Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 5.-MAÍ 1990. 5 dv________________________Fréttir Varaflugvöllur fyrir NATO: Formlega hefur ekki verið hætt við hann „Ríkisútvarpið hafði það eftir dönskum starfsmanni yfirstjórnar flota Atlandshafsbandalagsins í Nor- folk að hætt væri við byggingu vara- flugvallar bandalagsins á íslandi. Daninn mun hafa skýrt frá þessu yfir hádegisverði einhvers staðar. Ég fékk í gær orðsendingu frá flota- stjórninni þar sem beðist var velvirð- ingar á lausmælgi þessa manns og að hann hefði verið að láta í ljós per- sónulegar skoðanir sínar,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra í samtali við DV. Hann sagði að sýnilega væri nokk- uð hæft í því sem sá danski sagði. Allavega sagðist Jón búast við að upphaflegum áformum um byggingu varaflugvallar hér yrði slegið á frest. „Það þarf aftur á móti ekki að þýða það sama og að menn séu hættir við að framkvæma hér þá forkönnum sem áformuð er. Til er fjárveiting fyrir henni. Einnig er ljóst að sú for- könnun er án allra skuldbindinga um framkvæmdir síðar og gæti einn- ig leitt til breytinga á upphaflegum áformum um mannvirkið," sagði Jón Baldvin. Hann sagði að allar áætlanir um varnarmál og fjárveitingar til þeirra væru í heildarendurskoðun vegna gerbreyttra aðstæðna í heimsmálun- um. Á þessu stigi sagði Jón Baldvin það ljóst að fjárveitingar yrðu mikið skornar niður til hermála, bæði á vegum Bandaríkjanna og Atlands- hafsbandalagsins. Víða verður her- stöðvum lokað og hefur nú þegar verið tekin ákvörðun þar um. „Það má því búast við frestun á upphaflegum áætlunum um vara- flugvöll hér á landi. En þessi niður- skurður á flárveitingum til hermála og aflagning herstöðva mun engin áhrif hafa á stöðu eða umsvif her- stöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra. -S.dór Stykkishólmur: Úrslitin 1986 Þau mistök urðu í umfjöllun um kosningaundirbúninginn í Stykkis- hólmi að taldir voru upp varafulltrú- ar í bæjarstjórn eftir kosningarnar 1986 í stað kjörinna aðalfulltrúa. Úr- slitin urðu þannig að Alþýðuflokkur (A) fékk einn fulltrúa, Sjálfstæðis- flokkur (D) fjóra fulltrúa, Alþýðu- bandalag (G) einn fulltrúa og félags- hyggjumenn (S) einn fulltrúa. Þessi voru kjörin í bæjarstjórn 1986: Guðmundur Lárusson (A), Ell- ert Kristinsson (D), Kristín Björns- dóttir (D), Pétur Ágústsson (D), Gunnar Svanlaugsson (D), Einar Karlsson (G) og Magndís Alexand- ersdóttir (S). Að gefnu tilefni er rétt að geta þess að tilviljun ein ræður hverjir eru teknir tali þegar sex vegfarendur á hverjum stað eru beðnir um að spá í úrslit komandi kosninga. -hlh PATRICK FÓTBOLT ASKÓR GÆÐASKÓR Á GOÐU VERÐI Fást í sportvöruverslunum um land allt. SUÐURLANDSBRAUT 22, SÍMAR 688988 OG 15328 —------— Framhjóladrifinn 5 manna spameytinn og á einstöku Rúmgóður fjölskyldubíll með 1289 cc 63 hö vél, 5 gíra, 5 dyra. Verð kr. 469.900 U&yŒJŒHJtfLS Hér er hugsað fyrir öllu til ferðalaga og flutninga, tvískipt niðurfellanlegt aftursæti 60/40 og framsætið er einnig hægt að leggja alveg niður að aftursætum. Lúxus innrétting, þurrka á afturrúðu, þokuljós ofl. Verð kr. 510.400 JÖFUR ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL Hafðu samband við söludeildina strax í dag. Söludeildin er opin alla virka daga kl. 9-12 og 13-18 og laugardaga kl. 13-17. Síminn er 42600. PANAX GINSENG EXTRAXTUM (rautt ginseng) flytjum við miliilíðalaust beínt frá Kina. Kínverjar sóttu orku og lífsþrótt til GINSENG rótarinnar mörgum öldum áður en Íslendíngasögumar voru skráðar. Þúsundir bóka hafa verið skrifaðar um rótina og eiginleika hennar - bæðí af leíkum og lærðum. Lof manna og hrós um GINSENG rótina í gegnum aldirnar er liklega meira en um nokkra aðra hressíngarjurt. Þegar þú velur þér GINSENG þá veldu þér það besta - ÞAÐ BORGAR SIG. SMÁSALA - HEILDSALA NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN LAUGAVEGI 25, SÍMI: 10263 FAX: 621901

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.