Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1989, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1989, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1989. 9 Utlönd V-þýsk fyrirtæki flæktísölu á sinnepsgasi? Gizur Helgasan, DV, Reersnæs: Ríkisrekiö indverskt verslunarfyr- irtæki seldi í marsmánuði síöastliön- um til írans 60 tonn af efnum sem notuð eru til framleiöslu á eiturgasi. V-þýsk yfirvöld rannsaka málið eins og er og þá aðallega hvort 257 tonna sending af sömu efnum sé nú á leið- inni til írans með v-þýsk fyrirtæki í spilinu. Indverskur embættismaður sagði í viðtali við New York Times nú á laugardaginu aö þetta indverska verslunarfyrirtæki hefði selt 60 tonn af thinyl-klóríö til írans fyrir 50 þús- und dollara. Hann undirstrikaði að hér væri ekki um að ræða neitt ólög- legt þar eð umrætt efni er notað til framleiðslu á illgresiseyði og því eng- ar hömlur á kaupum og sölu á því. Það er aftur á móti einnig notað við framleiðslu á sinnepsgasi. Síðastliðinn fimmtudag gerði v- þýska lögreglan skyndiárás á efna- verksmiðjuna Reineisen GMBH í Dusseldorf. Ríkissaksóknari segir fullsannað að fyrirtækið hafi selt 257 tonn af thinyl-klóríð til írans án þess að fá útflutningsleyfi fyrst. Nú kanna yfirvöld hvort efnið sé á leiðinni til írans með skipi. Yfirvöld í V-Þýskalandi hófu rann- sókn í málinu þegar bandaríski utan- ríkisráðherrann, James Baker, gaf starfsbróður sínum, Vestur-Þjóð- verjanum Hans Dietrich Genscher, ábendingu um aö v-þýskt fyrirtæki væri flækt í sölu á sinnepsgasi til írans með Indland sem miUilið. Setja stjóm Júgóslavíu úrslitakosti Júgóslavneskir verkamenn settu ríkisstjóm Ante Markovic úrslita- kosti í gær samkvæmt fréttum dag- blaðsins Politika og kröfðust þess að hömlur yrðu settar á verðbólguhrað- ann í landinu. Verðbólga í Júgóslav- íu nemur nú 652 prósentum. Verkamennimir, sem em frá iðn- aðarhverfinu Rakovica, lögðu fram kröfur sínar í bréfi til forsætisráð- herra og annarra embættismanna ríkisstjómarinnar. Verkamennimir fara fram á að yfirvöld leggi fram raunhæfar efna- hagsaðgerðir sem hægi á verðbólgu. Segja þeir að verði það ekki gert fyr- ir haustið, nánar tiltekið september- mánuð, þurfi stjórnvöld að taka af- leiðingunum sem af geti hlotist. Tugþúsundir verkamanna frá Rakovica fóm í kröfugöngu að þing- húsinu 1 Belgrad í október síðastíiðn- um en snem aftur til vinnu að beiðni Slobodan Milosevic. Mikil óánægja með kaup og kjör ríkir meðal Júgóslava. Hafa þeir sýnt óánægju sína með því að efna til verkfalla og hafa um 800 verkföll skollið á það sem af er árinu. Reuter Lífeyrissjóðir eru samtrygging! Samtrygging felst meðal annars í því að þeir sem njóta örorku-, maka- eða barnalífeyris fá almennt langtum hærri lífeyri en sem nemur greiddum iðgjöldum til viðkomandi lífeyrissjóðs. Sumir halda hins vegar að lífeyrissjóðir séu eins konar bankabók, þ.e. iðgjöidin fari inn á sérreikning hvers og eins sjóðfélaga og greiða skuii lífeyri eins lengi og innistæðan endist - en ekki lengur! Um 1700 sjóðfélagar með um 400 börn njóta örorku-og barna- lífeyris hjá SAL-sjóðunum. Hætt er við að örorku- og barnalífeyrir yrði rýr ef eingöngu ætti að miða viðgreidd iðgjöld bótaþeganna. Lífeyrissjóðir eru ekki bara bankabók. Þeir eru langtum meira! í> Lífeyrissjóðir eru samtrygging sjóðfélaga! Mundu það! SAMBAND ALMENNRA IÍFEYRISSIÓDA - Samræmd lífeyrisheild - Kvöldverður við Niagara fossa Þú flýgur með Arnarflugi tilAmsterdam. Þar tekur við þér breiðþota trá KLM sem lendir í Toronto kl. 15:20 að staðartíma. Ef þig langar til að borða kvöldverð við Niagara fossa, hefurðu nógan tíma. Kr. 59.620

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.