Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Qupperneq 32
32
mmm&mmwt
LífsstOI
í hugum íslendinga hefur sú hefð
skapast að halda áramótin hátíðleg -
þetta er hátíð þar sem ættingjar og
vinir sameinast líkt og á jólunum.
Hins vegar er nokkuð meiri umferö
á milli staða á gamlárskvöld heldur
en um jóhn, sérstaklega er það unga
fólkiö sem þarna sér tækifæri til að
hittast og halda upp á nýtt ár með
glensi og gamni og kveöja það gamla.
Á síðustu sex klukkustundum árs-
ins eiga landsmenn annríkt og fiestir
gera sér verulegan dagamun svo ekki
sé meira sagt. Oft er lagt á borð með
sérstökum hætti með knöllum,
blöðrum, borðum og kertum - allir
eru í sérstöku skapi. Yfirleitt eru all-
ir glaðir (frídagur daginn eftir) og
ætla sér að halda upp á nýja árið
langt fram á nótt.
Fastir siðir í siðlitlu landi?
Oft er talað um að siðir á íslandi
séu ekki mjög sterkir í okkar unga
Hermann Ragnar Stefánsson telur
að fólk eigi aö gera sér verulegan
dagamun um áramótahátíðarnar.
borgarsamfélagi - að grunnt sé á
„tradisjónum". En það er engum
blöðum um það að fletta að fastir sið-
ir hafa ríkt í áraraðir hér á landi á
gamlárskvöld - góður matur með
messunni í útvarpinu, farið út og
horft á brennur með börnunum meö
stjörnuljós að ógleymdu áramóta-
skaupinu í sjónvarpinu sem talað er
um langt fram á næsta ár. Um miö-
nættið er svo skálaö á meðan himin-
inn lýsist upp í miklu litskrúði flug-
elda. Aö þessu loknu sitja svo flestir
lengi frameftir viö spil og slá á létta
strengi.
íslendingar, sem hafa dvalið er-
lendis um áramót, hafa nefnilega
margir saknað þeirrar stemningar
sem ríkir hér á landi á gamlárskvöld
- ekkert skaup, lítiö um flugelda og
stjörnuljós og hangikjöt, hvað er nú
það? Siðir okkar íslendinga og venjur
eru nefnilega sterkari en sumir vilja
vera láta. í öllu falh fmnst öllum
mikilsvert að geta dvalið heima viö
þegar nýju ári er heilsað.
Dökkurdúkur og lýsandi
skraut
Hermann Ragnar Stefánsson, sem
kunnur er fyrir áhuga sinn á siðum
og venjum, segir að áramót séu hátíð-
leg stund sem eigi að halda upp á
með því að gera sér dagamun. „Að
kveðja gamla árið og heilsa því nýja
er hátíðleg stund í mínum huga,“
segir Hermann. „Það er um að gera
að leggja á borð í samræmi við
stemninguna.
Ég hef nú alltaf verið þeirrar skoð-
unar að fólk eigi að gera sér dagamun
þegar svo ber undir. Á þessum tíma
safnast fjölskyldan oft saman og situr
langt fram á nótt. Mér sýnist greini-
legt að fjölskyldur séu yílrleitt saman
á gamlárskvöld núna. Unga fólkið fer
gjarnan ekkert út fyrr en eftir mið-
nastti.
Áður fyrr held ég að fólk hafi
„rennt“ meira á milli staða til þess
að heilsa upp á ættingja og vini.
Þannig var t.d. eftirmiödagurinn á
gamlársdag notaður til slíkra heim-
sókna - reynt að stoppa bara stutt á
hverjum stað - en víða komið við.
En þetta hefur nú eitthvaö breyst,
kannski vegna þess að fólk er farið
aö forðast umferðina eftir að bílum
tók að fjölga svo mjög.
Ég tel aö síðustu sex klukkustundir
ársins séu hátið út af fyrir sig. Þá er
um að gera að borða góðan mat og
leggja t.d. á borð með dökkum dúk
með lýsandi skrauti - kertaljósum
og stjörnum. Svo fara börnin með
foreldrum sínum eða einhverjum
fullorðnum á brennur eftir matinn.
Flugeldum er svo skotið upp þegar
líða tekur á kvöldið og um miðnætt-
ið. Á okkar heimili hefur alltaf verið
skálað í kampavíni klukkan tólf og
sálmur sunginn með útvarpinu."
Heimilið
Eftir miðnætti
„Það er ailtaf gott að hafa eitthvað
á borðum eftir miðnætti eftir aö fólk
hefur staðiö úti við flugelda og
brennur í góðan tíma. Á þessum tíma
er allir orðnir svangir aftur enda sex
tímar frá því að síðast var borðaö.
Um miönættið er t.d. heppiiegt að
bera bara fram brauðmat með ein-
hverju heitu að drekka. Svo situr
fólk frameftir eins og venja er t.d.
við sjónvarpið.
Á nýársdag finnst mér við hæfi að
bera fram hangikjöt í hádeginu. Svo
er siður hjá mörgum að fara eitthvað
út á nýárskvöld og skemmta sér, því
margir staðir eru opnir á þessum
tíma.“
-ÓTT
Hver getur hugsaó sér betra kvöld en að borða góðan mat, horía á skaup-
ið, halda á stjörnuljósi með barnabörnunum og skjóta upp flugeldum, skála
um miðnættið og syngja „Nú árið er liðið“, fá svo marga kossa frá öllum
og sitja svo frameftir við spil og glens.