Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1989, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1989, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1989. 9 Undantekningar hafa þá áráttu að vera ævinlega frá reglunni. Margir telja að unnt sé að sníða einhverja meginreglu um óskir og þarfir flugfarþega, en við hjá Arnarflugi vitum betur. Þörf eins getur verið martröð annars. Þess vegna reynum við ekki að bjóða viðskiptavinum okkar staðlaða þjónustu. Eitt af markmiðum okkar er að veita sérhverjum yiðskipta- vini aðstoð og umönnun sem miðast við þarfir hans, óskir eða aðstæður. Far- þegar Amarflugs komast fljótt að raun um að ekki er ætlast til að þeir aðlagi sig að þjónustu félagsins heldur lagar félagið þjónustu sína að þörfum þeirra. Hvert sem þú ætlar, hverjar sem óskir þínar eru - hikaðu ekki við að ræða við okkur hjá Arnarflugi. Við leysum kannski ekki öll heimsins vandamál - en við gefumst ekki upp án þess að reyna. Einstaklingsbundin þjónusta, sniðin hverju sinni að undantekningunni, er meginregla hjá Arnarflugi. ARNARFLUG „Gjöriði svo vel” Söluskrifstofur: Lágmúla 7, sími 84477 • Austurstræti 22, sími 623060 • Keflavík, sími 92-50300 OKKUR KEMUR ALDREI NEITT Á ÓVART £

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.