Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1990.
13
Ofát og aukakíló
Að losna við tíu kíló á ári:
Ef viö ætlum að ná árangri gegn
ofáti og um leið aukakílóum verð-
um við að taka á honum stóra okk-
ar á þrem vígstöðvum: 1. Breyta
um mataræði og matarvenjur. 2.
Efla andann með fræðum OA sam-
takanna • og fundum þeirra. 3.
Hreyfa okkur meira. Og við stöld-
rum við hreyfinguna í dag.
Gönguferð er
hvorki bundin við
stað né stund
Blanda af nýju, fersku grænmeti er bæði holl og kaloríusnauð fæða.
Göngum þrjá
kílómetra á dag
Besta hreyfingin á þessu stigi
málsins er einfaldlega gönguferð. í
fyrsta lagi vegna þess að hún er
varla bundin við neinn sérstakan
stað eða umhverfi á landinu. Það
er hægt að ganga næstum því hvar
sem er. í iðandi mannlífinu í mið-
borg Reykjavíkur eða um grösugar
sveitir landsins og óbyggðir á há-
lendinu. Alls staðar er hægt að fá
sér göngutúr.
Gönguferðin er ekki heldur
bundin við stund. Við getum hæg-
lega gengið um á hvaöa tíma sólar-
hringsins sem er. Mörgum þykir
gott að byrja daginn með hressilegu
morgunlabbi og sturtu á eftir. Aðr-
ir nota hádegið til gönguferða eða
bregða undir sig betri fætinum eft-
ir vinnu. Sumir fá sér kvöldgöngu
eða fara jafnvel á stjá eftir mið-
nætti. Allt eftir högum hvers og
eins.
Þurfum hvorki
félagsskap né
sérstakan búnað
Við þurfum engan annan búnað
til gönguferða en góðan fótabúnað.
Við þurfum ekki sérstök hús til að
ganga um í eða sérstaka velli. Eng-
in sérstök áhöld eða opinber leyfis-
bréf. Gönguferðir eru öllum fijáls-
ar og ókeypis. Gönguferðir eru
heldur ekki hópíþróttir fyrir flokka
eða pör. Við getum fengið okkur
göngutúra ein á báti og þurfum
hvorki meðspilara né hjálparkokk.
Að visu er oft gaman að ganga sam-
an tvö eöa fleiri en það er ekki
nauðsynlegt fyrir sjálfa hreyfing-
una.
Ekki háðarveðri
eða dagsetningu
Gönguferðir eru ekki háðar veðri
nema fáeina daga á hverju ári. Það
viðrar varla svo illa á íslandi að
ekki sé hundi út sigandi einhvern
part dagsins. Þó hann gangi yfir
með éljum og rigni eldi og brenni-
steini þá slotar yfirleitt á köflum
nógu lengi til að skreppa hringinn
sinn. Með réttum skjólflíkum er
hægt að klæða af sér næstum öll
veður - búa sig vel undir að taka á
móti veðrinu. I versta falli er hægt
að ganga innanhúss í einhverju
stórhýsi á borð við Kringluna eða
Laugardalshöll.
Þá eru gönguferðir þess eðlis að
hægt er að iðka þær á hverjum
degi og það er afar mikilvægt fyrir
okkur. Þess vegna mælum við hik-
laust með gönguferðum frekar en
annarri hreyfingu. Þar með er alls
ekki lagst gegn neinni annarri
hreyfmgu nema síður væri.
Göngum þrjá
kílómetra á dag
En hvað eiga gönguferðirnar að
vera langar? Svarið er þrír kíló-
metrar á dag af samfelldri göngu.
Þá næst mestur árangur. Við þurf-
um að velja okkur góðar gönguleið-
ir í nágrenni við heimilið eða
vinnustaðinn. Ef svæðið er opið
fyrir akstur er hægt að mæla leið-
ina með því að aka eða hjóla og
nota kílómetramælinn í hraðamæl-
inum. Gönguleiðin þarf aö vera
örugg leið fyrir allri umferð og öðr-
um hættum og eins megum við
ekki trufla umhverfið með
göngunni. Slíkar gönguleiðir eru
auðfundnar um þvert og endilangt
landið og því er ekkert mál að finna
þriggja kílómetra hring til að ganga
á hverjum degi.
Brennum 200
kaloríum á dag
Það eru um sjö þúsund og fimm
hundruð kaloríur í hveiju kílói af
fitu. Við brennum 200 kaloríum að
meðaltali með því að ganga þrjá
kílómetra á dag í einni lotu. Það
er hvorki meira né minna en sjötíu
og þijú þúsund kaloríur á einu ári
eða heil tíu kíló. Mörg okkar eru
þetta tuttugu til þrjátíu kílóum of
þung og þykir nóg um. Ef við mið-
um við sama gamla matseðilinn og
við höfðum síöustu þrjú árin en við
heföum jafnframt álpast til að rölta
þetta þrjá kílómetra á dag þá vær-
um við núna í réttri líkamsþyngd
hvað sem mataræðinu líður. Fyrir
utan allan annan ávinning af reglu-
legum gönguferðum.
Dagleg gönguferð er því þyngdar
sinnar virði í skíragulli eða hvað?
Kaloríutal II. hluti
Talið er samið upp úr næringar-
efnatöflu eftir dr. Jón Óttar Ragn-
arsson í bókinni Næring og
vinnsla.
Okkar eigin
uppskriftir I
Þessar uppskriftir eru fyrst og
fremst nokkrar hugmyndir á
stangli um hvernig viö getum ma-
treitt okkar frábæra íslenska hrá-
efni við okkar hæfi. Það er sjálfsagt
að fylgja þeim bókstaflega fyrstu
vikuna eða tvær en síðan leikum
við meira af fingrum fram í matar-
gerðinni og sköpum smám saman
okkar eigin eftirlætisrétti innan
þess ramma sem fræðin og kalor-
íutalið marka okkur.
Salatskál
(Grænmetissalat)
Uppskriftir fyrir einn
50 kaloríur
100 kaloríur: Tvöfaldið uppskrift
25 kaloríur: Helmingið uppskrift
Efni:
200 grömm ísbergkál
75 grömm tómatar (2 litlir, 1 stór)
20 grömm agúrkur (10-12 þykkar
sneiðar)
5-6 laukhringir
2-3 þunnar sneiöar græn paprika
Aðferð:
Saxið káhð og skerið tómatana í
hæfilega bita. Skeriö agúrkusneið-
ar í tvennt. Setjið kálið í skál og
leggið tómata og gúrkur ofan á.
Skreytið með laukhringjum og pa-
priku.
Vel má breyta hlutföllum í þessu
salati þannig að sami kaloríufjöldi
haldi sér. í staðinn fyrir ísberg má
nota aðrar káltegundir.
Salatskál má bæði nota sem hluta
af máltíð og heUa máltíð. Það er
bæði hollt og gott að borða eina
slika á hverjum degi (50 kaloríur)
og þarf aö vera fost venja.
Heiti matvæla Hitaeiningar Kólesterol Kolvetni
100 grömm: Kcal: milligrömm: grömm:
Hvítkál 22 0 3,8
Hvítkál, soðið 15 0 2,3
Blómkál 13 0 1,5
Blómkál, soðið 9 0 0,8
Rauðkál, soðið 65 0 14,0
Maís, niðursoðinn 76 0 16,1
Tómatar 14 0 2,8
Agúrkur 10 0 1,8
Heslihnetur 137 0 2,4
Epli 35 0 9,2
Perur 29 0 7,6
Vínber 68 0 16,2
Appelsínur 26 0 6,4
Jarðarber 39 0 8,6
Greip 11 0 2,5
Bananar 79 0 19,2
Ferskjur, niðursoðnar 87 0 22,9
Ananas, niðursoðinn 77 0 20,2
--------------------------->
4-5 herbergi óskast
Hjón í ábyrgðarstöðum, með 2 stálpuð börn, óska
eftir góðri 4ra-5 herb. íbúð á leigu strax, til lengri
tíma, helst vestan Snorrabrautar. Öruggum mánaðar-
greiðslum heitið, meðmæli.
Uppl. á skrifstofutíma í síma 28444.
SUMARTÍMI
Frá 7. maí til 28. september verða skrifstofur Verzlun-
armannafélags Reykjavíkur opnar frá kl. 08.30 til
16.00 alla virka daga.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Slys gera ekki
boð á undan sér! sssssr
UUMFERÐAR
RÁÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMINN ER 2, '7022
Mánudaga - föstudaga, 9.00 - 22.00 Laugardaga, 9.00 - 14.00 Sunnudaga, 18.00 - 22.00
DV
Geríst sjálfboðaliðir með UFF
Velkomin
Starfsemi UFF felst í hjálparstarfi í 3. heiminum. Sjálfboðaliöar LFF
eru á öllum aldri, bæói faglæröir og ófaglæróir, meö hjartaó á réttum
staó og ósk um aó geta aðstoðaó fólk í þriðja heiminum vió að öðl-
ast betra líf.
Þú getur byrjaó nú þegar sem sjálfboöaliói við að undirbúa HEIMS-
INS STÆRSTA FLÓAMARKAÐ, sem halda á í Stokkhólmi á 19.000 m2.
Þú getur aóstoóaó vió aó safna inn vörum og hlutum og verið meö
þegar flóamarkaöurinn veröur starfræktur. Fæói, húsnæói og vasapen-
ingar innifalió. Upplýsingar gefur Charlotte Pedersen, sími 90 46 8
7357500.
SURT REGN ?
Nær súrt regn
til íslands ?
Hreinn Hjartarson veðurfræðingur
flytur erindi á aðalfundi
LÍFS OG LANDS
sunnudaginn 6. maí kl. 17.00
í Lækjarbrekku við Bankastræti.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Tónlistarflutningur
3. Erindi um súrt regn
Fundurinn er öllum opinn
meðan húsrúm leyfir.
Stjórn Lífs og lands