Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Side 4
4
MÁNUDAGUR 16! JANÚAR 1989.
Fréttir
Erfiðleíkar Svansins við Færeyjar:
Við vorum ekki í
bráðri lífshættu
- segir Dagbjartur Einarsson skipstjóri
„Viö vorum ekki í bráðri lífshættu
en þaö var betra að vita af togaranum
í námunda viö okkur þegar útlitaö
var verst,“ sagöi Dagbjartur Einars-
son, skipstjóri á flutningaskipinu
Svaninum, í samtali við DV. Á föstu-
dagskvöldið fekk skipið á sig brotsjó
suöur af Færeyjum þegar þaö var á
leið til íslands meö kolafarm.
Togarinn Stapavík var nærri Svan-
inum þegar óhappiö varö og fylgdi
honum til hafnar. „Ég geri ráð fyrir
aö við heföum bjargast í togarann ef
verr heföi fariö. Um tíma var úthtið
vissulega svart en þetta bjargaðist
allt,“ sagði Dagbjartur.
Veruleg slagsíöa kom á skipið í
brotinu. í því eru um 1000 tonn af
kolum sem eiga aö fara til Járn-
blendiverksmiðjunnar á Grundar-
tanga. Svanurinn hggur nú viö
bryggiu á Þvereyri í Trangisvogi á
Suðurey. Veður er enn slæmt í Fær-
eyjum og bíða skipverjar á Svaninum
aöstoöar viö að moka th í lest skips-
ins áöur en hægt er aö halda til ís-
lands.
Þegar talaö var við Dagbjart í gær
átti hann von á aö pramminn gæti
farið aö athafna sig í nótt. Hann taldi
að ekki væri dagsverk að jafna til í
lestunum þannig að ef aht gengi að
óskum gæti Svanurinn lagt af staö
heim á leið í dag.
Tjón varö ekkert, hvorki á farmin-
um né skipinu. Útgeröin verður þó
fyrir nokkru tjóni vegna tafa því
ferðum skipsins seinkar um þrjá th
ijóra daga vegna óhappsins. Dag-
bjartur átti von á aö skipið kæmi th
landsins á miövikudag.
-GK
Glæsifley á
fertugsaldri
Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum;
„Það eina sem eftir er af bátnum
frá fyrri tíö eru nokkrar jámplötur
í skrokknum, aöalvélin og togspilið,
sem aht var yfirfarið. Þaö var byggð
ný brú, byggt yfir dekkið og báturinn
lengdur um sex metra. Allar innrétt-
ingar eru nýjar og fleira mætti telja
th,“ sagði Leó Óskarsson, skipstjóri
og útgeröarmaður Nönnu VE.
Segja má aö nýr bátur hafi siglt hér
inn á höfnina þegar Nanna VE kom
heim rétt fyrir jól eftir að hafa veriö
á annaö ár í endurbyggingu í Portúg-
al. Fátt sem minnti á gömlu Nönnu.
Aö sögn Leós reyndist báturinn
mjög vel á heimsiglingunni frá Port-
úgal, sem tók tíu daga. Þeir lentu í
fellibylnum mikla, sem gekk yfir
Færeyjar, og komust klakklaust frá
þeim darraöardansi.
Heildarkostnaöur vegna breyting-
anna liggur ekki fyrir er verður
sennilega um 35 milljónir króna.
Nanna er byrjuð á veiöum af fullum
krafti. Báturinn var smíðaður í Hol-
landi 1955 og er því kominn vel á fer-
tugsaldurinn. Ekki annaö hægt að
segja en hann beri aldurinn vel.
Nanna VE eftir breytingarnar í Portúgal.
DV-mynd Omar
Skemmdu
fjórtán bfla
Þrír ungir menn gengu ber-
serksgang í Tjamargötu aðfara-
nótt laugardags og skemmdu
fjórtán bifreiöar sem þar stóðu.
Mennimir voru um tvítugt og
náöi lögregla tveimur þeirra. Sá
þriðji var ófundinn í gær en vitað
er hver hann er.
Mennirnir voru aö koma af
skemmtistaö í miðbænum og
voru allir undir áhrifum áfengis.
Ekki gátu þeir gefiö nokkra skýr-
ingu á skemmdarfýsn sinni. Eng-
inn þeirra hefur áður komið við
sögu lögreglunnar.
Bharnir urðu ekki fyrir stór-
tjóni en speglar voru brotnir,
rúðuþurrkur teknar af og loft-
netsstangir brotnar. -ELA
SAS-flugið:
Ennþá leitað
í farangri
Miklar öryggisráðstafanir eru
enn á Keflavíkurflugvelh þegar
SAS flugvélar fara héðan. Sér-
sveit lögreglunnar er viðstödd
þegar farþegar afhenda farangur
sinn. Að sögn lögreglunnar á
Keflavíkúrflugvelli mun þessum
öryggisráðstöfunum verða haldiö
áfram enda eru ströng fyrirmæli
frá SAS að svo verði gert.
Ekkert óvenjulegt hefur fundist
í leit hér á landi. „Þetta hefur
verið talsvert starf hjá sérsveit-
inni, tohgæslunni og starfsmönn-
um flugfélaganna," sagði lög-
reglumaður á Keflavíkurflugvehi
í samtah við DV. Það er þó full
ástæða til að taka þetta alvar-
lega.“ -ELA
Húsaleiga
hækkar ekki
Húsaleiga má ekki hækka fram
th febrúarloka nú í ár. Ghdir
þetta þótt samið hafi verið um að
húsaleiga mætti hækka í sam-
ræmi við húsaleiguvísitölu eöa
aðrar visitölur.
Þetta er ákvörðun viðskipta-
ráðuneytisins og styðst við verð-
stöövunina sem ákveðin var með
bráðabrigðalögunum í haust
-GK
í dag mælir Dagfari
Sænska mafían
Sjónvarpið efndi th sérkennhegr-
ar umræðu eitt kvöldið í síðustu
viku. Þar var sænska mafían á ís-
landi tekin og rætt um viðhorf ís-
lendinga til Svía og Svíþjóðar. Þess
ber að geta aö Hrafn Gunnlaugsson
kom að sjálfsögðu fram í þættinum
enda er varla sá þáttur sýndur í
íslenska ríkisjónvarpinu sem þessi
sami Hrafn kemur ekki við sögu
sem segir okkur hvað það er þýð-
ingarmikiö að hafa yfirmann hjá
Sjónvarpínu sem er þannig gerður
að ekki þarf að leita til annarra.
Því miður er ekki vitað hvort hann
hafi átt frumhugmyndina, sem
stundum kemur fyrir, ekki hvort
hann hafi samið þáttinn, ekki hvort
hann hafi khppt þáttinn heima hjá
sér og ekki var hann stjómandi.
En sem betur fer hafði Hrafn tíma
th að koma fram í þættinum sjálfur
og létti mörgum við það.
Á sínum tíma var thkynnt aö
Hrafn Gunnlaugsson hefði fengið
fjögurra ára launalaust leyfi frá
Sjónvarpinu vegna anna viö önnur
störf og var þá Sveinn Einarsson
ráðinn vegna þess að Hrafn haföi
ekki tíma. Síðan kom í ljós að
Sveinn haföi ekki tíma th að byija
strax vegna mikilla anna og þá var
Hrafn ráðinn th að leysa Svein af
meöan Sveinn haföi ekki tíma.
Þessar annir allar hafa leitt th þess
að Hrafn hefur nú tekið að sér að
stjórna þáttum Sjónvarpsins og
klippa þá heima hjá sér fyrir lítinn
pening og þegar verst lætur á hann
frumhugmyndirnar að kvikmynd-
um Sjónvarpsins og ef annir Sveins
verða áframhaldandi er bara að
vona að Hrafn megi vera að því að
gera það sem Sveinn má ekki vera
að sem hann átti þó að gera vegna
anna Hrafns.
Þetta með sænsku mafíuna er
áreiðanlega frumhugmynd Hrafns
þótt ekki hafi þótt ástæða th aö
geta þess vegna þess að Hrafn kom
fram í þættinum. Þannig er nefni-
lega mál með vexti að bæði Hrafn
og Sveinn, sem hka kom fram í
þættinum, eru mikhr Svíavinir og
kunna því illa að vera uppnefndir
sem mafía, ekki síst vegna þess að
Svíar hafa skilning á því hvað þeir
Hrafn og Sveinn eru mætir menn.
Er það mikið gott að þeir félagar
skyldu báðir gefa sér tíma til að
taka þátt í þessum þætti. Vonandi
er, þegar Sveinn má vera að því að
hefja störf Hrafns í Sjónvarpinu,
að hann geti haldið áfram á sömu
braut og pródúseri þætti þar sem
áhugamál þeirra félaga verða tekin
fyrir svo þeir geti komið báðir fram
til skiptis og helst báöir í einu. Auk
þess getur Hrafn klippt þættina
heima hjá sér ef Sveinn má ekki
vera að því.
Þátturinn um sænsku mafíuna
var fróðlegur fyrir þær sakir að þar
var eiginlega veriö aö sanna að
sænsk mafía væri ekki th. Niður-
staðan hefur líka orðið sú aö eng-
um dettur í hug að amast við Svíum
sem hafa heldur ekkert gert af sér
sem réttlætir þaö aö íslenska sjón-
varpið fari að gera þátt til að sanna
hvað þeir séu gott fólk. Miklu frem-
ur má álykta að þátturinn hafi ver-
ið gerður til að sanna hvað þeir séu
gott fólk sem haldi upp á Svía og
þá um leið aö sanna hvað þeir eru
vondir menn sem eru vondir við
Svía. Enda er umræðan, sem á eft-
ir fylgir, eingöngu um mennina
sem töluðu hla um Svía en ekki
Svía sjálfa.
Einhver nefndi það í þættinum
fræga aö til væru kynvillingar í
Svíþjóð og ekki væri það til fyrir-
myndar. Þetta hljóp fyrir bijóstið
á einhverjum sem þykir vænt um
kýnvilhnga en ekki Svía og nú eru
bæði kynvillingar og Svíar orðnir
miklu betra fólk heldur en þeir sem
tala illa um Svía og kynvillinga.
Er það tilefni til að Sjónvarpið búi
til nýjan þátt um þá sem er illa við
Svía. Ef sænska mafían er ekki til
en Sjónvarpið getur samt búið til
þátt um þessa mafíu, sem ekki er
th, hvers vegna þá ekki að búa til
nýjan þátt um alla þá sem hvorki
eru Svíar eða kynvillingar en tala
iha um þá?
Nú eru þeir Hrafn Gunnlaugsson
og Sveinn Einarsson báöir mjög
uppteknir menn. En það hefur sýnt
sig að þeir hafa tíma til aö koma
fram í sjónvarpinu þegar mikið
liggur við, meira að segja líka þegar
verið er að tala um mafíur sem
ekki eru til. Hvað þá þegar rætt
verður um menn og málefni sem
sannanlega eru fyrir hendi. Svo
má alltaf klippa þættina heima hjá
Sveini ef Hrafn má ekki vera að
því. Það kostar ekki nema fjörutíu
þúsund kall.
Dagfari