Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1989, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989.
Utlönd
Þingkosningar 1 Japan:
Fjörutíu flokkar bjóða fram
Innan tveggja vikna fara fram
kosningar til hluta sæta í efri deild
japanska þingsins. Úrslit þessara
kosninga gætu reynst mikilvæg í
ljósi þess aö kosningar til neðri deild-
ar, þar sem völdin liggja, fara aö öll-
um líkindum fram í haust.
Fréttir um framhjáhald Sosuke
Uno, forsætisráðherrans, sem flestir
japanskir kjósendur hafa heyrt ein-
hvem áv^ening af, gætu reynst
stjórnarflokknum, Frjálslynda lýð-
ræöisflokknum, þrándur í götu í
komandi kosningum sem og meint
aðild embættismanna að Recruit-
hneykslinu og óánægja almennings
með nýjan söluskatt.
En þeir sem eru eitthvaö óánægðir
með stjórnarflokkinn geta snúið sér
annað. Fjörutíu flokkar bjóða fram í
þingkosningunum sem fram fara
þann 23. þessa mánaðar. Það er því
ekki skortur á stjónmálaflokkum í
Japan.
Sumir þessara flokka em tiltölu-
lega nýir, aðrir í smærri kantinum,
til dæmis hefur einn flokkur aðeins
á að skipa einum frambjóðanda og
enn aðrir eru þekktir vegna ára-
langra afskipta sinna af póhtík.
Hverjir svo sem þessir flokkar eru
má búast við að stjórnarandstöðu-
flokkunum gangi vel í ljósi allra
þeirra hneykslunarmála sem dunið
hafa yfir stjórnarflokkinn nýveriö.
Flokkur fljúgandi furðuhluta
Aiko Anzai var eitt sinn meðhmur
í Frjálslynda lýðræðisflokknum en í
kjölfar Recruit-hneykshsins stofnaði
hún Sólskinsflokkinn. Flokkurinn
býður fram til þingskosninga nú í
fyrsta sinn og hefur alls á níu fram-
bjóðendum að skipa.
Flestir hinna smærri flokka að-
hyllast svipaða stefnu; að hreinsa til
í póhtíkinni. Sumir hafa á sinni
stefnuskrá eitthvað ákveðið málefni.
Einn flokkur til dæmis berst gegn
aukinni útbreiðslu sjúkdómsins
eyðni. Segja meðlimir hans að eyðni
sé mun alvarlegra vandamál en Rec-
ruit-hneykslið og að stjórninni sé
skylt að láta málið til sín taka.
Sumir flokkanna bera einkennileg
nöfn s.s. íþróttaflokkurinn og Flokk-
ur fljúgandi furðuhluta sem stofnað-
ur var fyrir sjö árum. „Með rann-
sóknum á fljúgandi furðuhlutum get-
ur Japan látið sitt af hendi rakna í
þágu friðar," segir Tokuo Morowaki,
formaður flokksins.
Sigurstranglegastur flokkanna er
án efa Sósialistaflokkurinn undir
stjórn Takao Doi en flokkurinn bætti
töluvert við sig í borgarstjórnarkosn-
ingunum í Tokýo nýverið.
Reuter
SUMARTILBOÐ
Á PÍANÓUM
greidast á allt að 2 árum
HLJÓDFÆRAVERSLUN
PÁLMARS ÁRNA HF
HLJÓÐFÆRASALA - STILLINGAR - VIÐGERDIR
ÁRMÚLI38,108 REYKJAVÍK, SlMI 91-32845
SÍMNEFNI: PALMUSIC - FAX: 91-82260
AUKABLAÐ
UM
HÚS OG GARÐA
Á MORGUN
20 síðna aukablað um framkvæmdir við
hús og garða fylgir DV á morgun.
Meðal efnis:
Viðgerðir og viðhald húsa, skjólveggir,
málning, viðarvörn, heitir pottar, garðskál-
ar og hellur, auk annars sem tengist fram-
kvæmdum við hús og garða.
HUS OG GARÐAR
Á MORGUN
Mitsuko Nakanishi, fyrrum geisja. Hún hefur haldið því fram að Uno forsæt-
isráðherra Japans hafi greitt sér dável fyrir nokkurra mánaða „vináttu".
Þessi frásögn hefur komið sér illa fyrir forsætisráðherrann. Teikning Lurie
ARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 91-84477, Austurstræti 22, sími 91-623060.