Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Blaðsíða 34
34
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER/L988.
LífsstHL
Saumaskapur:
Að spara háar
Þeir sem hafa gaman af því að
skapa eitthvað sauma sér gjarnan föt
fyrir jóhn eða áramótin, eða af hvaða
tilefni sem er. Ekki hvaö síst til að
geta veriö öðruvísi en aðrir. Sumir
notfæra sér hugmyndirnar úr tísku-
búðunum og sauma sér eins fatnað
og þar fæst og spara sér með því
háar fjárfúlgur. En sjálfsagt er ekki
öllum lagið að sauma á sig fatnað og
það gæti verið dýrt spaug að eyði-
leggja úrvalsefni.
I flestum þeim búðum sem versla
með fataefni fást einnig snið og ná-
kvæmar útskýringar á því hvernig á
að sauma fatnaðinn. Það ætti því
ekki að vera neitt erfiðara að sauma
á sig fatnað en að elda finan mat eft-
ir uppskrift. Allt sem þarf er þolin-
mæði - segja þeir sem til þekkja.
Aldrei eins mikið
keypt af efnum
Þeir búðareigendur sem DV hafði
samband við sögðu allir að mikið
hefði verið að gera hjá þeim nú fyrir
jólin og margir ætluðu greinilega að
spara sér peninga í öllu krepputal-
inu. Einn verslunareigandi hélt því
meira að segja fram að aldrei, fyrr
né síðar, hefði verið eins mikið að
gera hjá sér.
„Viö verðum mikið vör við það að
fólk fari fyrst í bæinn og skoði fatnað
og komi svo hingað með öndina i
hálsinum vegna verðlagsins og segist
frgmur ætla sauma á sig jólafatnað-
inn." sagði starfsmaður verslunar-
innar Virku í samtali viö DV. Hann
bætti því við að þaö væri óskiljanlegt
að fatnaður hefði hækkað þetta mik-
ið þar sem efnin hefðu lítið hækkað
á þessu ári. Hækkunin var mest á
síðasta ári.
Tíska
Lausleg verðkönnun
í lauslegri verðkönnun sem DV
framkvæmdi kom í ljós að heilmikið
má spara með því aö sauma sjálfur.
Það er að segja ef fólk telur ekki eft-
ir sér ánægjuna við saumaskapinn.
Margt ber að hafa í huga þegar slíkt
er framkvæmt, þar á meðal var Ijóst
að efnin eru misvönduð, misþykk,
misbreið, svo og eru mynstruð efni
ýmiss konar, að ekki sé talað um
gullofin kjólaefni, orðin mun dýrari.
upphæðir
Ekki var teljandi verðmismun að sjá
á milli búða.
Ein vinsælustu efnin á markaðn-
um í dag eru viscose, fínflauel sem
og ullarefni, auk ýmissa kjólaefna.
Viscose, um einn og hálfur metri á
breidd, kostar um 560 upp í 580 krón-
ur metrinn. Fínflauel, 90 cm breitt, í
Vogue kostar 1140 krónur metrinn
en í Virku kostar 110 cm breitt fín-
flauel 1338. í sömu búðum kosta al-
ullarefni, 150 cm breið, frá rúmlega
1000 upp í tæpar 1700 hundruð krón-
ur. Verðmismunurinn þar felst í mis-
munandi þykkt á efnum. Kjólaefnin
eru á mjög mismunandi verði, í
Dömu- og herrabúðinni kosta þau
allt frá 500 krónum upp í 1800 krón-
ur. Þau efni sem eru í hærri kantin-
um eru yfirleitt með flauelsáferð og
glitofin.
Venjulegt rifflað flauel er einnig
mikið keypt, algengt tvíbreitt flauel
kostar í Vogue 945 krónur, en í Virku
745. í Dömu- og herrabúðinni kostar
það ódýrasta 750 en það dýrasta 990
krónur. Helst var að finna verðmun
á hrásilki sem í Vogue kostar 1550
en í Virku frá 534 til 700 krónur tvi-
breitt. Joggingefni, sem eru yfirleitt
50% bómull og 50% terylene, kosta í
Dömu- og herrabúðinni 695, í Vogue
890 og í Virku 634. Bómullarefni eru
ódýrust og kosta frá 270 krónum upp
í 310 í Vogue, dýrari efnin eru
mynstruð. í Virku kostar þéttofið
bómullarefni 338, en Dömu- og herra-
búðin kvaðst ekki vera með bómull-
arefni á þessum árstíma.
-GKr
Ein af þessum hugmyndaríku spar-
sömu konum, sem viröast geta saum-
að nánast hvað sem er, heitir Oddný
Halldórsdóttir og er bókari að aðal-
starfi. Ekki er það verra í hennar til-
felli að geta saumaö þar sem hún býr
ein með barn og hefur auk þess mik-
inn áhuga á að klæðast eftir nýjustu
tískustraumum og vill hafa sinn sér-
staka stíl. Hún sagði í samtali við
DV að ef hún saumaði ekki fatnaðinn
sjálf ætti hún helmingi minna af fót-
um. Og í ár hefur hún þegar saumað
jólafötin á sig, dótturina og ungan
frænda sinn.
Reyni að finna
ódýrasta kostinn
„Ég reyni yfirleitt að komast í ódýr
efni, helst á útsölumörkuðum. Til
dæmis er Vouge alltaf með útsölu-
markaöi í kjallaranum á Skólavörðu-
stígnum. En ef ég fæ ekki efnin sem
mig vantar þar þá skoða ég víðs veg-
ar um bæinn og reyni aö finna ódýr-
asta kostinn."
Oddný saumaði á sig pils og bol og
segii hún að það hafi tekið hana hálfa
klukkustund að sauma pilsið sem er
tvöfalt úr næloni og kostaði heilar
500 krónur. Og hún var eina kvöld-
stund að sauma bolinn sem kostaöi
1100 krónur. Á frændann saumaði
hún hvorki meira né minna en leöur-
jakka upp úr tveimur gömlum leður-
jökkum sem hún keypti á flóamark-
aði Dýraverndunarfélagsins fyrir lít-
ið. Það tók hana þrjú kvöld að sauma
þann jakka og efnið í hann kostaöi
1100 krónur. Þess má geta að allir
geta saumað leður á sínar venjulegu
saumavélar. Allt sem til þarf er sér-
stök leðurnál sem vinnur á leörinu.
Jólaföt, bolur og pils, sem Oddný
saumaði á fáeinum klukkustundum
og kostaði heilar 1700 krónur.
Leðurjakkinn sem saumaður var upp úr tveimur gömlum leðurjökkum sem keyptir voru á flóamarkaði Dýravernd-
unarfélagsins. Það sem gildir í saumaskapnum er útsjónarsemi og Oddný er sannfærð um það að allir geti saum-
aðsem vilja. DV-myndirGVA
Jólafötin saumuð:
Efnið kostar oft ekki nema 1/6
af verði flíkuiinnar út úr búð
- segir Oddný Halldórsdóttir, saumakona með meiru
Auk þess saumaði hún buxur á pils og svokallaðar gammósíur. Sam- ódýrari kantinum jólafatnaðurinn
strákinn. Efnið í þær kostaði 700 tals kostaði efnið í það tæpar 700 hennar Oddnýjar þetta árið.
krónur. Á dóttur sína saumaði hún krónur. Hann verður því að teljast í
Spara mikið
- Saumarðu fyrir aðra?
„Nei, þaö geri ég ekki vegna þess
að þá fer ég að vanda mig svo mikið
að allt fer í steik. Hins vegar kemur
fyrir að mig langi hreinlega til þess
eins og þegar ég saumaði leðurjakk-
ann á frændá minn.“
- Spararðu mikið með því að sauma
sjálf?
„Já, það geri ég. Ég verð að segja
að stundum verð ég yfir mig hneyksl-
uð á verölaginu á fatnaði hérlendis.
Oft er það svo að efnið kostar í mesta
lagi einn sjötta hluta af verði flíkur-
innar út úr búð. Ég get oft ekki
ímyndað mér að saumaskapurinn sé
þetta dýr. En með því að sauma sjálf
get ég leyft mér að kaupa vandaðar
og eigulegar flíkur inni á milli.“
Áhuginn hjá Oddnýju á saumaskap
vaknaöi þegar hún var 9 ára gömul.
Þá fékk hún að gjöf rafmagnssauma-
vél eftir að hún hafði staðið sig vel í
skólanum. Um leið áskotnaðist henni
hvorki meira né minna en 12 metrar
af næloni og saumaöi hún sér úr því
tjald sem hún tjaldaði uppi í Öskju-
hlíð með tveimur kústsköftum. Upp
frá því fór hún einnig að sauma sér
fot enda eins gott þar sem hún haföi
alltaf fyrr og síðar verið sérvitur í
vali á fatnaði. í saumaskapnum gat
hún gefið sérviskunni lausan taum-
inn.
„Ég hef aldrei lært að sauma. Þetta
hefur bara komið af sjálfu sér en
vissulega nota ég snið sem grind.
Hins vegar breyti ég mikið sniðum.
Ef ég fæ til dæmis einhverja hug-
mynd nota ég það snið sem er líkast
þeirri hugmynd og útfæri það svo
eftirþörfum.“ -GKr
Dóttirin í pilsi og gammósium sem
mamman saumaði. Efnið í hvort
tveggja kostaði innan við 700 krónur.