Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1990, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1990.
27
LífsstíU
Þriggja
ára
barna-
matur
Það er því miður alltof algengt
að verslanir reyni að koma út
matvörum með útrunnum dag-
setningum. Slíkt á ekki aö gerast
og hvað þá þegar barnamatur á í
hlut.
María hafði samband við neyt-
endasíðuna og kvaðst hafa keypt
þijár krukkur af barnamat í Kjöt-
miðstöðinni við Laugalæk. Þegar
hún opnaði eina af krukkunum
var skán á henni, en þar sem
María hafði aldrei keypt þessa
tegund áður þá vissi hún ekki
hvort þetta ætti að vera svona eða
ekki. Hún gaf fjögurra mánaða
syni sínum eina skeið af blönd-
uöu ávöxtunum sem hann hefur
hingað til verið sólginn í, en nú
brá svo við að hann fúlsaði við
matnum.
Maríu fannst undarlegt að
barninu skyldi hafa fundist þetta
vont og fór að hta betur á krukk-
una. Hún reif verðmiðann af, sá
þá tölur sem hún hélt vera síð-
asta söludag, en þær htu út fyrir
að vera 12.8.’77.
Er DV fór að kanna máhð, kom
í ljós að héma var misskilningur
á ferðinni. Krukkan var tiu árum
yngri en haldið var í fyrstu. Þar
sem mjög hklegt er að fleirl hafi
orðið fyrir svipaðri lífsreynslu
eða séu í vafa um síðasta söludag
vöru, skal héma gerð tilraun til
að útskýra hvernig í öllu hggur.
Hjá 0. Johnson & Kaaber, sem
er innflytjandi Heinz bamamat-
arins, fengust þær upplýsingar
að tölurnar á fokinu sýndu ekki
síðasta söfudag heldur fram-
leiðsludag vörunnar. Heinz
barnamatur er fluttur inn bæði
frá Bandaríkjunum og Kanada
og hafa Bandaríkjamenn síðasta
söludag á sínum vömm en
Kanadamenn framleiðsludaginn,
þó í athugun sé að bæta síðasta
söludegi við. Það eru því kana-
dísku vörumar sem geta snúist
fyrir fófki.
Ef htið er gaumgæfilega á
krukkulokið má sjá stafina BF
og I, og síðan tölurnar 2877.
Fyrstu þijár tölumar eru fram-
leiðsludagurinn og sá síðasti er
árið, þ.e.a.s. barnamaturinn var
framfeiddur 287 dag ársins 1987,
sem var nánar tiltekiö 14. október
það ár. Krukkan meö barnamatn-
um er því að verða þriggja ára
gömul, en samkvæmt upplýsing-
um frá framleiðendum Heinz í
Kanada á bamamaturinn að geta
geymst í þrjú ár í óopnuðum
umbúðum. Þaö er þvi ljóst að
krukkumar sem vora keyptar í
Kjötmiðstöðinni um daginn voru
á síðasta snúningi og hefðu ekki
átt að vera í hihunum, þó enn
ætti að vera allt í lagi með bama-
matinn.
-GHK
Eins og sjá má eru tölurnar 2877
á lokinu, en þær merkja ekki 77
heldur var matnum pakkað 287
dag ársins 1987, eða 14. október.
DV-mynd BG
Verðkönnun Verðlagsstofnunar:
Stærri hverfaverslan-
ir undir meðalverði
Þrettán stærri hverfaverslanir á
höfuðborgarsvæðinu voru með
heifdarverð undir meðalverði í verð-
könnun Verðlagsstofnunar. Könn-
unin náði tif 29 stærri hverfaverslana
og var kannað verðið á 51 vöruteg-
und í þeim eins og stórmörkuðum
og minni hverfaverslunum.
Sé miðað við að meðalverð sé 100
þá gefur frávik frá meðalverðinu
hugmynd um hversu mikið verð í
einstökum verslunum er fyrir neðan
eða ofan meðalverð. Ef litið er fyrst
á stórmarkaðina kemur Bónus best
út úr könnuninni með töluna 80,7 en
eins og flestir vita eru Bónusverslan-
irnar ekki með greiðslukortavið-
skipti. Þar á eftir komu Fjarðarkaup
í Hafnarfirði með 89,2, Hagkaup í
Kringlunni með 91,8, Hagkaup á Eið-
istorgi með 92 og Hagkaup í Skeif-
unni með 92,2.
Á eftir þessum stórmörkuðum
kemur svo Hagabúðin að Hjarðar-
haga með 92,6, en hún er ekki með
greiðslukortaviðskipti, og Arnar-
hraun í Hafnarfirði með 93 en sú
verslun býður félagsmönnun í Félági
eldri borgara staðgreiðsluafslátt.
Aðrar stærri hverfaverslanir sem
vora undir meöalverði voru fjórar
Grandarkjörsbúðir sem nú hafa gef-
ið upp andann, Kjötstöðin í Glæsibæ
með 98,6 sem veitir eldri borgurum
staðgreiðsluafslátt, Nóatún í Mos-
fehsbæ, Nóatún Nóatúni og Straum-
Bónusverslanirnar eru ódýrustu stórmarkadirnir á hötuðborgarsvæðinu, en þrettán stærri hverfaverslanir eru einn-
ig undir meðalverði. DV-mynd GVA
nes Vesturbergi, sem allar voru með
98,.7, og Matvöruverslunin Austur-
veri var með 98,9. Plúsmarkaðurinn
Efstafandi og Kjötmiðstöðin Lauga-
læk ráku síðan lestina með 99,7.
Dýrustu verslanirnar i könnuninni
var einnig að finna meðal stærri
hverfaverslana, en þaö voru Versl-
unin Austurstræti 17'með 108,3 og
Verslunin Norðurbrún viö Norður-
brún með 108,7. Báðar verslanirnar
veita staðgreiðsluafslátt til eldri
borgara.
Ef litið er á könnun meðal smærri
hverfasverslana er Vogaver í Gnoð-
arvogi ódýrust með verð rétt yfír
meðalverði, eða 100,8. Næstar á eftir
voru Garðarsbúð á Grenimel með
103,2 og Verslun Jónasar á Hverfis-
götunni með 103,3.
Miðaverð 1.500 kr. Börn yngri en 6 ára fá frítt inn í fylgd með fullorðnum
I NYJA IÞROTTAHUSINU KAPLAKRIKA
HAFNARFIRÐI
MIÐVIKUDAGINN 23. MAÍ
L_
(cí
KL. 20.30
Gestahljómsveit
Miðasala í öllum hljómplötuverslunum og vídeóleigum
Steinars og Skífunni Kringlunni