Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Page 13
J4ÍÐyí jK'líPAGUR. 28: iDESEMiBEH<1988.
%
Menning
Dauðs manns fingur, drauga-
kaka og leðurblökublóð
þeirra þegar afmæli eru skipulögð.
Svona afmælisboð eru líklega
draumur allra barna.
Stærsti ókostur bókarinnar er að
lesandinn velkist sífellt í vafa um
hvort hann er að lesa sögubók eða
handbók. Sé bókin eingöngu skrifuð
fyrir fulloröna væri rétt að sleppa
öllu lesmálinu um Betu sem vill
halda ævintýraveislu og mömmu
sem finnst þetta ágætis hugmynd,
bakar köku og útbýr búning; um
Halla sem vill halda sjóræningja-
veislu, litla bróður sem fmnst þetta
sniðug hugmynd og mömmu sem býr
til matinn. Sé bókin ætluð börnum
gætu ýmsar jafnréttisnefndir fett
fingur út í hlutverkaskiptingu for-
eldranna. Mamma saumar og bakar
en pabbi stýrir stöku leik (sérstak-
lega ef þeir eru vandasamir) og sting-
ur upp á því að börnin fái hamborg-
ara (sem mamma útbýr líklega).
Börnin eiga líka erfitt með að fram-
kvæma þessar hugmyndir ein og
gætu orðið fyrir vonbrigðum ef önn-
um kafnir foreldrar geta ekki aðstoð-
að.
Bókin Ég á afmæli í dag nýtist lík-
lega best sem fjölskyldubók og sem
slík gæti hún átt eftir að lífga hressi-
lega upp á samkvæmislíf yngstu kyn-
slóðarinnar - og þeirra eldri sem
ekki taka sig allt of hátíðlega.
Ég á aftnæli i dag!
Höf.: Björg Árnadótfir
Myndskreyting: Ragnheiður Gestsdóttir
Útg.: Mál og menning
Danskur Dekameron
HVERVANN?
991.442 kr.
Vinningsröðin 26. desember:
121-1XX-111-122
Bókmenntir
„Hvað er skemmtilegra en vel
heppnað afmæli?" er spurt á bakhlið
bókarinnar Ég á afmæli í dag eftir
Björgu Árnadóttur og Ragnheiði
Gestsdóttur. Flestir fullorðnir eiga
líklega minningar um afmælisdag-
ana þegar þeir voru börn; um eftir-
væntinguna og biðina sem hó(st
mánuði eða mánuðum fyrr; áætlanir
um leiki, kökur og kræsingar. Þær
minningar riQast upp við lestur bók-
arinnar Ég á afmæli í dag.
Styrkur bókarinnar felst einmitt í
hugmyndum. í henni eru skipulögð
afmæli sem snúast frá upphafi til
enda um ákveðinn leik eða þemu.
Þar má til dæmis finna ævintýraaf-
mæli, draugaveislu, íþróttarall, sjó-
kúlukapphlaup, blöðruglíma og íjár-
sjóðsleit.
Hún er prýðilega myndskreytt af
Ragnheiði Gestsdóttur og ljósmyndir
af afmælisréttum sýna og sanna að
þetta er hægt.
Uppskriftir að matseðlum fylgja og
þar sýnir höfundur ótrúlega hug-
kvæmni. Þó er líklega ekki ætlast til
að menn fylgi bókinni algjörlega,
heldur að hún hvetji börn og foreldra
til dáða og ýti undir ímyndunarafl
Undanfarna mánuði hafa birst sjö
lítil hefti, hvert sjö smásögur í
rammasögu. Þetta er metnaðarfullt
fyrirtæki, lítið forlag, Bröndum, fékk
sagnaskáldið Vagn Lundbye til að
hóa saman sjö skáldum í höll niðri á
Sikiley og skyldi hvert þeirra skrifa
eina sögu um sameiginlegt efni.
Skáldin voru valin með það fyrir
augum að fá goðsagnakenndar frá-
sagnir, segir mér Lundbye. Þetta eru
kunn skáld, en sum af öðrum sviðum
en smásagna. Þarna eru raunar
sagnaskáldin Peter Seeberg, Ulla
Ryum og Svend Áge Madsen, en auk
þeirra er ljóðskáldið Henrik Nord-
brandt og Inger Christensen er
kunnust fyrir ljóð. Maria Giacobbe
er ítölsk en gift danska ljóðskáldinu
Uffe Harder. Sögur hennar eru þýdd-
ar úr ítölsku en skáldin hittust í
heimabyggð hennar.
Rammafrásögn sagnanna samdi
Vagn Lundbye. Meginatriði hennar
er að martröð Kaupmannahafn-
arbúa hefur gerst, leki hefur komið
að kjamorkuverinu Barsebáck, sem
stendur á sænsku ströndinni
skammt frá Kaupmannahöfn (vegna
þessa ramma þótti ráð að hafa
sænskan höfund, Hans Alfredson,
með í hópnum!). Borgarbúar flýja í
allar áttir og lítill hópur verður eftir
á vélarvana skipi sem rekur um Eyr-
arsund. Þau taka hið forna ráð úr
bók ítalans Boccaccio í fjórtándu öld,
að segja hvert öðru sögur. Hvert hefti
sjö sagna gerist þá á einum degi,
hver höfundur velur eitt efni sem
allir íjalla um í einu hefti. Fyrst eru
frásögnum, sem allar eru draugasög-
ur, og gerast ýmist í Tyrklandi eða í
danskri sveit. Maria Giacobbe er líka
með mjög myndræna texta, með
sterkum andstæðum austurlenskrar
alþýðu og vestrænna lifnaðarhátta.
Inger Christensen tjáir sig í kín-
verskum öskjum sem hver er innan
í annarri og óheyrilega flókið sam-
spil þriggja kynslóða. Hans Alfred-
son segir nær samfellda dramatíska
ævisögu blinds píanóleikara, en ást-
arharmur er þráðurinn í henni. Hjá
Peter Seeberg ríkja líka ástamál, en
yfirleitt í léttari dúr, oft er þó eitt-
hvað mystiskt við þetta.
Það er sjálfsagt mikið vandaverk
að géra góða rammasögu sem tengi
allt þetta, enda er útkoman ekki til-
komumikil. Þessar sögur eru mis-
jafnar að gæðum en í heildina er
þetta athyglisvert safn og lærdóms-
ríkt að sjá viðbrögð sjö höfunda við
sömu verkefnum. Hverju hefti fylgja
tvær fallegar grafikmyndir, þó er
þetta tiltölulega ódýrt enda styrkt af
sterkum sjóðum.
VEISTU ...
að aftursætið
fer jafnhratt
og framsætíð.
SPENNUM BELTIN
hvar sem vlð sitjum
í bílnum.
yUMFEBOAH
RAO
&
12 réttir = 694.110 kr.
Fimmtán voru með 12 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 46.274,-
11 réttir = 297.332 kr.
196 voru með 11 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 1.517,-
ræningjaboð og jólasamkvæmi.
Reiknað er með að eitthvert efni sé
afmælisbarninu hugleikið, til dæmis
draugar, og allt í sambandi við boðiö
tengist því. Boðskortin eru eins og
draugur í laginu, gestirnir eru
klæddir eins og draugar, sagðar eru
draugasögur og leikið Morð í myrkri.
Matseðillinn er ekki af huggulegra
taginu: Dauðs manns fingur í eigin
blóði (pylsur, dýft í tómatsósu),
Draugakaka (skúffukaka í drauga-
líki), leðurblökublóð (kók) og eðlu-
drit (kartöfluflögur). í bókinni er
gerð búninga lýst og þar er fjöldi
leikja sem fá nafn eftir því afmæli
sem haldið er: Prinsessan í farigelsi,
Ragnheiður Gestsdóttir.
Adda Steina Björnsdóttir
sjö sögur um örlögin, svo sjö sögur
um morð, um að villast, um að halda
sér saman o.s.frv., síðasta heftið heit-
ir Sjö sögur um ekkert.
Það er mismunandi hve fast skáld-
in halda sig við efnið, enda er svigrú-
mið vítt. Merkilegra er að sjá sam-
felluna hjá hveijum höfundi um sig.
Svend Áge Madsen segir ættarsögu
sögumanns síns, eina kynslóð í
hverju hefti, með miklum ýkjum og
undrum. Henrik Nordbrandt kemur
á óvart með sterkum, myndrænum
Bókmenntir
Örn Ólafsson
Peter Seeberg, einn af höfundum
bókarinnar.