Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1988, Blaðsíða 41
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1988.
41
hefur ákveöiö að sækja um skiln-
að frá henni Renötu sinni. Hjúin
hafa veriö gift í fjögur ár, en síð-
ustu sex mánuðina hafa þau ekki
búið saman. Skilnaðurinn gæti
kostað poppstjörnuna tugi millj-
óna króna, því hann vildi ekki
að gerður yrði kaupmáli þegar til
hjónabandsins var stofnað. Elton
John hefur áhuga bæði á strák-
um og stelpum, og nú er hann
floginn úr hreiðrinu með kærasta
sínum. Renata er aftur á móti
komin heim til mömmu í
Munchen. Vinir stjörnunnar eru
ekkert hissa á að svona skuh
hafa farið, en segja jafnframt að
Elton hafi einlæglega viljað að
hjónabandið gengi upp. Sérstak-
lega langaði pilt til aö eignast
börn. En þaö verður bara að bíða
betri tíma.
Vanna White
er ein vinsælasta kona Banda-
ríkjanna fyrir starf sitt í sjón-
varpsspurningaleiknum Lukku-
hjólinu. Margan sveininn hefur
eflaust dreymt um að eiga hana,
en hvort núverandi kærasti
hennar, fasteignajöfurinn Ric-
hard Cohen, var einn þeirra skal
ósagt látið. Hitt er víst að sam-
dráttur Vönnu og Richards hefur
gert leikkonuna Lindu Evans bál-
reiða. Linda ætlaði sér nefnilega
að ganga að eiga kappann og öll
húsin hans. Og það sem gerir
þetta enn skemmtilegra er að
Vanna hefur áður verið með fyrr-
verandi kærasta Lindu. Sá var
George Santo Pietro.
Elton John
Billjarður
í Himnaríki
Kristján Einarsson, DV, Selfossi
Nýlega var opnuð á Selfossi bill-
jarðstofa sem er til húsa á efri hæð
ÁTVR-hússins. Hæð þessi, sem hýst
hefur ýmsa starfsemi, hefur vegna
stöðu gagnvart vínbúðinni verið
nefnd Himnaríki manna á meðal.
Billjarðstofan, sem nú hefur verið
opnuð, er með fjórum tólf feta borð-
um og fjórum tíu feta borðum.
Á þessum borðum er hægt að leika
svokallaðan snóker og pool. Þegar
pool er leikið eru notaðar kúlur með
tölustöfum.
Hvert borð kostar 500 kr. á klukku-
stund og eru leikmenn tveir til fjórir
við hvert borð. Þessa afþreyingu er
hægt að iðka frá kl. 15-22 virka daga
og 13-22.30 um helgar.
Eigendur Biljardstofu Selfoss eru
Bjarni Ó. Birkisson, Þórða Berg
Óskarsdóttir og Birkir Baldursson.
Mikill áhugi er fyrir því að leika billjarð á Selfossi. Hér eru ungir menn í
vigahug á öllum borðum.
AUKIN BlLAÞJÓNUSTA ESSO
. SJÁLFVIRKAR
R11AÞV0TTAST10ÐVAR
f REYKJAVÍK, HAFNARFIRÐI,
KEFLAVÍK, AKRANESI OG AKUREYRI
Við bjóðum nú fullkominn bílaþvott og bón í sjálfvirku
bílaþvottastöðvum á fimm stöðum á landinu:
Skógarseli, Breiðholti
Lækjargötu, Hafnarfirði Aðalstöðinni, Keflavík
Þjóðbraut 9, Akranesi Veganesti, Akureyri
Tjöruþvottur og bón kr. 475,-.
Olíufélagið hf
Sviösljós
Ólyginn
sagði. . .
Elisabeth Taylor
er á hraðri leið í hundana. Að
minnsta kosti óttast vinir hennar
það. Þeir segja að hún sé að gef-
ast upp á líflnu vegna þess að
henni takist ekki að losa sig úr
viðjum áfengisins og verkjataf-
lanna sem hún er sögð neyta í
ríkum mæli. Ekki bætti úr skák
þegar kærastinn hennar, millj-
arðamæringurinn, blaðaútgef-
andinn og mótorhjólatöffarinn
Malcolm Forbes, skipti á henni
og öðru glæsikvendi, Föru Dibu,
ekkju íranskeisara. Nákominn
vinur stjörnunnar segir að hún
sé mjög einangruð.
Stevie Wonder:
Ef ég gæti séð í tíu mínútur
„Ef ég bara gæti séð í tíu mínútur
væri líf mitt fullkomiö," segir Stevie
Wonder. „Mér finnst yfirleitt ekkert
óþægilegt að vera blindur. Ég hef
ekkert séð frá fæðingu svo ég veit
- hvort sem er ekkert hvernig það er
að hafa sjón. Þegar ég snerti á hlut-
um renna þeir upp fyrir mér. En ég
vildi geta séð börnin mín þrjú - bara
einu sinni.
Þegar tvö barna minna fæddust var
ég viðstaddur, ég fann þau fæðast.
Þetta var mín mesta lífsreynsla.
Börnin hafa hreytt mér meira en allt
annað og ég reyni að vera meö þeim
eins mikið og mögulegt er.
Stevie giftist aldrei barnsmæörum
sínum sem eru tvær. Hann býr held-
ur ekki með þeim. Stevie segir að
börnin hafi kennt honum þá tilfinn-
ingu að eiga einhvem að - hvað ástin
og væntumþykja í rauninni er. „Þeg-
ar ég sem mína tónlist hugsa ég um
börnin. Reyndar er tónlistin tjáning-
armáti fyrir hvernig mér líður
hverju sinni,“ segir hann.
Vill ekki sjón til frambúðar
Þótt þennan fræga tónlistarmann
langi meira en allt annað til að sjá
börnin sín, þá hefur hann litla löng-
un til að fá sjónina til frambúöar.
Einnig dregur hann í efa að honum
hefði áskotnast sama frægð ef hann
væri ekki blindur.
„Að vissu marki hef ég náö mínum
tilgangi," segir Stevie. „Ef ég gæti séð
núna myndi ég upplifa hluti sem ég
vil ekki sjá. T.d. langar mig ekkert
aö sjá hvernig maðurinn hefur
skemmt fegurð jarðarinnar og órétt-
lætið sem víða ríkir. Það er eins og
þegar maðurinn tekur eitt stórt skref
fram á við, er eins og hann taki önn-
ur tvö aftur á bak.
Stevie var fyrirburi og fæddist 13.
maí 1950. Hann var hafður í súrefnis-
kassa til að bjarga lífi hans. En of
miklu súrefni var dælt inn í kassann
sem orsakaði að hann missti sjónina.
Þegar ég var barn reyndi ég að láta
ekki sjónleysið virka sem fötlun því
ég þekkti ekkert annað. Ég tók þátt
í leikjum, hjólaði á reiðhjóli og klifr-
aði í trjánum meö vinum mínum. En
fólk hefur rangar hugmyndir um
blint fólk. Við erum ekki hjálparlaus.
Og ég leik tennis - það eru til tennis-
boltar sem gefa hljóðmerki."
Þótt söngvarinn sé mjög sjálfbjarga
finnst honum synd að geta ekki keyrt
bíl. Tímaskynið er heldur ekki hans
sérgrein því honum er illmögulegt
að greina á milli dags og nætur. En
hann skortir ekki aðstoðarmenn.
En nú stendur Stevie Wonder í
stórræðum. Um þessar mundir vinn-
ur hann að því að veröa útnefndur
sem frambjóðandi til borgarstjóra
Detroit - kosningarnar fara fram
1992. „Við verðum öll að reyna að
gera heiminn betri. Það er svo mikiö
óréttlæti til. Mér er alvara meö því
að fara út í stjórnmál. Ég mun aldrei
hætta við tónlistina og held að það
sé möguleiki á að sameina þetta
tvennt.“
„Lif mitt væri næsta fullkomið ef ég gæti séð börnin mín aðeins einu
sinni,“ segir Stevie Wonder.