Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Side 7
LAljfiARD AG U R 1 Áj
7
Fréttir
Saineiginlegt framboð:
Félagar í Alþýðuflokksfélagi
Reykjavíkur eru áhugasamir um
að katma vel möguleika á sameíg-
inlegu fkamboði með Alþýðu-
bandalaginu og Borgaraflokkn-
um fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar í vor. Fundur verður hald-
inn um þetta málefni í næstu
viku. Reiknað er méð að linur
muni skýrast á þeim fundi. Eins
hefur verið ákveðinn fundur í
Alþýðubandalagsfélagi Reykja-
víkur í næstu viku þar sem fund-
arefnið veröur það sama og hjá
krötununí.
Félagar í Birtingu, sem er hluti
af Alþýðubandalaginu, hafa sýnt
sameiginlegu framboði mikinn
áhuga. Ekki er eins víst aö félagar
í Alþýðubandalagsfélagi Reykja-
víkur séu eins áhugasamir og fé-
lagar þeirra í Birtingu. i i i
Framsóknartlokkurinn og
Kvennalistinn hafa gefið ákveðið
svar. Þeir flokkar verða ekki meö
i sameiginlegu framboöi. Allteins
er búíst við að Borgaraflokkurinn
bjðði fram með Alþýðuflokki og
Alþýðuþandalagi, það er ef að
sameigmlegu framboði verður.
„Það hafa ekki verið neihd skil-
yrði af okkar hálfu. Þó tel ég víst
að menn vxlji hafa jafnaðar-
mannastimpíl á framboðinu,“
sagði krati í samtali við DV.
Ef til samelginlegs framboðs
kemur þá verður framboðslistinn
ákveðinn í opnu próíXiöri. Þeir
sem DV ræddi við reiknuðu með
að ákvarðanir kæmu til með að
liggja fyrir innan fárra daga.
-sme
Dundee vill
ekki Ragnar
„Við höfum ákveðið aö semja ekki
við Ragnar Margeirsson. Hann stóð
sig ekki nógu vel í æfingaleik meö
okkur í gærkvöldi, er greinilega ekki
í nógu góðri æfingu og virtist ekki
nógu áhugasamur,11 sagði John
Blackley, aðstoðarframkvæmda-
stjóri skoska félagsins Dundee.
Ragnar hefur dvalið hjá Dundee
síðan á þriðjudag en er væntanlegur
heim í dag. Hann lék með liðinu gegn
1. deildar liði Raith Rovers á fimmtu-
dagskvöldið en Dundee vann þann
leik, 3-0.
„Við erum alltaf að svipast um eft-
ir sterkum leikmönnum og það er
ekki ólíklegt að við athugum betur
með íslenska knattspyrnumenn. ís-
lenska 21 árs landsliðið stóð sig mjög
vel á síðasta ári og þar eru áhuga-
verðir piltar en ég þekki þá ekki með
nöfnum,“ sagði Blackley sem lék um
árabil með Hibernian í úrvalsdeild-
inni og einnig með Newcastle í ensku
1. deildinni.
DV spurði hann um Guðmund
Torfason, leikmann með St. Mirren.
„Guömundur hefur staðið sig mjög
vel með St. Mirren og ég sá til hans
gegn Dunfermline á miðvikdags-
kvöldið. Hann spilaði mjög vel, skor-
aði og var óheppinn þegar hörkuskot
hans fór í þverslána."
-VS
FRAMLEIÐUM
ALLAR GERÐIR
STIMPLA
KRÓKHÁLSI 6 SlMI 671900 P
Ahugamenn um jarðgöng á Austurlandi sanngjamir:
Forgangur Vestfirðinga
- gott samkomulag, segir samgönguráðherra
„Austfirðingar hafa ekki gert neina
kröfu um að koma næst á eftir Ólafs-
firði varðandi jarðgangagerð. Mér er
ekki kunnugt um annað en að það
hafi ríkt gott samkomulag uru það
að Vestfirðingar yrðu næstir í röð-
inni og Austfirðingar hafa fallist á
það. Það er ekki bara að það sé alveg
ákveðið af hálfu stjórnvalda að það
verði byrjað á undan á Vestfjörðum
heldur hafa heimamenn sjálfir hist
og rætt um aö þetta yrði röðin,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon samgöngu-
ráðherra en hann telur að enginn
ágreiningur sé um það að hefja næsta
stórvirki í jarðgangagerð á Vestfjörð-
um.
í DV í gær var vitnað í samþykkt
fundar á Austurlandi síðan á miðju
ári 1988 þar sem þess var krafist að
næstu jarðgöng á eftir Ólafsfjarðar-
göngunum yrðu á Austurlandi.
- Þú segir þá að það sé fullkomin
sátt við það á Austfjörðum að Vest-
firðingar verði næstir í röðinni varð-
andi jarðgangagerð?
„Ég veit ekki annað en að allir
haii gengið út frá því að svo yrði og
um það sé ekki deilt. Ég hef margtek-
ið þetta dæmi um ánægjulega sam-
stöðu sem hafi myndast um for-
gangsröð sem verði að búa til í svona
tilvikum," sagði samgönguráðherra.
-SMJ
Á MÁNUDAGSMORGUN 15.JANÚAR
KLUKKAN NÍUNÚLLSJÖ (9P7)
^ Æ BYRJAR
í JAPIS BRAUTARHOLTI 2
Viö veitum allt aö 50% afslátt af heimsþekktum
vörumerkjum
Panasonic
Technics
SAMSUNG
Útlitsgallaöar vörur á sprenghlægilegu veröi
Veitumeinnig 12% st.gr. afslátt af nýjum vörum
JAPISð
• BRAUTARHOLT 2