst, mundi það kosta ríkissjóð 13 milljarða króna eða svipaða upphæð og rík- isábyrgðirnar. Það er verðmæti gjafarinnar, sem felst í að bændum er leyft að framleiða upp 1 fuhvirðisrétt. Þriðji þátturinn af þessari stærðargráðu er kvótinn í fiskveiðum. Með kvótanum er eigendum ákveðinna skipa afhentur réttur til að veiða svo og svo mikið af fiski á ári. Ríkið afhendir þeim þennan rétt, en ekki sveitarfélögum, sjómönnum eða þjóðinni í heild. Kvótinn í fiskveiðum gengur kaupum og sölum eins og kvótinn í landbúnaöi og kvótinn í ríkisábyrgðum. DV hefur reiknað út lauslega, að markaðsverð fiskveiði- kvótans í heild sé um sex milljarðar á ári. Þessu fé fórn- ar ríkið með því að selja ekki veiðileyfi sjálft. Sex milljarðamir eru árvissir. Ekki hefur verið reikn- að, hvert sé langtímavirði kvótans, eins og það endur- speglast í mismun á söluverði skipa eftir kvótanum, sem þeim fylgir. En öruggt er, að það nemur ekki lægri uþp- hæð en fer í ríkisábyrgðir og fullvinnslurétt. Fyrir almenning, sem nú borgar skatta, og börn, sem síðar borga þjóðarskuldir, hlýtur að vera forvitnilegt að sjá örlætið á annarra fé, sem fyrri og síðari ríkis- stjórnir sýna, þegar þær útdeila ókeypis kvótum og ábyrgðum, er nema ahs tugum miUjarða að verðmæti. Örlæti ríkisstjórnarinnar kemur þessa dagana fram í þriggja mUljarða aukningu á skuldabyrði þjóðarinnar og flögurra miUjarða aukningu á skattabyrði hennar. Jónas Kristjánsson | | i m'W r «1 c lÆámm 11 „Áttum viö t.d. aö styrkja meö beinum framlögum íslenskan húsgagnaiðnað sem stóð með blóma fyrir nokkr- um árum en hrundi nánast á örskömmum tíma?“ er spurt hér. Vaðið var of tæpt Islenskar skipasmiöastöðvar eru fyllilega samkeppnisfærar við er- lendar stöðvar hvað gæðin varðar en því miður ekki í verði. Hins veg- ar má þessi iðnaður ekki lognast út af. Við þurfum að hafa hér traust fyrirtæki áfram sem geta annast viðhald og stundað nýsmíöi í ein- hverjum mæli. Sú þjónusta má vera eitthvað dýrari en sambærileg þjónusta erlendis, án þess að þaö verði óhagkvæmt, og lánafyrir- greiðsla á að taka mið af því. Skipasmíðaiðnaður hefur verið á niðurleið í Evrópulöndum og er því þeim mun meiri þörf fyrir öryggi í viðgerðarþjónustu hér heima, þvi varla þætti hagkvæmt að sækja hana um langan veg, t.d. austur í Asíu. Svo kann auðvitað aö fara að ís- lenskar skipasmíöar veröi sam- keppnisfærar við önnur lönd einn- ig í veröi, ef svo fer, sem margir viröast álíta, að arabaþjóðir fari að kaupa sér fiskiskip í stórum stíl. Það er vissulega freistandi að reyna að öðlast þátttökurétt í slíku kapp- hlaupi, en menn verða aö sjást fyr- ir í þessum efnum, slíkt má ekki kaupa of dýru verði. Stálvík og Marokkó Um miðjan september sl. barst þingmönnum Reykjaneskjördæm- is erindi frá forráöamönnum Stál- víkur hf. og gögn varðandi samn- inga um smiöi 10 skuttogara fyrir Marokkó, sem yrðu þó aðeins aö hluta til smíöaðir hér innan lands en að stærstum hluta í Perú. Eins og málið var þá kynnt virtist ekki um mikla áhættu að ræða, hvorki fyrir fyrirtækið né heldur ríkissjóð, og freistingin var mikil að trúa því að þetta væri hið besta mál fyrir framtíð íslenskra skipasmíöa sem lengi hafa átt erfitt uppdráttar. Ástandið í stjóramálunum um þessar mundir olli því að þetta mál ýttist nokkuð til hliðar og virtist komið í eindaga þegar það næst kom upp á borðið, þ.e. í lok sept- embermánaðar, en þá kom í ljós að staöan var allmikið breytt. Þá var farið að tala um miklu stærri hlut íslendinga í þessu verkefni og þá um leiö beina hlutdeild ríkis- sjóðs og miklu meiri áhættu vegna ábyrgðar, sem var auövitað alveg ný stefna i máhnu. Ófær leið Þegar þessi gögn og aðstæður voru athugaðar var því miður auð- séð að hér væri verið að tefla á tæpasta vað og aö ef þetta skref yrði stigið væri það hið fyrsta út á afar vafasama braut ríkisstyrkja og niðurgreiðslna, sem engin leið væri að sjá fyrir endann á. KjaUarinn Kristín Halldórsdóttir þingkona Kvennalistans Margir telja reyndar slíka fyrir- greiðslu réttlætanlega til þess m.a. að bæta samkeppnisstööuna gagn- vart erlendum aðilum og þá ekki síst gagnvart frændum okkar Norðmönnum sem sagðir eru styrkja sinn skipasmíðaiðnað um allt að 20%. Burtséð frá því hversu ógeðfelld leið það í rauninni er, þá veröum við einfaldlega að horfast í augu við að hún er ófær. Þaö eru nánast engar líkur til þess að við hefðurn úthald og þrautseigju til þess að ná viðskiptum af öðrum þjóðum með þeim hætti. Það er heiðar- legra, geðfelldara og á allan hátt skynsamlegra að halda sig við það sem við getum sjálf betur en aðrir á sambærilegu verði. Hvaö með fataiðnaðinn? Fyrst og fremst er þetta þó spum- ing um heildarstefnu. Eigum viö yfirleitt að greiða með iðnaði sem er illa samkeppnisfær við erlendan iðnaö? Áttum við t.d. að styrkja með beinum framlögum íslenskan hús- gagnaiðnað sem stóð með blóma fyrir nokkrum árum en hrundi nánast á örskömmum tíma? Hefðum við átt að grípa í taum- ana og reyna að hefta þróunina í fataiðnaði, sem hefur valdiö at- vinnumissi hundraða, jafnvel þús- unda kvenna? Og fleiri dæmi mætti nefna. Þetta er alltaf erfitt að vega og meta, sérstaklega vegna hins mannlega þáttar. En sjaldnast er skynsamlegt aö grípa inn í á þenn- an hátt því ávinmngurinn er oft skammvinnur. í Marokkódæminu var aðeins um haldlitla von að ræða. Meira kapp en forsjá Vafaatriðin voru alltof mörg. Baktryggingar voru t.d. því miöur ekki nógu góöar og með öllu óvist aö Marokkómenn gætu staðið við sitt. Þeir eru víst ekki heimsins vinsælustu skuldarar um þessar mundir. Hugmyndir um að fóðra stuðning úr ríkissjóði meö því m.a. að um þróunaraðstoð væri að ræða eru vafasamar og óráðlegt að fara út á slíkar brautir. Þá var það mál margra í skipasmíðaiönaðinum að tilboðið væri of lágt, þannig að jafn- vel þótt umtalsverðir styrkir fengj- ust og jafnvel þótt gætt væri ýtrustu hagkvæmni og samvinnu íslenskra skipasmiðastöðva þá gengi dæmið ekki upp. Það yrði samt tap og engin trygging fyrir því að þetta verkefni leiddi til frekari verkefna og þar með uppsveiflu í hérlendum skipasmíðum. Þaö hefði reyndar ekki verið í fyrsta skiptið sem hugdjarfir at- hafnamenn reiknuðu inn á þjóðina verkefni sem hún þyrfti að greiða hærra verði en lofaö var í upphafi. Við höfum satt að segja nóg af slík- um dæmum þar sem lagt er upp af meira kappi en forsjá, og síðan er komiö og talaö um þjóðhagslegt gildi þess að allir leggist á eitt með að bjarga þvi sem brugðist hefur. Vonandi gengurþað samt Að öllu samanlögðu var ekki skynsamlegt að styrkja þetta verk- efni á þann hátt sem eftir var leit- að. Hins vegar hljótum við aö vona að þrátt fyrir allt verði unnt að sinna þessu verkefni í samvinnu viö erlendar skipasmíðastöövar, svo sem enn er til athugunar, og að ekki veröi tap á þeim viðskipt- um. Ég hlýt að óska viðkomandi aöilum alls hins besta, tíma og ráð- rúms, til að vinna aö því máh og að fara réttir og a.m.k. sléttir út úr því dæmi. Kristín Halldórsdóttir „Hugmyndir um að fóðra stuðning úr ríkissjóði með því m.a. að um þróunar- aðstoð væri að ræða eru vafasamar og óráðlegt að fara út á slíkar brautir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.