Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1990. 35 Kvíðnir og stein- hissa stráklingar - segir Sigurður Sigurðsson fréttamaður um hemámsliðið „Þessi dagur er svo fastur í minni mínu aö honum gleymi ég ekki meðan ég lifi,“ segir Siguröur Sig- urðsson fréttamaöur sem stóð á bryggjunni þegar breski herinn gekk á land fyrir fimmtíu árum. Hann var þá tvítugur að aldri og bjó í foreldrahúsum á Framnesveg- inum. „Ég vaknaði nú ekki við hvað sem var á þessum árum en þessa nótt rumskaði ég við flugvélagný. Við vorum fjögur saman í herbergi og ég var sá eini sem vaknaði. Um þetta leyti var enginn flugvél í rekstri hérna og því hafði ég ekki heyrt þetta hljóð lengi,“ segir Sig- urður. „Ég glaðvaknaði og leit út um gluggann til aö athuga með vélina en sá ekki neitt. Einhver eðhsávísun rak mig á fætur og ég fór beina leiö niður á höfn.“ Fáir á ferli Leiðin frá Framnesvegi niöur á höfn er ekki löng og þegar Sigurður kom þangað blöstu við herskip á ytri höfninni. Fátt manna var á bryggjunni enda mið nótt og bær- inn að mestu í fastasvefni. „Ég held að flestir sem þarna voru hafl verið útigangsmennirnir, sem á þeim tíma kölluðust Hafnar- strætisrónar. Ég skimaði eftir ein- hverjum til að spjalla við og fá upp- lýsingar um hvað hér væri á ferð en sá engan, ekki einu sinni lög- regluþjón. Undir niðri var ég kvíð- inn því mér datt helst í hug að nú væru Þjóðverjarnir komnir.“ Þessi ótti við innrás Þjóðverja hafði fengið byr undir báða vængi meðal almennings nokkru áður þegar þýskt skip, Bahia Blanca, sökk hér við land í blíðskaparveðri og öllum skipverjum var bjargað. Sögusagnir höfðu gengið um bæinn þess eðlis að skipverjarnir hefðu það hlutverk að undirbúa jarðveg- inn fyrir komu þýska hersins síð- ar. Þar fyrir utan var ekki langt liðið frá innrás Þjóöverja í Dan- mörk og Noreg. Hræddir og hissa Tuttugu mínútum eftir að Sigurð- ur kom niður eftir lögðust skipin að bryggjunni og á fánunum mátti glögglega sjá að þetta voru Bretar. Skömmu síðar gengu hermenn- irnir á land gráir fyrir járnum, með hjálma og hergögn. Hóparnir komu sér fyrir á uppfyllingunni, sátu flöt- um beinum og stugguðu þessum fáu nærstöddu löndum burtu, sagði Sigurður. Þeir mæltu ekki orð af vörum og gáfu sig að engum. Þegar á leið fjölgaði hermönnunum og einnig fór bæjarbúa að drífa að. „Þetta voru að mestu strákar á aldur við mig og yngri sem fylltu þessa flokka, við fyrstu sýn óttaleg- Herbúðir Bretanna á Skólavörðuholtinu. I baksýn Hnitbjörg og húsin við Freyjugötu. ir vesalingar. Það skein úr andlit- um þeirra aö þeir voru hræddir, hissa og hálfkvíðnir yfxr þessu öllu saman og ég vorkenndi þeim. Eftir því sem maður frétti seinna haföi þessi hópur ekkert vitað um hvert ferðinni var heitiö. Að lenda svo hér í smáfiskiþorpi á norðurhjara hefur áreiðanlega valdið þeim miklum vonbrigðum," sagði Sig- urður. „Þegar flestir voru komnir í land voru flokkarnir sendir af stað um bæinn. Ég fylgdi ekki þeim sem fóru að þýska konsúlatinu en frá bryggjunni mátti sjá mikinn reyk úr strompinum þar. Hitaveita var ekki komin í öll hús í borginni svo þetta virtist ekkert óeðlilegt þá.“ Síðar kom reyndar í ljós að á með- an landgangan stóð yfir voru þýsku ræðismannshjónin í óða önn að brenna mikilvægum skjölum sem ekki máttu lenda í höndum óvina- herja. Tjaldaö á Skóla- vörðuholtinu Flokkarnir fóru nú að dreifa sér um bæinn og fylgdist Sigurður með þeim sem hertóku pósthúsið og Landsímahúsið. Að sögn Sigurðar virtust hermennirnir vera nokkuð vissir um hvar ætti að bera niður. „Þó vissu þeir ekki að dyr Land- símahússins sem snúa að Kirkju- stræti voru opnar allan sólarhring- inn því auk símans var Útvarpið og Veðurstofan þarna til húsa. Að- aldyrnar voru læstar og á endanum brutu þeir hana niður og flykktust um húsið. Égfylgdist líka með þeim þegar þeir hertóku Hótel ísland sem þeir gerðu að bækistöð.“ Eftir að allar helstu stofnanir ust allir bæjarbúar vera komnir á stúfana. Mannmergðin var slík í miðbænum að helst hefði mátt ætla að stórhátíö stæði yfir. Þetta var allt svo ógurlega spennandi, maður hafði aldrei séð hermenn að verki og þeir héldu fólkinu frá. Svona leið dagurinn, enginn vann hand- tak og á vinnustöðum var mest verið að segja nýjustu fregnir; þessi hafði séð þetta og annar heyrt hitt." Alvaran kemur í ljós Þegar líða tók á morguninn var öllum Þjóðverjum hér á landi smal- að saman og farið með þá niður á bryggju. Áhöfnin á Bahia Blanca var fyrst tekin en síðan þeir Þjóð- verjar sem voru búsettir hér. „Þá fór mér að blöskra pínulítið þegar ég sá í hópnum ýmsa vini og kunn- ingja, menn sem ég gjörþekkti eins og Carl Billich og fleiri. Þessir menn voru giftir íslenskum konum og voru í augum flestra íslending- ar. Þeirn var smalað saman og sett- ir á austasta hornið á kajanum. Þarna voru þau eins og búfé í rétt og það fór ekki hjá því að maður fyndi til með þessu fólki. Ég tók líka eftir því að. ýmsir sem ég þekkti hjálpuðu hernum að leita þetta fólk uppi og þótti það heldur lítilmótlegt aö láta þá ekki hafa fyrir þessu. Á kajanum var fólkinu haldið fram eftir degi og ekki að sjá að þau fengju vott eða þurrt. Þarna var alvaran í hernáminu orðin sýni- leg.“ Fyrir sunnan Fríkirkjuna „Svona leið dagurinn, landinn að voi'u komnar undir stjórn hersins fóru flokkarnir að fara um borgina í leit að samastað. Flokkurinn sem Sigurður elti sló niður tjöldum á Skólavörðuholtinu. „Þar fóru þeir að tjalda og hlaða upp sandpoka- virkjum. Uppúr klukkan níu virt- Sigurður Sigurðsson fréttamaður var einn af fáum borgarbúum sem fylgdust með hernáminu frá upphafi. forvitnast en herinn að stugga hon- urn burt því ekki mátti blanda geði við heimamenn. En svo þegar leið á kvöldið sá maður eitt og annað sem hneykslaði mann upp úr skón- um í þá daga. Hermennimir leiddu stúlkurnar suður Fríkirkjuveginn og þá virtust kynnin vera í lagi,“ segir Sigurður. „Næstu daga og vikur samlagaðist herinn bæjarbú- um og ýmsir urðu vinir þeirra.“ Öll umferð úr skorðum Á þessum árum var Sigurður að vinna hjá 1. Brynjólfsson og Kvar- an en það fyrirtæki var til húsa við Hafnarstræti. „Til gamans má segja þá sögu að Einar Arnalds, sem þá var settur lögreglustjóri, var systursonur Gunnars Kvaran sem ég vann hjá. Þetta mæddi mjög mikið á Einari því öll umferð fór úr skorðum. í bænum voru fjórar einstefnugötur, Hafnarstræti, Austurstræti, Laugavegur og Hverfisgata. Bretarnir virtu ekki þessar reglur enda var engin gata merkt sem einstefnugata. Einar kom til Gunnars á skrifstofuna alveg í öngum sínum yfir þessu og sagðist þurfa að koma upp merk- ingu sem útlendingarnir skildu. Gunnar klóraði sér í hausnum og sagði sem svo: „Af hverju notarðu ekki bara one way“, án þess að bjóða í grun að það var það rétta,“ segir Sigurður hlæjandi. Auglýsingar ritskoðaðar Lífið fór að ganga sinn vanagang hjá flestum þegar á leið hernámið, sumir gáfu sig að útlendingunum og aðrir alls ekki. „Sjálfur talaði ég ekki við neinn hermann fyrr en ég hóf störf hjá auglýsingadeild útvarpsins árið 1943 en þá höföu Bandaríkjamenn tekið við af Bret- um. Við urðum að láta þá fá allar auglýsingar til ritskoðunar, að minnsta kosti til málamynda. Ekki mátti minnast á veður eða skipa- ferðir og þegar einhver verslun auglýsti skyrtur, sokka, jakka og fleira sem talið var upp breyttu þeir röðinni á upptalningunni til að koma í veg fyrir njósnir. Fram að því talaði ég aldrei við hermann. Ég haföi hvorki ástæðu né löngun til þess að eiga samskipti við her- mennina. Mér kom þetta ekki við og hernámið snerti mig aldrei per- sónulega nema þennan fyrsta dag,“ sagði Sigurður Sigurðsson frétta- maður sem fylgdist með þegar bresku herskipin lögðust að bryggju í Reykjavík fyrir fimmtíu árum. -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.