Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1988, Blaðsíða 16
16
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1988.
Spumingin
Ætlarðu að sjá kvikmynd-
ina í skugga hrafnsins eftir
Hrafn Gunnlaugsson?
Guðmundur Sigurðsson sjómaður:
Já, ég hef séð allar hinar myndirnar
hans og líkað þær vel.
Kristín Hallgrimsdóttir húsmóðir:
Nei, hans kvikmyndir eru ekki fyrir
minn smekk.
Sverrir Jónsson verkamaður: Nei, ég
hef ekki séö neina af myndunum
hans og langar ekki til að sjá þessa.
Tómas B. Ólafsson verkfræðingur:
Vonandi. Ég hef séð flestar myndir
hans og þykja þær mjög sérstæðar.
Þorbjörg Valdimarsdóttir kaup-
maður: Já, þaö ætla ég aö gera þótt
ég fari mjög sjaldaiTí bíó.
Lesendur
Hvalablástur enn
Stefnan óbreytt!
Haraldur Guðnason skrifar:
Þá er enn ein hvalahríðin gengin
hjá og olli ýmsum kvölum. Þetta
eigum við upp á hann Terigilmann,
þann þýska þrjót.
Þegar þetta kom uþp á sagði
Steingrímur, ráðherrann minn og
okkar allra, að vel kæmi til greina
aö stöðva hvaladráp, ef Tengil-
mann færi þá aftur aö kaupa af
okkur lagmetið. Jakob grét beisk-
iega sem von var, vegna vísind-
anna. Kom þá Jóhannes sem sann-
ur huggari og hafði ekki tölu á þeim
þjóðum sem kæmu næsta ár til að
teija hvali, ja&ivel Kanar líka, allt
í loftinu.
En sem þetta var að smella sam-
an, fékk Halldór tilfelli úti í París.
Hafldór er minn maður. Hann
minnir mig á eftirlætis söguper-
sónu mína, hann Bjart í Sumar-
húsum. - Bjartur sagði tii að
mynda þetta: „Ja, ég hefi nú satt
aö segja aldrei haft þaö tfl siðs að
leggja við hlustir, þegar þið stór-
mennin svokölluðu farið aö bera
hvem annan út á hræsibrekkur,
„Við sem nærumst á hval og fjallalömbum ...“ - Danska sjávarútvegs-
ráðherranum og fleirum boðið upp á léttsteikt og súrt hvalkjöt í hval-
kjötsveislu i Mývatnssveit i tilefní norrænnar fiskimálaráðstefnu, hald-
inni á Akureyri 1986.
það er sjaldan svo þokkalegt. Ég
skipti mér ekki af hvemig kaup-
maðurinn kann að lifa, og kemur
ekki mál við mig, meðan ég hefi
ekki yfir neinu aö kvarta."
Svo gaf Halldór út sinn boðskap:
- Stefnan er óbreytt. - Og þá sagði
Seingrímur landsfaðir og Stem-
grímur bændafaðir og allir hinir:
Já, kvótamálaráðherra, stefria okk-
ar er óbreytt.
Við, sem styðjum stjómarbræð-
inginn, tökum undir með Halldóri:
Höldum okkar stefriu, eða höfum
við framsóknarmenn nokkurn
tíma látið undan Kananum? - Við
skulum ekki vera með neinn æs-
ing, sendum „þeim grænu“ bréf. -
Þetta er bara illa upplýst auðvald,
eins og blaðið okkar segir.
Nú er líka komið í ljós, sem okkur
granaöi, að Tengilmann er græn-
metisæta, meira að segja þekkt
grænmetisæta, og aukinheldur
grænfriðungur. Við sem nærumst
á hval og fiallalömbum tökum ekki
mark á þeim sem éta gras.
Verðmunur milli verslana
„4345-2703“ skrifar:
Ég ætlaði að kaupa mér teppi sem
er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi
heldur verðmunurinn á mflli versl-
ana sem er ótrúlegur!
Ég fór að skoða teppi í Húsasmiðj-
unni og sá teppi (Imperial) sem kost-
aði 1.702 kr. fermetrinn. Ég var án-
ægður með það en skoðaði teppi við-
ar, meðal annars í Teppalandi við
Grensásveg. Þar sá ég alveg eins
teppi og það í Húsasmiðjunni en í
Teppalandi kostaði það 1.385 kr, fer-
meterinn.
Mig vantaði 80 fermetra og verslaði
ég að sjálfsögðu í seinni staðnum. í
Húsasmiðjunni hefði teppið kostað
kr. 136.160. í Teppalandi kostaði það
kr. 110.800. Mismunur er kr. 25.360.
Þetta er tæpast verjandi að mínu
mati.
„Vel stilltur bílmótor er eitt nauðsynlegasta atriðið f viðhaldi bifretða," seg
ir bréfritari.
Vöm í vélarstillingu
Sigurður Jónsson skrifar
Það var veriö að ræða í einu les-
endabréfi nýlega nauösyn þess að
halda bílum hreinum. Stundum
mætti sjá bíla sem væru svo óhreinir
að ekki sæist einu sinni í númerin.
- Annað og ekki síður mikilvægara
í viðhaldi bíla er að vélin sé í sem
bestu ásigkomulagi og valdi ekki
ökummönnum sjálfum og samferða-
mönnum í umferðinni og jafnvel
gangandi vegfarendum óþægindum.
Algengt er að sjá bíla sem spúa blá-
svörtum reyk aftur úr púströrinu
eða þá heyra óeðlilegan gang í bílvél-
um, þannig að hikstar og smellur í
þeim við minnstu hraðaaukningu.
Það eru áreiðanlega margir sem hafa
ekki áttað sig á því aö vel stilltur
bílmótor er eitt nauðsynlegasta at-
riðið í viðhaldi bifreiða. - Þetta upp-
götvaöi ég ekki fyrr en ég var búinn
aö eiga nokkra bíla og hafði þá yfir-
leitt ekki farið með þá í vélarstillingu
fyrr en brýna nauðsyn bar til, þ.e.
vélin farin að hiksta, vera sein í gang
eða ganga skrykkjótt.
Oft var aðeins þörf einfaldrar still-
ingar eða að kerti voru úr sér geng-
in, kveikja slitin eða annað þessu
líkt. - Ég get trútt um talað, því það
er orðið að fastri reglu aö fara með
bílinn i vélarstfllingu, alltaf í byijun
vetrar og oftast á vorin einnig.
Ég var einmitt að koma úr slíku
eftirliti með bíhnn í vikunni. Ég hef
farið á hin ýmsu verkstæði í gegnum
tiðina. Einstaka verkstæöi eða fyrir-
tæki sérhæfa sig í svona vélarstill-
ingum og finnst mér öruggast að leita
til þeirra.
Eyjapeyjar
í ölvímu
Magnús Gunnarsson hringdi:
Við íslendingar skyldum fara
okkur hægt við aö dæma erlenda
íþróttamenn fyrir notkun vímu-
gjafa. Við erum sjálfir þekktir fyrir
notkun vímuefna á almannafæri,
ekki bara hér innaiflands, heldur
þekkjumst við úr víða erlendis,
sakir drykkjusiða sem óvíða tíðk-
ast annars staðar.
Mér finnst hins vegar skörin fær-
ast upp í bekkinn, þegar vímuefna-
notkun hér á landi er að festa sig
í sessi þjá íþróttamönnum okkar,
allt niður í unglingaliðin. Þaö er á
allra vitorði að þegar íþróttalið eru
á ferðalögum um landið og hafa
lokið keppni er slegið upp dansleik
að kvöldi og verða þá sumir þess-
ara kappa áberandi sakir ofurölv-
unar. - Þetta er ekki nein algfld
regla en mjög áberandi hjá þeim
sem í þessu lenda.
Nú hefur ölvun heils handknatt-
leiksliðs frá Vestmannaeyjum orð-
ið blaðamatur eftir leik þessa liðs
í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi
nýlega. Liðiö fékk mikiö af rauðum
spjöldum og þurfti að beita brott-
rekstri af leikvelli. Voru lýsingar
af leik og framkomu þessara pilta
ófagrar og mikil raun að svona
skulí komið málum hjá okkur.
Þetta mun eiga að kanna sérstak-
lega hjá handknattleiksdeild
íþróttabandalags þeirra í Eyjum,
en að sögn mun þurfa nokkra daga
til að komast til botns í málinu. Eg
tel að hér eigi samt ekki að fara
með löndum, heldur ræða málin
opinskátt, fremur en að þagga þau
niður eins og mér sýnist-af ýmsu
að eigi að gera. Þetta er alvarlegt
ástand í svo fámennu þjóðfélagi
sem okkar.
Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði,
skrifar:
Nú hefur hraðahindrunin, sem
sett var á veginn við Heiði fyrr í
haust, verið tekin burt og ný sett í
staðinn. Áður hentust menn upp i
loft ef ógætilega var ekið en nú
hendast menn fyrst til vinstri og
síðan til hægri.
Sett hafa verið steinkör á báðar
akreinar með ll metra millibili og
nú verða bílstjórar að taka létta
sveiflu á mflli þeirra. Hraöahindr-
unin, sem fyrir var, mæltist frekar
illa fyrir meðal bílstjóra stærri bíla.
Heyrst hefur aö þessi nýja hraða-
hindrun verði geymd í húsi í vetur
þegar snjóa tekur og hálka fer að
myndast.
Nýja hraðahindrunin sem sett hefur verið upp á veginn við Heiði.