Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Blaðsíða 36
36
MIí)VIKUDAGUH 28: DKftfeMBER 1988.
Andlát
Emil Ásgeirsson bóndi, Gröf, Hruna-
mannahreppi, er látínn.
Theodóra Fredriksen lést á Öldr-'
unardeild Landspítaians 23. desem-
ber.
Theodóra Sigurðardóttir, Holtsgötu
41, Reykjavík, lést í Landakotsspítala
25. desember.
María Sófusdóttir, Fjólugötu 13, Ak-
ureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri 25. desember.
Ólafur Gunnarsson sálfræðingur, frá
Vík í Lóni, lést í sjúkradeild á Hrafn-
istu á jóladag.
Gísli Jakobsson frá Þóreyjarnúpi
andaðist í Sjúkrahúsinu á Hvamms-
tanga á jóladag.
Magnús Guðmundsson frá Tindi
andaðist á sjúkrahúsinu á Hólmavík
26. desember.
Vilhjálmur M. Guðjónsson, Voga-
braut 42, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi
Akraness þann 27. desember.
Sigríður Jónsdóttir, Kvíum, Þverár-
hlíð, andaðist í sjúkrahúsi Akraness
aðfaranótt 24. desember.
Jarðarfarir
Lúther Salómonsson pípulagn-
ingameistari, Reynimel 82, sem lést
17. desember, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 29.
desember kl. 13.30.
, Útför Heru Bjargar Emilsdóttur,
Réttarholtsvegi 61, verður gerð frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 29.
nóvember kl. 15.
Þórunn Úlfarsdóttir, frá Fljótsdal
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 29. desember kl. 15.
Ingibjörg Vestmann, Hringbraut 24,
Reykjavík, sem andaðist 22. desem-
ber sl„ verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 29. desem-
ber kl. 13.30.
Ólína Kristín Jónsdóttir frá Ölvalds-
stöðum, Bjarnarstíg 7, Reykjavík, er
lést í Borgarspítalanum fimmtudag-
inn 22. desember, verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu töstudaginn 30.
desember kl. 10.30.
Sigríður Helgadóttir, Bjarnabæ, Suð-
urgötu 38, Hafnarfirði, verður jarð-
sungin frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn29. desember kl. 13.30.
Magnús Axelsson forstjóri, Skólavegi
38, Keflavík, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 29.
_ desember kl. 14.
Útför Jörundar Þórðarsonar frá Ingj-
aldshóli fer fram frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn29. desember kl. 13.30.
Lýður Guðmundsson, fyrrv. bóndi
og hreppstjóri, Litlu-Sandvík, sem
lést í sjúkrahúsi Suðurlands, Sel-
fossi, 23. desember, verður jarðsung-
inn frá Selfosskirkju fóstudaginn 30.
desember kl. 13. Bílferð verður frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl.
11.30.
Jón Pálsson héraðsdýralæknir lést
19. desember. Hann fæddist að
Þingmúla í Skriðdal 7. júní 1891. For-
eldrar hans voru Elínborg Stefáns-
dóttir og Páll Þorsteinsson. Eftir að
Jón lauk námi frá dýralæknaháskól-
anum í Kaupmannahöfn árið 1918
fluttist hann heim og settist að austur
á Reyðarfirði þar sem hann tók við
embættí héraösdýralæknis á Aust-
urlandi. Því embættí gegndi hann tíl
ársins 1934 er hann tók við embætti
héraösdýralæknis á Suðurlandi.
Hann giftíst Áslaugu Stephensen en
hún lést árið 1981. Þau hjónin eignuð-,
ust fjóra syni og eina fósturdóttur.
Útfór Jóns verður gerð frá Selfoss-
kirkju í dag kl. 13.30.
Tilkyimingar
Niðjar Halldórs
Þorsteinssonar og
Kristjönu Kristjánsdóttur
halda jólafagnað í dag, 28. desember, kl.
17 í Samkomuhúsinu í Garði. Mætum öll.
Jólahraðskákmót Taflfélags
Reykjavíkur1988
Hiö árlega „Jólahraðskákmót Taflfélags
Reykjavíkur" verður haldið að Grensás-
vegi 44-46 dagana 28. og 29. desember nk.
Tafliö hefst kl. 20 báða dagana. Keppnin
fer þannig fram að fyrri daginn eru tefld-
ar undanrásir en síöari daginn er teflt til
úrslita í nokkrum riðlum. Þátttaka hefur
ávallt verið mjög mikil. Sigurvegari á
mótinu i fyrra varð Andri Ass Grétars-
son.
Ódýrarferðirtil
Portúgal í vetur
Nú gefst íslendingum tækifæri á aö stytta
skammdegið með dvöl í Portúgal. Um er
að ræða ferðir á einstaklega hagstæðu
verði í allt að 10 vikur. Þessar ferðir henta
vel eldri borgurum, en undanfarin ár
hefur færst í vöxt að ellilífeyrisþegar
dvelji um lengri eða skemmri tíma á sól-
ríkari stöðum í svartasta skammdeginu.
Ferðaskrifstofan Evrópuferðir, sem er
umboðsaðili bresku ferðaskrifstofunnar
Caravela, hefur nú tekið upp samstarf
við ferðaskrifstofurnar Ratvís og Ferða-
val og er hægt að fá allar upplýsingar
um þessar ferðir hjá þessum þremur
ferðaskrifstofum.
Tapað fuiidið
Skjalataska tapaðist
Tapast hefur brún skjalataska með
rennilás. Skilvís finnandi vinsamlegast
hati samband í síma 622157 eða 33706.
Fundarlaun.
Tónleikar
Tónleikar í Bústaðakirkju
Fimmtudaginn 29. desember halda
Bryndís Halla Gylfadóttir og Roglit Ishay
tónleika í Bústaðakirkju kl. 20.30. Bryn-
dís lauk einleikaraprófi 1984. Sama haust
hóf hún svo framhaldsnám við New Eng-
land Conservatory í Bandaríkjunum, þar
sem hún hefur þegar lokiö B.A. prófi og
væntir þess að fá þaðan meistaragráðu
vorið 1989. Bryndís hefur komið fram
sem einleikari á íslandi, í Bandaríkjun-
um og í Kanada. Roght lauk B.A. prófi
frá N.E.C. og mun ljúka meistaragráðu
vorið 1989. Roght hefur undanfarin ár
notið handleiðslu Veronica Jochum. Hún
hefur viðtæka reynslu í kammertónhst
og sem einleikari, bæði í ísrael og í
Bandarikjunum.
r
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Hulda Sigurjónsdóttir,
fyrrum húsmóðir í Firði, Seyðisfirði, andaðist 12.
desember sl.
Jarðarförin hefur farið fram
Steinunn Jónína Ólafsdóttir Leifur Haraldsson
Sigfríö Stella Ólafsdóttir Birgir Hallvarösson
Hulda Kristjana Leifsdóttir
Haraldur Einar Leifsson
Ólafur Þór Leifsson
Sigurbjörg Þóra Leifsdóttir
Ólafur Birgisson
Guöfinna Björk Birgisdóttir
Nýjar plötur
Bubbi & Megas - Bláir draumar
-----------------------,-----------
Það er draumur að hlusta...
Þegar tveir helstu framverðir gáfu-
mannapoppsins hérlendis taka uppá
því að stílla saman strengi sína á
plötu hlýtur útkoman að verða at-
hyglisverð, hver svo sem hún verður.
Og það er óneitanlega margt sem
vekur athygli á þessari plötu Bubba
& Megasar eða er það Megasar '&
Bubba? Það er áreiðanlega ekki til-
viljun að báðar útgáfurnar af nöfn-
unum er að finna á plötuumslaginu.
Þegar stórveldi taka höndum saman
verður að gæta þess að hvorugt
skyggi á hitt, samanber vísuna um
lambið, heypokann og úlfmn: Ekkert
granda öðru má.
Lögum plötunnar skipta þeir líka
bróðurlega á milli sín, Bubbi á sex,
Megas fimm og eitt er gamalt og gró-
ið lag eftir Inga T. Lárusson við tekta
Jónasar Hallgrímssonar; Ég biö að
heilsa. Og ég geri ráð fyrir því að
hugmyndin að því lagi sé komin frá
Megasi og það gerir stöðuna sex, sex.
í mörgum tilvikum er ekki að
heyra að þeir félagar hafl haft mikla
samvinnu við gerð og vinnslu lag-
anna. Af 12 lögum plötunnar er að-
eins í þremur þeirra sem má heyra
samsöng þeirra. í hinum syngja þeir
til skiptís og syngur hvor sín eigin
lög.
Því get ég ekki neitað aö mér finnst
hlutur Bubba á plötunni mun athygl-
isverðari en hlutur Megasar. Megas
heldur sig við mjög svipaða hluti og
hann hefur verið að gera á síðustu
plötum sínum og er engu líkara en
að nokkur laganna á plötunni séu
einfaldlega lög sem gengið hafi af á
þeim plötum.
Bubbi notar hins vegar tækifærið
og bregður á leik og spreytír sig á
blús og jass. Og það verður aö segj-
ast hreint út aö drengurinn fer gjör-
samlega á kostum, bæði í lagasmíð-
unum, textunum og síðast en ekki
síst í söngnum og túlkuninni.
Stóran þátt í því hversu þessi lög
Bubba heppnast frábærlega eiga
hljóðfæraleikararnir. Þeir eru að
uppistöðu ættaðir úr sveifludeildinni
og sérstakt fagnaðarefni er að heyra
í Jóni Páli Bjarnasyni gítarleikara á
plötu á ný.
Smekkleg notkun á básúnu og óbói
setur einkar skemmtilegan blæ á
tónlistina og sama má segja um
Telpnakór Öldutúnsskóla, sem syng-
ur bakraddir í nokkrum lögum.
Textar eru allir til mikillar fyrir-
myndar; vandaðir og innihaldsríkir.
Mér segir reyndar svo hugur að þar
hafi Bubbi notið nærveru Megasar
en ef svo er ekki er bara að taka ofan
fyrir Bubba og bukka sig.
Það er eiginlega ekki réttlátt að
bera þessa plötu Bubba & Megasar
saman við aðra íslenska plötufram-
leiðslu á þessu ári, til þess er hún
alltof sér á parti. Og hún er ekki bara
sér á parti heldur einstakur gæða-
gripur.
-SþS-
Geiri Sæm og Hunangstunglið - Er ást í tunglinu?
Aðgengilegri en áður
Það er erfitt að setja Geira Sæm
og félaga hans í Hunangstunglinu á
bás með einhverjum öðrum. Eina
stundina þykist maður heyra ein-
hver kunnugleg áhirf. En á svip-
stundu eru þau horfm. Þegar á allt
er litið er tónlist fimmenninganna
annað hvort engu lík eða allt- of
mörgu til aö hægt sé að henda reiður
á því.
Á plötunni Er ást í tunglinu? er
margt vel gert. Hljóðfæraleikur er
fínn, jafnvel helst til lærður og óað-
gengilegur á -köflum. Sum lög plöt-
unnar ganga fljótt í undirvitundina.
Önnur virðast seint ætla að síast inn,
eins og gengur. Og á heildina litið er
platan miklu betri en mér virtist við
fyrstu, aðra og þriðju heyrn.
Það eru hins vegar textarnir sem
erflðast er að sætta sig við. Skrýtnari
gerast þeir vart á landi hér, hvorki
að formi né innihaldi. Og það er tómt
mál að ætla að reyna að lesa þá eina
sér án þess að hlusta á söng Geira
Sæm um leið.
Sjálfsagt er það íhaldsseminni að
kenna að ég get ekki fellt mig við
kveðskapinn á Er ást í tunglinu?
Geiri Sæm sendi í fyrra frá sér
plötu. Og áður lét hann í sér heyra
með Pax Vobis. Þegar á allt er litíð
er hann mun aðgengilegri nú en áð-
ur. Og ef við lítum á það sem frum-
markmið tónlistarmanns, sem send-
ir frá sér plötu, að selja hana hlýtur
Geiri Sæm ásamt Hunangstunglinu
að vera á réttri leið.
-ÁT-
_________ JólabaHið______________
Gömlu góðu jólasöngvarnir
á „réttum“ nótum
Jólaplöturnar sem koma út að
þessu sinni eru færri en oft áður. Og
sumar hverjar á öðrum nótum en
venjulega. Til að mynda sú sem hér
er til umfjöllunar. Hún er byggð upp
eins og nafnið bendir til: sem jóla-
ball. Og á áreiðanlega eftir að gagn-
ast plötusnúðum ferðadiskótekanna
um ókomin ár sem og þeim sem
halda sjálfir jólatrésskemmtun í
heimahúsum.
Það er í raun og veru ákaflega erf-
itt að leggja faglegt mat á plötuna
Jólaballiö að öðru leyti en því að hún
virðist ná tilgangi sínum fullkom-
lega. Og það sem meira er: litlu
krakkarnir virðast hafa ákaflega
gaman af plötunni. Eitt eintakið var
prófað á þriggja bama hópi, tveggja,
sex og níu ára. Niðurstaðan varö í
stuttu máli sú að níu ára bað snar-
lega um Eyjólf Kristjánsson en tvö
þau yngri voru samstundis með á
nótunum.
Bamakómum, sem syngur á Jóla-
ballinu, verður seint boðið aö feta í
fótspor Öldutúnsskólakórsins og
syngja í garði Hvíta hússins og fleiri
merkum stöðum. Raddsetningin er
eins einfóld og hugsast getur. Hver
syngur með sínu nefi rétt eins og á
jólaböllunum. Og ég er sannfærður
um að platan skyti yfir markið hefði
mikilli vinnu og tíma verið eytt í að
hafa allt sem fullkomnast og áferðar-
fallegast. I sumum tilvikum verður
að gleyma fullkomnunarþörflnni og
láta útkomuna ráðast. Eins og á plötu
sem á að ná anda ekta jólaballs. Þá
má alltaf búast við að einhver syngi
falskt eða í annarri tóntegund en hin-
ir. Því er það fyrirgefið að þessu
sinni.
-ÁT-