Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1990.
35
HUO/TM/.OuAJ
Sviðsljós
Phil Collins ásamt eiginkonunni Jill og dóttur þeirra Lily sem er í miklu uppáhaldi hjá fööur sinum.
Phil Collins:
Hamingju-
samur bóndi
Gamlir og frægir popparar þurfa
ekkert endilega að vera öðruvísi en
aðrir. Það segir að minnsta kosti
stórstjarnan Phil Collins, sem síðast-
liðið vor varð faðir - eins og í fyrsta
skipti, segir hann. Phil Collins segist
upplifa föðurhlutverk sitt á allt ann-
an hátt en í fyrri skiptin. Phil á frá
fyrra hjónabandi Joely sem er 17 ára
og Simon sem er 13 ára. Þau búa hjá
móður sinni í Kanada.
Ekki er langt síðan Phil kvæntist í
ánnað sinn, Jill, en með henni á hann
Lily litlu, sem hann segir að sé fall-
egasta barn í heimi. „Það segja auð-
vitað allir að börn þeirra séu fall-
egust en hún er það samt,“ segir
poppstjarnan.
Phil þótti ekkert tiltakanlega góður
faðir eldri barna sinna enda lítið
heima við. Margir sem til hans
þekkja segja að nú eigi að bæta um
betur enda fer mikill tími hans í litlu
dótturina. Phil segist þó vera búinn
að koma þeirri reglu á að hringja í
eldri börnin að minnsta kosti tvisvar
í viku. „Auk þess reyni ég að hitta
þau á nokkurra mánaða fresti," segir
hann.
Phil Collins býr með nýju konunni
og dótturinni á sveitasetri í Eng-
landi, langt frá ys og þys stórborgar-
innar London. I húsinu er hann með
sitt eigið hljóðver þangað sem hinir
ólíklegustu listamenn sækja. Phil
segist kunna vel við sig úti á landi.
Hann heimsækir staðarkrána rétt
eins og aðrir sveitungar og hann
heldur nokkur dýr svona til gamans.
Phil er annars afkastamikill tónlist-
armaður og leikari. Hann á til dæm-
is ekki ómerkilegri aðdáendur en
Díönu prinsessu og Karl Bretaprins.
Phil segir að hann hafi ætlað að
gefa Díönu eintak af plötu sinni á
tónleikum þar sem hún var viðstödd.
Hann gekk til hennar en hún sagðist
þegar hafa keypt sér eintak.
Phil Colhns varð fyrst frægur á
áttunda áratugnum og þá meö hljóm-
sveitinni Genesis. Sú hljómsveit náði
heimsfrægð á mjög skömmum tíma.
Þá tók Phil upp á því að reyna fyrir
sér einn á báti og gekk betur en nokk-
urn tíma áður, en upphafiö var
reyndar þegar hann hóf leiklistarfer-
il sinn.
„Ég fór í leiklistarskóla sem barn
eingöngu til aö yfirvinna óskaplega
feimni sem ég var haldinn," segir
hann. „Að lokum haföi tónlistará-
huginn náð yfirhöndinni."
Phil Collins hefur leikið í nokkrum
kvikmyndum auk þess sem hann
hefur leikið í sjónvarpsþáttum t.d.
hinum þekkta Miami Vicé. Phil segir
að sonur hans sé allmiklu betri
trommuleikari en hann hafi verið á
hans aldri. „Sennilega á hann eftir
að komast langt,“ segir hann. „Ég
hef sagt honum að það sé í lagi svo
framarlega sem menn átti sig á að
tónlistin er harður heimur og þar eru
margir sem þola ekki álagið. Ef mað-
ur lítur lífið réttum augum kemst
maöur auðveldlega í gegnum þetta,“
segir Phil Collins sem ætti að vita
það.
Manni mínum að þakka að
hjónabandið hefur enst
- segir Margrét Danadrottning í ævisögu sinni
„Ég er alltaf jafnhissa á hvað
maöurinn minn er mér góður. Öll
þessi ár hefur hann stutt mig og
hvatt með ráðum og dáð,“ segir
Margrét Þórhildur Danadrottning
sem hefur sent frá sér sjálfsævi-
sögu sína.
Þar fær Hinrik maöur hennar
hina bestu einkunn. Margrét segir
aö það sé honum að þakka að
hjónaband þeira hafi enst í tuttugu
ár.
„Það krefst mikillar þolinmæði
að búa með mér þar sem ég hef
ekki af of mikilli skapfestu að
státa,“ segir Margrét. „Stundum
kemur fyrir að ég vakna klukkan
þijú um nótt og vil endilega fara
að ræða málin.“
Margrét hefur alltaf verið treg til
að ræða einkamál sín og hjónaband
hennar og Hinriks hefur aldrei ver-
ið mjög umtalað. Mörgum hefur þó
þótt sem hann stæði um of í skugga
hennar og jafnvel talið hann óeðli-
lega feiminn.
I ævisögunni, sem heitir Drottn-
ing i Danmörku, ræðir Margrét
opinskátt um galla sína um leið og
hún hleður loíi á mann sinn. Hún
segir líka að það hafi haft góð áhrif
á hjónabandið að þau eru ekki sam-
an öllum stundum. Það hefur gefið
þeim báðum tækifæri til að sinna
áhugamálum sínum.
Margrét segir að hún hafi ekki
verið góð móðir og varið alltof litl-
um tíma með sonum sínum þegar
þeir voru yngri. „Ég sé eftir þessu
nú,“ skrifar Margrét og bætir við
að hún hefði gjarnan viljaö eiga
fleiri börn.
„Við vorum bæði sammála um
að eignast þrjú eða fjögur börn en
það lánaðist okkur ekki. Þetta olli
okkur báðum hugarangri og þó
Hinrik öllu meira en mér,“ skrifar
Margrét.
Þegar þau hjónin dvelja í sumar-
húsi þeirra í Frakklandi kemur það
oftast í hlut Hinriks að elda mat-
inn. Margrét segist vera mikill
klaufi við alla eldamennsku en
Hinrik þykir snjall kokkur.
Danir hafa oft gagnrýnt drottn-
ingu s/na fyrir aö reykja mikið.
Þegnarnir hafa margir mælst til
þess að hún hætti en í ævisögunni
lýsir Margrét því yfir að hún hafi
engan áhuga á að hætta, hvað sem
hver segir.
Margrét Danadrottning þakkar manni sínum fyrír þolinmæðina að geta
búið með sér.
Jane Fonda og Baron Watalon, fyrrum elskhugi hennar. Hann hefur smit-
ast af eyðni.
Jane Fonda lifir í
ótta við eyðnismit
- fyrrum elskhugi hennar er smitaður
Jane Fonda óttast mjög að hún
hafi smitast af eyðni. Ástæðan er að
bólfélagi hennar eftir að hún skildi
við stjórnmálamanninn Tom Hayden
hefur fengið það staðfest af læknum
að hann sé smitaður af þessum ban-
væna sjúkdómi.
Jane Fonda sást oft með Baron
Watalon í vor og á kvikmyndahátíð-
inni í París í mai mátti öllum ljóst
vera að þau voru mjög ástfangin. Upp
úr sambandi þéirra slitnaði þegar
leið á sumarið.
Watalon hefur viðurkennt að hann
hafi um árabil verið elskhugi popp-
söngvarans Sylvesters en sá yfirgaf
þetta líf fyrir rúmu ári. Banamein
hans var eyðni. Eyðniveiran getur
leynst í líkamanum lengi áður en
einkenna sjúkdómsins verður vart.
Jane Fonda skildi við mann sinn í
byijun síðasta árs. Eftir það hefur
hún átt vingott við ýmsa menn en
mest hefur þó borið á sambandi
hennar við Watalon. Meðan þau voru
á kvikmyndahátíðinni í París bjuggu
þau saman á Hotel du Cap í París og
eftir að hátíðinni lauk fluttu þau sig
á Ritz hótelið og voru þar í hálfan
mánuð.
Þá virtust þau ipjög hamingjusöm
en nú blasir svartnættið við þeim
báðum. í september staðfestu læknar
aö Watalon væri með eyðni. Enn er
ekki vitað með vissu hvort Fonda
hefur smitast líka. Hún hefur ekkert
viljað segja um málið og er eins og
jafnan áöur mjög fámál um einkalíf
sitt.
Þótt hún og Watalon hafi búið sam-
an á hóteli um tíma þá er ekki vitað
hversu náið samband þeirra var.
Núna býr Fonda með manni að nafni
Lorenzo Cazzialanga og hefur sagt
að hún sé mjög ástfangin af honum.