Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Síða 19
ggfjí ffUOAan>nvoiM
MIÐVIKUDAGUR 28 DESEMBER 1988.
Skrípaleikur
stjórnmálanna
Þegar forsætisráöherra sat fyrir
svörum á Beinni línu hjá DV á sín-
um tíma var hann spurður hvort
ekki giltu sömu lögmál fyrir þjóö-
arskútuna og aðrar skútur, að ef
kjölfestuna vantar þolir skipið
enga ágjöf án þess að því hvolfi.
'Hann svaraði og sagði það rétt
vera og nefndi fjárfestingu í versl-
un og víðar sem væri reyndar allt-
of mikil. Hann talaði hins vegar
eins og hann hefði hvergi komið
þar nærri. Hann var í stjórn þá og
lagði sitt til í þessa skaðlegu yfir-
byggingu. - Ráðherrann verður aö
kannast viö hlut sinn í því máli.
Launalækkunaraðferðin
Forstjóranefndin, sem þeir í
stjórninni fengu til að gefa sér ráð,
var að sjálfsögðu hlutdræg, því
hver er skráður fyrir yfirbyggingu
þjóðarskútunnar? Ekki vildu þeir
viöurkenna að græðgi þeirra og
framkvæmdavilji væri meginorsök
vandans.
Rangar efnahagsforsendur á
verðbólguáratug (neikvæöir vext-
ir), allt ýtti þetta undir fjárfesting-
aræðið. Arðsemissjónarmið var
engin nauösyn, þar sem þessar
íjárfestingar voru aldrei greiddar
til fulls (ca 60% af raunvirði), þegar
raunvöxtum var komið á og verð-
bólgan keyrð niður með því að
lækka launin um 1/4.
Þannig er verkalýðurinn látinn
borga fjárfestingarveisluna, en þeir
sem sitja viö veisluborðið halda
áfram á sömu braut og finna enga
sök hjá sér. Samningsrétturinn er
tekinn af launþegum til að rétta
skútuna af. Það tókst einu sinni,
því ekki tvisvar?
Ég held að frelsi felist í þvi að
vera óháður vafasamri græögi og í
þessu landi er frelsi á hverfanda
hveli. Á að rífa yfirbygginguna og
hætta að styðja vonlaus fyrirtæki,
sem eru allt of mörg illa rekin, þar
sem bruðlið og svínaríið gægis.t alls
staðar út um götin?
Mér sýnist þið ráðamenn aftur
ætla að reyna aðferðina, að lækka
launin um 20-40% og búa þar með
til kjölfestu fyrir vonlausa yfir-
byggingu. Afleiðingin verður
eflaust landflótti, fyrst og fremst
hjá ungu fólki sem leitar sér fram-
tíðar erlendis, þar sem daglaun
duga fyrir nauðþurftum.
Á sömu hendi
Hjá siðuðum þjóðum í Evrópu,
sem við berum okkur oft saman
við, myndu vinnubrögð íslenskra
stjórnmálamanna þykja gróf og
fálmkennd og slíkum mönnum yrði
snarlega hafnað en hins vegar við
samanburð hjá vanþróuðu ríkjun-
um.í Afríku þættu þeir gjaldgengir
enda er stjórnarfyrirkomulag hér
dæmigert fyrir bananalýðveldi.
Við flytjum fyrst og fremst út
hráefni, lítt unnið, útflutningur er
í höndum sárafárra klíkubræðra
sem einnig eiga framleiðslufyrir-
tækin og raunverulegur auður er á
hendi 2-5% landsmanna. Löggjaf-
ar- og framkvæmdavald er á sömu
hendi, enda væri hægt að kæra
ansi margt af því sem hér þykir
sjálfsagt til mannréttindadómstóls
Sameinuðu þjóðanna. Við erum
nefnilega vön hinum og þessum
svíviröingum sem aðeins líðast
meðal vanþróaðra ríkja. Það er sko
ekki sama hvort um Jón eða séra
Jón er aö ræða.
Framagosafötlun
Enginn er ófatlaður því enginn
er fullkominn. Fötlun er til í ýms-
KjaUariim
Jóhann Vísir
Gunnarsson
veggfóðrari
um myndum, meðal annars
„framagosafótlun" sem þið stjórn-
málamenn eruð haldnir í svo mikl-
um mæli.
Stjómmálamenn sem kenna sig
við alþýðuna og þykjast veita henni
brautargengi eru kannski verst
haldnir þessari framagosafotlun.
Ólafur Ragnar Grímsson rokkaði
í eina tíð á milli flokka. Þegar hann
varð formaður í svokölluðum
verkalýðsflokki í stjórnarandstöðu
bullaði hann með áhersluþunga og
stórum orðum um lögleysu og svín-
arí að samningsréttur skyldi af-
numinn. - Nú, þegar hann er í rík-
isstjórn, ætti hann að standa við
fyrri stóryrði og sýna í verki að
hann sé vinur verkalýðsins.
En það er öðru nær, ekkert bólar
á vilja hans til að leiðrétta þessa
svívirðu.
Líklega er Borgaraflokkurinn
eini verkalýðsflokkurinn sem hægt
er að tala um í dag. Um leið og
hann sest í ráðherrastól er snúið
við blaðinu og ekki áhugi á neinu
öðru en að halda stólnum, neitað
að vinna með Borgaraflokki og þar
með stuðlað að áhrifaleysi hans,
veikir ríkisstjórnina, sem hann
sjálfur situr í og sem reyndar hang-
ir á bláþræði.
Annaðhvort er þetta persónulegt
gagnvart Albert eða sem er lík-
legra, að Ólafur sé bandamaður
Þorsteins Pálssonar og stuðli að
samruna í anda samtryggingar
flokkanna sem hér er æði fost í
sessi.
Það er launþegum dýrmætt að
verkalýðsarmur úr Sjálfstæðis-
flokknum skuli vera kominn í
Borgaraflokk og klofinn Sjálfstæð-
isflokkur er dýrmætari en svikin
loforð frá Ólafl. Sundraður Sjálf-
stæðisflokkur hlýtur að vera laun-
þegum til framdráttar og ef Borg-
araflokkur fengi að starfa í ríkis-
stjórn myndi hann ná meira fylgi
af Sjálfstæðisflokki. Ef í raun er
vilji fyrir því að veita launþegum
brautargengi þá blasir þetta við.
Jón Baldvin Hannibalsson á mat-
arskattinn sinn og ræðst á garðinn
þar sem hann er lægstur þegar
hann situr í stjórn.
Hver á ísland? Það vantar ekki
málskrúðið!
Það hvarflar stundum að manni
að hann telji sig eiga það allt einn.
Hann sem var ásakaður um að
leyna samráðherra sína réttum
niðurstöðum um fjárlagahalla sem
þingheimi fannst alvarlegt mál. En
á hverju áttuð þið von?
Háttvirtu pólitísku
atvinnukjaftaskar!
Er eitthvað merkilegra aö ljúga
að þinginu en alþjóð?
Mörg svikin kosningaloforð und-
irstrika þetta orðskrípi og ef það
festist í sessi þá hljótið þið að eiga
það skilið.
Ég get engan veginn komið auga
á stuðning ykkar við verkalýðinn
þegar þið sitjið nú í stjórn. - Þess
vegna teldi ég ráðlegt að þið létuð
af fleðulátum við verkalýð þessa
lands. Ég styð allt nýtt sem sundrað
getur samtryggingunni. Hún hefur
fengið sitt tækifæri og klúðrað því.
í ríkasta landi heims á Alþjóða-
bankinn þrjá fingur af hverjum tíu
sem leiðtogar okkar veðsetja fyrir
yfirbyggingu sem er 60% of stór. -
Sú yfirbygging sligar nú skipið sem
hrekst undan spjalli forstjóra og
framagosaformanna sem sjá aðeins
eina lausn - lækkun launa.
Hins vegar hefur Þorsteinn Páls-
son gert launþegum stórkostlegan
greiða og það fæst seint þakkað, en
það var reyndar óvart, í heiðar-
leikakasti rak hann Albert Guö-
mundsson 2 mánuðum fyrir kosn-
ingar. Fjármálaráðherra verður að
sýna gott fordæmi og mistök Al-
berts voru ófyrirgefanleg. En því
miður stóð heiðarleikakastið stutt
og hann sá ekki ástæðu til að fara
ofan í saumana hjá öðrum sjálf-
stæðismönnum.
Flestir vita að þetta var yfirskin.
En Albert var vinsæll hjá verka-
lýðsarmi flokksins og studdi á sín-
um tíma ríkisstjórn Gunnars Thor-
oddsen sem Geirs-arminum þótti
ekki nógu gott. Þorsteinn talar sem
Geir Hallgrímsson, áþekkur hon-
um í hugsunarhætti um stefnu
Sj álfstæðisflokksins.
Albert er baráttumaður og borg-
aöi fyrir rýtinginn sem hann fékk
í bakið. Hann stofnaði Borgara-
flokk meö stuðningi úr verkalýðs-
armi Sjálfstæðisflokksins og stuðn-
ingi úr öllum flokkum. Albert
stundar pólitík eins og fótbolta og
gróf brot í honum kalla á samúð
áhorfenda, enda ekki óskylt.
Atkvæði nú komu í stað dómara
og í rauninni hefur Albert veriö
trúr þeim upphaflegu grundvallar-
hugsjónum Sjálfstæðisflokksins að
hann væri flokkur allra stétta og í
því að viss jöfnuður þyrfti að ríkja.
íslendingar hafa staðið í þeirri
trú að þeir væru gáfumenn og öðr-
um fremri. Svo eru aðrir sem segja
aö menn verði þaö sem þeir éti.
íslendingar hafa lifað á þorski og
sauðkind í 1000 ár og virðast bera
þess merki, sauðþráir og þorsk-
tryggir í sínum gömlu, úr sér
sprottnu flokkum, og við fáum
samkvæmt því þá stjórnmálamenn
sem við eigum skilið.
Jóhann Vísir Gunnarsson
„Eg get engan veginn komið auga á
stuðning ykkar við verkalýðinn þegar
þið sitjið nú 1 stjórn. - Þess vegna teldi
ég ráðlegt að þið létuð af fleðulátum
við verkalýð þessa lands.“
BROSUMI
alltgengurbetur *
81
Vélavörður og matsveinn
Vélavörð og matsvein vantar á 150 tonna netabát
frá Þorlákshöfn. Uppl. í síma 98-33625 og
98-33644.
Happdrætti styrktarfélags
vangefinna
Vinningsnúmer
Bifreið, Subaru station, nr. 74654
Bifreið, Honda Civic, nr. 30327
Bifreiðir að eigin vali á kr. 500 þús„ nr.
40057, 43738, 46092, 51305, 55036, 59123,
81633, 90877.
Styrktarfélag vangefinna
ffl
FREEPORTKLÚBBURINN
NÝÁRSFAGNAÐUR
verður haldinn að Holiday Inn á nýársdag
1989 kl. 19.
Borðhald, skemmtiatriði, dans.
Aðgöngumiðar seldir hjá Baldri Ágústssyni, sími
31615.
Stjórnin
KENNARA-
HASKÓU
ÍSLANDS
Laust starf við
Kennaraháskóla íslands
Starf fjármálastjóra við Kennaraháskóla íslands er
laust til umsóknar. Helstu verkefni fjármálastjórans
eru að hafa í umboði rektors og skólaráðs umsjón
með fjárreiðum skólans og starfsmannahaldi, annast
gerð fjárhagsáætlana og sjá um framkvæmd þeirra.
Nánari upplýsingar um starfið gefur rektor skólans.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og störf
sendist til Kennaraháskóla íslands v/Stakkahlíð fyrir
20. janúar 1989.
Rektor
LAUSAR STÖÐUR
HEILSUGÆSLULÆKNA
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður heilsu-
gæslulækna:
1. Patreksfjörður H2, önnur læknisstaða frá 1. júlí
1989.
2. Þingeyri H1, staða læknis frá 1. mars 1989.
3. Siglufjörður H2, önnur staða læknis frá 1. júlí
1989.
4. Akureyri H2, ein staða læknis frá 1. apríl 1989.
5. Þórshöfn H1, staða læknis frá 1. mars 1989.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um læknis-
menntun og læknisstörf sendist ráðuneytinu fyrir 1.
febrúar 1989 á sérstökum eyðublöðum sem þar fást
og hjá landlækni. í umsókn skal koma fram hvenær
umsækjandi getur hafið störf. Æskilegt er að umsækj-
endur hafi sérfræðileyfi í heimilislækningum.
Upplýsingar um stöðuna veita ráðuneytið og land-
læknir.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
23. desember 1988