Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988.
31
Lífsstíll
Fiskaklettur:
Algjört Hafnarfjarðarverö
„Hafnaríjöröur er orðinn frægur
fyrir lágt verö á ýmsum vörum og
við segjum stundum í gamni aö þar
séu Fjarðarkaup og Fiskaklettur með
forystu,“ sagði Einar Ólafsson, for-
maður björgunarsveitarinnar Fiska-
kletts, í samtali við DV.
Fiskaklettur stendur ásamt þrem-
ur öörum björgunarsveitum að inn-
ílutningi á SVD flugeldum. Einar
sagði að söluaöilar SVD væru trúlega
um 120 talsins. Það eru Kyndill úr
Mosfellsbæ, Sigurvon í Garðinum og
Þorbjörn í Grindavík sem standa að
þessum innflutningi ásamt Fiska-
kletti.
Höfuöbækistöðvar ílugeldasölu
Fiskakletts verða í Hjallahrauni 9 í
Hafnarfirði. Þar er verslað á 200 fer-
metrum og segja Fiskaklettsmenn að
þar sé stærsta flugeldaverslun lands-
ins. Auk þess verður selt í Fornubúð-
um við smábátahöfnina í Hafnarfirði
og í bakhúsi KRON við Strandgötu,
ekið inn frá Fjarðargötu.
Verðið taldi Einar aö yrði mjög
svipað og í fyrra.
Þá kostuöu fjölskyldupakkar
Fiskakletts frá 1.000 krónum og upp
í 2.500 krónur. Auk þessara hefð-
bundnu fjölskyldupakka verður boð-
ið upp á tæplega 200 tegundir af
ýmsu tundri í lausasölu. Þar verða
eins og víðar vinsælastar skotkök-
urnar sem til er mikið útval af.
[ökurnar virðast ætla að verða mjög vinsælar og víða er geysigott úrval af þeim.
Fram:
DV-mynd KAE
Kökur á kjarapöllum
Fram býður upp á sértilboð á Bo-
uquet, New Transmitter og Kaleidos-
cope skotkökum og tertum. Hér eru
á ferðinni eldri birgðir sem seldar
verða á afsláttarverði.
Fram kaupir sína flugelda frá KR
og Ellingsen. „Þetta er verðstöövun
miðað við í fyrra,“ sagði Jóhann Ól-
afsson hjá Fram í samtali við DV.
„Verðiö er trúlega betra en í fyrra
ef eitthvaö er því það er meira í pökk-
unum núna.“
Verð á fjölskyldupökkum frá Fram
er 950 krónur, 1450 krónur og 1950
krónur. Auk þess verður á boðstól-
um sérstakur súperpakki fyrir þá
sem eru mjög skotglaðir. Nýjar skot-
kökur eru á 200-1100 krónur og stak-
ir vænir flugeldar á 500-1.600 krón-
ur. Útsölustaöir Fram eru við Kringl-
una og í Framheimilinu í Safamýri.
-Pá
62 tegundir
af rakettum
KR-flugeldar hafa staðið að eigin inn-
flutningi um tíu ára skeið. Fjöldi fé-
lagasamtaka og íþróttafélaga um
land allt hefur samstarf við flugelda-
sölu KR.
62 tegundir ^f flugeldum á verði frá
6 krónum upp í 1.600 krónur eru á
boðstólum hjá KR. 53 gerðir af skot-
kökum eða tertum eru i boði og verð-
ið allt frá 60 krónum upp í 6.000 krón-
ur.
„Það halda fáir verðstöðvunina
eins vel og flugeldasalar," sagöi Lúð-
vík Georgsson, forsprakki KR-flug-
elda, í samtali við DV. Hann fullyrti
að vísitala flugelda hefði lækkað um
20% frá fyrra ári miðað við verðlag.
Að venju verða fjórar gerðir fjöl-
skyldupakka í boði hjá KR. Þeir eru
að jafnaði 25% ódýrari en stök
skreytitundur og auðvelda fólki valið
Barnapakki kostar 900 krónur.
Sparipakki kostar 1250 krónur. Bæj-
arins besti fæst fyrir 1.800 krónur og
fullyröa KR-ingar að betri kaup ger-
ist ekki á flugeldaeyrinni að þessu
sinni. Trölli er svo falur fyrir 3.300
krónur og er að sögn samsettur fyrir
þá sem sætta sig aðeins við alvöru-
flugelda.
Helstu viðskiptalönd Kr-inga eru
Kína og Vestur-Þýskaland. Kr-ingar
vilja vekja sérstaka athygli á risarak-
ettunum frá þýska fyrirtækinu Weco
sem KR-ingar hafa einkaumboð fyr-
ir. Þessar rakettur fást nú glæsilegri
en dæmi eru um áður og er fullyrt
að ekki séu'stærri rakettur á almenn-
um markaði annars staðar í heimin-
um.
Skotkökur eru til í miklu úrvali hjá
KR eins og öðrum. Alls eru í boði 53
mismunandi gerðir á verði frá 60
krónum og upp í 6.000.
Að venju veröur glæsileg flugelda-
sýning á vegum KR 29. desember á
félagssvæði KR við Frostaskjól. Sýn-
ingin hefst kl. 20.30.
Sölustaðir KR-flugelda eru á 5 stöö-
um. Höfuðstöðvarnar eru í KR-
heimilinu við Frostaskjól en auk þess
verða útsölur í JL-húsinu við Hring-
braut, í Borgartúni 23, við Hagkaup
í Skeifunni og í Kringlunni. Þess utan
verður hraðafgreiðsla á fjölskyldu-
pökkum á Lækjártorgi og ef til vill
víðar í borginni dagana 30. og 31.
des. Á öllum útsölustöðum er boðið
upp á kreditkortaþjónustu.
-Pá
Þessar súperbombur fást hjá KR.
DV-mynd KAE
Arftakar Ingólfs í Gróubúð
Slysavarnasveitin í Reykjavik,
sem er arftaki björgunarsveitar-
innar Ingólfs, hefur höfuðbæki-
stöövar fyrir flugeldasölu sfna í
Gróubúð á Grandagarði 1. Einnig
er selt í húsi Kattavinafélagsins að
Stangarhyl 2 á Ártúnshöfða og
einnig úr bil á planinu við Sjó-
mannaskólann. Slysavamasveitin
veröur og með fleiri bíla sem verða
á ferö um bæinn. Opið er í Gróubúð
og á Ártúnshöföa frá kl. 10.00 til
22.00.
Slysavarnasveitin býður hefð-
bundna flölskyldupakka og er sá
ódýrasti á 1.000 krónur. Þá kemur
pakki á 2.000 krónur og loks einn
á 3.000 krónur.
Kökurnar vinsælu eru seldar á
verði frá 150 krónum upp í 1.800
krónur. Litlar rakettur eru seldar
stakar á 25-250 krónur og þær
stærri á 350-1.500 krónur
-Pá
Allir sem selja fiugelda keppast við að bjóða fjölskyldupakka á sem bestu
verði. DV-mynd KAE
Kíkt í pakkana
Svokallaðir flölskyldupakkar njóta“
ávallt mikilla vinsælda. Þeir spara
mönnum vangaveltur og erfitt val í
innkaupum og eru auk þess mun
hagstæðari kaup í þeim miðað við
að kaupa flugelda í lausasölu.
Við gægðumst í nokkra flölskyldu-
pakka.
Bæjarins
besti frá KR
Veröið er 1.800 krónur.
9 litlar rakettur
2 meðalstórar rakettur
2 stórar rakettur
3 þyrlur
1 margföld þyrla
4 snældur
3 kúlublys
2 stór skotblys
3 litlar skotkökur
2 pk. hurðarsprengjur
4 innisprengjur
1 kínv. stjörnuljós
1 bengalprik
3 minni stjörnuljós
2 stokkar bengaleldspýtur
2000 króna pakki
frá Slysavama-
sveit Reykjavíkur
1 handblys
2 stjörnuljós
1 lítill jóker
1 stórt stjörnuljós
6 innisprengjur
2 litlir flugeldar
2 litlar rakettur
1 meðalstór raketta
4 litlir flugeldar
1 stór raketta
3 inniknöll
2 hurðarsprengjur
2 pk. rokeldspýtur
1 bombublys
4 standblys
2 ýlublys
1 lítil fallhlíf
2 litlar wild geese rakettur
1 Thunderbolt kaka
1800 króna pakki
frá Ellingsen
12 litlar rakettur
2 stórar rakettur
2 rakettur, milhstærð
1 handblys
2 bengalblys
2 jókerblys
5 kúlublys
2 gosblys
2 htil blys
3 pk. bengaleldspýtur
3 pk. stjörnuljós, lítil
4 pk. hurðarsprengjur
5 pk. innisprengjur
1 sól
í prófun DV á flugeldum þóttu
pakkar frá skátunum koma einna
best út en pakkinn frá KR, sem heit-
ir Bæjarins besti, fylgdi fast á eftir.
Hér verður ekki birtur innihalds-
listi úr pakka frá skátum því pakk-
arnir eru mismunandi uppbyggðir
eftir söluaðilum.
-Pá
Flugeldamarkaðurinn:
18 tegundir af tertum
Flugeldamarkaöurinn, sem er á
vegum einkaaðila, veröur opinn í
Skeifunni gegnt Hagkaupi frá 10 á ’
morgnana til 10 á kvöldin og á
gamlaársdag frá 10-16. Þar verða á
boöstólum 3 tegundir flölskyldu-
pakka á 1.500- 2.500 krónur.
Flugeldamarkaöurinn flytur inn
sfna eigin flugelda beint frá Kína
og verður auk þess meö allar gerö-
ir íslenskra flugelda. Meðalstórir
flugeldar eru seldir á20-120 krónur
stk. og íslenskir á 260-480 krónur.
í boöi eru 18 tegundir af tertum
og skotkökum á 200-900 krónur
auk gosa og handblysa af ýmsum
geröum.
-Pá