Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1989, Qupperneq 25
LAUGARDAÍiÚR 21. ÓKTÓBER 1989.
37
Handbolti unglinga
Nokkur íslensk lið fóru
utan til keppni
Víkingar sigruðu
á sterku móti
í Danmörku
Síöastliöiö sumar fóru nokkur ís-
lensk liö utan til keppni víös vegar
um Evrópu. Árangur liöanna var
yfirleitt mjög góður eins og venjulega
þegar íslensk unglingaliö eru annars
vegar. Allir viðmælendur DV voru
sammála um að keppnis- og æfing-
arferðir sem þessar skildu mikið eft-
ir sig, bæði keppnislega og félagslega.
Umsjón:
Heimir Ríkarðsson og
Brynjar Stefánsson
4. flokkur kvenna
hjáFHtil
Partiller í Svíþjóð
Aö sögn Erlings Kristiensens hjá FH
fór 4. flokkur FH til Partiller í Sví-
þjóð í lok júní síðastliöins. Stelpum-
ar stóöu sig mjög vel, þær komust í
A-úrslit sem verður að teljast mjög
góður árangur þar sem íslenska ald-
ursskiptingin passar ekki við þá
sænsku og voru FH-stelpumar því
Það eru handknattleikslið víða úr heiminum sem taka þátt i mótum viðs
vegar um Evrópu á sumrin, hér eru nokkrar FH-stelpur með handboltaliði
frá Austurlöndum.
dvaldist hópurinn svo á Riccione og
sleikti sólskinið.
Erna sagði að ferö eins og þessi
skilaði miklu félagslega og þjappaöi
hópnum vel saman og strax væri far-1
ið að tala um að senda 2. flokk
kvenna út næsta sumar.
4. flokkur kvenna hjá FH sem tók þátt i Partiller Cup í Svíþjóð.
Grótta í þriggja
vikna ferð til ítaliu
Grótta fór með einn flokk til útianda
síðastliðið sumar og var ferðinni
heitið aUa leið til Teramo á Ítalíu.
Þar er haldið eitt allra stærsta mót
sinnar tegundar í heiminum. Ema
Hjaltested, leikmaður með 3. flokki
kvenna hjá Gróttu, vissi ekki hvar í
röðinni hðið endaði en þær léku sjö
leiki, unnu fjóra leiki og töpuðu
þremur leikjum sem verður að telj-
ast þokkalegur árangur. Liðið tók
einnig þátt í litlu móti sem haldið var
í Gardiagrehe skammt frá Teramo
og náði Uðið að tryggja sér annað
sætið á mótinu. Síðustu 10 dagana
Víkingar á Randers
Freya mótið
Víkingar fóm til Randers og tóku þar
þátt í móti sem haldið hefur verið í
mörg ár við góðan orðstír. Mótið
nefnist Randers Freya World Cup.
Víkingar fóru með 3. flokk karla
og kvenna. Báöir Ookkarnir stóðu sig
ágætlega en þó sérstaklega karlaliðið
sem gerði sér Utiö fyrir og vann í
sínum aldursflokki. GlæsUegur ár-
angur það. Víkingar höfðu mikla
yfirburði og unnu úrslitaleikinn með
16 mörkum gegn 6. Eftir mótið héldu
svo bæði Uðin í sumarhúsin í Karls-
lunde rétt fyrir utan Kaupmanna-
höfn og dvöldust þar í góðu yfirlæti
í nokkar daga.
Undanfarin ár hefur það verið að
færast í vöxt að félög sendi flokka
utan tU keppni og skUar þetta miklu
til baka fyrir félögin og leikmennina.
Leikmenn öðlast mikla reynslu á því
að spUa við jafnaldra sína frá öðmm
löndum og bera sig saman við erlend
Uð. Sumarfríið verður styttra og eru
Uðin miklu fyrr aö komast í gang á
haustin sem skUar sér svo í betri
handknattieik.
3. flokkur karla hjá Víkingi sigraði á Randers Freya World Cup.
að spUa við stelpur sem vom oft á
tíðum einu ári eldri en þær. í úrsUta-
keppninni léku þær við stöUur sínar
frá Ungverjalandi, Júgóslavíu og
Danmörku, þær töpuðu öUum leikj-
nm þar. Aö sögn Erlings er jafnvel
stefnt að því að fara aftur út í sumar
með þennan hóp því að þessar stúlk-
ur komi til með taka við af þeim
meistaraflokki, sem nú er að spUa,
og verður lögð mikU áhersla á þenn-
an flokk í framtíðinni. Þess má geta
að þegar hafa nokkrar þeirra hafið
æfingar með meistaraflokknum.
Fjögur lið frá KR
fóru til Svíþjóðar
KR sendi fjóra flokka út síðasta sum-
ar, 3. og 4. flokk karla og kvenna.
Farið var út í lok júní og dvaUð við
keppni og æfingar í eina viku. KR-
ingar fóm einnig á PartiUer Cup í
Svíþjóð.
Að sögn Lárasar Lámssonar, þjálf-
ara hjá KR, komust bæði karlahðin
í A-úrsUt en kvennaUðin urðu að láta
sér nægja að leika í B-úrsUtum. Lár-
us kvartaði einnig undan því að ald-
ursskiptingin hentaði íslensku Uðun-
um Ula. En hann var ekki í vafa um
að keppnisferðir eins og þessi skU-
uðu sér mjög vel félagslega.
Æfingaferð frá Egilsstöðum til Reykjavíkur:
Leggja á sig ótrúlega mikla vinnu
- segir Karl Erlingsson, þjálfari Hattar
3. flokkur karla og kvenna hjá Hetti á Egilsstöðum sem ferðaðist þvert
yfir landið til að leika æfingaleiki við jafnaldra sina á höfuðborgarsvæð-
inu.
3. flokkur karla og kvenna hjá
Hetti á EgUsstöðum var í æfinga-
ferð í Reykjavík á dögunum. Erf-
iðleikum er háð hjá félögum úti á
landi að fá æfingaleiki og verða þau
að senda flokka í langar og dýrar
æfingaferðir svo að hægt sé að búa
flokka vel undir íslandsmót.
Karl Erlingsson er þjálfari þess-
ara flokka og sagði hann í samtaU
við DV að mikill hugur væri í
strákunum og nokkrir þeirra hefðu
frestað skólagöngu í vetur tU þess
aö þessi hópur gæti æft saman.
„Það háir þessum hópi að við
höfum aöeins tvo tíma í viku í
íþróttahúsi staðarins sem er aöeins
hálfur völlur en til að bæta þetta
upp höfum við aukaæfingar hve-
nær sem færi gefst. Þá erum við
að vinna í því aö fá fleiri tíma í
íþróttahúsinu.
Þessir krakkar eru tilbúnir að
leggja á sig ótrúlega mikla vinnu
til að ná langt í handboltanum.
Þeir æfa vel og þá má geta þess að
þessi æfingaferð kostar hvem leik-
mann tæplega tíu þúsund krónur.
Við ákváðum að taka ekki þátt í
Norðurlandsriðlinum í 3. flokki
karla í vetur heldur leika í deUda-
keppninni hér fyrir sunnan, þrátt
fyrir aö kostnaðurinn væri miklu
meiri, en þetta teljum við okkur
þurfa að gera til þess að ná árangri.
Núna um helgina höfum við leik-
ið fimm leiki við hð sém mér skUst
að séu í betri kantinum í 3. flokki
karla og ef miða á við úrsht úr
þeim leikjum eigum við hæglega
að geta unnið 2. deUdina og blandað
okkur í toppslaginn í 1. deUd.
Fyrsti leikurinn var gegn KR og
vorum við óheppnir að gera jafh-
tefli eftir hörkuleik. Strax að hon-
um loknum lékum viö við FH og
töpuðum þar sem við lékum okkar
versta leik í ferðinni.
Á laugardag lékum við við Val
og töpuðum með 9 mörkum eftir
að leikurinn hafði verið jafn þar til
undir lok leiksins að Valsarar röð-
uðu mörkum á okkur án þess að
okkur tækist að svara fyrir okkur.
Seinni leikurinn var síðan við
Stjömuna sem við unnum ömgg-
lega, 29-21.
Á sunnudag lékum við síöasta
leikinn og var hann gegn Fram, í
Laugardalshöll, og vann Fram okk-
ur með þremur mörkum, 24-21.
Stúlkumar hjá okkur byrjuðu
fyrst aö æfa handbolta síðastiiðinn
vetur og voru leikirnir núna um
helgina góður undirbúningur fyrir
keppnina í Norðurlandsriðlinum.
Við léku fyrst við KR og töpuðum
stórt, næsti leikur var síðan við 2.
flokk kvenna hjá Val og töpuðum
við honum með aðeins tveggja
marka mun, 10-12.
Síðan unnum við Stjörnuna, 15-6,
og lékum síðan tvo leiki viö FH.
Fyrri leikurinn endaði með jafn-
tefh, 11-11, en seinni leiknum töp-
uöum við, 13-2.
Síðasti leikurinn var síðan við
Fram og töpuðum við þeim leik,
19-8.“ sagði Karl að lokum.