Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988.
ui'C i i's'fí^rryí'>Aí-. q í n /11 u v '-'tm'
Verðlaun DNG fyrir þyngsta fiskinn:
HéK að fast væri
í botni en dró
síðan 160 kg lúðu
Ægir Már Karason, DV, Suöumesjum;
„Ég hélt í fyrstu aö fast væri í botni
en svo fór rúllan smám saman að
draga inn færiö. Eftir 14 mínútna
baráttu tókst aö bera ífæru og tvo
gogga í fiskinn, stæröar lúðu, og ná
honum síðan inn. Þaö kostaði mikil
átök,“ sagöi Þór Ingólfsson en hann
dró stærsta fisk í sumar á DNG-
tölvuvindu og hlaut verölaun fyrir,
139 þúsund krónur. Verðlaunin voru
afhent fyrir stuttu á Hótel Kristínu
í Njarövík.
Þaö var 5. júlí í sumar sem Þór
veiddi lúðuna. Var á Þorsteini KE10,
28 tonna báti, 3-4 mílur frá Eldeyjar-
boða. Lúðan var 160 kg að þyngd, 210
sm á lengd og 28 sm þykk og var
stærsti fiskur sem veiddist á nefnda
tölvuvindu á tímabilinu 20. júni til
31. júlí. Lúðan var seld til Reykjavík-
ur á 30 þús. krónur. Um borð í Þor-
steini voru 6 rúllur sem hafa reynst
mjög vel.
DNG á Akureyri var með veiði-
keppni í sambandi við rúllurnar.
Fyrirkomulag var þaö að veiðimenn
sendu inn skýrslu um þyngd og
stærð fiska. Um tvö þúsund færa-
vindur eru í notkun hér á landi og
DNG hefur einnig selt þær til Fær-
eyja, Grænlands og Noregs og stefn-
an er að koma þeim á markað í
Kanada og Bandaríkjunum að sögn
Reynis Eiríkssonar, markaðsstjóra
DNG, sem afhenti Þór verðlaunin.
Þetta er fyrsta keppnin hjá DNG
en verður á hverju ári í framtíðinni.
Keppni var hörð nú í ár, 3 kílóa
munur á þyngstu lúðum. Sú næst-
stærsta var 157 kg, veidd út af Siglu-
firði og tók 2 klukkustundir að inn-
byrða hana.
Þór Ingólfsson, sem dró þyngsta fiskinn, tii vinstri, og Reynir Eiriksson.
Milli þeirra er DNG-tölvuvinda. DV-mynd Ægir
Stykkishólmur:
160 manns tóku virkan
þátt í aftanmessunni
- og kirkjugestir voru um 200
Róbert Jörgensen, DV, Stykkishólmi:
Aftanmessan í Stykkishólmi var
að þessu sinni haldin í félagsheimil-
inu 11. desember en síðustu tvö árin
hefur hún verið í nýju kirkjunni. Nú
er stöðugt unnið í henni svo ekki var
hægt að messa þar að þessu sinni.
Mikið var lagt í þessa messu. Kirkju-
kór Stykkishólmskirkju og barnakór
grunnskólans í Stykkishólmi sungu,
Lúðrasveit Stykkishólms lék ásamt
hinum skemmtilega bjöllukór tón-
hstarskóla Neshrepps undir stjórn
Kay W. Lúðvíksson. Nemendur úr
5. bekk grunnskólans lásu upp úr
biblíunni.'
Alls tóku 160 manns virkan þátt í
þessari fallegu messu og áhorfendur
hafa verið um 200. Sóknarprestur í
Stykkishólmssókn er séra Gísh H.
Kolbeins.
fPii!Sr’V
Nemendur í tónlistarskóla Neshrepps utan Ennis spila á klukkur undir stjórn Kay W. Lúðvíksson. Til vinstri má
sjá söngfólk úr kirkjukórnum. DV-mynd Róbert
27
Fréttir
Þessi galvaski hópur eru börn Margrétar Guðlaugsdóttur, umboðsmanns
DV á Tálknafirði. Þau hafa séð um að dreifa DV til hinna fjölmörgu áskrif-
enda DV á Tálknafirði undanfarin ár og unnið það verk af samviskusemi
og dugnaði. í sumar fór hópurinn til Mallorka fyrir blaðberalaunin og höfðu
mikla ánægju, og sólbrúnku, af þeirri ferð. Frá vinstri eru Björgvin, sem
er yngstur, þá Vignir, Steinar og heimasætan Guðbjörg. DV óskar fjölskyld-
unni gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og þakkar ánægjuleg sam-
skipti gegnum árin
Fegurðarkeppni Suðurlands:
Þrjár í úrslit
úr Arnessýslu
Sigriður E. Gunnarsdóttir, DV, Hverageröi:
Þrjár stúlkur úr Árnessýslu voru
valdar í úrshtakeppni fegurðarsam-
keppni Suðurlands í forkeppni að
Hótel Selfossi fyrir skömmu. Þær
eru: Aníta Jónsdóttir, Selfossi, Heiör-
ún Perla Heiðarsdóttir, Hveragerði,
og Margrét Birgisdóttir, Selfossi.
Keppnin á Selfossi var annar hluti
forkeppninnar á Suðurlandi. Áður
höfðu tvær stúlkur verið valdar, sem
fulltrúar Vestur-Skaftafellssýslu og
Rangárvallasýslu, eins og áður hefur
verið skýrt frá hér í blaðinu. Eftir
áramót verða svo valdar tvær stúlk-
ur frá Vestmannaeyjum. Það verða
því sjö stúlkur sem keppa um titihnn
Ungfrú Suðurland. Sú keppni verður
væntanlega að Hótel Örk í Hvera-
gerði laugardaginn 11. mars. Sigur-
vegari þar tekur síðan þátt í úrslita-
keppni um titilinn ungfrú ísland.
Þær keppa til úrslita í Hveragerði 11. mars. Frá vinstri: Anita, Margrét og
Heiðrún.
Stykkishólmur:
„Hassið“ á fullu
Róbert Jörgensen, DV, Stykkishólmi:
Leikfélagið Grímnir frumsýndi nú
í desember leikritið Hassið hennar
mömmu eftir Dario Fo í félagsheim-
ili Stykkishólms. Leiknum var frá-
bærlega vel tekið og ná þessir snjöllu
áhugaleikarar að skila vel hinum
glettnu og skemmtilegu uppákomum
skáldsins.
Leikendur eru sjö talsins. Leik-
stjóri og hönnuður leikmyndar er
Jón Svanur Pétursson en ljósameist-
ari Birgir Sigurðsson. Fyrirhugað er
að sýna „Hassið“ milh hátíðanna.
Daði Þór Einarsson, Aðalsteinn Þorvaldsson og Guðmundur Bragi Kjartans-
son i hlutverkum sinum. DV-mynd Róbert