Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990.
Skák
Opna mótið í New York:
Helgi tapiaus og í verðlaunasæti
Hálf milljón íslenskra króna
skildi að vinning og jafntefli í skák
Helga Ólafssonar við undrabarnið
Gata Kamsky í lokaumferðinni á
opna mótinu í New York um pásk-
ana. Helgi vann Kamsky glæsilega
á Búnaðarbankamótinu á dögun-
um en nú taldi Kamsky betra að
hafa vaðið fyrir neðan sig. Reynsl-
unni ríkari bauð hann Helga jafn-
tefli eftir 22 leiki í hnífjafnri stöðu
og þekktist Helgi boðið. Sovétmað-
urinn Alexander Khalifman var þá
á auðum sjó. Honum auðnaðist að
vinna Hellers með svörtu eftir
glæfralega taflmennsku Svíans
gegn Caro-Kann vörn. Þar með
varð Khalifman einn efstur og föð-
urlandið tuttugu þúsund dölum
ríkara.
Khalifman, sem er 24 ára gamall
alþjóðlegur meistari með 2560 Elo-
stig og fyrrverandi Evrópumeistari
unglinga, hlaut 7 v. af 9 möguleg-
um. Þetta er hans stærsti sigur til
þessa og án efa ávísun upp á fram-
tíðina engu síöur en dollara. Landi
hans, Vassily Ivantsjúk, sló fyrst í
gegn með sigri í New York fyrir
tveimur árum en í fyrra kom sigur-
inn í hlut heimamanns, Johns Fed-
orowicz.
Helgi varð í 2.-5. sæti ásamt Kam-
sky og Sovétmönnunum Judasin
og Episvín en allir fengu þeir 6,5
v. og tæpa fimm þúsund dali hver.
Helgi slapp því með nokkurn hagn-
að úr ferðinni en með hálfum vinn-
ingi minna hefðu aðeins um þús-
und dalir komið í hans hlut, sem
hvergi nærri heföi nægt fyrir ferða-
kostnaði. Jafnir í 6.-8. sæti komu
armenski stórmeistarinn Lputjan
og Benjamin og Wolff frá Banda-
ríkjunum með 6 v.
Þátttakendur á mótinu voru 63
og flestir atvinnumenn í faginu, þar
af 30 stórmeistarar. Það sýnir bág
kjör stórmeistara að jafnvel þótt
verölaun á þessu móti séu með
þeim hæstu sem um getur gefa að-
- Geller tefldi fallegustu skákina
Öldungurinn Efim Geller hreppti fegurðarverðlaun á opna mótinu í New
York fyrir skák sína við Dreev.
eins fimm efstu sætin eitthvað í
aðra hönd. Hinir hafa sóað matar-
peningunum í verðlausa happ-
drættismiða.
Helgi tefldi af miklu öryggi á
mótinu og tapaði ekki skák. Hann
vann fjórar skákir - gegn A.
Ivanov, Fishbein, Wessman og Al-
burt - en gerði fimm jafntefli, m.a.
við Sovétmeistarann Vaganjan.
Hann tefldi við sterka andstæðinga
og skilar árangur hans líklega um
15 viðbótarstigum. Því stefnir í að
Helgi muni styrkja sig í sessi á list-
anum 1. júlí sem stigahæsti íslenski
skákmeistarinn.
Skák
Jón L. Árnason
Snotrasti sigur Helga í New York
var gegn Alburt en hann var þar
fljótur að fá fram vinningsstöðu:
Hvítt: Lev Alburt
Svart: Helgi Ólafsson
Grúnfeldsvörn
1. g3 g6 2. Bg2 Bg7 3. d4 d5 4. Rf3
Rf6 5. c4 0-0 6. 0-0 dxc4 7. Ra3 c3 8.
bxc3 c5 9. Re5
Nýjasti snúningurinn í þessu af-
brigði er 9. e3!? sem mun vera úr
eldhúsi Ungverjans Portisch og
Adorjan hefur nýtt sér til sigurs í
nokkrum skákum.
- Rc6!?
Vel þekkt peðsfóm sem hvítur
gerir best með að hafna, annað-
hvort með 10. Rac4 eða 10. Rxc6
bxc6 11. Da4.
10. Rxc6 bxc611. Bxc6?! Bh312. Hel
Eftir 12. Bxa8 Dxa8 13. fö Rd5! á
svartur einnig góð færi.
12. - Hc8 13. Bf3 Rd5 14. Db3?
Alburt hugsaði sig drjúga stund
um þennan leik en yfirsást bersýni-
lega svarleikur Helga. Betra er 14.
Bb2, sem svartur svarar með 14. -
Hb8 og virðist eiga prýðilegt tafl.
If X*
i ft iiii i
Q rSÉ Á A A
A A A A
2 A B 'ÉL' C D S E F G H
14. - Rxc3!
Auðvitað, því að 15. Dxc3 er svar-
að með 15. - Bxd4 og drottningar-
hrókurinn fellur óbættur. Alburt
hugsaði sig nú um í hálfa klukku-
stund en fann ekki leið út úr
ógöngunum.
15. Bb7 Hb8 16. Bf4 Dxd4 17. Bxb8
Hxb8 18. Hadl
Hvað annað? Svartur hótaði ein-
faldlega að drepa á e2 með skák og
eftir 18. Hacl er 18. - Dd2 sterkt
svar.
18. - Rxdl 19. Hxdl Db2! 20. Hbl
Eini leikurinn til að komast hjá
mannstapi en svartur fær nú
tveimur peðum meira og léttunna
stöðu.
20. - Dxe2 21. Db5 Dxa2 22. Dxc5
Hxb7! 23. Hxb7 De2 24. Hb8+ Bf8 25.
Dcl Df3 26. Hxf8+ Kxf8
tsBp
Sundaborg 11 Sími 91-686644
!!••
sá glæsilegasti!"
Nýi Royal tjaldvagninn frá
m sínn ?
Nú hefur Camp-let sett á markaðinn
nýjan tjaldvagn sem er í algjörum
sérfiokki. Hann er einstaklega ein-
faldur í uppsetningu og hlaðinn
ósviknum lúxus. Meðal annars er
að finna í honum ísskáp, eldavél
vask með rennandi vatni. Þú
verður að sjá þennan
kjörgrip!
Einnig leiðir 26. - Kg7 til vinn-
ings.
27. Dh6+ Kg8 28. Dxh3 Dxa3 29.
Dc8+ Kg7 30. Dc4 Dal+ 31. Kg2
a5 32. g4 e6 33. h4 h6 34. f4 Db2 +
35. Kf3 Da3+ 36. Kg2 Db4 37. Dc7
De4+ 38. Kf2 Dd4+ 39. Kf3 a4 40.
h5 gxh5 41. gxh5 a3 42. Dc2 Db2
Og Alburt gafst upp.
Geller hreppti fegurðar-
verðlaun
Helgi, Seirawan og de Firmian
voru skipaðir í dómnefnd sem
velja skyldi fegurstu skákina á
mótinu. Þeir voru á einu máli um
að sovéska stórmeistaranum
aldna, Efim Geller, bæru launin
fyrir skák sína við Alexei Ðreev.
Geller hafði þar hvítt gegn
franskri vöm landa síns og vann
glæsilega, eins og lesendur fá nú
að sjá. Til gamans má geta þess
að skák undirritaðs gegn franskri
vörn Dreevs kom sterklega til
greina til fegurðarverðlauna á
Búnaðarbankamótinu á dögun-
um. Það er spurning hvort Dreev
þurfi ekki að fara að leita sér að
annarri byrjun!
Hvítt: Efim Geller
Svart. Alexei Dreev
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 a6 4. Rgf3
c5 5. exd5
Eða 5. dxc5 Bxc5 6. Bd3 Rf6 7.
0-0 Dc7 8. a3 Be7 9. Hel 0-0 10.
e5 Rfd7 11. Rb3 Rc6 12. Bf4 Rb6
13. c3 Rc4 14. De2 b5 15. Rbd4 Bd7
16. Rxc6 Bxc6 17. Rg5 Bxg5 18.
Bxg5 Hae8 19. Bxh7+ Kxh7 20.
Dh5+ Kg8 21. Bf6 gxf6 22. Dg4 +
Kh7 23. exf6 Kh6 24. f4 gefið (Jón
L. Árnason - Dreev, Búnaðar-
bankamótið 1990).
5. - exd5 6. Be2 c4 7. 0-0 Bd6 8. b3
b5 9. a4 Bb7
Tilraun til að endurbæta tafl-
mennsku svarts í þessu afbrigði.
Eftir 9. - c3 10. axb5! cxd2 11.
Bxd2 Bb7 12. bxa6 Rxa6 13. Bxa6
Hxa614. De2 + De715. Dxa6! Bxa6
16. Hxa6 náði Geller betri stöðu
gegn Kekki 1986. Geller, sem er
sérfræðingur í þessu afbrigði,
hefur einnig glaðning í poka-
horninu gegn textaleiknum.
10. bxc4 bxc4 11. Bxc4!? dxc4 12.
Rxc4
Mannsfórnin gefur mikla
möguleika. Ein hótunin er 13.
Rxd6+ Dxd6 14. Ba3 og svartur
fær ekki hrókað.
12. - Be713. Hel Dc714. Hbl! Dxc4
Einhver stakk upp á 14. - Kf8
en þá gæti 15. d5! orðið erfitt við-
ureignar.
15. Hxb7 Rc6
I tir 41
S iiii
1 4
A W
A á^^AAA B C D E F G H
16. Rd2!!
Þessi meistaralegi leikur einn
og sér verðskuldar fegurðarverð-
laun. Svartur verður að hafa
auga með d4-d5 og á því litið val.
16. - Dxd4 17. Bb2 Dxa4?
Skárra er 17. - Dd5. Nú vinnur
hvítur létt, því að svarta drottn-
ingin lokast úti.
18. He4! Da2 19. Bxg7 0-0-0 20.
Hb3! Bf6 21. Dg4+ Kc7 22. Df4+
Kc8 23. Bxf6 Rxf6 24. Dxf6 Dxc2
25. Df5 + !
Og svartur gaf, því að hann
missir drottninguna.
-JLÁ