Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1988, Page 20
20
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1988.
Þjálfaranámskeið
haustið 1988
Eftirtalin námskeið verða í þjálfaraskóla KSÍ í haust:
1. A-stig 4.-6. nóvember í Reykjavík
2. Almennt stig 11.-13. nóvember í Reykjavík
3. B-stig 25.-27. nóvember í Reykjavík
Þátttaka tilkynnist skrifstofu KSI, sími 84444, i síð-
asta lagi 4 dögum fyrir hvert námskeið.
Knattspyrnusamband íslands
Bókasafnsfræðingur
Bókasafnsfræðingur óskast við
bókasafn Sjómannaskóians
Á rishæð Sjómannaskólans hefur verið komið upp
aðstöðu fyrir nýtt bókasafn. Ætlunin er að byggja
upp safn bóka fyrir sjávarútveg, siglingar, tæki og
vélar. Safnið er ætlað eldri og yngri nemendum Stýri-
mannaskólans og Vélskóla íslands. Mjög áhugavert
starf fyrir bókasafnsfræðing. Uppl. í Stýrimannaskól-
anum, sími 13046, og Vélskóla Islands, sími 23766.
Mandeville
czdf=- i_czjr^iczDCZirvj
FRAMLEIÐENDUR HEIMSINS
FÍNUSTU DÖMU- OG HERRA-
HÁRKOLLA OG HÁRT OPPA
HAFA SÉRFRÆÐING ÞESSA VIKU Á
RAKARAST OFUNNI KLAPPARSTÍG, sími 12725;
hjá HÁRSNYRTINGU REYNIS, Strandgötu 6,
Akureyri, simi 24408 og í KLIPPÓTEKI, Hafnargötu
34, Keflavík, sími 13428.
Fréttir
Stofnun lagmetisiðju undirbúin á Egilsstöðum:
Þrjátíu manns í vinnu
hjá Eglu eftir eitt ár?
Sigiún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
Á Egilsstöðum var laugardaginn
15. október stofnað félag um lag-
metisverksmiðju sem hefur á
stefnuskrá sinni að athuga rekstr-
argrundvöll slíkrar verksmiðju á
Egilsstöðum og koma henni á fót
ef hagkvæmnikönnun verður já-
kvæð. í frumkönnun veröur mark-
aöur skoðaður, athugað hvað hag-
kvæmast væri að framleiða með
tilliti til framboðs á hráefni og í
hvaða formi framleiðslan yrði.
Félagið er i samstarfi við Iðn-
tæknistofnun og mun einnig hafa
samráð við Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins, Sölustofnun lag-
metisiðnaðar og Hafrannsóknar-
stofnun vegna möguleika á veiðum
nýrra tegunda. Leitað hefur verið
til Iðnþróunarsjóðs og fékkst já-
kvætt svar um áhættulán til undir-
búnings- og könnunarverkefna en
gert er ráð fyrir að frumathugun
kosti um hálfa milljón króna. Síöan
mun þurfa allt aö eina og hálfa
milljón til að hanna verksmiðjuna.
Stjórn verksmiðjunnar telur
raunhæft aö áætla að lagmetisiðjan
geti tekið til starfa eftir um það bil
eitt ár og veitt allt að 30 manns at-
vinnu.
í stjórn voru kosnir Einar Rafn
Haraldsson, Sveinn Jónsson, Ragn-
ar Jóhannsson, Valur Ingvarsson,
allir á Egilsstöðum, og Sigurður
Þórðarson á Seyðisfirði. Mjöghráð-
lega koma fulltrúar frá þeim opin-
beru aðilum sem áður voru nefndir
til skrafs og ráðagerða með stjóm-
inni.
Fyrirtækið hefur hlotið nafnið
Egla hf.
Höfrungur GK 27 við bryggju.
Fyrsta síldin til Akraness
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Síldveiöiskipið Höfrungur GK 27
kom með fyrsta síldarfarminn hing-
að til Akraness í fyrrakvöld. Höfr-
ungur var með 130 tonn af blandaðri
síld sem verður söltuð hjá Haraldi
Böðvarssyni & Co. Margir hafa beöið
eftir síldinni því hún hefur reynst
mörgum dágóö kjarabót og ekki veit-
ir af hér.
Slátrun á Selfossi:
Meðalþyngd með
betra móti
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Halldór Guðmundsson, sláturhús-
stjóri hjá Sláturfélagi Suöurlands á
Selfossi, bauö mér í kaffi nýlega í
matstofu starfsfólksins. Þar var vel
borið á borð og ágætis framsóknar-
kaffi. 170 manns vinna í sláturhúsinu
meðan slátmn stendur yfir en 70
manns allan ársins hring.
Að sögn Halldórs er búið að slátra
26 þúsund fjár á þessu hausti og er
það fjögur þúsund fleira en haustiö
1987. Meðalþyngd 14,61 kg og er það
með betra móti. Þyngsta dilkinn, 27
kíló, átti Gísli Haildórsson, Króki í
Gaulverjabæjarhreppi. Umdæmi
Halldórs sláturhússtjóra er frá
Botnsá í Hvalfirði og austur að
Þjórsá.
Öll kjötvinnsla, sem fer fram í slát-
urhúsi SS á Selfossi, er undir stjórn
Sævars Larsen kjötvinnslumanns.
Breytingar á ferð-
um Akraborgar
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Breytingar veröa á ferðum Akra-
borgarinnar milli Akraness og
Reykjavíkur frá og með miðjum nóv-
ember. Skipið fer þá í fyrstu ferö á
morgnana frá Akranesi kl. 8.
Þetta er gert til þess aö koma til
móts viö óskir þeirra mörgu sem aö
staöaldri ferðast með Akraborginni.
Ferðir skipsins verða eftir miðjan
nóvember þannig:
Frá Akranesi kl. 8, kl. 11, kl. 14 og
kl. 17.
Frá Reykjavík kl. 9.30 kl. 12.30, kl.
15.30 og kl. 18.30.
Akraborgin við bryggju á Akranesi.
DV-mynd Sigurgeir
íslendingar hafa ávallt haft gaman af því að bera þjóðfélag sitt saman
við önnur lönd einkum ef samanburðurinn er okkur í hag, miðað við
höfðatölu. Neytendasíða DV gerði, með aðstoð fréttaritara blaðsins í
fjórum löndum, könnun á verði nokkurra vörutegunda og algengra lífs-
nauðsynja. Litið var á verð á hlutum eins og mjólk, brauði, kjöti og
bensínlítra.
Könnunin var gerð í Reykjavík, Denver, Amsterdam, Miinchen og
Barcelona. Niðurstöðurnar eru um margt óvæntar og ekki sérlega hag-
stæðar fyrir velferðarríkið ísland. Verðlag virðist vera hér almennt marg-
falt hærra en annars staðar þekkist. Það á þó ekki við um alla hluti sem
teknir voru með í könnun þessari. Þannig borðum við íslendingar ódýr-
ari sykur en aðrar þjóðir virðast eiga kost á. Enda borðum við meira
magn af sykri en aðrir jarðarbúar, miðað við höfðatölu.
Könnunin verður birt í heild á neytendasíðu DV á morgun, þriðjudag.