Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988.
11
Utlönd
Pólitísk og efnahags-
leg kreppa á Kúbu
Kúbanir eru þjóð í kreppu. Aldrei
síöan Fidel Kastró komst til valda á
eyjunni, fyrir þrjátíu árum, hefur
efnahagslegt og pólitískt ástand þar
veriö jafnslæmt og núna, segir í
fréttaskýringu Reuters.
Kastró hrakti einræðisherrann
Fulgencio Batista frá völdum
snemma í janúar 1959. Eyjarskeggjar
voru flestir ánægðir með fall Batista
og fyrstu tvo áratugina varð ekki
vart teljandi óánægju með Kastró.
Batista var mjög hallur undir
Bandaríkin og lét óátalið að banda-
rísk fyrirtæki rækju starfsemi á
Kúbu sem var í beinni andstöðu við
hagsmuni almennings. Aðalsmerki
Havana, höfuðborgar Kúbu, voru
spilavíti og fjörugt næturlíf.
Kastró breytti þessu, þjóðnýtti fyr-
irtæki og lokaði spilavítum. Sjálfs-
virðing Kúbana óx og þeir urðu á ný
herrar í eigin landi.
í fangið á Sovétríkjunum
Þegar Kastró komst til valda var
hann af mörgum talinn hófsamur
sósíalisti og reyndar af sumum kall-
aöur „sænskur krati'1. Kastró fékk
sáralitla hjálp í skæruliðatíð sinni
frá kommúnistaríkjum Evrópu og
Asíu og ekkert stjórveldanna átti
hönk upp í bakið á honum.
Andstaða Bandaríkjanna við stjórn
Kastrós varð til þess að Kúba fékk
síaukna aðstoð frá Sovétríkjunum
og á endanum varð landiö að sérstök-
um skjólstæðingi Sovétríkjanna í
Karíbahafmu og Suður-Ameríku.
Eftir að ríkisstjórn Kennedys
studdi hina misheppnuöu Svínaflóa-
innrás kúbanskra útlaga árið 1963
var ekki aftur snúið og Kúba varð
hluti af kommúnistaríkjunum.
Samhefdni þjóðarinnar
Svínaflóainnrásin og ögranir hins
volduga nágranna, Bandaríkin eru
aðeins 145 kílómetra frá Kúbu, gerðu
Kúbani samheldna og einhugur virt-
ist ríkja um framtíðarstefnuna í
veigamestum atriðum.
Ríkisstjórn Kastrós gerði það að
helsta baráttumáli sínu að útrýma
fátækt og ólæsi á eyjunni og varð vel
ágengt í þeim efnum.
Vinstri menn á Vesturlöndum litu
á Kúbu sem fyrirmynd að öfgalausri
þjóðfélagsþróun, frá eymd auðvalds-
samfélagsins í átt að réttlátum sósíal-
isma.
Það fréttist lítið af ofbeldisaögerð-
um ríkisins á hendur pólitískum
andstæðingum eöa minnihlutahóp-
um.
Það virtist allt í þessu fína í Ha-
vana.
Frumbýlisárin liðin
Miðstýrðar efnahagsáætlanir með
tilheyrandi ósveigjanleika gengu vel
þegar markmið efnahagsbúskapar-
ins voru einfold, eins og að útrýma
fátækt og ólæsi. Þegar Kúbanir urðu
bjargálna gætti vaxandi óþols með
báknið sem öllu stýrði.
Óþreyjan varð að andmælum sem
aftur var svarað með hertri ritskoð-
Kastró er Kúba og Kúba er Kastró.
En hve lengi?
un og oíbeldi af hálfu lögreglu.
Bandaríkin voru ekki eins ógnvekj-
andi og áður og það var ekki trúverö-
ugt þegar stjórnvöld kröfðust hlýðni
vegna hættunnar utanfrá.
Kastró fékk það staðfest árið 1980
að óánægja var vaxandi meðal hinna
10 milljón Kúbana. Það sumar var
veitt takmarkað ferðafrelsi til
Bandaríkjanna og á annað hundrað
þúsund manns notuðu tækifærið til
að komast frá eyjunni. Það þótt snjöll
hugmynd hjá Kastró að tæma í leið-
inni fangelsin af glæpamönnum og
láta Bandaríkjamenn taka við þeim.
Um hitt var ekki efast að eitthvað
varð að gera til að bæta hag Kúbána.
Óánægja landsmanna varð fyrrum
einræöisherra að falli og Kastró veit
hvaö það skiptir miklu máli að þjóð-
in sé að stærstum hluta sátt við sitt.
Takmarkaður einkarekstur
í kjölfar fólksstraumsins til Banda-
ríkjanna í byrjun áratugarins beitti
Kastró sér fyrir því að einkaeign og
einkarekstur yrði leyfður að ein-
hverju leyti.
Fólk gat núna eignast sitt eigið
húsnæði og selt það öðrum einstakl-
ingum á því verði sem samdist um.
Bændur fengu leyfi til að selja afurð-
ir sínar á markaði þar sem framboö
og eftirspurn réð verði.
Aukið svigrúm til einkareksturs
leiddi til þess að sumum græddist
mikið fé á meðan aðrir sátu i sama
farinu. Bændur með búsýslu og fjár-
málavit högnuðust margir hverjir
ævintýralega.
Einn bóndinn tvítugfaldaði árstekj-
ur sínar og hrísekrueigandi þénaði
stórfé á því að leigja annan vörubíl-
inn sinn.
Kastró var nóg boðið. Hann óttaðist
að ný eignastétt væri að myndast á
Kúbu og sú eignastétt yrði andsnúin
honum.
AftiíTfjvarf og óánægja
Kastro skar upp herör gegn frjáls-
um viðskiptum í maí 1986 og lokaði
landbúnaðarmarkaðnum. Hann var
harðorður í garð þeirra sem unnu
það eitt til saka að nota sér markaðs-
aðstæður sem ríkið skóp. „Byltingin
mun brjóta á bak aftur þessa síðkap-
ítalista," sagði Kastró.
Miðstýrður áætlunarbúskapur tók
viö og ekki leið á löngu þangað til
vöruskortur gerði vart við sig.
Svartamarkaðsbrask blómstraði og
daglega berast fréttir í fjölmiðlum
um handtökur á bröskurum.
Á sama tíma og Kastró herðir tökin
á samfélaginu eru Sovétríkin að
reyna að brjótast úr viðjum miðstýr-
ingar og staðnaðs hagkerfis. Enda er
það svo aö Kúbanir eru fíknir í so-
vésk blöð og tímarit sem fást keypt
hjá bóksölum á Kúbu. Það hljómar
undarlega að Kúbanir leita til Sovét-
ríkjanna um hugmyndir er fela í sér
meira frjálsræði en þeir sjálfir eiga
að venjast.
Fréttamaður Reuters hefur það eft-
ir evrópskum stjórnarerindrekum í
Havana að Kúbanir vilji fyrst og
fremst meira svigrúm til athafna og
tjáningar. Þeir vilji ekki leggja skipu-
lagiö sjálft fyrir róða heldur endur-
bæta það.
Á Kúbu ríkir Kastró og meðan
hann telur þjóð sína ekki geta höndl-
að frelsið á ábyrgan hátt fær þjóðin
ekki það frelsi sem hún vill. Spurn-
ingin er aftur á móti hvort Kastró fær
Öllu ráðið Öllu lengur. Reuter
BANDAWKIN
NORÐUR-
A TLANTSHAF
MEXlKÖFLÖI
MEXÍKÓ Havana
MIÐ-AMERÍKA
BAHAMAYJAR
Kevillaidgedo
(Mex.)
KYRRAHAF
CUpperton
(Fr.)
GUATEMALA
EL SALVADOR
-Tf
~ f IIOUA
’BELIZE
HOUNDLÍRAS
jamaiCa )
HAITI
ÐÓMINÍKANSKA
TÝÐVEI.DIÐ
Puerte-
Rico
KARlBAHAF
NIKARAGÚA
y—
COSTA-RJCA .
VESTUR-
INDfUR
PANAMA
Þegar yfir 100 þúsund Kúbanir fluttu úr landi þegar færi gafst var ekki um að villast að þjóðin var óánægð með
hlutskipti sitt. Myndin er af ameriskum skemmtibátum að flytja Kúbani til Bandarikjanna árið 1980.
Á sama tima og Sovétrikin opna sitt samfélag stendur Kastró fyrir skertu
athafna- og málfrelsi á Kúbu og leggur áherslu á kenningar frumherja
kommúnismans. Myndin er frá 1. maí hátiðarhöldunum i Havana i fyrra.
BJÓÐUM VIÐ
//
AFALLRI
OG KOPERINGU
DABtWll
LAUGAVEGI 118
VIÐ HLEMM
S. 27744