Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Page 2
2
fiGI JI/FIA .IL' MuÐAUSAOUAJ
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990.
Fréttir
Viröisaukaskattur:
Niðurfellingu
á námsbækur
ekki flýta
Ekkert virðist benda til þess að
námsmönnum veröi að þeirri ósk
sinni að niðurfellingu virðis-
aukaskatts af námsbókum veröi
flýtt. Sem kunnugt er á að fella
niður virðisaukaskatt af íslensk-
um bókum 16. nóvember en
námsmenn viþa að því verði flýtt
til 1. september.
„Ég tel að þetta sé bara heil-
brigð skynsemi aö flýta þessu.
Þaö er ljóst að ríkissjóður fær
hvort sem er engar tekjur þarna
því að námsmenn bíöa bara með
að kaupa námsbækur,“ sagði
Kristrún Heimisdóttir, fráfarandi
formaður Félags framhaldsskóla-
nema. Barátta nemenda hingað
til hefur falist í áskorun til ríkis-
stjómarinnar og þá hafa þrír
þingmenn sjálfstæðismanna flutt
frumvarp um að niðurfellingunni
verði flýtt. Alþingi þarf að sam-
þykkja breytingu á gildistökuá-
kvæði laganna um virðisauka-
skatt til þess að niðurfellingunni
verði flýtt. Verður að teljast ólík-
legt að það gangi eftir.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra mun hafa gefið i
skyn að hann geti ekki sætt sig
yið að flýta niðurfellingunni.
Ástæðan fyrir því að 16. nóvemb-
er er svona heilög dagsetning er
sú að 15. nóvember er síðasti
gjalddagi virðisaukaskatts á
þessu ári. Þaö sem innheimtist
eftir þaö kemur inn á flárlög fyrir
1991. Ef flýta ætti niðurfelling-
unni þyrfö aö breyta grunni fjár-
lagafrumvarpsins í ár en það seg-
ist fjármálaráðherra ekki geta
sætt sig við.
Námsmenn hafa hins vegar
bent á að ríkissjóður tapi engum
tekium þama því að námsmenn
muni hvort eð er halda að sér
höndum viö kaup á bókum. Þaö
eina sem gerist því sé að náms-
menn verði að miklu leyti án
námsbóka í tvo og hálfan mánuð
ánæstavetri. -SMJ
Norðurlönd og Litháen:
Uffe býður
til fundar
Danski utanrikisráðherrann,
Uffe Ellemann-Jensen, hefur boð-
iö utanríkisráðherrum Norður-
Iandanna til fundar í Kaup-
mannahöfn á sunnudaginn. Þar
er ætlunin að ræða ástandiö í
Litháen og sameiginleg viðbrögð
Norðurlanda.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
riMsráðherra er nú í Stokkhólmi
þar sem hann ræðir við Ingvar
Carlsson, forsætisráðherra Svia,
um viðræður Fríverslunarbanda-
lagsins og Evrópubandalagsins. Á
fundi Uffe er ætlunin að ræða
einnigþaumál. -SMJ
ísaQörður:
Rafmagnið sett
á Herinn og
eldur í kjallara
Helga Guðrijn, DV, fsafirði:
Akureyri:
Aurskriða reif
hús af grunninum
- hvassviðri og asahláka í allan gærdag
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég er ekki farin að leiða hugann að
tjóninu sem orðið hefur, ég hugsa
núna aðeins um þá lukku að ég
skyldi hafa veriö að vinna og því
ekki heima,“ sagði Elfa Ágústsdóttir,
dýralæknir á Akureyri, eftir að aur-
skriða hafði lent á húsi hennar í
gær, fyllt það og borið tvo metra af
gmnni.
Elfa bjó ein í húsinu sem er númer
18 við Aðalstræti og er einnar hæðar
timburhús með risi. Það stendur í
götunni neðan kirkjugarðsins og í
geysilegum leysingum á Akureyri í
gær gaf brekkan sig fyrir ofan húsið.
Ljóst er að mjög mikill kraftur hefur
verið á skriðunni, sem samanstóð af
aur og snjó, er hún lenti á húsinu,
hliöin sem snýr að brekkunni
splundraðist, húsið fylltist og færðist
fram um tvo metra sem fyrr sagði.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar varð ekki frekara tjón á Akur-
eyri í gær af völdum veðurs. Mjög
stif suðvestanátt var á Akureyri og
fór hitinn í 11 stig um miðjan daginn.
Snjóinn, sem enn er nóg af, leysti þvi
hratt og víða var vatnsflaumur á
götum.
Dalvík:
Undirmenn á
Baldri gengu í land
Guömundur Bjamason heilbrigð-
isráðherra hefur lagt fram á Alþingi
tvö stjómarfrumvörp, annars vegar
um ákvörðun dauða og hins vegar
um brottnám líffæra og krufningar.
Að sögn ráðherra eru þessi frumvörp
flutt vegna óska þar um í kjölfar líf-
færagjafa til íslendinga erlendis.
Ráðherra sagði að frumvörpin yrðu
ekki samþykkt nú enda væm þau
fyrst og fremst lögð fram til kynning-
ar.
í fmmvarpi um ákvörðun dauða
er kveðið á um að dauði verði skil-
greindur við heiladauða, það er að
segja, maður telst látinn þegar öll
heilastarfsemi er hætt. Þetta mun
eiga við þó að áfram sé unnt að halda
hjarta gangandi. Þetta er í samræmi
við samhljóða niðurstöðu nefndar
sem fjallaöi um málið.
Þá er í frumvarpi um líffæraílutn-
inga kveðiö á um að hver sem er
orðinn 18 ára geti gefið samþykki
sitt til brottnáms líffæris eða lff-
rænna efna úr eigin líkama til lækn-
ismeðferðar annars einstakhngs. Ef
slíkt samþykki liggur ekki fyrir er
heimilt að fjarlægja líffæri eða lífræn
efni úr dauðum einstaklingi ef nán-
asti aöstandandi samþykkir þaö.
-SMJ
Geir A. Guðsteinsscm, DV, Dalvilc
Við kaup KEA á Útgerðarfélagi Dal-
víkinga á dögunum var ákveðið að
leggja togaranum Baldri og að togar-
arnir Björgvin og Björgúlfur yrðu
látnir veiða bolflskskvóta hans. Þeg-
ar Baldur kom á fimmtudag úr sinni
fyrstu veiðiferð eftir þessa ákvörðun
var hann fánum prýddur. Með þeim
hætti voru undirmennimir að kveðja
skipið en þeir ákváðu allir sem einn
að hætta eftir þessa veiðiferð.
Júlíus Magnússon bátsmaður sagði
að þegar þeir heyrðu fréttimar um
ákvörðun KEA hefðu þeir litið á það
sem uppsögn. Áhöfnin hafði verið á
atvinnuleysisbótum 2 fyrstu mánuði
ársins vegna viðgerðar á skipinu og
enginn þá gert ráð fyrir að því yrði
lagt. Þetta kæmi því eins og köld
vatnsgusa og eyðileggði tekjuáætlun
hjá nokkmm þeirra. Sumir undir-
mannanna hefðu þó ráðið sig á önnur
fiskiskip. Baldur hefur undanfarin
ár veitt um 800 tonn af steinbít og
kola, sem em tegundir utan kvóta,
auk bolfisks. Ljóst er að hinir togar-
amir tveir veiða ekki þessar tegund-
ir og tapast þessi afli því úr byggðar-
laginu.
Rögnvaldur Friðbjörnsson, útibús-
stjóri KEA á Dalvík, segir að ekki
hafi verið búið að ákveöa að stöðva
skipið eftir þennan túr og reyndar
hafi það verið í athugun að fara einn
eða tvo túra í viðbót. Hins vegar leiði
þessi ákvörðun undirmanna óhjá-
kvæmilega til þess að skipið fer ekki
meira á veiðar, að minnsta kosti ekki
í bráð. Útgerðarfélagið Þormóður
rammi á Siglufirði hefur leitað eftir
að fá Baldur leigðan til að veiða kvóta
sem það fyrirtæki hefur. Engin
ákvörðun hefur verið tekin um hvort
af leigunni verður.
Júlíus Magnússon bátsmaður eftir síðustu veiðiferðina. DV-mynd Geir
Dauði verði miðað-
ur við heiladauða
Páll er hallur
undir Sovétvaldið
- segir Ólafur G. Einarsson
„Mér finnst Páll vera óþarílega ljós að Litháar gæfu út vegabréfsá-
hallur undir Sovétvaldið í þessu ritanir þvert á yfirlýsingar Páls og
máli og hann virðist sem minnst því hefði sendinefndin getað fengið
viijastyggjaþá.Þarafleiðandisýxi- þær. „Við þurfum ekkert að vera
ir hann Eystrasaltsríkjunum ekki að reyna við Moskvu til að ná sam-
nægflegan stuðning í verki, alla- bandi viö Eystrasaltsríkin. Ég geri
vega er það mitt mat á viðbrögðum mér grein fyrir því að vegna þess
hans,“ sagöi Ólafur G. Einarsson, að Sovétmerm hafa með landa-
alþingismaður og fulitrúi i forsæt- mæravörslu að gera er erfitt aö
isnefnd Norðurlandaráös, en enn komast inn í Litháen. Ég vil fá þaö
er deilt um för sendinefndar ráös- fram i forsætisnefndinni hvort vilji
instilLitháenssemforsetiNorður- er fyrir ferð þangað ef það liggur
landaráðs, Páll Pétursson, aflýstL fyrir að við komumst inn í landið,"
Ólafur sagði að nú hefði komið í sagðiólafur. -SMJ
Röskur þriðjungur sendingar til ÁTVR hvarf 1 Hollandi:
Sautján þúsund sígarettu-
lengjum stolið úr gámi
Rúmri klukkustund eftir að raf-
magni var hleypt á Herinn við
Mánagötu á ísafirði varð eldur
laus í kjallaraíbúð. Gamli Hjálp-
ræöisherinn, sem breytt hefur
veriö í íbúðarhús, hefur verið
rafinagnslaus frá 5. apríl vegna
skulda eiganda hússins. Raf-
magni var hleypt á húsið um
klukkan íjögur í gærdag.
. Klukkan 17.37 var slökkviUð
Isafjarðar kallað út vegna elds í
Kjallaríbúö. Allt tiltækt slökkvi-
hð var kaliað út, alls 21 maður.
Eftir um háifa klukkustund hafði
tekist aö ráða niðurlögum elds-
ins. íbúðin er mikið skemmd.
Aörar íbúðir skemmdust ekkí.
Hollensk lögregluyfirvöld höfðu
samband við Tollgæslu íslands í gær-
morgun vegna þjófnaðarmáls þar í
landi sem tengist gámi er kom með
flutningaskipinu DísarfelU tíl
Reykjavíkur á miðvikudagskvöld.
Skipið haíði meðal annars lestað í
Rotterdam.
í gáminum áttu að vera 900 kassar
af Winston sígarettum og var send-
ingin ætluð ÁTVR. i hverjum kassa
eru 50 sígarettulengjur. Að sögn
Brynjólfs Karlssonar hjá Tollgæsl-
unni höfðu hollensku lögregluyfir-
völdin komist yfir upplýsingar um
að þjófnaðarmál í Hohandi tengdist
þessum thtekna gámi. Ákveðinn
grunur var um að stohð hefði veriö
úr sendingunni í Rotterdam. Skipið
var hins vegar farið þegar upplýsing-
amar bárust.
Þegar tohverðir skoðuðu í gáminn
við Holtabakka í gær kom í ljós að
341 kassa af sígarettum vantaði eða
rúmlega þriðjung sendingarinnar.
Um þremur og hálfri milljón vindl-
inga hafði því verið stolið.
„Þeir þökkuðu svo bara vel fyrir
þegar við kynntum þeim niðurstöður
talningarinnar. Máhnu er því lokið
af okkar hálfu,“ sagði Brynjólfur í
samtaliviðDV. -ÓTT