Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Page 28
36
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990.
Bridge
i>v
Töfluröðin er eftirfarandi 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. Stig Röð
1. Flugleiöir 13 14 25 17 16 14 16 115 3.
2. Samvinnuferðir/Landsýn 17 25 8 22 20 11 10 113 4.
3. Ásgrímur Sigurbjörnsson 16 3 6 6 18 4 15 68 8.
4. Ólafur Lárusson 5 22 24 6 19 8 21 105 5.
5. Modern lceland 13 8 24 24 15 23 20 127 1.
6. Símon Símonarson 14 10 12 11 15 7 13 82 7.
7. Verðbréfamarkaður íslandsb. 16 19 25 22 7 23 1 13 125 2.
8. Tryggingamiðstöðin 14 20 15 9 10 17 17 102 6.
íslandsmótið í bridge:
63 einstaklingar hafa unnið
til verðlauna á 40 árum
íslandsmótið í sveitakeppni, sem
haldið var um bænadagana, var hið
40. í röðinni en alls hafa 63 einstakl-
ingar unnið til verðlauna á þessu 40
ára tímabili.
Þessir einstaklingar hafa unnið titil-
inn oftast: Stefán Guðjohnsen 12
sinnum, Einar Þorfinnsson og Símon
Símonarson 10 sinnum, Eggert Ben-
ónýsson, Ásmundur Pálsson og Hjalti
Elíasson 9 sinnum og Lárus Karlsson
og Hallur Simonarson 7 sinnum.
Sveit Modern Iceland vann titilinn
Dagur Jarðar
Við getum bœtt heiminn!
Um allan heim er haldið uppá 22. apríl 1990 sem „Dag jarðar". Tilgangurinn með því er einfaldur: Að vekja athygli á því að
mengun og eyðilegging, sem virða engin landamæri, ógna lífi allstaðar á jörðinni. Því ástandi er nauðsynlegt að breyta. Allar
ákvarðanir um framkvæmdir, smáar og stórar, þarf því að taka með tilliti til umhverfissjónarmiða. Þetta á við á íslandi jafnt
og annarstaðar. Hver þjóð hefur sinn hátt á aðgerðum í tilefni dagsins. Hér á Islandi hefur Borgarstjórn Reykjavikur sam-
þykkt að efna til dagskrár til að vekja borgarbúa til umhugsunar og aðgerða í umhverfismálum.
FiÖLSKYLDUGANGA
UM ÖSKJUKLÍÐ
Sunnudaginn 22. apríl klukkan 14:00
Hressandi skemmtiganga, fyrir alla fjölskylduna um eina af perl-
um höfuðborgarsvæöisins, öskjuhlíðina.
• Gangan hefst klukkan 14:00, við nýja útsýnishúsið á öskju-
hlíð. Farin veröur skemmtileg hringferð um hlíðina undir leið-
sögn „göngustjóra“ frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur og garð-
yrkjudeild borgarinnar.
• Að lokinni útiverunni verður haldin veisla við nýja útsýnishúsið í
Öskjuhlíð. Boðið verður uppá grillaðar pylsur, farið í leiki og
flutt tónlist.
• Öllum er velkomið að virða fyrir sér stórkostlegt útsýnið úr nýja
útsýnishúsinu.
Petta er kjörið tækifæri fyrir borgarbúa til að njóta útiveru saman
og sýna um leið í verki stuðning við baráttuna fyrir bættu
umhverfi.
TRÉGRÓÐURSETT
UM ALLA BORGINA
í tilefni af „Degi jarðar" hefur umhverfismálaráð Reykjavíkur
ákveðið að leggja til fjölda trjáa, eða ígildi 20 þúsund græðlinga,
sem íbúasamtök og hverfafélög munu gróðursetja víðsvegar um
borgina þann 9. júní í samráöi við garðyrkjudeild Reykjavíkur-
borgar.
DAGSKRÁ UM UMHVERFISMÁL
í BORGARLEIKHÚSINU
Sunnudaginn 22. apríl klukkan 17:00
• Tónlist Skólakór Árbæjarskóla syngur undir stjórn Áslaugar
Bergsteinsdóttur
• Ávarp Davíð Oddsson, borgarstjóri
• Erindi Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags íslands
• Tónlist Sigfús Halldórsson og Elín Sigurvinsdóttir flytja lög eftir
Sigfús . .
• Irindi Matthías Johannessen, ritstjóri
Elísabet Þórisdóttir stýrir dagskránni.
Allt áhugafólk um umhverfismál er velkomið í Borgarleikhúsið
HUGMYNDABANKINN
ER ENN OPINN!
Með hugmyndabankanum sem umhverfismálaráð opnaði fyrir
nokkru, er leitað eftir jákvæðum og framsæknum hugmyndum
um hvaðeina sem bætt getur umhverfi okkar. Nú þegar hafa bor-
ist margar góðar hugmyndir en þær verða aldrei of margar. Hug-
. myndabankanum verður ekki lokað fyrr en eftir helgi. Sendið inn
ábendingar!
Dagurjarðar
Hugmyndabanki
Skúlatún 2
105 Reykjavík
TÖKUMÞÁTT
Eitt höfuðverkefni mannskyns á næstu öld verður að bjarga jörðinni úr augljósri
hættu - hættu sem virðir engin landamæri og ógnar lífi á landi, í lofti og í hafinu. Sýn-
um umhyggju okkar í verki og tökum þátt í „Degi jarðar" í Reykjavík 22. apríl 1990.
Umhverfismálaráð
Reykjavíkur
í fyrsta sinn og unnu allir meðlimir
sveitarinnar nema Valur Sigurösson
sinn fyrsta titil. Valur var hins vegar
að vinna sinn fimmta titil. Auk Vals
voru í sveitinni Magnús Ólafsson,
Páll Valdimarsson, Sigurður Vil-
hjálmsson og Einar Jónsson.
í mótinu voru spiluð sömu spil á
öllum borðum sem gerði kleift með
aðstoð tölvunnar að meta árangur
para að einhverju leyti. Bestan ár-
angur sýndu bræðurnir Ragnar og
Rúnar Magnússynir og hlutu þeir
sérstök verðlaun fyrir.
Bridgemeistarar eru sammála um,
að fyrsta útspil sé einn af mikilvæg-
ustu þáttum varnarspilsins og raun-
ar hafa verið skrifaðar bækur um
þann þátt spilsins einan.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Gott dæmi kom fyrir í annarri
umferð íslandsmótsins milli sveita
Símonar Símonarsonar og Ólafs Lár-
ussonar. V/N-S
♦ G843
V KG732
♦ Á2
4- 73
* D65
V Á109865
♦ G
+ ÁKG
N
V A
S
* K1072
¥ D
♦ K76
+> D10954
* Á9
V 4
♦ D1098543
+ 862
í opna salnum sátu n-s Símon Sím-
onarson og Jón Ásbjörnsson en a-v
Friðjón Þórhallsson og Anton R.
Gunnarsson:
Vestur Norður Austur Suður
lhjarta pass 1 spaöi pass
2þjörtu pass 2grönd pass
3grönd pass pass dobl
pass pass pass
Það er ekki víst að allir myndu
dobla með spil Jóns en þefvísi hans
í stöðunni var með ólíkindum. Hann
fylgdi síðan doblinu eftir með tígulút-
spili og liturinn var hreinsaður í
þremur atrennum. Sagnhafi þóttist
viss um að Jón hefði ekki doblað án
þess að stoppa hjartað og því spilaði
hann hjartadrottningu og lét hana
róa. Það var því ábót á velheppnað
dobl og n-s skrifuðu 800 í sinn dálk.
En víkjum í lokaða salinn. Þar sátu
n-s bræðurnir Hermann og Ólafur
Lárussynir en a-v undirritaður og
Hörður Arnþórsson. Nú gengu sagn-
ir á sömu leið, nema norður doblaði
þriggja granda sögnina.
Suður sér nú á sínum spilum aö
hjartað liggur sennilega til heljar og
líklega kostar ekkert að spUa því. En
það var öðru nær! Sagnhafi horfði
drykklanga stund á útspilð en síðan
komu sjö slagir í röð. Hjartaás, fimm
slagir á lauf og spaðadrottning, síðan
spaði og tíunni svínað. Unnið spil.
Útspihð kostaði því 3-4 slagi eftir
því sem litið er á máhð.
Páll Valdimarsson og Einar Jóns-
son náðu einnig plús skor á spUið
með því að spUa þrjá spaða á spiUð
og vinna þá gegn sveit Tryggingar-
miðstöðvarinnar meðan Ásmundur
Pálsson og Guðmundur Pétursson
freistuðu gæfunnar í íjórum hjörtum
redobluðum og töpuðu 600.
Stefán Guðjohnsen
Úrval - verðið
hefur lækkað
r
Urval