Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1988, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1988, Síða 21
20 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988. FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988. 21 íþróttir_______________ Frétta- stúfar ■Belgíska félagið I Cercle Brugge, sem ; l°i vermir botnsætið í l. deild, tók í gær leikmann á leigu frá hollenska félaginu Feyenord út þetta keppnistímabil. Leikmaðurinn heitir Tom Krommendijk og er 21 árs að aldri en nokkur hol- lensk félagslið höíöu sýnt þess- um sóknarieikmanni áhuga. Það sem háð hefur Cercle Brúgge einna mest er hvað hð- inu hefur gengið illa að skora mörk. í þvi skyni leituðu for- ráðmenn liösins til Sigurjóns Kristjánssonar og dvaldi hann hjá félaginu í nokkra daga en ekkert varð úr því að hann geröi samning við liöiö. Kendall hafnaði tilboði frá Newcastte United Howard Kendall, sem nú ræður ríkjum hjá spænska félaginu Athletic Bilbao, hafnaði í gær tilboði frá enska liðinu New- castle United. Félagið hefur verið án framkvæmdastjóra í tvær vikur. Einn stjórnar- manna félagsins flaug til Spán- ar á mánudag og eftir viðræöur við Kendall var hann bjartsýnn á að hann tæki við félaginu. í gær hins vegar gaf Kendall Newcastle þaö svar að hann tæki ekki við liðinu og verða því forráðmenn Newcastle að fara á önnur mið í leit að þjálf- ara en staða hðsins er miög slæm í 1. deild. Sparta Prag á toppnum Að loknum ellefu umferðum í tékknesku deildarkeppninni í knattspymu er Sparta Prag í efsta sæti með 18 stig. Ná- grannaliðiö Slavia Prag er í öðru sæti en Banik Ostrava er í þriðja sæti. Sparta Prag vann útisigur á Inter Bratislava, 1-2, Slavia Prag vann Dukla Banska, 4-1, og Banik Ostrava sigraöi Cheb, 1-2. Gold formaður bresku ólympíunefndarinnar Bretar hafa skipt um formann í ólympíunefnd Bretlands. Charles Palmer, sem verið hef- ur formaður nefndarinnar frá því áriö 1983, hefur látið af störfum en við formennskunni tekur Sir Arthur Gold en hann er 71 árs að aldri. Gold er mjög virtur í Bretlandi og hefur með- al annars beitt sér mjög gegn lyíjanotkun íþróttamanna. Peter Salmon og Friðbjörn sigruðu Þrátt fyrir að nú sé langt liöiö að jólum og októbermánuður senn á enda era kylfmgar enn að leika golf hér á landi. Á dög- unum var haldið golftnót hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnar- firði til styrktar sveit GK sem keppir í Evrópusveitakeppn- inni á Spáni sem hefst 23. nóv- ember. Þátttakendur vora 84 sem verður aö teljast gott í lok október. í keppninni án forgjafar sigr- aði Peter Salmon, GR, en hann lék á 70 höggum. í öðra sæti varð Einar Long, GR, á 72 högg- um og þriöji Tryggvi Trausta- son, GK, á 762 höggum. í keppninni með forgjöf sigr- aöi Friðbjöm Hólm, GR, og lék hann á 62 höggum nettó. Annar varð Stefán Svavarsson, GR, á 62 höggum og þriðji Peter Salm- on, GR, á 65 höggum. Enn ætla kylfmgar að reyna með sér á laugardag en þá fer enn eitt styrktarmótið fram í Hafnar- firöinum. Þá veröur keppt eftir Stabelford 7/8 punktakerfi og veröur ræst út frá kl. 9.30. Skráning er í síma 53360 á fóstu- dag. íþróttir samdi við Skagamenn Mechelen haföi betur 1 Belgíuslagmim: Anderiecht með 10 menn í 88 mínútur UEFA-bikarinn: Bayera Munchen (V.Þýsk) - Dunajska Streda (Tékk.)..............3-1 (1-0 Flick, 2-0 Wegmann, 3-0 Thon, 3-1 Szaban) Dinarao Zagreb (Júgóslavíu) - Stuttgart (V.Þýsk)...............1-3 (0-1 Klinsmann, 0-2 Walter, 0-3 Schröder, 1-3 Besek) Dynamo Dresden (A.Þýsk) - Waregem (Belgiu).....................4-1 (1-0 Kirchner, 2-0 Kirsten, 3-0 Kirsten, 4-0 Kirsten, 4-1 Niederbacher) Dynamo Minsk (Sovét.) - Viktoria Bukarest (Rúmeniu)............2-1 (1-0 Gurinovitsj, 1-1 Kulchar, 2-1 Zigmantovitsj) Foto Net Wien (Austurriki)-Turun Pailaseura (Finnlandi)........2-1 (1-0 Drabits, 1-1 JaJo, 2-1 Glatzmayer) Groningen (Hollandi) - Sei*vette (Sviss).......................2-0 (1-0 Groeleken, 2-0 Meijer) Hearts (Skotlandi)-Austria Wien (Austurríki)...................0-0 Juventus (Ítalíu) - Atletico Bilbao (Spáni)....................5-1 (1-0 Laudrup, 2-0, 2-0 Galia, 2-1 Uralde, 3-1 Mauro, 4-1 Altobelli, 5-1 Laudrup) Köln (V.Þýsk) - Glasgow Rangers (Skotlandi)....................2-0 (1-0 Janssen, 2-0 Allofs) Liege (Belgiu) - Benfica (Portúgal)............................2-1 (0-1 Chalana, 1-1 Varga, 2-1 Balbasa) Lokomotiv Leipzig (A.Þýsk) - Napoli (Ítalíu)...................1-1 (1-0 Zimmerling, l-l Francini) Malmö (Svíþjóð) -Inter Milano (ítalíu) ..........................0-1 (0-1 Serena) Partizan Belgrad (Júgósl.) - AS Roma (ítaliu)..................4-2 (0-1 Conti, 1-1 Djukic, 2-1 Vennezovic, 3-1 Milojevic, 3-2 Conti, 4-2 Djukic) Sporting Lissabon (Portúgal) - Real Sociedad (Spáni)...........1-2 (0-1 Iturrino, l-l Cascavel, 1-2 Loren) UjpestDozsa (Ungverjalandi) -Bordeaux(Frakklandi) ..............0-1 (0-1 Stopyra) Velez Mostar (Júgóslavíu) - Belenenses (Portúgal) .............0-0 PSV í markaham - og Juventus malaði Bilbao Risasigrar hollensku Evrópu- meistaranna PSV Eindhoven og Ju- ventus frá ítalíu á mjög öflugum mótherjum vöktu mesta athygli í 2. umferð Evrópumótanna í knatt- spyrnu í gærkvöldi. PSV lék Evrópumeistarana frá 1987, Porto, grátt á heimavelli sínum í Eindhoven. Þeir Gerald Vanenburg og Ronald Koeman fóru á kostum eins og reyndar ílestir leikmanna PSV og Koeman skoraöi tvö mörk með þrumufleygum utan vítateigs. Kieft, Ellerman og Janssen sáu um hin og staðan var orðin 5-0 þegar aðeins 7 mínútur voru liðnar af síð- ari hálíleik. Þá hægðu meistararnir á og létu þar við sitja en höfðu burði til að skora nokkur mörk til viðbótar! • Michael Laudrup lék stórt hlut- verk hjá Juventus sem malaði At- letico Bilbao, 5-1, á heimavelli sínum í Torino. • Ruud Gullit kom inn á sem vara- maður hjá AC Milano snemma í síð- ari hálfleik en það dugði ekki til að opna vörn Rauðu stjörnunnar frá Júgóslavíu. Rauöa stjarnan náði dýr- mætu jafntefli á útivelli, 1-1, og verð- ur ítölsku meisturunum mjög erfiö í síöari leiknum í Belgrad. • Grannar þeirra, Inter Milano, léku hins vegar geysisterkan varnar- leik í Malmö í Svíþjóð og stálu síðan 0-1 sigri þegar Aldo Serena skoraöi eftir skyndisókn 7 mínútum fyrir leikslok. • Barcelona stendur höllum fæti eftir jafntefli gegn Lech Poznan á heimavelli. Gary Lineker fór illa með tvö tækifæri til að koma Spánverjun- um tveimur mörkum yfir áður en pólska liðiö jafnaði, 1-1, seint í leikn- um. Öll úrslit og markaskorara í leikj- um gærkvöldsins er að finna hér til hliðar. -GG/VS Sigurður Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi: Knattspyrnufélag ÍA gekk í gærkvöldi frá samningi við Sigurð Lárusson um að þjálfa áfram 1. deildar lið félagsins á næsta keppnistímabili. Ennfremur var frá því gengið að Hörður Jóhannesson yröi áfram aðstoðarmaður hans og þeir félagarnir munu jafnframt sjá alfarið um 1. og 2. flokk. Frumraun Sigurðar sem þjáífari var sl. sumar og hið unga lið ÍA náði þriðja sæti í 1. deild undir hans stjórn, og auk þess var það nálægt því að slá ungverska félagið Uj- pesti Dozsa út úr UEFA-bikarnum. Sigurður lék sjálfur með liðinu þar til hann meiddist í síðasta leik fyrri umferðar og eftir það tók hann þá ákvörðun að einbeita sér alfarið að því að stjórna liðinu utan vallar og hann reiknar með því að hafa þann háttinn á næsta sumar. - Amór Guðjohnsen meiddist og varð að fara af leikvelli Stórsigur ís- lands þrátt fyrir slakan leik - ísland vann Grikkland 24-11 í C-keppninni íslenska kvennalandsliðið í handknatt- leik vann léttan sigur á Grikkjum í gær- kvöldi, 24-11, eftir aö staðan í hálfleik hafði veriö 11^-6, íslandi í vil. Þetta var fyrsti leikur íslands í C-keppni heims- meistarakeppninnar og fór hann fram í bænum Dreux í Frakklandi. Leikurinn var ekki vel leikinn þrátt fyr- ir stórsigur íslands. Mikil taugaveiklun var í liöinu og náðu stúlkurnar sér aldrei á strik. Gríska liðið er ákaflega slakt og hefði sigurinn því getað orðið stærri en raun bar vitni. Að sögn Bjargar Guð- mundsdóttur, fararstjóra liðsins, var þetta leikur mistakanna og lítið sem gladdi aug- að. Þær Kolbrún og Halla stóðu í markinu sitt hvorn hálfleikinn og vörðu alls 9 skot. Dómarar leiksins voru harðir í horn að taka og þurftu íslensku stúlkurnar að vera utan vallar í alls 10 mínútur. • Mörk Islands gerðu: Margrét Theo- dórsdóttir 6/4, Arna Steinsen 5, Guðríður Guðjónsdóttir 4/1, Guðný Gunnsteinsdótt- ir 2, Rut Baldursdóttir 2, Svava Baldurs- dóttir 2, Erna Lúðvíksdóttir 1, Erla Rafns- dóttir 1 og Katrín Friöriksen 1 mark. • Stúlkurnar búa á hótel Balladins í Dreux og er aðstaðan þar ekki upp á það besta. Herbergin eru svo lítil að erfitt er að snúa sér við þar. Fararstjórn íslenska liðsins bar strax fram kvörtun en hún var ekki tekin til greina því í ljós kom aö full- trúar Alþjóða handknattleikssambands- ins. höfðu lagt blessun sína yfir hótelið! • Frakkland vann Portúgal 22-13 í gær- kvöldi en þessar þjóðir eru í sama riðli og ísland og Grikkland. Spánverjar eru fimmta þjóöin og ísland mætir þeim ein- mitt í næsta leik, á fóstudaginn. -ÁS Úrslit í gærkvöldi Úrslit leikja á Evrópumótunum í knattspyrnu í gærkvöldi. Þetta voru fyrri viöureignir liðanna í 2. umferð en þau mætast aftur 9. nóv- ember: Evrópukeppni meistaraliða: AC Milano (Ítalíu) -Rauða Stjaraan (Júgóslavíu)........1-1 (0-1 Stojkovic, 1-1 Virdis) Club Brúgge (Belgíu) - Monaco (Frakkiandi).............1-0 (1-0 M’Buyu) Glasgow Celtic (Skotlandi) - Werder Breraen (V.Þýsk)...o-l (0-1 Wolter) Goraik Zabrze (Póllandi) - Real Madrid (Spáni).........0-1 (0-1 Sanchez) Nendori Tírana (Aibaníu) - Gautaborg (Svíþjóð).........0-3 (0-1 Forsberg, 0-2 Ingesson, 0-3 Nilsson) Neuchatel Xamax (Sviss) - Gaiatasaray (Tyrklandi)......3-0 (1-0 Luethi, 2-0 Luethi, 3-0 Decastel) PSV Eindhoven (HoOandi) - Porto (Portúgal).............5-0 (1-0 Kieft, 2-0 Ellerman, 3-0 Koeman, 4-0 Janssen, 5-0 Koeman) Steaua Búkarest (Rúmeníu) - Spartak Moskva (Sovét.)....3-0 (1-0 Dumitrescu, 3-0 Hagi, 3-0 Hagi) Evrópukeppni bikarhafa: Barcelona (Spáni) - Lech Poznan (Póllandi)........... (1-0 Femandez, 1-1 Pachelski) Cardiff City (Wales) - AGF Aarhus (Danmörku)......... (0-1 Kristensen, 1-1 Giiligan, 1-2 Kristensen) Carl Zeiss Jena (AJÞýsk.) - Sampdorla (ítaliu)....... (1-0 Weber, 1-1 Vialli) CSKA Sofia (Búlgaríu) - Panathinaikos (Grikklandi)... (1-0 Stoichkov, 2-0 Penev) DundeeUnited(Skotlandi)-DinamoBúkarest(Rúmenlu).. (0-1 Mateut) Eintracht Frankfurt (V.Þýsk) -Sakaryaspor (Tyrklandi).... (1-0 Sievers, 2-0 Balzis, 3-0 Studer, 3-1 Kemal) KV Mechelen (Belgíu) - Anderlecht (Belgíu).......... (1-0 Wilmots) Roda Kerkrade (Hollandi) - Kharkov (Sovét.)......... (1-0 Van Der Luer) .......1-1 .......1-2 .......1-1 .......2-0 .......0-1 .......3-1 .......1-0 .......1-0 Stuttgart loks- ins í 3. umferð? - vann 3-1 sigur 1 Zagreb 1 gærkvöldi Sgurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi: Loksins virðist Stuttgart ætla að komast í gegnum 2. umferö í Evrópu- keppni. Undanfarin ár hefur liöið jafnan faliiö fyrir Austur-Evrópulið- um á þessu stigi en eftir 3-1 sigur á Dinamo í Zagreb í Júgóslavíu í gær- kvöldi virðist brautin bein. Stuttgart varö fyrir áfalli áður en leikurinn hófst þegar Júgóslavinn snjalli, Katanec, fékk þau tíðindi að faðir hans hefði orðið bráðkvaddur þá um daginn. Hann dreif sig strax heim og Schröder tók stöðu hans. Zagreb byrjaði kröftuglega en réð ekki við Eike Immel, markvörð Stuttgart. Á lokamínútu fyrri hálf- leiks reif Jurgen Klinsmann sig upp allan völl og skoraði glæsilegt mark, 0-1. Walter kom Stuttgart í 0-2 á 51. mínútu og á þeirri 63. skallaði Scröd- er í mark heimaliðsins, 0-3. Besek náði að laga stöðuna fyrir Zagreb með marki á 79. mínútu. Ásgeir Sigurvinsson náði sér ekki á strik í leiknum og þulur vestur- þýska sjónvarpsins sagði að hann hefði leikið jafnilla og gegn Karls- ruher um síðustu helgi! Sigurkvöld þýskra Öll vestur-þýsku liðin unnu í Evr- ópumótunum í gærkvöldi. Bremen vann glæsilegan útisigur gegn Celtic í Glasgow og veröskuldaöan miðað viö gang leiksins. Thomas Wolter skoraði sigurmarkið úr góðri skyndi- sókn, 0-1, á 57. mínútu. Köln skoraöi tvisvar á síðasta korterinu og vann Rangers, 2-0. Fyrra markið skoraöi Jansen með því að lyfta skemmtilega yfir Chris Woods af 20 metra færi. Bayern Munchen var heppiö að sigra tékkneska liðið Dunajska Streda 3-1 því Tékkarnir fengu upplögð færi til aö skora fleiri mörk. Frankfurt vann Sakaryaspor frá Tyrklandi örugg- lega, 3-1, en þar vakti athygli að af 18 þúsund áhorfendum voru 13 þús- und Tyrkir, flestir farandverkamenn sem búa í Frankfurt! • Samningarnir innsiglaðir með handabandi í gærkvöldi. Sigurður Lárusson, lengst til hægri, tekur í hönd Harðar Pálssonar, formanns Knattspyrnufélags ÍA, og Hörður Jóhannesson, lengst til vinstri, tekur í hönd Þorgeirs Jósefssonar gjaldkera. DV-mynd Sigurgeir sínum. Mikið áfall fyrir Anderlecht. Arnór haföi unniö geysilega vel í leiknum, oft sem aftasti maður, og einnig sprækur í skyndisóknunum. Er tvær mínútur voru til leiksloka náði Mark Wilmots, sem hafði komið inn á sem varamaður, að skora sigur- markiö með föstu skoti af stuttu færi. Þrátt fyrir ósigurinn í gærkvöldi eru möguleikar Anderlecht ekki úti. Góður leikur á heimavelli ætti að fleyta þeim áfram í keppninni og þar verður örugglega hart barist. • Club Brugge lék gegn Monaco frá Frakklandi í Evrópukeppni meistaraliða og sigraði 1-0. M’Buyu skoraði sigurmarkiö. Sigur Brugge var mjög verðskuldaður. • Guðný Gunnsteinsdóttir brýtur sér leið framhjá þremur grískum stúlkum og skorar annað tveggja marka sinna í leiknum t Dreux i gærkvöidi. Símamynd/Reuter Krislján Bemburg, DV, Belgíu: - Hinn litli heimavöllur KV Mec- helen var troðfullur af 18 þúsund áhorfendum og geysileg stemmning var þegar belgísku liðin KV Mec- helen og Anderlecht léku í Evrópu- keppni bikarhafa í gærkvöldi. Mec- helen, sem er handhafi Evrópubik- arsins, sigraði 1-0 og greinilegt er að mikil barátta er framundan í síðari leik liðanna. Strax í upphafi var hart barist og mátti hinn franski dómari Vaugrot sýna Keshi í liði Anderlecht rauða spjaldið eftir aðeins tvær mínútur og tuttugu sekúndur. Hann braut illa á einum leikmanna Mechelen, gaf honum olnbogaskot í andlitið. Þjálf- ari Anderlecht greip þá inn í leikinn og tók einn framlínumann And- erlecht út af og setti varnarmann í hans stað. Eftir það voru allir leik- menn Anderlecht í vörn ef frá era taldir Arnór og Krncevic en þeir voru fremstu menn og oft ekki nema um tuttugu metra frá eigin marki. Arnór reyndi oft að brjótast upp en var beittur mikilli hörku og sam- herja vantaði til að senda á. Er dóm- arinn flautaði til hálfleiks höföu þrír leikmenn fengið gula spjaldið og einn rautt. Síðari hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri, Mechelen sótti stíft en And- erlecht svaraöi með skyndisóknum. En 25. mínútan í síðari hálfleik átti eftir að verða afdrifarík. Arnór var illilega felldur og varö aö yfirgefa völlinn, studdur af tveimur félögum 59. íþróttaþing ÍSÍ á Egilsstöðum: Rætt um mótun íþróttastefnu til næstu aldamóta 59. íþróttaþing ÍSÍ, sem haldið var á Egilsstöðum 22.-23. október, lagði drög að mótun íþróttastefnu til næstu aldamóta í íþróttamálum. Stefnt verður að því að ná til þeirra sem ekki hafa sinnt íþróttum áður, eins og aldraðra, fatlaðra og mið- aldra. Einnig að auka þátttöku kvenna í öllum aldurshópum, auka þátttöku í eldri árgöngum 25-54 ára aldurshópsins, auka starfsemi fatl- aðra, hefja starfsemi fyrir hóp 55 ára og eldri, auka starfsemi barna yngri en 7 ára, draga úr fráhvarfi í hópnum 16-24 ára og yngri árgöngum 25-54 ára hópsins og fjölga íþróttagreinum. Bent var á aö nýr lífsstíll er að koma til þar sem íþróttaiðkun allrar fjöl- skyldunnar verður fastur og vaxandi þáttur í daglegu lífi fólksins. íþróttafræði á háskólastigi íþróttaþing samþykkti að vinna að því að tekin verði upp kennsla í íþróttafræðum á háskólastigi. Þingiö mælir með að íþróttakennurum veröi boðið upp á framhaldsmenntun ■á háskólastigi. Námið yrði á sviði endurhæfmgarbrautar í íþróttum fyrir hina ýmsu hópa eins og aldraða og fatlaða og þjálfunar- braut eins og sérhæfmgu fyrir þjálf- ara innan einstakra íþrótta- greina. Þarna fengju einnig tækifæri stúdentar og leiðbeinendur aö læra íþróttafræöi, t.d. íþróttasálar- og fé- lagsfræði, íþróttafjölmiölafræði, íþróttasagnfræði og íþróttarann- sóknir. Ferðaþjónusta íþróttahreyfingarinnar íþróttaþing samþykkti aö vinna áfram að undirbúningi sérhæförar ferðaþj ónustu íþróttahreyfingarinn- ar. Sundsamband íslands lagði fram tillögu í árslok 1987 þess efnis að skipuð verði nefnd á vegum ÍSÍ að kanna þörfina á ferðaþjónustu fyrir íþróttahreyfinguna. Nefndin lagði til að stofnuð verði ferðaskrifstofa fyrir íþróttahreyfinguna og taldi þingið nauðsynlegt að stofna ferðaskrif- stofu sem ynni að útboði á ferðum fyrir íþróttafélögin. íslenska glíman íþróttaþing lýsti yfir að íslenska glí- man væri þjóðaríþrótt íslendinga og að ÍSÍ og Glímusambandi íslands bæri að standa vörö um varðveislu hennar. Glímuíþróttm er eina íþróttagreinin á íslandi sem telja má séríslenska og er hvergi stunduð annars staðar í heiminum. Aðrar þjóðir eiga sér sín þjóölegu fangbrögð og líkjast sum þeirra íslensku glí- munni. Fræðimenn telja að uppruni hinna þjóðlegu fangbragða sé kom- inn úr bardagaíþróttum sem þróast hafi í skemmtanir meö tímanum. Glímusambandið hefur haldið nám- skeið í skólum þar sem 8000 börn hafa tekið þátt og hafa jafnt piltar og stúlkur tekið þátt í þessum nám- skeiðum. Þorsteinn Einarsson, fyrrv. íþróttafulltrúi, er að vinna að sögu íslensku glímunnar og hafa nú ís- lenskir glímumenn tekið upp sam- starf við félög áhugamanna um keit- nesk fangbrögð um sameiginlega keppni. RÆLIS íþróttaþing samþykkti að athuga möguleikana á því aö koma á fót rannsóknar-, æfinga og lækninga- stöð í tengslum við íþróttahreyfing- una. Stöðin á að nýta þekkingu í líf- eðlisfræöi, lífefnafræði og læknis- fræði í þágu íþróttamanna. Unnið verði að grunnrannsóknum á þoli, súrefnistöku lungna viö visst vinnu- álag, viðbragðssnerpu og styrk vissra vöðvahópa sem hægt er aö mæla auðveldlega með tækjum sem nú eru á markaðnum. Endurteknar mælingar gefa ákveðnar vísbending- ar til þjálfara og íþróttamanns um framfarir og gagnsemi mismunandi æfinga. Blóö- og veflarannsóknir auka ennfremur þekkingu á líkama íþróttamannsins sem má nýta til að ná betri árangri. Rannsóknastöðin gefur einnig möguleika á aö æfa grunn- og þrek- þjálfun með hjálp sérhæfðra æfinga- tækja í sérstökum tækjasölum. Æf- ingar fyrir styrk og snerpu valdra vöðvahópa með séræfingum af þessu tagi eru mikilsverðar fyrir flestar íþróttagreinar og höfuðnauðsyn fyr- ir sumar. Stöðin myndi einnig sinna íþrótta- lækningum eins og túlkun rann- sókna, ráðgjöf í sambandi við þjálf- un, slysavarnir, skoðun og mat áverka og meðferð þeirra. Sjúkra- þjálfarar eru einnig mikilvægir aðil- ar við fyrirbyggjandi meðferð, með- ferð minni áverka og endurhæfingu eftir aðgerðir. Þingið taldi æskilegast að stöðin yrði byggð í tengslum við æfmgabúðir íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Mörg verkefni framundan Mörg verkefni önnur eru fyrirhuguð hjá íþróttahreyfmgunni á næstu árum eins og íþróttahátíð ÍSÍ 1990, uppbygging íþróttamiðstöðvar ís- lands að Laugarvatni, fjórða áfanga byggingaframkvæmdar íþróttasam- bands íslands í samvinnu við ís- lenska getspá og byggingu íþrótta- og sýningarhcdlar vegna heimsmeist- arakeppninnar í handknattleik 1995. Fjölmennasta þingið Þingið var fjölmennasta íþróttaþing sem haldið hefur veriö og mættu þar 171 fulltrúi. Síðastliðna þrjá ára- tugi hefur þingið verið þrisvar haldið utan Reykjavíkur á ísafirði 1966 og á Akranesi 1976. Fjölgað var í fram- kvæmdastjórninni um tvo og er stjórnin nú skipuð níu mönnum. Stjórnin var öll endurkosin en auk þess tóku sæti þar Guðmundur Kr. Jónsson, trésmiður á Selfossi, form- aður Héraðssambandsins Skarphéð- ins, og Sigurður Jóakimsson, fyrrv. handknattleiksmaður í Haukum og lögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli, frá íþróttabandalagi Hafnarfjarðar. Fyrir voru í stjórninni Sveinn Björnsson forseti, Hannes Þ Sig- urðsson varaforseti, Friðjón B. Frið- jónsson gjaldkeri, Jón Ármann Héö- insson, Lovísa Einarsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir og Hermann Sig- tryggsson. í varastjórn voru kosin Geirlaug Karlsdóttir, Árni Þ. Árna- son, Ingimar Ingimarsson, Ólafur Jónsson og Ellen Ingvadóttir. -SÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.