Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1989, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1989, Síða 27
bRlÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989. 27 A£mæli Guömundur R Jóhannsson Guðmundur R. Jóhannsson skrif- stofumaður, Alfheimum 36, Reykja- vík, verður fimmtugur á morgun. Guðmundur er fæddur í Reykjavík en ólst upp á Svarðbæh í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann var í námi í Reykjaskóla í Hrútafirði og við Samvinnuskólann á Bifröst. Guðmundur var skrifstofumaður í Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöðum 1961-1964 og í Búnaðarbankanum á Egilsstöðum 1964-1965. Hann var bankastarfsmaður í Bondernes Bank í Osló 1965-1967 og skrifstofumaður hjá<Loftleiðum í Reykjavík 1967-1971. Guðmundur var gjaldkeri hjá Ólafi Gíslasyni hf. í Reykjavík 1971-1980, gjaldkeri hjá Borgarverki hf. í Borg- amesi 1980-1982 en hefur unnið hjá Endurskoðendaþjónustunni frá 1988. Guðmundur var ritstjóri Hlyns, tímarits Landssambands íslenskra samvinnustarfsmanna, 1983-1987 og ritstýrði átta af ellefu bindum árbók- ar Nemendasambands Samvinnu- skólans, sem er nemendatal skólans og aðrar heimildir um skólann. Þá sá hann um afmælisrit skólans á sið- asta ári. Guðmundur hefur staðið að ýmsum öðrum útgáfum, ritað grein- ar í blöð og starfað að félagsmálum. Systkini Guðmundar eru María Sólrún, f. 21. apríl 1943, giftlngimar Magnússyni, sjómanni í Grindavík, og eiga þau eitt bam en hún á þijú börn frá fyma hjónabandi; Hildur Ósk, f. 9. janúar 1946, gift Jarl Lund- bladh, málmsmið í Jönkauping í Sví- þjóð, en hún átti áður fimm börn frá fyrri hjónaböndum; Sigbjöm Jón Bjami, f. 23. janúar 1949, sjómaður í Grindavík, en hann á eitt bam frá fyrra hjónabandi; Lóa Björg, f. 14. maí 1952, gift Gunnari Egonssyni, garðyrkjumanni í Kópavogi, og eiga þau tvö börn. Systkini Guðmundar samfeðra em Ragnar, f. 25. maí 1938, d. 1. maí 1977, átti eitt bam, og Guð- mundur, f. 18. apríl 1943. Foreldrar Guðmundar: Jóhann Jónsson, f. 23. mars 1896, d. 3. nóv- ember 1979, verkamaður á Vífllsstöð- um í Garðabæ, og kona hans, Júlíana Bjamadóttir, f. 7. febrúar 1920, verkakona í Kópavogi. Jóhann var sonur Jóns Guðmundssonar frá Eg- ilsstöðum í Ölfusi og konu hans, Jó- hönnu Jónsdóttur. Júlíana er dóttir Bjama, b. á Sveinsstöðum í Rvík, Sveinssonar, bróður Jóns Berg- manns, skálds og lögregluþjóns í Hafnarfiröi, afa Óttars Yngvasonar, forstjóra íslensku útflutningsmiö- stöðvarinnar. Sveinn var sonur Sigf- úsar Bergmanns, b. á Króksstöðum í Miðfirði, Guðmundssonar, bróður Sveins, prests í Kirkjubæ, Skúlason- ar, langafa Brynjólfs Bjamasonar, forstjóra Granda. Móðir Sigfúsar var Júlíana, dóttir Steins, sonai' Sigfúsar Bergmanns, b. á Þorkelshóli í Víðid- al, langafa Guðmundar Björnssonar landlæknis, Páls Kolka og Jónasar, fóður Ögmundar fréttamanns. Meöal afkomenda hans em einnig Ingi- mundur Sigfússon, forstjóri Heklu, og Bjöm Guðmundsson prófessor. Móðir Sveins var Jóhanna, dóttir Jóns, b. á Sveðjustöðum, Guðmunds- sonar og konu hans, Ingibjargar Guðmundur R. Jóhannsson. Halldórsdóttur, systur Helgu, langömmu Björgvins Schram, föður Ellerts Schram ritstjóra. Móðir Júlí- önu var Björg Einarsdóttir, hús- manns í Fjósakoti, Eyjólfssonar og konu hans, Valgerðar Jónsdóttur. Þórarinn Vilbergsson Til nammgju með daginn Þórarinn Vilbergsson bygginga- meistari, Laugavegi 13, Siglufirði, ersjötugurídag. Þórarinn fæddist á Hvalnesi við Stöðvarfjörð og ólst upp á Stöðvar- firði. Hann fór í Iðnskólann á Akur- eyri og lærði húsasmíðar hjá Eyþóri Tómassyni í Lindu en því námi lauk með sveinsprófi 1944. Eftir sveinsprófið vann Þórarinn um tima hjá Eyþóri en síðar hjá Almenna byggingafélaginu við byggingu síldarverksmiðjunnar á Hjalteyri og síldarverksmiðjunnar SR 46 á Siglufirði. Hann var síðan starfsmaður SR í tvö ár. Þórarinn fékk meistararéttindi 1947 og hóf þá sjálfstæðan atvinnurekstur á Siglu- firði en frá þeim tíma hefur hann starfað sjálfstætt að undanskildum fjórum árum, 1979-83, er hann var byggingafulltrúi Siglufjarðarkaup- staðar. Fram til ársins 1962 rak Þórarinn fyrirtæki í eigin nafni en það ár stofnaði hann Byggingafélagið Berg hf. ásamt öðrum og er það rekið af sömu eigendum enn í dag. Þórarinn var framkvæmdastjóri félagsins til 1979 og eftir það stjómarformaður. Þórarinn hefur tekið virkan þátt í félagsmálum og þá einkum þeim er tengjast starf hans með einum eða öðrum hætti. Hann var formað- ur prófnefndar í húsasmíði í nokkur ár.'sat í stjórn Trésmíðafélags Siglu- fjarðar um árabil og kenndi við Iðn- skóla Siglufjaröar um tíma. Þá var hann einn af stofnendum Húsein- inga hf. og stjórnarformaður um nokkurra ára skeið. Þórarinn hefur reynst farsæll í starfi og manna- haldi og liggur eftir hann mikið verk í byggingasögu Siglufjaröar. Þá hef- ur hann útskrifað sextán lærlinga í húsasmíði og eru átta þeirra enn starfandi hjá félaginu. Þórarinn kvæntist 24.5.1947, Fanneyju Sigurðardóttur húsfreyju, f. 30.10.1922, dóttur Andreu Sæby og Sigurðar Jónssonar frá Eyri í Siglufirði. Systkini Þórarins: Sigurborg, f. 27.4.1906, gift Þorvaldi Sveinssyni og eru þau búsett á DAS í Reykja- vík; Þorgrímur, f. 29.9.1907, var búsettur á Stöðvarflrði en er nú lát- inn; Magnús, f. 11.8.1909, var búsett- ur á Stöðvarfirði og er látinn; Hall- dóra, f. 26.3.1911, var búsett á Stöðv- arflrði og er einnig látin; Marta, f. 27.10.1913, er búsett á Stöðvaríirði; Þórarinn Vilbergsson. Aðalheiður, f. 3.6.1915, er látin en var gift Hjalta Gunnarssyni á Reyð- arfirði; Kjartan, f. 6.3.1921, kvæntur Þóru Jónsdóttur á Stöðvarflrði; Ari, f. 6.5.1925, var kvæntur Ámýju Þor- steinsdóttur á Stöðvarfirði, og Anna, f. 8.4.1928, gift Stefáni Stef- ánssyni á Stöðvarfirði. Foreldrar Þórarins voru Vilberg- ur Magnússon, b. á Hvalnesi, f. 31.7. 1882, og kona hans, Ragnheiður Þor- grímsdóttir húsfreyja, f. 19.2.1884. | unarbifreiðinamilliReykjavíkurog Akureyrar frá því hann var tuttugu | ára. 90 ára Maria S. Gísladóttir, Furagerði 1, Reykjavík. 85 ára Kári Jónsson, Valagerði, Seiluhreppi. Þuríður Valtýsdóttir, Hverfisgötu 106, Reykjavík. Sigurgeir Þorsteinsson, Stóru-Mástungu lA, Gnúpverja- hreppi. 80 ára Ingveldur Jóhannsdóttir, Litlu-Þúfu, Miklaholtshreppi. 75 ára Jóhanna Þorsteinsdóttir, Búðavegi 50, Búöahreppi 70 ára Árni Jónasson, Boðagranda 4, Reykjavik. 60 ára Þorbjörn Friðriksson, Stafnesi, Raufarhafnarhreppi. Hermann Helgason, Hrauntúni 14, Keflavík. Sólveig Júliusdóttir, Viðigrund 9, Sauðárkróki. 50 ára Sigurður Jónsson, Hólmagrund 2, Sauðárkróki Emil Adolfsson, Barrholti 23, Mosfellsbæ. Klara Benediktsdóttir, Mýrarseli 11, Reykjavík. Sigurlína Sigurgeirsdóttir, Kambsmýri 10, Akureyri. Jón H. Arngrimsson, Hjarðartúni 10, Ólafsvík. Valgerður Jóhannesdóttir, Víðihlíð 28, Reykjavík. 40 ára________________________ Jóhanna Óladóttir, Stórholti 29, ísafirði. Gunnar Skaiphéðinsson, Álfabrekku 1, Búðahreppi. Steinunn María Einarsdóttir, Illugagötu 41, Vestmannaeyjum. Jónas Jóhannsson, Brávöllum 9, Egilsstöðum. Hanna Brynja Axelsdóttir, Gerðakoti 7, Bessastaðahreppi Valur B. Sigurðsson, Kleppsvegi 38, Reykjavík. Kristbjörg Ingvarsdóttir, Markaskarði, Hvolhreppi. Stefán Þorvaldsson StefánÞorvaldsson,Birkilundi6, | ólstþarupp.Hannhefurveriðbif- Akureyri, er fertugur í dag. Stefán reiðarstjórihjáKEAfráþvíhann er fæddur á Lundi við Akureyri og | varsautjánáraoghefurkeyrtáætl- Andlát Benedikt Bogason Benedikt Bogason alþingismaður lést 30. júní og verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni kl. 11.30 í dag. Benedikt var fæddur 17. september 1933 á Laugardælum í Flóa og lauk prófi byggingaverkfræði í TH í Hels- ingfors í Finnlandi 1961. Hann var framkvæmdastjóri Flóaáveitunnar og Ræktunarsambands Flóa- og Skeiðaáveitna 1961-1964. Benedikt var stundakennari í Miðskóla Sel- foss, Iðnskóla Selfoss og Garðyrkju- skóla ríkisins á Reykjum í Ölfusi 1962-1964 og verkfræðingur hjá gatna- og holræsadeild borgarverk- fræðings í Rvík 1964-1971. Hann rak eigin verkfræðistofu í Rvík 1971- 1980, var verkfræöilegur ráðunaut- ur Framkvæmdastofnunar íslands frá 1980 og síðan fulltrúi forstjóra Byggðastofnunar. Benedikt var í hreppsnefnd Selfosshrepps og í bygginganefnd Selfosskaupstaðar 1962-1964. Hann var meðstofnandi og fyrsti formaður Félags íslenskra stúdenta í Finnlandi og formaður Sambands íslenskra stúdenta er- lendis 1962-1963. Benedikt var í stjórn Suomifélagsins 1969-1980 og í byggingarnefnd Ríkisútvarpsins frá 1981. Hannvar varaþingmaður Borgaraflokksins í Reykjavík 1987 og alþingismaður frá því i apríl í vor. Benedikt kvæntist 17. ágúst 1958, Unni Svandísi Magnúsdóttur, f. 22. september 1933. Foreldrar Unnar voru Magnús Brynjólfsson, verkamaður í Rvík, og kona hans, Margrét Ólafsdóttir. Börn Bene- dikts og Unnar eru Magnús Grétar, f. 15. janúar 1958 og Hólmfríður, f. 3. október 1960. Bræöur Benedikts eru Eggert, f. 4. ágúst 1931, og Sig- urður, f. 16. apríl 1939. Foreldrar Benedikts voru Bogi Eggertsson, verkstjóri í Áburðar- verksmiðjunni í Gufunesi, áður b. í Laugardælum í Flóa, f. 25. nóvemb- er 1906, d. 22. júlí 1987, ogkona hans, Hólmfríður Guðmundsdóttir, f. 3. desember 1906, d. 27. mars 1972. Föð- urbróðir Benedikts var Bjarni, faðir Rúnars, slökkvihðsstjóra í Rvík. Föðursystir Benedikts var Bene- dikta, móðir Eggerts Haukdal al- þingismanns. Onnur fóðursystir var Rósa, amma Þórhildar, alþingis- manns og leikstjóra, og Eggerts Þor- leifssonar, leikara og tónlistar- manns. Bogi var sonur Eggerts, al- þingismanns og hreppstjóra á Laug- ardælum í Flóa, Benediktsson, prests í Vatnsfirði, Eggertssonar, bróður Guðrúnar, kona Magnúsar. Waage, skipherra í Stóru-Vogum, ættfoður Waageættarinnar, langafa Ingunnar, móður Þorsteins Thorar- ensen rithöfundur. Móðir Benedikts var Guðrún Bogadóttir, b. í Hrapps- ey, Benediktssonar, afa Boga Bene- diktssonar, ættíoður Staðarfellsætt- arinnar, langafa Áslaugar, móður Geirs Hallgrímssonar seðlabanka- stjóra. Bogi á Staðarfelli var einnig langafi Guðnýjar, móður Vals Arn- þórssonar bankastjóra. Bogi í Hrappsey var langafl Davíðs, afa Davíðs Scheving Thorsteinsson, for- stjóra Sólar hf. Móðir Eggerts í Laugardælum var Agnes, systir Sig- ríðar, ömmu Þorsteins, kaupfélags- stjóra á Reyðarfirði, afa fjölmiðla- mannanna Ólínu Þorvarðardóttur hjá sjónvarpinu, Herdísar Þorgeirs- dóttur, ritstjóra Mannlífs, og Eiríks Jónssonar blaðamanns. Agnes var dóttir Þorsteins, b. í Núpakoti, Magnússonar, ættfóður Núpakots- ættarinnar. Hólmfríður var dóttir Guðmund- ar, b. á Læk í Flóa, Snorrasonar, b. á Læk, Þórarinssonar, b. í Þorleif- skoti í Hraungerðishreppi, bróður Guðmundar, langafa Vilhjálms, skálds frá Skáholti. Þorleifur var sonur Arnbjarnar, b. á Hrafnkels- stöðum í Hrunamannahreppi, bróð- ur Salvarar, langömmu Björns, afa Björns Th. Björnssonar listfræð- ings. Arnbjörn var sonur Ögmund- ar, b. á Hrafnkelsstöðum, Jónssonar og konu hans, Guðrúnar Þórarins- dóttur. Móðir Guðrúnar var Elín Einarsdóttir, b. í Varmadal, Sveins- sonar og konu hans, Guðrúnar Bergsteinsdóttur, b. á Árgilsstöðum, Guttormssonar, ættföður Árgils- staðaættarinnar, fóður Þuríðar, langömmu Jóhönnu, ömmu Gunn- ars Arnar Gunnarssonar listmál- ara. Móðir Snorra var Sigríður, systir Guðmundar í Birtingaholti, langafa Ásmundar Guðmundssonar biskups, og Sigríðar, móður Ólafs Skúlasonar biskups. Sigríður var dóttir Magnúsar, b. í Birtingaholti, Benedikt Bogason. Snorrasonar, bróður Guðrúnar, ættmóður Jötuættarinnar. Móðir Guðmundar var Hólmfríður Eiríks- dóttir, b. í Túni í Flóa, Bjarnasonar, vefara í Árbæ á Rangárvöllum, Stef- ánssonar, b. í Árbæ, Bjarnasonar, b. á Víkingslæk, Halldórssonar, ætt- fóður Víkingslækjarættarinnar. Móðir Eiríks var Margrét Eiríks- dóttir, b. í Bolholti, Jónssonar, ætt- föður Bolholtsættarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.