Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Qupperneq 18
18
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði. . .
John
Þegar maöur er oröinn marg-
milljóner og rúmlega þaö þá þarf
maöur ekki aö spara. Elton John
pantaöi nýlega heilan matsölu-
staö á Hollywood hóteli í besta
ílokki fyrir vini sína - þaö átti að
slá upp einkasamkvæmi. En hon-
um var tjáö að þaö væri bara allt
upppantað. Elton baö þá gestina
um að boröa annars staðar og
senda svo vinsamlegast reikning-
inn til sín. Það voru ekki margir
sem svöruðu þessu tilboði - þetta
gekk ekki. Svona eru mannleg
samskipti í Hollywood.
Larry
Hagman
- er nú í bobba ásamt bróöur sín-
um í Dallas þáttunum, því að
pabbi þeirra (sem ekki er dáinn)
er jafnvel að fara aö selja Ewing-
fyrirtækið. í raunveruleikanum
er Ilagman hins vegar sannfærö-
ur um aö hann yröi upplagt for-
setaefni í Bandaríkjunum á
næsta áratug. Fyrsta skrefiö á
leiðinni yröi borgarstjórastaöa í
heimabænum Malibu, þá ríkis-
stjóraembætti í Kalifomíu og svo
kannski í Hvíta húsiö 1996?
Daniel J.
Travanti,
sem leikur kaptein Furillo í Hill
Street-þáttunum, hefur um nokk-
urt skeið verið eftirsóttur pipar-
sveinn. En nú er hann búinn aö
finna kærustu. Þeir sem hafa séö
hana segja að hún sé ótrúlega lík
Veronicu Hamel (síöhæröa Joyce
Davenport) nema hvaö háralitur-
inn er annar. Travanti og Hamel
voru nefnilega vinsælt blaðaefni
áður fyrr þegar samband þeirra
var ekki bara á skjánum heldur
líka í raunveruleikanum. En nú
em þau bara vinir.
Ilsa Bonet ofsótt af
geðtrufluðum aðdáanda
Lisa Bonet er ofsótt af brjáluðum
aödáanda, sem hefur brotist inn á
heimili hennar og látið rigna yfir
hana bréfum og símahringingum, og
hún er dauðhrædd um aö hann geti
skaðað hana eða barniö sem hún ber
undir belti.
Lisa segir, skelfingu lostin, frá því
að þessi brjálæðingur hafi sent henni
klúr og óhugnanleg bréf í þrjú ár en
hún verður sífellt hræddari eftir því
sem fæöing barns hennar nálgast.
Lögreglan segist ekki geta handtekiö
þennan öfugugga fyrr en hann hafi
gert Lisu eöa barninu eitthvert mein!
Lisa og Lenny, eiginmaður hennar,
höföu hlakkað til meðgöngunnar og
komu barnsins en nú lifa þau í stöö-
ugum ótta. Lisa er dauöhrædd um
að þessi maður reyni að skaða bar-
niö meö einhverjum hætti.
Martröðin hófst 1986 þegar brjál-
æöingurinn braust inn í íbúð Lisu
og skömmu seinna fóru aö streyma
til hennar óhugguleg bréf þar sem
hann sagðist m.a. komast inn í íbúö-
ina hennar. Allar götur síðan hefur
Lisa verið hundelt af þessum manni
sem segist dá hana mest af öllum en
er hennar mesta martröö. Hún lifir
i stööugum ótta um aö hann komist
aö því hvar hún býr og einhvern
veginn tekst honum alltaf að grafa
það upp og hringja í hana eöa senda
bréf. Sálfræðingar segja aö sjúkleg
hrifning af þessu tagi geti auðveld-
lega brotist þannig út aö brjálæðing-
urinn fyllist ofbeldishneigð og ráðist
á átrúnaðargoð sitt.
Lisa Bonet á því ekki sjö dagana
sæla um þessar mundir, hún óttast
um líf sitt og barnsins sem bráöum
fæðist. „Ég er skelfingu lostin,“ sagöi
hún viö vin sinn og láir henni þaö
enginn.
Stallone og Dunaway
verðlaunuð
Þau voru broshýr, Sylvester Stallone og Faye Dunaway, er þau tóku á
móti verðlaunum fyrir leik sinn í kvikmyndum i Los Angeles þann 12. desem-
ber siðastliðinn. Þessi verðlaun kallast „Rudolph Valentino" verðlaunin og
eru veitt fyrir störf við kvikmyndir en þar hafa þau skötuhjú komið talsvert
við sögu. Sly bendir á einhvern i áhorfendaskaranum sem þeim þykir aug-
Ijóslega báðum mjög spaugilegur.
Gitte í felum
Brigitte Nielsen er farin að ná sér eftir veikindin sem hafa hrjáð hana að
undanförnu. Hvernig má annað vera í sólinni og blíðunni i Arizona? Þar
var þessi mynd tekin af henni og kærastanum, fótboltakappanum Mark
Gastineau.
Lisa og eiginmaður hennar, Lenny
Kravitz, hafa ráðið einkaspæjara til
að leita brjálæðinginn uppi.
Síðustu mánuðir meðgöngunnar
hafa verið martröð fyrir Lisu Bonet.
Styrkurinn afhentur. Frá vinstri: Katrin Ríkharðsdóttir og Guðmunda
Wium, fulltrúar gefenda, Margeir Vagnsson, framkvæmdastjóri félags-
heimilisins, Páll Ingólfsson, formaður stjómar félagsheimilisins, og Stef-
án Jóh. Stefánsson meðstjórnandi. DV-mynd ÁEA
Ólsarar áhugasamir um
félagsheimili sitt
- tæp 400 þúsund söfnuðust á skemmtun
Ámi E. Albertssan, DV, Ólafevflc
Síðastliðinn Fóstudag var fram-
kvæmdastjóra félagsheimilisins
Klifs í Ólafsvík afhentur styrkur
upp á 381.500 til tækjakaupa í eld-
hús félagsheimilisins. Það var hóp-
ur áhugamanna um uppbyggingu
félagsheimilisins sem afhenti
styrkinn. Þessi hópur hafði helgina
á undan staðið fyrir glæsilegri
skemmtun með borðhaldi og
skemmtiatriöum, sem unnin voru
af hópnum sjálfum, og síöan dans-
leikur á eftir. Áhugi bæjarbúa á
uppátækinu og þátttaka var fram-
úrskarandi og alls komu um 400
manns. Fór svo að þegar búiö var
aö gera upp alla kostnaðarliði voru
381.500 krónur efdr í beinan hagn-
að.
Þessir peningar voru svo afhentir
Margeiri Vagnssyni, fram-
kvæmdastjóra hússins, til kaupa á
leirtaui, uppþvottavél og frystiskáp
fyrir eldhús félagsheimilisins.
Styrkir með þessum hætti eru
eflaust fátíðir því það gerist varla
viða að einstaklingar taki sig sam-
an, ótilkvaddir, eyði löngum tíma
í æfingar og komi fram án nokkurs
endurgjalds.
Eddie Murphy á nýjum séns
Eitthvaö viröast kvennamálin hafa
skolast til I höföi Eddie Murphy,
leikarans fræga og stúkumannsins
góöa. Við sögðum frá því hér á dög-
unum að hann hefði stunið upp
bóijoröi við stúdínu nokkra I Was-
hington D.C. og að því bónorði
hefði verið tekið meö þökkum.
Hvaö var það svo sem við sáum í
virtu erlendu biaði nokkrum dög-
um síðar? Jú, Eddie Murphy með
einhverri allt annarri stúlku,
greinilega hinnhamingjusamasti.
Sú var tíöin aö karlstjama úr
Hollywood vogaði sér ekki að
hugsa um eymalokka fagurrar
stúiku, hvað þá meira, án þess að
biðja hennar fyrst. Nú er sá gamli
siður liðinn undir lok.
Af Eddie er það annars að frétta
að hann er að búa sig undir aö leika
Eddie Murphy og kærastan hans.
hnefaleikakappann Sugar Ray
Robinson í nýrri kvikmynd. En
ætli hann verði nú ekki fyrst aö
hlaða dálítið utan á sig.