Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Qupperneq 26
26
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989.
HÚSNÆÐI í BOÐI
Húsnæöi fyrir vörugeymslu til leigu strax. Nýtt
hús, 330 ferm, lofthæð 7 metrar. Malbikað plan
fyrir framan. Hillur o.fl. getur fylgt. Nánari upp-
lýsingar veitir Amgeir Lúðvíksson í síma 688222.
ARNARFLUG HF.
VERSLUNARSKÓLI
ÍSLANDS
íþróttasalur til leigu
Höfum enn lausa tíma á kvöldin og um helgar í nýj-
um íþróttasal skólans. Nánari uppl. fást næstu daga
á skrifstofu skólans og hjá húsverði. Sími 688400.
FRÖNSKUNÁMSKEIÐ
ALLIANCE FRANCAISE
13 vikna vornámskeið hefst mánudaginn 23. janúar.
Kennt verður á öllum stigum ásamt samtalshópi og
í einkatímum. Innritun fer fram á bókasafni Alliance
Francaise, Vesturgötu 2 (gengið inn bakdyramegin),
alla virka daga frá kl. 15 til 19. Allar nánari upplýsing-
ar fást í síma 23870 á sama tíma.
Greiðslukortaþjónusta
HARGREÍSLUSTOFAN
KLAFPfiSSTÍG
KMS sjampó
og næríng.
Tímapantanír
Opíð
laugardaga
Id. 10-14
i sima
13010
REYKJMJÍKURBORG
JlauMVi Stödun
KJARVALSSTAÐIR
Laus er til umsóknar staða umsjónarmanns við Lista-
söfn Reykjavíkurborgar.
Upplýsingar um starfið eru veittar í síma 26131.
Umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist Kjarvalsstöðum v/Flókagötu, 105
Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 24. janúar.
smmorumM
Margrét Runólfsdóttir
útskrifuö des '88
„Ég er sjálfstæður atvinnu-
rekandi með litla skólagöngu
að baki. Námið hefur nýst mér
alveg frá upphafi og gerir mér
kleyft að skipuleggja skrif-
stofuhald og töivuvæðingu.
Ég mæli með því að atvinnu-
rekendur með svipaðan bak-
grunn sæki petta námskeið".
Nám í skrifstofutækni opnar þér nýja möguleika í
starfi. Kenndar eru allar helstu viðskipta- og
tölvugreinar, sem gera þig að úrvals starfskrafti.
Innritun og upplýsingar í símum
68 75 90 & 68 67 09.
JÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28
Iþróttir
Lið Luzern kom
mest á óvart
- í fyrri hluta 1. deildarinnar 1 Sviss
í nýjasta hefti hins útbreidda breska tímarits World Soccer er nokkuð
fjallaö um liö Siguröar Grétarssonar, Luzern, og sagt aö árangur þess í
forkeppninni um svissneska meistaratitilinn um áramótin hafi komið
mjög á óvart. Luzern varð efst í fyrri hluta deildarinnar og þar meö vetr-
armeistari og fer þar af leiðandi með flest stig í úrslitakeppni 8 liða sem
hefst í mars.
í greininni er sagt að fæstir sér-
fræðingar hafl átt von á miklu af
liöinu og aö vamarleikaðferðin,
sem þaö beiti á útivöllum, hafi sætt
nokkurri gagnrýni. Þjálfari liðsins,
hinn 48 ára gamli Friedel Rausch,
hafi ekki látið mikla umfjöllun fjöl-
miðla hafa áhrif á sig og haldi sínu
striki.
Iið hans er sagt leika einfalda og
árangursríka knattspyrnu og leik-
mennirnir spili hver fyrir annan
en reyni ekki einhverjar ævintýra-
leiðir upp á eigin spýtur. Vörn liðs-
ins sé sú best skipulagða í landinu
og að kerfið, sem Rausch beiti,
henti leikmönnunum, sem hann
hefur yflr að ráða, greinilega mjög
vel.
• Sigurður Grétarsson - at-
kvaeðamestur i sóknarleik Luzern.
Mohr, Werhli og Sigurður
í aðalhlutverkum
Þá eru tíndir til þrfr leikmenn í
aöalhlutverkum. Vestur-Þjóðverj-
inn Jiirgen Mohr, sem stjómi spil-
inu af snilld, fyrrum miðvöröur
svissneska landsliðsins, Roger We-
hrli, sem sé óhemju reyndur vam-
armaður og fyrirliöi, og sföan sé
íslenski landsliðsmaöurinn „Sigi“
Grétarsson atkvæðamestur í sókn-
arleiknum. Sagt er aö þaö henti lið-
inu best að verjast vel og beita síð-
an hröðum og stórhættulegum
skyndisóknum en Sigurður hefur
einmitt veriö helsti markaskorari
liðsins undanfarin ár.
Fram kemur að Rausch hafi ný-
lega framlengt samning sinn við
félagið til ársins 1992. Hann og Sig-
urður komu saman frá Iraklis í
Grikklandi árið 1985 og Sigurður
er með samning við félagið út
næsta keppnistímabil eða til vors
1990.
-VS
Næstu mótherjar:
T'©ScScðiF
og Norð-
menn
íslenska landsliðiö i handknatt-
leik mun hafa í mörg hom að líta
næstu vikumar vegna undirbún-
ings fyrir B-keppnina í Frakk-
landi. Nú er Eyrarsundsmótið að
baki, þrír leitór, og síðan tveir
leitór við Austur-Þjóöverja nú
um helgina. Þar á undan hafði
liðiö spilað í tvígang við hvora
þjóð, Dani og Svía.
Framundan em tveir leitór við
Tékka í Laugardalshöll 28. og 29.
janúar. Þar á eftir er síöan áform-
að aö spila tvo landsleiki við
Norðmenn, liklega hér heima eft-
ir þvi sem heimildir DV herma.
Fara þær viðureignir fram 2. og
3. febrúar næstkomandi. B-
heimsmeistaramótið hefst síðan
um miðjan þann mánuð.
-JÖG
Karfa kvenna:
Fyrsta
tap ÍBK
íslandsmeistarar ÍBK biöu á
fimmtudagskvöldiö sinn fyrsta
ósigur á þessu keppnistímabili i
kvennadeildinni í körfuknattleik.
Þær sóttu þá KR heim f Hagaskól-
ann og töpuöu, 44-39.
Önnur úrslit urðu þau aö ÍS
sigraði Grindavík, 49-33, og ÍR
vann Njarövík, 60-36. Staöan í
deildinni er þessi:
Keflavík...11 10 1 562-415 20
ÍR.........12 8 4 662-601 16
KR.........11 8 3 554-519 16
ÍS.........12 7 5 579-532 14
Haukar.....12 5 7 523-547 10
Njarövík...12 3 9 432-522 6
Grindavfk..12 0 12 473-649 0
-VS
• Flestir þeirra sem fengu verðlaun fyrir árangur í íþróttum á Selfossi 1988.
DV-mynd Kristján Einarsson/Selfossi
Magnús og Vésteinn
- íþróttamenn ársins á Selfossi
Kristján Einaisson, DV, Selfossi:
Ungmennafélag Selfoss heldur um
hver áramót hóf eitt mikiö þar sem
fram fer verðlaunaafhending til
handa afreksfólki ársins í íþróttun-
um. Að þessu sinni var fjöidi fólks
tilnefndur til verðlauna og margir
voru útvaldir. Hinar ýmsu deildir
veittu sínu fólki viðurkenningu fyrir
góöan árangur á liðnu ári í hófi sem
efnt var til í Inghóli.
Titillinn íþróttamaður ársins á Sel-
fossi 1988 kom að þessu sinni í hlut
tveggja íþróttamanna, þeirra Magn-
úsar Sigurðssonar handknattleiks-
manns og Vésteins Hafsteinssonar
kringlukastara. Þeir þóttu skara
fram úr á síðasta ári og var dóm-
nefnd einróma í vali sínu. Ýmsar
deildir innan Ungmennafélags Sel-
foss heiðruðu síðan afreksfólk sitt
með ýmsu móti og var ánægjulegt
að sjá þegar verðlaunin voru afhent
hve gleði og stolt fór vel saman. T.d.
hlöðust verðlaun á sundmanninn
Gunnar Þór Gunnarsson en hann
stundar sund hjá Sunddeild Selfoss
og einnig hjá Sundfélagi fatlaðra.
Hefur Gunnar náð góðum árangri
hjá báðum þessum deildum og var
vel að verölaunum kominn.
Mikil gróska er í íþróttalífinu hjá
Ungmennafélagi Selfoss og er mikið
starf í gangi í öllum deildum félags-
ins.
Sigurður verður
áfram með Þrótti
- Guðmundur, Hermann og Valgeir famir
„Ég hef ákveöið að fara hvergi og
spila áfram með Þrótturum og reyna
að hjálpa þeim upp úr 3. deildinni,"
sagði Sigurður Hallvarðsson, marka-
skorarinn kunni úr knattspyrnuliði
Þróttar, Reykjavík, í spjalli viö DV.
Sigurður hefur verið orðaður við
mörg lið að undanförnu og m.a. feng-
ið gott boö um að þjálfa Sindra á
Hornafirði en nú geta Þróttarar
varpað öndinni léttar.
Flestir þeir sem skipuðu lið Þróttar
í 2. deildinni í fyrra verða kyrrir en
þó er ljóst að þrír fastamenn fara á
brott, Guðmundur Erlingsson mark-
vörður til Selfyssinga og þeir Her-
mann Arason og Valgeir Baldursson
sem hverfa til síns heima á Blöndu-
ósi á ný og leika með Hvöt.
-VS