Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 30
30
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989.
íþróttir______________________
Handknattleikur á Spánl:
„Spennan var
gífurleg“
- Sagði Kristján Arason. Teka vann
„Við lékum gegn Caja Madrid um
helgina, sem er mjög sterkt lið, og
okkur tókst að merja sigur með einu
marki. Ég er vel sáttur við mína
frammistöðu í leiknum og er bjart-
sýnn á framhaldið í úrslitakeppn-
inni," sagði Kristján Arason, lands-
hðsmaður í handknattleik, í samtali
við DV í gærkvöldi. Teka sigraði
Madrid-liðið, 25-24, á heimavelli eftir
að staðan í leikhléi hafði verið 12-12.
Kristján átti stóran þátt í sigrinum
og skoraði 5 mörk. Teka er nú í öðru
sæti og stefnir hraðbyri í úrslita-
keppnina.
„Er mjög ánægður með
lífið héráSpáni“
„Mér hefur gengið mjög vel hér á
Spáni og okkur líkar vel. Núna er
hér 15 stiga hiti og sól og varla hægt
að láta sér leiöast. Annars er það
staðreynd að manni líður alls staðar
vel þegar vel gengur. Ef gengi okkar
fer hrakandi getur dæmið snúist
við," sagði Kristján í gær.
Eins og fram kom í helgarblaði DV
og á blaðsíðu 19 í dag eru líkur á því
að Svíinn Roger Carlsson verði næsti
landsliðsþjálfari íslands í handknatt-
leik. Við báðum Kristján að segja sitt
álit á því: „Carlsson hefur náð mjög
góðum árangri með sænska liöið.
Hann myndi örugglega koma með
mikið af nýjum hugmyndum inn í
þetta. Austur-Þjóðverjinn Paul Tie-
demann var hins vegar númer eitt
hjá mér en það er útséð með að hann
fái að fara frá Austur-Þýskalandi.
Það er alltaf þannig í Austur-Þýska-
landi að þegar landsliðinu gengur illa
þá fá stóru nöfnin ekki að fara úr
landi, hvorki þjálfarar né leikmenn.
Það stóð til að Frankl Wahl kæmi til
liðs hér á Spáni en eftir slæmt gengi
A-Þýskalands á ÓL í Seoul fór sá
möguleiki fyrir bí," sagði Kristján
Arason.
-SK
• Kristján Arason átti mjög góðan leik með Teka á Spáni um helgina og
skoraði 5 mörk þegar Teka sigraði Caja Madrid með 25 mörkum gegn 24.
Teka er nú í öðru sæti og stefnir hraðbyri í úrslitakeppnina.
• Sigurjón Kristjánsson, markakóngur islandsmótsins utanhúss á síðasta keppnistímabili, reynir hér markskot.
Valsmönnum tókst ekki að vinna sig upp úr 2. deild. DV-mynd GS
íslandsmótið í innanhússknattspymu, 2. og 3. deild:
Valur áfram
í 2. deild
- ÍR, Leiftur, Stjaman og ÍBV unnu
ÍR, Leiftur, Stjarnan og ÍBV unnu
sér í gær rétt til þess að leika í 1.
deild íslandsmótsins í innanhúss-
knattspyrnu næsta tímabil en þessi
lið urðu hlutskörpust í keppninni í
2. deild sem fram fór í Laugardals-
höll um helgina. Það kom hins vegar
í hlut Ármanns', Þróttar frá Neskaup-
stað, Hveragerðis og Augnabliks að
falla í 3. deild.
Einnig var keppt í 3. deild um helg-
ina og þar spjöruðu sig best lið Vík-
verja, Hvatar, Sindra og UMFN og
leika þessi hð því í 2. deild næst.
Úrsht í leikjum í 2. deildinni urðu
þessi: Leiftur-Bolungarvík 6-2, ÍR-
Hveragerði 4-0, Bolungarvík-
Ármann 6-2, Hveragerði-Einherji
2- 2, Þór, Akureyri-Bolungarvík 5-3,
Breiðablik-Hveragerði 6-1, Valur-
Þróttur, N. 7-1, ÍBV-Augnablik 1-1,
Þróttur, N.-Leiknir 6-2, Augnablik-
Skallagrímur 2-6, Stjarnan-Þróttur,
N. 5-2, FH-Augnablik 11-5, Þór, Ak-
ureyri-Ármann 7-1, Breiðablik-
Einherji 6-2, Leiftur-Þór, Akureyri
3- 3, ÍR-Breiðablik 5-3, Ármann-
Leiftur 1-7, Einherji-ÍR 3-3, Stjarn-
an-Leiknir 4-1, FH-Skallagrímur
5-6, Valur-Stjarnan 3-5, ÍBV-FH 6-4,
Leiknir-Valur 0-4, Skallagrímur-
ÍBV 2-6.
Athygli vekur óneitanlega að Vals-
menn verða að dvelja í 2. deild eitt
árið enn.
sig upp í 1. deild
Úrslit leikja í 3. deild
Höttur-Skotfélag Reykjavíkur 2-2,
UMFN-Reynir, Á. 3-3, Reynir, S-
Léttir 2-2, Léttir-Árvakur 1-4, UM-
FN-Skotfélag Reykjavíkur 10-3,
Sindri-Léttir 4-1, Hvöt-BÍ 3-3, Vík-
verji-Vorboðinn (Vorboðinn gaD,
BÍ-Austri 5-3, Vorboðinn-Hafnir
(Vorboðinn gaí), Grundarfjörður-BÍ
4-5, Sindri-Árvakur 5-4, Skotfélaag
Reykjavíkur-Reynir, Á. 1-4, Höttur-
UMFN 1-3, Reynir, S.-Sindri 6-1,
Reynir. Á.-Höttur 6-3, Árvakur-
Reynir, S. 4-5, Grundarfjörður-
Austri 5-4, Valur, R.-Hafnir 4-1,
Hvöt-Grundarfjörður 7-1 og Vík-
verji-Valur, R. 6-1.
-SK/JKS
Knattspyma
Brasilía
meistari
Brasilíumenn tryggðu sér í
gær heimsmeistaratitilinn í
knattspyrnu innanhúss. Þeir
léku gegn Hollendingum í úr-
slitaleik og sigruðu 2-1 en stað-
an í leikhléi var 1-0.
Bandaríkjamenn tryggðu sér
þriðja sætið með 3-2 sigri gegn
Belgum eftir framlengingu. í
undanúrslitum sigraði Holland
Bandaríkin 2-1 og Brasilía vann
Belgíu 8-6 eftir vítaspymu-
keppni. -SK
-8T— X Blak
úrslit
Einn leikur fór fram um helgina
í bikarkeppninni í blaki karla.
Lið Þróttar frá Neskaupstað
sigraði HSK 3A) í leik liðanna á
Neskaupstað. i 2. flokki sigraði
Þróttur HSK einnig 3-0.
Innanhússmót í ftjálsum í Dallas:
Greg Forster aðeins sjónarmun á
■ ■■* ■jrai ■ m m ■■ ■
undan Roger Kmgdom i grmdmni
Margt besta fijálsíþróttafólk brattur þrátt fyrir tapið: „Ég er og varpaði 21,89 m. • Louise Ritter, Bandaríkjunum,
heimsins var samankomið í Dallas konungurinn í þessu ríki og þetta • Valerie Brisco vann sigur í varð sigurvegari í hástökki kvenna
í Bandaríkjunum um helgina en ríki er grindahlaup innanhúss og 400m hlaupi kvenna á 54,27 sek. ogstökkl,89m. -SK
þar fór fram innanhússmót í frjáls- utan. Forster er dauðans matur.
um íþróttum. Ég mun taka hann í nefið í næstu
Einvígi þeirra Gregs Forster og keppnum okkar.“
Rogers Kingdom í 55 m grindar- • Af öðrum úrslitum má nefiia
hlaupi stal senunni en báðir komu stórsigur Jackie Joyncr Kersee í
þeir í mark á 7,06 sek. Forster var 55m grindarhlaupi kvenna en hún
hins vegar nefinu framar á mark- fékk tímann 7,41 sek.
línunni og var dæmdur sigurveg- • Joe Deloach, Bandaríkjunum,
ari. Forster gat ekki keppt á ÓL í sem vann gullverölaunin í 200 m
Seoul vegna meiðsla en Kingdom hlaupinu í Seoul, sigraði í 300 m
vann þar gullverðlaunin í 110 ra hlaupinu í Dallas á 33,57 sek.
grindahlaupinu. „Ég gerði allt eins • Mary Decker Slaney, sem nú
vel og áður en ég raeiddist. Hand- keppti í fyrsta skipti innanhúss í 4
leggurinn var eins og ég bjóst við," ár, sigraöi í 800 m hlaupi á 2:02,87
sagöi Forster eftir hlaupið en hann mín.
handleggsbrotnaöi á síðasta sumri • Randy Bames frá Bandaríkj-
og hfjóp um helgina með alls kyns unum, sem vann óvænt til silfur-
jámadrasl i hendinni, sex plötur verðlauna í kúluvarpinu í Seoul, hlaupinu í Dallas um helgina. Báðir fengu þeir fímann 7,06 sek. en
og 12 skrúfúr. Kingdom var bom- vann öruggan sigur í kúluvarpinu Forster var dæmdur sígur. Simamynd/Reuter