Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1988, Blaðsíða 40
40
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1988.
Sviðsljós
DV
Ólyginn
sagði...
John F.
Kennedy
Kennedy yngri og Stefanía prins-
essa og munu nú vera aö skjóta
sig hvort i öðru - Rainier fursta
til mikillar ánægju. Eftir tveggja
ára samband viö Mario Oliver er
prinsessan búin aö finna „góðan
bita“. Vinkona hennar sagöi að
hún hefði bráönaö viö aö líta pilt-
inn í fyrsta skipti. „Strákurinn
(27 ára lögfræðingur) er gáfaður,
skemmtilegur, fallegur, ríkur og
frægur - hvernig á Stefanía að
geta staöist hann?“ segir vinkon-
an.
Pariö átti leynilega fundi fyrst.
Síöan kynnti John prinsessuna
fyrir vinum sinum í kvöldverðar-
boöi. John er búsettur í New York
en hún í Los Angeles þar sem hún
vinnu við upptökur á annarri
plötu sinni. Rainier vonar aö
„landshorna á milli-sambandiö“
þróist aö altarinu í Mónakó
Paul
Newman
er ein af fáum Hollywoodstjöm-
um sem hafa ræktað hjónaband-
ið. En hver æth uppskriftin sé aö
þessari „velgengni". „Konan mín
hatar kappakstur og ég þoh ekki
ballett," segir hann. „En við höf-
um komist aö samkomulagi. Fyr-
ir hvert skipti, sem hún fer á
kappakstur, fer ég á tíu ballett-
sýningar." Þaö er kúnst að halda
vogarskálum hjónabandsins í
jafnvægi.
Don King sem er einn frægasti skipuleggjandi hnefaleikabardaga í Bandaríkjunum hampar hér tveimur mestu hnefaleikurum allra tíma, Mike Tyson, t.v.,
og Muhammad Ali, t.h. Kapparnir hittust i Las Vegas á laugardag til aö fylgjast meö bardaga um heimsmeistaratitilinn í léttvigt.
Simamynd Reuter
Fjölmiðlamót í keilu fór fram
sunnudaginn 23. október í Keilusaln-
um í ÖskjuhUð. Mót þetta er árlegur
viöburöur en í þetta skipti var þaö
meö nýju sniöi því að í fyrsta skipti
var keppt í liðum. Hingað til hefur
mótiö veriö einstakUngskeppni.
Sex Uö mættu til leiks, tvö frá DV
og Stöö tvö en eitt frá bæöi Morgun-
blaöinu og Frjálsú framtaki. Keppt
var um það hvaða fjölmiðill ætti að
geyma forláta skjöld 1 eitt ár.
Menn höföu að sjálfsögöu æft af
miklum krafti fyrir mótið og fóru
sérstaklega sögur af því hve mikill
þróttur var í DV-mönnum sem nú
voru að taka þátt í fyrsta sinn. Veitti
enda ekki af því aö rúmri viku fyrir
keppni vissu fæstir úr DV-Uðunum
hvemig íþróttin fór fram.
Þegar í keppnina kom fór ekki milU
mála að teldð væri eftir því hve æf-
ingar DV Uösins hefðu skilaö miklum
árangri, því að b-sveit DV blandaði
sér strax í toppbaráttuna um þriðja
sætið. Var þaö ekki fyrr en í síðustu
umferð sem DV varð undan aö láta
og tapaði hreint geysilega naumlega
fyrir Frjálsu framtaki sem var vel
aö bronsverðlaununum komiö.
í öðru sæti varö Morgunblaðið, en
það verður að viðurkennast að a-
sveit Stöðvar tvö fékk ekki mikla
keppni í baráttunni um gullið.
Framkvæmd keppninnar var með
hinum mestu ágætum eins og við var
að búast. Ekkert fór úrskeiðis undir
ömggri stjóm Guðnýjar Guðjóns-
dóttur og Bjöms Jónssonar. Ekki
geta DV-menn kennt framkvæmd
keppninnar um árangurinn. Hallast
menn einna helst að því að ónákvæm
lyfjagjöf kvöldið fyrir keppni hafi
Hér sjást þátttakendur flestir samankomnir að iokinni keppni. Fremst eru sigurvegarar Stöðvar tvö, fyrir ofan þá
er Morgunblaðið með silfurverðlaunin sín og þar næst eru liðsmenn Frjáls framtaks með bronsverðiaunapening-
ana. Efst stendur hin vaska sveit DV sem á framtíðina fyrir Sér. Það er Björn Jónsson sem stendur til vinstri við
keppendurna, en hann stóð sig með mikilli prýði við kynningar og talningu stiga.
einhveiju ráðið um það að ritstjórn- Þarna voru einnig veitt verðlaun blaðinu og Steinunn Arnþrúður
arskrifstofur DV fylltust ekki af góð- fyrir hæstu skor karla og kvenna. Björnsdóttir frá Stöð tvö. Fengu þau
málmum að keppni lokinni. Þau hlutu Logi Eiðsson frá Morgun- glæsilegar keilur.
Fjölmiðlamót í keilu
Stykkishólmur:
400 gestir í 50 ára afmælishófi
Barbra
Streisand
er greinilega ekki hrifin af kóla-
drykkjum. Allavega neitaöi hún
tilboði Pepsi-fyrirtækisins uppá
næstum 200 milljónir fyrir að
koma í eins dags upptökur. Þaö
átti að auglýsa nýjan brúnan
drykk. „Svona lagað myndi skaða
feril minn, auk þess skemmast
tennur af kóladrykkjum," segir
Barbra. Einhver hefði nú tekið
sénsinn. Það hefði allavega verið
hægt að kaupa sér góm ef tenn-
urnar færu að líta út eins og
brunnið indíánaþorp.
Róbert Jörgensen, DV, Stylddshólini;
Ungmennafélagið Snæfell í Stykk-
ishólmi hélt upp á 50 ára afmæli sitt
sunnudaginn 23. október sl. Afmæl-
ishófið var haldið í Félagsheimili
Stykkishólms og slíkar eru vjnsældir
afmælisbamsins að í afmælið komu
liðlega 400 gestir nær og flær en flest-
ir aö sjálfsögðu úr Hólminum.
Mjög var vandað til afmælisins af
hálfu félagsmanna. Búningar hðinna
ára voru til sýnis og rifluðu margir
upp minningar sínar á íþróttavellin-
um í hinum og þessum búningi. Þá
var uppsett sýning á leikjaskrám,
sem gefnar hafa verið út gegnum tíð-
ina ásamt mjög glæsilegri ljós-
myndasýningu, þar sem félagar
Snæfehs á síðastliðnum 50 árum
höfðu náðst á filmur í leik og starfí.
í tilefni afmælisins var hið glæsileg-
asta afmæhsrit gefið út og það eitt
út af fyrir sig var stórvirki því að
nú er búið að skrá kjamann úr sögu
félagsins fyrir næstu kynslóðir.
Aöalræðuna í afmælinu flutti
formaður SnæfeUs, Pálmi Frímanns-
son. Ræöa hans flallaði að hluta um
fortíð og nútíð en einnig var honum
tíðrætt um framtíðina. Margir rifl-
uðu upp minningar sínar í störfum
með félaginu í lengri eða skemmri
tíma.
Góðar afmælisgjafir
Félaginu bámst margar góðar gjafir.
Þar á meðal var peningagjöf frá
Stykkishólmsbæ að upphæð kr. 100
þúsund. Þetta er smástaðfesting á
þakklæti bæjarfélagsins tíl þessa fé-
lags og alls þess, sem það hefur gert
fyrir æskufólk í Stykkishólmi. Þessi
upphæð er að sjálfsögðu umfram það
flármagn sem félaginu er veitt í ár-
legum flárveitingum.
Barnakór Grunnskóla Stykkis-
hólms söng undir stjórn Jóhönnu
Guðmundsdóttur og brasssveit
Lúörasveitar Stykkishólms lék undir
stjóm Daða Þórs Einarssonar. Þess-
um skemmtikröftum var mjög vel
tekið. Meðan á ræðuhöldum stóð
nutu gestir góðra veitinga. Kaffi, öU
og kökum voru gerð góð skfi meðan
magar leyfðu.
Kynnir á afmæUshátiðinni var
Davíð Sveinsson, varaformaður
Ungmennafélagsins SnæfeUs. Þetta
var góð og heUbrigð skemmtun fyrir
fólk á öUum aldri. Ekki var að sjá
neitt kynslóðabil í þessu afmæli.
Formaóur Snæfells, Pálmi Frímannsson, í ræðustól en hann flutti aðalræð-
una í afmælishófinu. DV-mynd Róbert