Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988.
7
Fréttir
Ríkisendurskoðun:
Allt of margir fangaverðir
næstum einn fangavörður á hvem fanga
Fangelsismál landsins fá sinn
skammt í skýrslu Ríkisendurskoð-
unar. Þar segir að fangelsismál hafi
verið í nokkrum ólestri á undanförn-
um árum. Húsnæðismál fangelsanna
eru í ólestri og einnig er stærö ein-
inga óhagkvæm frá rekstrarlegu
sjónarmiði, þar eð einingarnar eru
of smáar.
Ríkisendurskoðun vekur athygli á
því að eitt stórt deildarskipt fangelsi
fyrir allt landið gæti sparað veruleg-
ar fjárhæðir á ári í rekstrarakostnað.
Þá er bent á að vegna smæðar fang-
elsanna eru fangaverðir mun fleiri
en vera þyrfti ef rekstrareiningar
væru stærri. Lætur nærri að íjöldi
starfsmanna fangelsanna nálgist
fjölda fanga.
Einnig er húsnæði fangelsanna tal-
ið mjög óhentugt og er nefnt sem
dæmi Hegningarhúsið við Skóla-
vörðustíg.
Þá er vakin athygli á kostnaði
vegna framkvæmda við Tunguháls í
Reykjavík en fyrir nokkrum árum
var þar steyptur húsgrunnur að nýju
fangelsi. Framkvæmdum var hætt
þegar grunnur hafði verið steyptur
en kostnaður vegna verksins er met-
inn á rúmar 23 milljónir á verðlagi
ársins 1987. Það þaif ekki að taka
fram að þeir peningar hafa enn sem
komið er ekkert nýst til hagsbóta
fyrirfangelsismállandsins. ' -SMJ
Ulfar Eysteinsson matreiðslumaður ásamt aðstoðartólki á nýja staðnum sem hlotið hefur nafnið Hjá Lllfari.
DV-mynd KAE
Úlfar yfírtekur Hauk í Homi:
Athugasemdir ríkisendurskoöunar:
Dýrt að gera við
bfla á Suðurnesjum
Ríkisendurskoðun gerði athuga-
semd við mikinn viðgeröarkostnað
bifreiða lögreglustjóraembættisins á
Keflavikurflugvelli, enda sé svæðið
sem ekið er á ekki stórt og mestallt
bundiö slitlagi. Viöhaldskostnaður
þeirra þriggja bifreiða sem viðhalds-
frekastar voru á árinu var samtals
3.720.000 krónur eða að meðaltali
1.240.000 krónur á hvern bíl. Telur
ríkisendurskoðun að viðgerðar-
kostnaður bifreiða embættisins sé
allt of hár og að nauðsynlegt sé að
taka þennan útgjaldahð til endur-
skoðunar.
Viö samanburð ársreikninga hjá
lögreglustjóraembættinu á Keflavík-
urflugvelli fyrir 1987 fer stofnunin
52.165.000 krónur fram úr heimild-
um. Meginskýringin er hækkun
launagjalda umfram það sem var
gert ráð fyrir.
Breytingar urðu á starfsemi emb-
ættisins vegna tilkomu sérsveita lög-
reglunnar. Ráðnir voru 9 nýir lög-
regluþjónar og í Leifsstöð var toll-
gæslumönnum fjölgað um 6.
-SMJ
Þróunarsamvmnustofhunin:
Fengur
Kostnaður Þróunarsamvinnu-
stofnunar íslands umfram íjárheim-
ildir 1987 varð 15.956.000 króna. Að
mati Ríkisendurskoðunar er megin-
skýringin á því hvers vegna farið var
fram úr fjárheimildum sú að ráðist
var í endurbætur á r/s Feng. Áætlan-
ir gerðu ráð fyrir að framkvæmdir
myndu kosta 5,5 til 6 milljónir en
heildarkostnaður fór yfir 20 milljón-
var dýr
ir.
Segir í skýrslu stofnunarinnar að
ekki hafi verið leitað tilboöa í verkið
og er þaö gagnrýnt.
Umframútgjöld stofnunarinnar
voru aðallega fjármögnuö með því
að ganga á sjóði stofnunarinnar sem
tilkomnir eru vegna ónotaðra fjár-
veitinga fyrri ára.
-SMJ
Skreiðarflök á matseðlinum
Þingfestingargjald:
Furðuleg gjaldtaka
fyrir Lögmannafélagið
Úlfar Eysteinsson veitingamaður
hefur tekið vínkrána Hauk í Horni,
að Hagamel 67, á leigu. Þar mun hann
reka matsölustað, sem sérhæfir sig í
fiskréttum. Hefur staðurinn hlotið
nýt't nafn og heitir nú Hjá Úlfari.
„Við leggjum áherslu á fiskrétti og
hvalkjötið verður á sínum stað,"
sagði Úlfar. „Þá verðum við einnig
með kjötrétti, en þeir verða fáir.
Raunar er ég að bíða eftir því að Kjöt-
vinnsla Jónasar komist í gang, því
ég get ekki tryggt gæði nautakjöts-
ins, nema það sé komið frá honum.
Salatbarinn verður á sínum stað, en
við munum einnig bjóða upp á mat
án hans, sem þýðir auðvitað lægra
verð. Við munum halda áfram með
ýmsar tilraunir. Nú er ég til dæmis
að láta verka fyrir mig skreiðarfiök
sem ég ætla að prófa. Niöurstaðan
af öllum þessum tilraunum er eigin-
lega sú að það eru gestirnir sem setja
saman matseðilinn, því ef þeir hrósa
einhverri tilraunanna sérstaklega,
fer hún beint inn á hann.“
Úlfar sagði að veitingastaöir ættu
fremur erfitt uppdráttar um þessar
mundir. „Þá er ég ekki að tala um
pitsustaðina sem selja aukaskammt
af lauk á 60 krónur á meðan kílóið
kostar 63 í heildsölu. Á þeim stöðum
er hráefniskostnaður 18% en á öðr-
um 38-40%.“
Úlfar rak áður veitingastaðinn Úlf-
ar og Ljón ásamt Leó Löve. Hann
hvarf frá þeim rekstri þar sem hann
gekk illa. „Ég er þó hvergi banginn
aö byrja á nýjum stað,“ sagði Úlfar.
„Ég er tilbúinn aö taka því þótt mán-
aðarlaunin verði lág í byrjun. Við
erum í áhættuhópi og vitum aldrei
hversu margir viðskiptavinir láta sjá
sig á degi hverjum. Það er einmitt
þetta sem er að fara með veitinga-
rekstur af þessu tagi.“
-JSS
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að þegar mál eru þingfest fyrir
dómi þarf sá sem þingfestir aö greiða
gjald sem var krónur 750 á árinu
1987. Þetta gjald skiptist þannig að
þingfestingargjaldið sjálft er 500
krónur og rennur það í ríkissjóð
samkvæmt reglugerð um dómsmála-
gjöld. En einnig er innheimt mála-
gjald til Lögmannafélags íslands að
upphæð 250 krónur.
Að sögn Sigurðar Þórðarsonar
vararíkisendurskoðanda þá virðist
ekkert lagaákvæði vera til sem heim-
ili þessa gjaldtöku fyrir Lögmannafé-
lagið. Því var ákveðið að gera at-
hugasemd við að þetta gjald væri
innheimt með þessum hætti. Dregur
reyndar ríkisendurskoðun í efa rétt-
mæti gjaldtöku málagjalds fyrir Lög-
mannafélag íslands.
-SMJ
Á MORGUN
KL. 20.30 í LAUGARDALSHÖLL
STYÐJUM STPÁKANA!