Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1990, Blaðsíða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1990.
Þess vegna Kvenna
listi í Kópavogi
Markmið kvennalistakvenna í
Kópavogi með framboði til bæjar-
stjórnar er að gera reynsluheim og
menningu kvenna sýnilega. Með
framboði okkar viljum við vinna
að því að reynsla og verðmætamat
kvenna verði metin til jafns á við
reynslu og verðmætamat karla. Til
þess að ná þessum markmiöum
verða konur að geta haft áhrif á
ákvarðanatökur og forgangsröð
verkefna.
Tvöföld ábyrgð kvenna
Síðustu tvo áratugi hafa konur
haldið út á vinnumarkaðinn, þær
hafa tekið á sig tvöfalda ábyrgð.
Annars vegar hafa þær haldið
áfram að hugsa um heimili og fæða
og ala upp börn og hins vegar skil-
að til þjóðfélagsins verömætri
vinnu úti á vinnumarkaðnum. í
dag er atvinnuþátttaka kvenna yflr
80%. Ætla mætti að sú auðlind sem
atvinnuþátttaka kvenna hefur skil-
að til þjóðfélagsins hefði átt að skila
til baka a.m.k. auknu dagvistar-
rými og skóladagheimilum og ein-
setnum skólum. Það er óþolandi
að vegna skorts á dagheimilum og
skóladagheimilum þurfi að mis-
muna börnum einstæðra foreldra
og börnum giftra foreldra eða for-
eldra í sambúð. Það er óþolandi að
konur skuli hafa orðið aö hætta í
vinnu þegar skólatíminn hefur
ekki gengið upp við vinnutíma
móðurinnar. Þannig virðist stefna
yfirvalda að konur eigi að leggja
fram tvöfalt vinnuálag til þjóðfé-
lagsins án þess að þjóðfélagið leggi
fram nokkuð á móti.
Hvað vill Kvennalistinn?
Þetta vandamál búa konur við
hvar sem er á landinu, jafnvel í „fé-
lagsmálabænum“ Kópavogi.
Kvennalistinn í Kópavogi vill aö í
Kópavogi eigi öll börn völ á a.m.k.
6 tíma dagvist í heimahverfi sínu
óháð atvinnuþátttöku, efnahag og
hjúskaparstöðu foreldra. Við vilj-
um að viðvera barna í skólum verði
lengd og koma upp skóladagheimil-
um þar til þörf er fullnægt.
Við teljum nauösynlegt að launa-
kjör fóstra og annars starfsfólks á
dagvistarstofnunum verði bætt
sérstaklega. Kópavogsbær á að
hafa forgöngu um að bjóða starfs-
fólki sínu upp á sveigjanlegan
vinnutítna, ennfremur getur bæj-
arfélagið haft forgöngu um það að
KjaHarinn
Þórunn ísfeld
Þorsteinsdóttir
verslunarkona. Er í 8. sæti
Kvennalistans í Kópavogi
hafi ekki verið gert nógu hátt und-
ir höfði hér í bæ .og viljum við
breytingu þar á og veita stúlkum
og piltum sömu aðstöðu til íþrótta-
iðkana.
íþróttahöllin
Bygging íþróttahallar í Kópa-
vogsdal vegna HM ’95 hefur verið
mikið í umræðunni í þessari kosn-
ingabaráttu og kvennalistakonur
krafðar svara um afstöðu. 'Við
munum ekki rifta umræddum
samningi en teljum nauðsynlegt að
endurskoða samninginn og fyrst
og fremst með tilliti til fjármögnun-
arþáttarins.
Það eru ýmsar spurningar sem
spyrja má varðandi þessa íþrótta-
höll. T.d. hvers vegna var ákvörð-
un um byggingu hallarinnar tekin
án umræðu meðal íbúanna um
þetta stóra og íjárfreka verkefni
svo skömmu fyrir kosningar? Við
„Kópavogsbær á að hafa forgöngu um
að bjóða starfsfólki sínu upp á sveigjan-
legan vinnu tíma.“
greiða starfsfólki sínu mannsæm-
andi laun. Við viljum að bæjarfé-
lagið leiti nýrra leiða í atvinnu-
sköpun og að sérsakt átak verði
gert til uppbyggingar fyrirtækja
með atvinnuþátttöku kvenna í
huga.
Einnig leggjum við áherslu á að
aldraðir geti haldið áfram störfum
eins lengi og þeir vilja og geta. Við
viljum að mörkuð verði framtíðar-
stefna í húsnæðismálum þar sem
aðaláherslan verði lögð á félagsleg-
ar lausnir og framboð á íjölbreyttu
húsnæði. Kvennalistinn vill vekja
sérstka athygli á að sívaxandi fjöldi
barna og unglinga neytir vímuefna.
Það er sjálfsögð skylda samfé-
lagsins að veita unglingum í vanda
raunhæfa aðstoð og teljum við að
átaks sé þörf og að bæjaryfirvöld
verði að leggja meira af mörkum
en hingað til. Við leggjum í því
sambandi áherslu á fyrirbyggjandi
starfsemi og teljum fræðslu mikil-
vægan þátt. íþróttir og skapandi
listalíf eru meðal þess sem við verð-
um að bjóða æsku bæjarins upp á.
Við teljum að íþróttum stúlkna
hljótum að gagnrýna þá málsmeð-
ferð. Er gert ráð fyrir að allar
íþróttagreinar hafl aðstöðu í
íþróttahöllinni?
Nú er talað um að Breiðablik fái
félagsaðstöðu þar, er ætlunin að
gera jafnvel við önnur íþróttafélög
í Kópavogi? Er ekki fullkomlega
óraunhæft að staðsetja grunnskóla
í sama húsnæði og fjölnota íþrótta-
og sýningarhöfl þar sem gera má
ráð fyrir mikilli umferð?
Val um leiðir
Konur á öðrum hstum í Kópavogi
hafa sumar hverjar tekið framboði
Kvennalistans mjög illa og virðast
líta á það sem beina árás á sig. Það
er að sjálfsögðu mesti misskilning-
ur að svo sé. Við veljum að starfa
einar og sér, þær hafa valið sér
. aðrar leiðir.
Hlutur kvenna í bæjarstjórn og
nefndum og ráðum er augljóslega
mun minni en karla. í bæjarstjórn
sitja 8 karlar og 3 konur. Eigum
við ekki langt í land ennþá með að
nájafnræði?
Þórunn ísfeld Þorsteinsdóttir
Andlát
Guðný Sesselja Óskarsdóttir andað-
ist sunnudaginn 20 maí sl.
Sigurbjörn A. Haraldsson, Garða-
braut 24, Akranesi, andaðist aðfara-
nótt 20. maí.
Guðbjörn Benediktsson, Dalbraut 27,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sól-
vangi 19. maí.
Hrefna Brynjólfsdóttir, Frostafold 1,
” áður til heimilis í Skeiðarvogi 147,
andaðist í Landspítalanum 18. maí.
Kristín Guðjohnsen fulltrúi, Skeiðar-
vogi 63, Reykjavík, andaðist í
Landspítalanum 19. maí.
Auður Kristinsdóttir, Leifsgötu 13,
lést í Landspítalanum 20. maí.
Valdimar Guðmundsson skipstjóri,
Bárugötu 16, lést á Landspítalanum
20. maí.
Sigurlína Gísladóttir, Þórunnar-
stræti 120, Akureyri, andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
sunnudaginn 20. maí.
Jarðarfarir
Freysteinn Ástvaldur Jónsson,
Efstasundi 48, verður jarðsunginn
frá Áskirkju miðvikudaginn 23. maí
kl. 13.30.
Stefán Snælaugsson, Munkaþverár-
stræti 24, Akureyri, sem andaðist 18.
maí sl., verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju mánudaginn 28. maí kl.
13.30.
Guðríður Björnsdóttir frá Blönduósi
lést 18. maí sl. á ellideild Sjúkrahúss
Akraness. Útför hennar fer fram
fóstudaginn 25. maí kl. 15 frá Foss-
vogskapellu.
Ingveldur Stefánsdóttir frá Kleifum
í Gilsfirði, sem andaðist 16. maí sl„
verður jarðsungin miðvikudaginn
23. maí kl. 13.30 frá Bústaðakirkju.
Útför Sigurðar Kristins Ársælssonar,
Heiðarholti le, Keflavík, sem lést af
slysförum, fer fram frá Keflavíkur-
kirkju miövikudaginn 23. maí kl. 14.
Þórður Ágústsson, Ljósheimum 6,
lést mánudaginn 14. maí 1990. Jarð-
arförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Guðrún Þ. Jónsdóttir, Meðalbraut 6,
Kópavogi, er látin. Útfórin hefur far-
ið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Halldór Þorsteinsson frá Hallgils-
stöðum á Langanesi, sem lést í hjúk-
runarheimilinu Skjóli fimmtudaginn
17. maí sl„ verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu föstudaginn 25. maí
kl. 13.30.
Hans Ólafsson, Flatahrauni 16a,
Hafnarfirði, er lést 13. maí, verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði í dag, þriðjudaginn 22.
maí, kl. 13.30.
Arndís J. Einarsdóttir hjúkrunar-
fræðingur frá Hringsdal, sem lést á
heimili sínu þann 17. maí, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag,
þriðjudaginn 22. maí kl. 15.
Tónleikar
Einsöngstónleikar Steinarrs
Magnússonar
Steinarr Magnússon, tenór, heldur sína
fyrstu einsöngstónleika í Norræna hús-
inu 24. maí 1990 kl. 17. Undirleikari hans
verður Lára Rafnsdóttir. Steinarr er
fæddur í Reykjavik 1962. Hann stundaði
söngnám við Söngskólann í Reykjavik á
ánmum 1983-1988. Kennarar hans voru
Magnús Jónsson og Katrín Sigurðardótt-
ir. Steinarr stundar nú söngnám í Banda-
ríkjunum við Tónhstarháskólann í Blo-
omington í Indianafylki. Söngkennari
hans þar er prófessor Roy Samuelsen.
Tapað fundið
Plastmappa tapaðist
á strætisvagnabiðstöð
Glær plastmappa með þremur prentuð-
um smásögum og mynd af dreng tapaðist
á biðstöð beint á móti Hrafnistu í Reykja-
vík sl. laugardag kl. rúmlega 18. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 24265.
Fyrirlestrar
John C. Dvorak á opnu
húsi í Tölvuháskólanum
Á morgun, 23. maí, verður opið hús hjá
Tölvuháskóla Verslunarskóla íslands og
þá mun John C. Dvorak heimsækja skól-
ann og flytja fyrirlestur um þróun tölvu-
mála. Einnig verður starfsemi skólans
kynnt og nemendur munu sýna verkefni
annarinnar. John C. Dvorak er einn líf-
legasti dálkahöfundur í PC Magazine og
PC Computing. Hann skrifar fasta þætti
um helstu nýjungar og hræringar í heimi
einmenningstölva og kemur víða við.
Fyrirlestur hans hefst kl. 14 og að honum
loknum gefst gestum kostur á að kynnast
uppbyggingu náms við Tölvuháskólann
og aöstöðu nemenda. Nemendur á öllum
stigum námsins munu sýna verkefni sem
þeir hafa unnið á síðustu önn. Nemendur
á fyrstu og annarri önn kynna Turbo
Pascal, þróunarumhverfi gluggakerfa og
AS/400 ásamt verkefnum sem unnin eru
í þeim. Ennfremur sýna nemendur á
þriðju önn lokaverkefni sem þeir hafa
unnið undanfama þijá mánuði. Aðgang-
ur aö fyrirlestri Dvoraks kostar kr. 2000
og þeim sem hafa áhuga er bent á að láta
skrá sig í síma 688400 í síðasta lagi í dag.
Aðgangur að opnu húsi er ókeypis. Húsið
er opið frá kl. 13-18.
Tilkyimingar
Vorhappdrætti 1990 fellur nið-
ur
Hið hefðbundna vorhappdrætti Krabba-
meinsfélagsins, sem dregiö er í 17. júni,
verður ekki haldið að þessu sinni. Svo
skammt er síðan krabbameinssamtökin
leituðu til landsmanna um þátttöku í
þjóðarátaki gegn krabbameini og svo al-
menn og rausnarleg voru viðbrögin að
ákveðið var að efna ekki til fjáröflunar
með happdrætti á þessu vori. Einnig var
höfð hliðsjón af þvi að framlög hafa verið
að berast til Þjóðarátaksins með gíróseðl-
mn frá fólki sem ekki náðist til aðalsöfn-
unardaga. Vonast er til að þessi ákvörðun
mælist vel fyrir og efli enn þá miklu vel-
vild og stuðning sem krabbameinssam-
tökin njóta meöal þjóðarinnar. Minnt er
á aö framlögum til Þjóðarátaks verður
fyrst og fremst varið til sérstakra verk-
efna á vegum krabbameinssamtakanna
en happdrættið stendur eftir sem áður
undir ýmsum mikilvægum þáttum í
starfsemi þeirra. Hausthappdrætti
Krabbameinsfélagsins verður þvi haldið
eins og venjulega og veltur mikið á að
það fái sem bestar imdirtektir.
Hallgrímskirkja
Dagur aldraðra, uppstigningardagur 24.
maí, hefst meö messu kl. 11. Á eftir er
boðið upp á mat á hóflegu verði, síðan
verður ekið til Þingvalla, þar bíður kaffi-
hlaðborð á Hótel Valhöll. Þátttaka til-
kynnist Dómhildi í síma 10745 eða 39965.
Skagfirðingafélögin í
Reykjavík
verða með boð fyrir eldri Skagfirðinga í
Drangey, Síðumúla 35, á uppstigningar-
dag kl. 14.30. Bílasími fyrir þá er þess
óska er 685540 eftir kl. 12 sama dag.
Ungum er það allra best...
Ljóða- og bókmenntadagskrá 3ja bekkjar
Leiklistarskóla íslands og Leikfélags
Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu. í kvöld
þriðjudag kl. 20 og á miðvikudag kl. 16.
Nemendur 3ja bekkjar eru: Ari Matthias-
son, Gunnar Helgason, Halldóra Bjöms-
dóttir, Ingibjörg G. Gísladóttir, Magnús
Jónsson, Þorsteinn Bachmann, Þor-
steinn Guðmundsson og Þórey Sigþórs-
dóttir. Leiðbeinandi er Bríet Héðinsdótt-
ir. Orgelleikur: Svavar Sigurðsson.
Fjölmiðlar
Fyrir hverja eru húsbréf?
Þáttur um húsbréfakerfið var
sýndur í Sjónvarpinu í gærkvöldi.
Hann vakti sérstaka athygb mína
þar sem ég hef í alllangan tíma spáð
í fasteignamarkaðinn og er ein af
þeim sem huga að stækkun íbúðar-
húsnæðis. Reyndar var ekki um
neinn þátt beint að ræða því þarna
var á ferðinni fimmtán mlnútna
glansmynd sem sannfærði mig end-
anlega um að húsbréfakerfið er ekki
fyrir venjulegt launafólk.
í þessari kynningarmynd var tal-
að við áhorfandann eins og hann
væri bjáni. Rétt eins og yfirvöld telji
fólkið i landínu slíka fávita að það
hafi hvorki vit til að fara með pen-
inga eða til að velja sér húsnæði.
Húsbréfakerfið er í mínum huga
eitthvert fyrirbæri sem auöveldar
stjórnvöldum persónunjósnir.
Maður úti í bæ tekur ákvörðun
um hvort þú eigir að leggja á þig að
kaupa íbúð eða ekki. Hann ákveður
hversu mikið lán þú getur fengið og
hvernig þú átt að nota það.
Þessi samir maður vill sjá skatt-
skýrsluna, launaseðla, greiðslu-
kvittanir fyrir lánum og ég veit ekki
hvað. Það er hann sem vegur og
metur hvort þú eigir rétt á að fá Ián
úr opínberri húsnæðisstofnun. Þeg-
ar þessi maður leyfir mátt þú kanna
fasteignamarkaðinn og leita að
hentugu húsnæði. Lítist þér á eitt-
hvað máttu gera kauptilboð í fast-
eignina en þú veröur fyrst að fara
með tilboðið tií mannsins hjá Hús-
næðisstofnun sem segir þér hvort
þú sért að kaupa rétta íbúö eða
ranga.
Efþessi maður verður svo elsku-
legur að samþykkja kaup þin á íbúð-
inni ert þú að sleppa. En hversu
mikiö lán fær venjulegur launamað-
ur með vísitölulaun? Ekki var getíð
um það í glansmyndinni enda sýnist
mér á öllu að húsbréf séu ekki fyrir
venjulegt launafólk í landinu. Þegar
ég festi kaup á minni fyrstu í búð og
einnig þeirri númer tvö lagði maður
ögn meira á sig en venjulega til að
standa við greiðslur í ákveðinn
tíma. Húsbréfakerfiö kíkir á Iaun
þín sl. mánuði ekki hvað þú ætlar
að leggja á þig á næstu mánuðum.
íbúðarkaupanda er ekki í sjálfsvald
sett hvað hann vill leggja á sig fyrir
þak yfir höfuðíð. Lánamöguleikar
hans eru undir einhverjum ráðgjöf-
um komnir - vilja þeir ekki næst
veljahúsnæðiðlíka?
-ELA