Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1988, Qupperneq 10
10
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1988.
Utlönd
Sakharov í fram-
boð til þings
þær breytingar sem orðið hafa á sov-
éskum stjórnmálum síðan Sakharov
var látinn laus úr útlegð 1986, sam-
þykkti ráöstefna sex hundruð
menntamanna og baráttumanna fyr-
ir mannréttindum að lýsa Sakharov
frambjóðanda í kosningunum, en
hópurinn mun hafa áhrif í þeim.
I yfirlýsingu ráðstefnunnar segir
að Sakharov hafa barist fyrir mann-
réttindum og fómaö sjálfum sér í
þeirri baráttu. Segir að hann hafi
unnið til þess að verða fulltrúi fólks-
ins á þjóðþinginu.
Ráðstefnan hvatti einnig tii þess að
annar frægur andófsmaður, Alex-
ander Solzhenitsyn, sem nú býr í
Vermont í Bandaríkjunum, fái á ný
sovéskan ríkisborgararétt.
Þessi ákvörðun hópsins kom tíu
dögum eftir að sovéska vísindaaka-
demían kaus Sakharov í stjórn sína,
og sýndi þar með opinbera viður-
kenningu á manninum sem kallaður
er „faðir mannréttindahreyfingar-
innar í Sovétríkjunum".
Reuter
Nóbelsverðlaunahafinn Andrei Sak-
harov, sem eyddi fyrri hluta þessa
áratugar í útlegð í heimalandi sínu
fyrir baráttu sína fyrir mannréttind-
um, hefur verið útnefndur frambjóö-
andi fyrir þingkosningarnar í apríl á
næsta ári.
í samþykkt, sem er táknræn fyrir
Andrei Sakharov ávarpar samkomuna sem útnefndi hann frambjóðanda í
þingkosningunum í april næstkomandi. Símamynd Reuter
Á þessum tíma er ágætisveður á Mallorca,
hitastig yfir 20 gráður. Óvíða er betra að
gera innkaup en í Palma.
Þar fæst tískuvarningur á góður verði.
ÞETTA ER TILVALIÐ FYRIR
SAUMAKLUBBA OG AÐRA HÓPA.
VERÐKR.
25.482
(2ístudíói)
i
# I
FERÐASKRIFSTOFA. HALLVEIGARSTÍG í. SlMAR 28388-28580.
LOFTBRUIN
Örstuttar haustferðir fyrir þá sem
gleymdu að fara í sumarfrí og eiga eftir
að gera jólainnkaupin.
BROTTFARARDAGAR
4. NOVEMBER 8 DAGA BIÐLISTI
11. NÓVEMBER 8 DAGA11 sæti laus
18. NÓVEMBER 8 DAGA
lii-----|
Sovéska geimskutlan Bylur sést hér á skotpallinum í Baikonur. Hún er
geysilega lík bandarisku geimskutlunni. Símamynd Reuter
ti
p iM.Í; I I
I !
P
Geimskoti
frestað
Yflrmenn sovésku geimferðastofn-
unarinnar sögðu að geimskutlan
Bylur heíði ekki komist á loft á laug-
ardag vegna smávægilegra vanda-
mála. Hins vegar yrði gerð ný tilraun
eftir frí sem verður 7.-8. nóvember í
tilefni byltingarafmælisins.
Vladimir Gudihn, yfirmaður til-
raunadeildarinnar sem hefur með
geimskutluna að gera, sagði á laugar-
dag aö það væri eðlilegt að barn sem
væri að byrja að ganga hrasaði. Sagði
hann að ekki mætti gleymast að þetta
væru tilraunir.
Hann sagði að þrátt fyrir töfina
heföi komið í ljós að öll helstu tæki
og kerfi í skutlunni væru í góöu lagi.
Skutlan Bylur átti að fara á loft
aðfaranótt laugardags en tölvukerfi
stöðvaði talningu þegar tæpa mínútu
vantaöi upp á að henni yrði skotið á
loft.
Geimskutlan Byiur er ótrúlega lík
geimskutlu Bandaríkjamanna og er
ekki laust við aö grunsemdir um að
Sovétmenn hafi fengið ýmsa þætti í
hönnun sinnar skutlu að láni hjá
Bandaríkjamönnum vakni þegar
horft er á hana.
Reuter
Revilla frjáls
Pétur L. Pétursson, DV, Barœlona:
Iðnjöfurinn Emiliano Revilla, sem
hreyfing baskneskra aðskilnaðar-
sinna, ETA, hefur haft í haldi um
átta mánaða skeið, kom heim í gær-
morgun.
Við heimkomu Revilla hófst ein-
hver mesta leit sem lögreglan hefur
staöið í. Öllum leiðum frá Madrid
hefur veriö lokað og er leitað í hveij-
um bíl en taliö er líklegt að mann-
ræningjarnir reyni að komast undan
í sendiferða- eða vörubíl. Það sem
gerir leitina erfiða er að nú stendur
Emiliano Revilla veifar til vegfar-
enda og fréttamanna frá svölum
húss síns í Madrid í gær eftir aó
honum hafði verið sleppt lausum úr
haldi mannræningja. Með honum á
myndinni eru kona hans, Margarita,
og dóttir, Margarita.
Simamynd Reuter
yilr ein mesta ferðahelgi á Spáni en
mánudagur og þriðjudagur eru frí-
dagar hér í landi vegna allraheilagra-
messu. Þetta eru endalok einhvers
lengsta mannráns sem sögur fara af
á Spáni.
Emiliano Revilla var rænt fyrir
átta mánuðum og kröfðust mann-
ræningjarnir, sem töluðu í nafni
ETA, gífurlegs lausnargjalds. Fjöl-
skyldu iðnjöfursins tókst að nurla
saman fyrir lausnargjaldinu sem var
um 800 milljónir peseta eða um 250
milljónir íslenskra króna.
Stjómvöld á Spáni voru ekki beint
hrifin af því aö hryðjuverkasamtökin
skyldu geta hagnast svo mjög á
mannráni og lögðu blátt bann við því
að lausnargjaldið yrði greitt. Til að
tryggja það að lausnargjaldið yrði
ekki greitt var fylgst með hverju fót-
máh ættingja Revilla.
Fjölskyldan reyndi að greiða lausn-
argjaldið á laun í París en stjómvöld
komu í veg fyrir það og gerðu féð
upptækt.
A dögunum bárust þær fréttir aö
ETA hefði fengið í hendur um 1000
milljónir peseta eða um 270 milljónir
íslenskra króna. Fjölskyldunni hafði
aftur tekist að nurla saman fyrir
lausnargjaldinu sem nú hafði hækk-
að verulega. Stjómvöld töldu það
hins vegar af og frá að þetta hefði
tekist.
Heimkoma Revilla táknar hins
vegar hið gagnstæða og nú er bara
að sjá hvort stjómvöldum tekst að
hafa hendur í hári mannræningj-
anna.