Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988.
Fréttir
Hættir Albert Guðmundsson við að fara til Frakklands?
Ég get ekkert um það
sagt á þessari stundu
- en mér er ekki sama hvemig farið er með Borgaraílokkinn, sagði Albert í morgun
Það er fullyrt af þeim sem gerst
þekkja til að Alþert Guðmundsson
muni hætta við að gerast sendiherra
í Frakklandi vegna þess sem gerst
hefur í Borgaraflokknum eftir að
hann lét af formennsku.
„Ég get ekkert um þetta sagt á þess-
ari stundu en mér er ekki sama
hvemig Borgaraflokkurinn fer eða
hvað um hann verður, hvort hann
liðast í sundur. Ég get ekkert við því
sagt ef einhverjir flokksmenn vilja
fara inn í eitthvað annað en flokkur-
inn var stofnaður til en mér er ekki
sama um hvernig flokkurinn fer. Ég
átti alls ekki von á svona meðferð,
hvorki á flokknum né sjálfum mér,
daginn eftir að ég lét af formennsku.
Það leit þannig út fyrir mér að ég
skildi eftir samstæðan flokk með sjö
þingmönnum, algerlega skuldlausan
og ég hélt að hann ætti framtíð fyrir
sér. Mér er það því ekkert ánægju-
efni að sjá hvernig þingmennirnir
fara í allt aðra átt en samþykkt hefur
veriö í flokknum. Ég stofnaöi þennan
flokk og hélt að með mér væri fólk
sem ég gæti treyst. En spurningu
þinni um hvort ég' hætti við að fara
til Frakklands get ég ekki svarað á
þessari stundu,“ sagði Albert Guð-
mundsson i samtali við DV í morgun.
Þá er þess að geta að í kvöld er
aðalstjórnarfundur í Borgaraflokkn-
um. Þótt Albert hafi skilað for-
mennskunni til Júlíusar Sólnes með
bréfi á dögunum getur hann enn aft-
urkallaö það og verið áfram formað-
ur flokksins. Það gæti því orðið sögu-
legur aðalstjómarfundur hjá flokkn-
um í kvöld.
-S.dór
Sjöfn Sigurbjömsdóttir skólastjóri:
Kæran er liður í
ófrægingarherferð
„Þessi kæra, sem menntamálaráð-
herra Svavar Gestsson nefnir í við-
tali við DV í gær, er liður í þeirri
ófrægingarherferö gegn mér sem sett
var í gang strax í vor þegar mér var
veitt staða skólastjóra við Öldusels-
skóla. Allt sem segir í kærunni eru
ósannindi - sem ég mun gera
fræðsluyfirvöldum grein fyrir. Ég
hef þegar gert fræðsluyfirvöldum
grein fyrir kæru um að ekki hafi
verið rétt staðið að boöun fundar í
kennararáði. Þar átti ég um að velja
að senda tuttugu og fimm börn heim
eða kalla á varamann á fundinn til
þess að kennsla félli ekki niður. Ég
valdi síöari kostinn. Mér er til dæm-
is borið á brýn í kaérunni að hafa lít-
ilsvirt starf mitt með því aö kenna í
tölvuskóla á þessu hausti. Þeim
rannsóknarblaðamanni sem getur
fundið þann tölvuskóla er heitiö góð-
um fundarlaunum. Meira hef ég ekki
um málið að segja aö sinni,“ sagði
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, skólastjóri í
Ölduselsskóla.
Eins og kom fram í DV í gær liggja
fyrir mál í menntamálaráðuneytinu
þar sem kvartað er vegna samskipta-
örðugleika við Sjöfn Sigurbjörns-
dóttur. Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra hefur sagt að hann
muni láta kanna réttmæti þeirra
ásakana sem Sjöfn hefur sætt.
-sme
Bjöm Omar Jónsson:
Ymis óleyst vandamál varðandi
bifreiðaskoðun á landsbyggðinni
„Það eru ýmis óleyst vandmál
varðandi bifreiðaskoðun úti á
landsbyggðinni og það er unnið að
því aö leysa þau núna. Þar verður
að taka hvert mál út af fyrir sig og
skoða sérstaklega. Við í stjórn Bif-
reiðaskoðunar Islands erum sam-
mála um þaö nú að koma þessu
fyrirtæki af stað og gera það sem
veglegast. Það er mikilvægast í
augnablikinu,“ sagði Björn Ómar
Jónsson, fulltrúi Bílgreinasam-
bandsins í stjórn Bifreiðaskoðunar
íslands hf., við DV.
Samkvæmt heimildum DV eru
skiptar skoðanir innan Bílgreina-
sambandsins, sem er hluthafl í Bif-
reiðaskoöun íslands, um framtíð-
arskipulag bifreiðaskoðunar í
landinu. Þar kemur meðal annars
fram það sjónarmíö að nýta ætti
heldur þau tæki og aðstööu sem
fyrir er í landinu í stað þess að fjár-
festa í dýrum skoöunarstöðvum.
Er það sjónarmiö þá ofarlega á
baugi aö verkstæðin annist að
mestu bifreiðaskoðun, sérstaklega
úti á landi. Mun verkstæðin ein-
ungis vanta hin nýju bremsupróf-
unartæki til að geta annast viöun-
andi skoðun.
,J>að eru vissulega skoöanir um
fleiri en eina leið og ljóst að sama
lausnin dugir ekki alls staðar á
landinu. Stærsta vandamál bif-
reiðaskoöunar er hið strjálbýla
land ogmiklar vegalengdir. Nú eru
verkstæði aö byggjastupp víðs veg-
ar um landið og ég hef trú á að sú
uppbygging fari saman við upp-
byggingu Bifreiðaskoðunar íslands
þegar upp er staðið. En aðalmálið
er að koma fyrirtækinu í gang.“
-hlh
Akureyri:
Varð að aflífa tvær gimbrar
eftir hrottalega meðferð
- annað mál svipaðs eðlis er í rannsókn
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefur til rannsóknar mál þar sem
tveimur gimbrum og einni kind var
misþyrmt hrottalega á kynfærum.
Aflífa varð gimbramar vegna þeirra
sára sem ofbeldismaðurinn veitti
þeim. Sterkur grunur er um að sá
sem misþyrmdi dýrunum hafi notað
þau kynferðislega.
Lögreglan ver kölluð að íjárhúsi
við Lónsbrú, sem er skammt utan
Akureyrar, um hádegi á Þorláks-
messu. Brotist hafði verið inn í fjár-
húsið og dýrunum misþyrmt. Við
skoöun kom í ijós að verkfæri haföi
veriö notað tU að særa kynfæri
þeirra meö fyrrgreindum afleiðing-
um.
Rannsókn málsins er enn á frum-
stigi. Rannsóknarlögreglan hefur til
meðferðar annaó mál sama eðlis. Það
er um eitt ár iiðið frá því það kom
upp. í því tilfelli voru tvær gimbrar
aflífaðar eftir svipaða meðferð og
þær sem misþyrmt var fyrir fáum
dögum.
Þau hefðu nú mátt vera græn, sagði Halldór Ásgrimsson dómsmálaráö-
herra um nýju bílnúmerin þegar hann settist inn í embættisbil sinn austur
á Litla-Hrauni i gær eftir að bíilinn hafði fengið fyrstu númerin i nýja fastnúm-
erakerfinu. DV-mynd JR
Nýja fastnúmerakerfiö gengiö í gildi:
Fyrstu númerin á
ráðherrabíl í gær
I dag tekur nýja fastnúmerakerfið
á skráningu bíla gildi en nú um ára-
mótin tekur Bifreiöaskoðun íslands
hf. til starfa og tekur þá jafnframt
við skráningu og skoðun ökutækja
af Bifreiðaeftirliti rikisins sem lagt
verður niöur.
í gær voru fyrstu nýju bílnúmerin
skrúfuð á bíla austur á Litla-Hrauni
en þar á vinnuhælinu fer framleiðsla
nýju númeranna fram. Fyrsti bíllinn
sem fékk númer var embættisbíll
Halldórs Ásgrímssonar dómsmála-
ráöherra sem fékk númerið HP 741.
Ráðherra sagðist vera ánægður
með tilkomu nýju númeranna en ef
eitthvað væri þá væri honum helst
eftirsjá í setunni en nú hyrfi hún
endanlega. Halldór hefur verið með
Z á einkabíl sínum fram að þessu.
Framleiðsla á nýju númerunum er
komin á fulla ferð á Litla-Hrauni og
hafa nú þegar verið framleidd númer
á alla varnarliðsbíla á Keflavíkur-
flugvelli en frá og með deginum í dag
verður byriað að afgreiöa nýju núm-
erin á bíla. Hætt verður að framleiði
gömlu svart/hvítu númerin frá 0|
meö áramótunum. Nýju númerii
verður hægt að panta á bíla stra:
eftir áramótin og fást afhent hjá Bif
reiðaskoðun íslands gegn framvísui
gömlu númeranna.
Númer á venjulegum bílum eri
hvít með bláum stöfum en sendiráðs
bílar veröa með græn númeraspjöli
með hvítum stöfum og bílar varnar
liðsmanna veröa með spjöld mei
gulum grunnlit.
Með nýja númerakerfinu verðui
tekinn upp nýr háttur innköllunar;
bilum til skoðunar þannig að síðast
stafur í skráningarnúmeri segir ti
um þann mánuð sem bíll skal kom;
. til skoðunar en skoðun skal far;
fram eigi siöar en fjórum mánuðun
síðar. Þannig á bíll dómsmálaráð
herra að koma til skoöunar í janúai
en í siðasta lagi á að vera búið a<
skoða þann bíl í maí.