Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1989, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1989, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1989. Útlönd Heimsmet í langfiugi Kampakátir ástralskir flugmenn eftir að þeir settu met í iangHugi á breið- þotu. Simamynd Heuter Flugmenn frá ástralska flugfélaginu Quantas settu heimsmet í lang- flugi á breiðþotu í gaer [Migar þeir lentu í Sidney eftir liðlega tuttugu tima flug frá London án viðkomu. Vegaiengdin milli borganna er 18 þúsund kílómetrar og er þetta í fyrsta skipti sem farþegavél flýgur þessa leið viö- stööulaust. Flugvéiin, sem er af geröinni Boeing 747-400, tekur 367 manns en far- þegamir voru aðeins 24, auk krikketkúlu. Farangur farþeganna og áhafn- ar fylgdi á eftir í annarri vél til að létta á. Sérstakt eldsneyti var notað á flugvélina fyrir þetta flug. Verkjapillur í bömin Dönsk böm eru stómeytendur verkjastillandi lyfja. Meira en helmingur nemenda í 7. bekk hafa oft neytt verkjalyfla á síöustu þremur mánuðum. í 9. bekk hafa 60 prósent nemenda étið slík lyf. Þetta kemur fram í rann- sókn sem gerö var í Hróarskelduamti fyrir sunnan Kaupmannaböfii. AIls vom 4044 nemendur í Hróarskeldu spurðir um neyslu sína á verkja- lyfium. Lone Meyer skólalæknir sem annaðist rannsóknina ásamt öðrum skóla- læknum í Hróarskeldu varar við því aö mikil neysla á verkjalyfjum geti verið undanfari lyfjamisnotkunar. Önnur dönsk rannsókn bendir til að tíunda hvert bam á aldrinum 13-14 ára hafl einhvem tíma tekiö tauga- eða svefiipillu. Ritzau Söngvar satans kærðir Bók Salmans Rushdie, Söngvar satans, sem kemur út í Svfþjóð í dag á vegum Bonniers forlagsins, hefur verið kærð til dómsyfirvalda fyrir rangtúlkanir og hatur á þjóð- arbroti. Þaö er Ahmed Rami, talsmaður sænskra múhameðstrúarmanna, sera hefur kært útgáfu bókarinnar þar sem hún breiði út hatur á mú- haraeðstrú og múhameöstrúar- mönnum. Rami hefur sjálfur veriö ákærður fyrir hatursskrif gegn gyðingum sem birtust í bók hans „Hvað er ísrael?“ og á hann að koma fyrir rétt 5. september. Bók Rushdies hefur lengi veriö fáanleg á ensku í Svíþjóö en enginn hefur kært þá útgáfu. TT Skæruliöar drepa hermenn Skæruliðar Tamíla á Sri Lanka drápu 24 indverska hermenn á miöviku- dagskvöld í árás sem þeir gerðu á herbúðir þeirra frá nærliggjandi sjúkra- húsi í norðvesturhéraði landsins. Embættismaður í indverska sendiráð- inu sagði að hermennimir hefðu ekki svarað skothríöinni af ótta við að drepa vistmenn sjúkrahússins. Uppreisnarmennimir sögðu að ekkert mannfall heföi orðið í liði þeirra. Þeir sögöust hafa náö á sitt vald nokkru magni vopna þegar þeir hertóku búöimar, þar á meðal 15 rifflum og þremur hríðskotabyssum. Múhameðstrúarmenn í Sviþjóð hafa kært útgáfu bókar Salmans Rushdie, Söngva safans. Slmamynd Heuler Lögreglukonur stöðva Tutu Desmond Tutu erkbiskup og 120 aðrir andstæðingar kynþáttaað- skilnaðarstefnu stjórnvalda í Suð- ur-Afriku höfðu að engu lög sem banna mótmæli á almannafæri og fóru í göngu um Höfðaborg í gær. Göngumenn vom síðan stöðvaðir af hópi óvopnaðra lögreglukvenna. Ung svört lögreglukona baö hóp- inn um að dreifa sér en Tutu neit- aði þvi og kraup á kné í bæn úti á miðri götu. Eftir tuttugu minútna þref samþykkti Tutu loks að halda á brott gegn því skilyrði að enginn yrði handtekinn. Tutu sagðist mundu standa aftur fyrir sams konar aðgerðum ef fyrrum póli- tískir fangar, sem nú væru í stofú- fangelsi, yrðu handteknir aftur. Lögreglukona stöövar Desmond Tutu erkibiskup í mótmælagöngu í Höfóaborg í gær. Símamynd Reuter Walesa hafnar tilnefningu til forsætisráðherra: Mazowiecki líklegastur í embættið Tadeusz Mazowiecki er talinn líklegastur til að taka við forsætisráðherra- embættinu i Póllandi. Símamynd Reuter Czeslaw Kiszczak sagði af sér emb- ætti forsætisráöherra Póllands í gær og ruddi þar meö brautina fyrir ríkis- stjóm Samstöðu, Bændaflokksins og Demókrataflokksins, í landinu, fyrstu ríkisstjórn Austur-Evrópurík- is sem kommúnistar eiga ekki aðild að. Heimildarmenn í Póllandi sögðu í gær að forseti landsins, Wojciech Jaruzelski, myndi í dag leggja til að Tadeusz Mazowiecki, háttsettur maður innan Samstöðu og ritstjóri hins vikulega tímarits Samstöðu, tæki við forsætisráðherraembætt- inu. Lech Walesa, leiðtogi hinna óháðu verkalýðssamtaka Samstöðu, og leið- togar Bændaflokksins og Demó- krataflokksins, samþykktu í gærdag að reyna stjómarmyndun. Aðspurð- ur hvenær mætti búast viö að þeim tækist að koma saman stjóm sagði Walesa „frekar fyrr en síðar“. Walesa hefur hins vegar hafnað að vera í forsæti slíkrar sljómar þrátt fyrir samþykkt pólska þingsins um framboö hans til forsætisráðherra. Ljóst er þó að forsætisráðherraemb- ættið í hugsanlegri samsteypustjórn flokkanna þriggja fellur í hlut Sam- stöðu. Auk Mazowieckis er taliö að Bronislaw Geremek, leiötogi Sam- stöðu á þingi sé líklegur arftaki Kiszczaks. Jaurzelski og Walesa komu saman til fundar í gær þar sem forsetinn samþykkti í grundvallaratriðum stofnun ríkisstjórnar þar sem komm- únistar yrðu ekki í forsæti. „Sú stað- reynd að ríkisstjórnarmyndun á sér stað í kjölfar hvatningar Samstöðu er einstaklega merkilegur atburð- ur,“ sagði Geremek í gær. í ríkisstjórninni myndu kommún- istar hins vegar halda völdum yfir embættum innanríkisráðuneytis og varnarmála. Samstaða samþykkti það til að draga úr ótta Sovétríkjanna að stjórnmálaástandið í Póllandi gæti ógnað stöðu Póllands í Varsjár- bandalaginu. Walesa sagði í sjón- varpsviðtah í gærkvöldi aö Samstaða hefði ekki í hyggju að endurskoða eða draga í efa hernaðarlegt sam- band Póllands og Sovétríkjanna. Samstaða á tímamótum Samstaða stendur nú á tímamót- um. Samsteypustjóm hennar og stjómmálaflokkanna tveggja, Bændaflokksins og Demókrata- flokksins, yrði fyrsta stjóm Póllands sem kommúnistar eiga ekki formlega aðild að og myndi þar með binda enda á 45 ára stjórn kommúnista í landinu. Walesa hefur ekki skotið loku fyrir það að einhverjir kommúnista muni eiga sæti í ríkisstjórninni. Hann sagði hana opna fyrir öllum umbóta- sinnum. En leiðtogi kommúnista- flokksins, Mieczyslaw Rakowski, segir að samtökin séu að brjóta gegn samkomulagi kommúnista og Sam- stöðu frá því í apríl. Samkvæmt því hafi samtökin sam- þykkt að láta kommúnistum eftir forsæti ríkisstjómar. En stjórnar- andstaðan í landinu bendir á niður- stöður þingkosninganna í júní síðast- liðnum þegar fulltrúar Samstöðu gjörsigruðu fulltrúa kommúnista og segja að þær niðurstöður veiti þeim rétt til aukinnar þátttöku í stjórn landsins. Miðstjórn kommúnistaflokksins kemur saman til fundar á morgun, laugardag. Sagði einn þingmaður kommúnista í gær að þeir væru ekki reiðubúnir til að vera í stjórnarand- stöðu. „Það myndi eyðileggja flokk- inn,“ sagði hann. Hann sagöi að margir kommúnistar væru óánægðir með að þurfa að láta stjórn landsins af hendi. Samstöðumenn segja að kommún- istar myndu enn halda forsetaemb- ættinu, stjórn á lögreglu og her. Mazowiecki forsætisráðherra? Dagblaðiö Gazeta Wyborcza birti mynd af Mazoziecki á forsíðu í morg- un undir fyrirsögninni „Forsætis- ráðherrann okkar“. Tadeusz Mazowiecki er einn nán- asti ráðgjafi Walesa. Mazowiecki er 62 ára gamall og hann fór fyrir menntamönnunum sem gáfu verk- fallsmönnum í Lenín skipasmíða- stöðvunum í Gdansk í ágúst 1980 holl ráð. Samstaða varð til upp úr verkfallinu. Mazowiecki, sem er hæglátur og varfærinn kaþólikki, var í forustu Samstöðumanna í viðræðum við rík- isstjórnina á síðastliönum vetri. í kjölfar þeirra viðræðna var ákveðiö að stjórnarandstaöan fengi sæti á pólska þinginu. Hann sat í fangelsi í eitt ár eftir að stjórnvöld lýstu yfir herlögum í des- ember 1981. í kosningunum í júní síðastliðnum var Mazowiecki ekki í framboði eins og margir forustu- manna verkalýðshreyfingarinnar heldur hóf hann aftur útgáfu viku- ritsins sem hann stýrði þar til yfir- völd hönnuðu það við setningu her- laga. Á 7. áratugnum var hann í tíu ár opinskár þingmaður lítils hóps ka- þólskra stjórnarandstæðinga. Á sama tíma ritstýrði hann mánaðar- ritinu Wiez þar sem birtust verk eft- ir höfunda sem kommúnistar höfðu bannað. Honum var meinað að fara í framboð 1972 þegar hann hafði ár- angurslaust reynt að hefja rannsókn á morðum hersins á íjölda verka- manna í Eystrasaltshéruöum lands- ins í desember 1970. Reuter Leiötogi Bændaflokksins, Roman Malinowski, Walesa, og leiötogi Demó- krataflokksins, Jerzy Jozwiak. Þeir ákváðu í gær að setja á laggirnar sam- Steypustjórn. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.