Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Blaðsíða 16
ARMENNINGAR!
OKKAR NÚMER ER
105
-ekkibaraheppni
Laugardagur kl.14:55
1. HM-leikvíka 9. júiTl99Ó 1 X
Leíkur 1 Sovétríkin
Rúmenía
Leikur 2 Ítalía
Austurríki
Leíkur 3 Bandaríkin
Tékkóslóvakía
Leikur 4 Brasilía
Svíþjóð
Leikur 5 V-Þyskaland - Júgóslavía
Leikur 6 Costa Rica - Skotland
Leikur 7 England - írland
Leikur 8 Belgía_______- S-K6rea
Leikur 9 Uruguay - Spánn
LeikuMO Argentína - Sovétríkin
LeikurH Júgóslavía - Kólumbía
Leikur 12 Kamerún - Rúmenía
Leikur 13 Austurríkl Tékkósióvakía
Þú átt möguleika á 100 milljónum
- ef þú spilar með !
Sovétmenn leika nú í sjöunda
skipti í lokakeppni HM en þar voru
þeir ekki með fyrr en áriö 1958.
Síöan hafa þeir verið með ef árin
1974 og 1978 eru undanskilin.
Besta árangri sínum til þessa
náðu Sovétmenn í Englandi áriö
1966 er þeir höfnuðu í fjórða sæti.
Annars hafa þeir alltaf komist í 8-
Uða úrslit, nema 1986 þegar þeir
voru slegnir út í 16-liða úrslitum.
HM-hópur Sovétmanna er þannig
skipaður, (númer, aldur/leikir):
Markverðir:
1 RinatDasajev.SevilIa...32/93
16 ViktorTsjanov,Kiev.....31/21
22 AlexandrUvanov,D.Mosk.30/l
Vamarmenn:
2 VladimirBessonov,Kiev....32/80
3 V.Khidiatullin,Toulouse...31/58
4 Oleg Kuznetsov, Kiev....27/49
5 AnatoliDemjanenko,Kiev .31/79
6 VasilijRats.Kiev........29/46
13 AkhrikTsveba,Kiev.......23/3
19 Sergei Fokin, CSKA......28/3
20 SergeiGorlukovitsj,Dortm28/15
Miðjumenn:
7 SergeiAleinikov, Juventus28/61
8 Genn.Litovtsjenko.Kiev....26/54
15 Ivan Jaremt^uk, D.Mosk ...28/16
17 A. Zigmantovitsj, Minsk.27/34
18 Igor Shalimov, Sp.Moskva .21/0
21 ValeriBroshin,CSKA......27/2
Framheijar:
9 AlexandrZavarov, Juvent.29/38
10 OlegProtasov.Kiev.......25/60
11 Igor Dobrovolskij, D.Mosk .22/13
12 Alex Borodjuk, Schalke..27/5
14 VladimirLjuti.Schalke...28/2
Þjálfari Sovétmanna er Valeri
Lobanovski, 51 árs. Hann hefur
þjálfað Dinamo Kiev frá árinu 1973
en tók við landsliöinu í maí 1986.
Rúmenar hafa aðeins fjórum
sinnum áður tekið þátt í loka-
keppni HM og þar af í þijú fyrstu
skiptin þegar keppnin var haldin,
1930, 1934 og 1938. Árið 1930 náðu
þeir sínum besta árangri, komust
í 8-liða úrslit. Síðan voru Rúmenar
með í Mexíkó 1970 og þá eru afrek
þeirra á HM upptalin.
Að þessu sinni eru þeir þó lík-
legri til að ná árangri en nokkru
sinni fyrr.
HM-hópur Rúmena er þannig
skipaður (númer, aldur/leildr):
Markverðir:
1 SilviuLung,Steaua.......33/63
12 Bogdan Stelea, Dinamo...22/3
22 GheorgheLiliac,Ploiesti....31/4
Vamarmenn:
2 MirceaRednic.Dinamo.....28/71
3 MichaelKlein,Dinamo.....30/76
4 IoanAndone.Dinamo.......30/47
6 GheorgPopescu,Craiova ...22/16
13 Adrian Popescu, Craiova....29/l
19 Emil Sandoi, Craiova...25/9
21 Ionut Lupescu, Dinamo...21/6
Miðjumenn:
5 Iosif Rotariu, Steaua...27/13
8 Ioan Sabau, Dinamo......22/19
10 GheorgheHagi,R.Madrid ..25/57
11 DanutLupu, Dinamo.......23/6
15 DorinMateut,Dinamo.....24/43
16 Daniel Timofte, Dinamo.22/2
17 Die Dumitrescu, Steaua.21/7
20 ZjoltMusznay.Steaua.....24/3
Framheijar:
7 Marius Lacatus, Steaua..26/36
9 Rod.Camatam,Charleroi..29/72
14 FlorinRaducioiu,Dinamo..20/l
18 Gavril Bahnt, Steaua...27/23
Þjálfari Rúmena er Emerich Je-
nei, 53 ára. Hann hefur þjálfað Ste-
aua um langt árabil en tók við
landsliðinu árið 1986 og þykir hafa
gert góða hluti.
Kamerún, sem mætir Argentínu
í opnunarleik HM á ítaliu klukkan
16 í dag, hefur aðeins einu sinni
áður komist í úrslitakeppni HM.
Það var árið 1982 en þá tapaði liöið
ekki leik, gerði þrjú jafntefli og
missti af sæti í milliriðli á marka-
tölu. Kamerún hefur verið besta liö
Afríku í mörg undanfarin ár.
HM-hópur Kamerún er þannig
skipaður (númer, aldur):
Markverðir:
1 Joseph-AnL Bell, Bordeaux ....35
16 ThomasN’Kono.Espanol....34
22 JacquesSongo’o.Toulon...26
Vamarmcnn:
3 JulesDenisOnana,Canon...26
4 Benjamin Massing, Creteil.28
5 BertinEbwelle.Tonnerre..27
6 EmmanuelKunde,Prevoy......33
12 AlphonseYombi,Canon.....20
14 Stephen Tataw, Tonnerre.27
15 ThomasLibiih,Tonnerre....27
17 Akem N’dip, Canon........22
Miðjumenn:
2 Andre Kana Biyick, Metz..24
8 E.MbouhMbouh,LeHavre ...24
10 Louis Paul Mfede, Canon..29
11 EugeneEkeke,Valenciennes..30
13 Jean-ClaudePagal,LaRoche..25
19 RogerFeutmba,Douala......24
20 CyrilleMakanaky.Toulon...24
Framheijar:
7 Francois O. Biyick, Laval.24
9 RogerMilla,St.Pierraise..38
18 Bonavent. Djonkep, Douala ....28
21 KessackMaboang,Canon.....21
Þjálfari Kamerún er Valeri
Nepomniachi, 45 ára gamall Sovét-
maður. Hann er fyrrum aðstoðar-
maður Lobanovskis, þjálfara Sov-
étmanna, og mætir því lærifoðum-
um á Ítalíu. Nepomniachi tók viö
liði Kamerún áriö 1988.
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990.
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990.
Iþróttir
fþróttir
I þriðjudagsblaði DV var sagt
að Vignir Garðarsson hefði skor-
að mark KSH gegn Sindra en það
rétta er að Vilberg Jónasson
skoraði markiö.
Fótbolta-
stúfar
Tveir leikmenn léku í fyrra-
kvöld sinn 100. leik í 1. deildar
keppninni frá upphafi. Það voru
Pétur Pétursson, fyrirliöi KR-
inga, og Baldvin Guðmundsson,
markvörður Víkinga. Þá lék Sig-
urlás Þorleifsson, þjálfari ÍBV,
sinn 100. leik í deildinni þegar
Eyjamenn unnu FH á þriðjudag
og FH-ingurinn Andri Marteins-
son lék sinn 100. leik þegar FH
vann Stjörnuna um síðustu helgi.
• Baldvin lék aðeins sinn
fjórða leik með Víkingi í deildinni
en hann á að baki 96 leiki með
Þór í 1. deild.
• Sigurlás hefur leikið 84 leiki
með ÍBV í 1. deild og 16 með Vík-
ingi. Hann hefur skorað 53 mörk
í þessum 100 leikjum.
• Andri lék sinn þriðja 1. deild-
arleik með FH gegn Stjömunni
en áður hafði hann spilað 79 leiki
með Víkingi og 18 með KR.
• Loks má geta þess að þegar
Hlynur Stefánsson skoraði sigur-
mark ÍBV gegn FH var hann um
leið að skora 400. mark Eyja-
manna í 1. deild frá upphafi. -VS
Knaflspyma
1. deild
(Hörpudeild)
Fram 4 3 1 0 12-0 10
KR 4 3 0 1 7-4 9
ÍBV 4 3 0 1 5-5 9
Valur 4 2 1 1 5-3 7
FH 4 2 0 2 7-5 6
Stjaman 4 2 0 2 6-9 6
Víkingur 4 1 2 1 6-5 5
ÍA 4 1 1 2 4-8 4
Þór 4 0 1 3 1-6 1
KA 4 0 0 4 1-9 0
T
ío
Fer Amór til Ítalíu eftir allt saman?
Hllll byrjar í dag
- Argentína og Kamerún ríða á vaðið
í dag klukkan 16 að íslenskum tíma verður flautað til leiks í heimsmeistara-
keppninni í knattspymu, stærsta íþróttaviðburði heimsins á þessu ári. Þar
keppa 24 þjóðir um heimsmeistaratignina og tekur keppnin heilan mánuð
en henni lýkur með úrshtaleik í Róm þann 8. júlí.
Þaö em heimsmeistarar Argentínu og Afríkumeistarar Kamerún sem hefja
keppnina í Mílanó í dag en þessi lið leika í B-riðli ásamt Sovétríkjunum og
Rúmeníu. Tvær síöamefndu þjóðimar leika á morgun klukkan 15. Á morgun
em tveir aðrir leikir sem báðir hefjast klukkan 19. ítaha og Austurríki
mætast í A-riðli og í F-riðh mætast Sameinuðu furstadæmin og Kólombía. Á
sunnudag em þrír leikir. Bandaríkjamenn og Tékkar leika í A-riðhnum
klukkan 15 og klukkan 19 leika BrasÓía og Svíþjóð í C-riðli og Vestur-Þýska-
land og Júgóslavía í D-riðh. -VS
„Ég er mjög ánægður með síðari hálf-
leikinn en við vomm lengi í gang. Liðið
spilaði mjög vel í seinni hálfleik og upp-
skar eftir því. Við erum efstir en mótið
er rétt að byija og það getur margt
breyst,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari
Framara, eftir að hðið hafði leikið sér
að meistumm KA á Laugardalsvehinum
í gærkvöldi. Fram sigraði, 4-0, og hefði
sá sigur getaö orðið stærri miðað við
færin sem þeir bláklæddu fengu.
Fyrri hálfleikur var ekki mikið fyrir
augað og það eina markverða sem gerð-
ist var mark Framara á 12. mínútu.
Guðmundur Steinsson sendi glæsilega
fyrir markið og Ríkharður Daðason var
á auðum sjó á fjærstöng og skallaði auð-
veldlega í netið.
Síðari hálfleikurinn var miklu opnari
og skemmthegri. Framarar settu í 5. gír
og sundurspiluðu KA-menn. Um miðjan
síöari hálfleik skoraði Arnljótur Davíðs-
son með fallegu bogaskoti yfir Hauk
Bragason, markvörð KA, sem var iha
staðsettur. Þremur mínútum síðar kom
þriðja markið og var þar Guðmundur
Steinsson að verki. Guðmundur virtist
vera í vonlausu færi úti við endalínu en
sendi knöttinn yfir Hauk í markinu og
boltinn sveif í hornið fjær. KA-menn
fengu tækifæri á að minnka muninn
mínútu síðar þegar dæmd var víta-
spyma á Fram. Birkir Kristinsson varði
hins vegar meistaralega fast skot Kjart-
ans Einarssonar og síðan bjargaði hann
aftur skoti Bjama Jónssonar á glæsileg-
an hátt. Þetta var eina marktækifæri
norðanmanna í öUum leiknum en hinum
megin sköpuðu Framarar sér mörg færi
með vel útfærðum sóknum sínum. Það
kom því ekki á óvart að þeir bættu fjórða
markinu við og var það enn eitt glæsi-
markið. Guðmundur Steinsson skoraði
þá með þramskoti af 20 metra færi og
Haukur átti ekki möguleika á að veija.
Stórsigur Fram var í höfn og það trónir
nú í efsta sæti 1. deUdar en meistarar
KA em neðstir og hafa enn ekki hlotið
stig.
Kristján Jónsson var besti maðurinn
í mjög góðu hði Framara. KA-hðið var
ótrúlega slakt og enginn skar sig úr hjá
liðinu.
Dómari var Þorvarður Bjömsson og
dæmdi hann þokkalega.
-RR
• Rtkharöur Daðason skorar hér fyrsta mark Framara í gærkvöldi. Ríkharður fékk glæsilega sendingu frá Guðmundi Steins-
syni og átti ekki í erfiðleikum með að skalla boltann í netið. DV-mynd Brynjar Gauti
• Óperusöngvarinn heimskunni, Placido Domingo, heldur auðvitað með
Spánverjum á HM og er mættur til Ítalíu. Símamynd/Reuter
Enn hefur lítið sem ekkert gerst í málum Arnórs Guðjohn-
sen og ekki víst hvort hann fer frá Anderlecht eða ekki.
Vitað er af mörgum félögum sem áhuga hafa á kappanum.
í gær greindi forseti Anderlecht hins vegar frá því í DV að
það kæmi ekki til mála að Arnór færi frá félaginu.
Nú er sá möguleiki fyrir hendi að
Arnór fari til Ítalíu. Hann er nefnilega
á óskalista forráðamanna ítalska knatt-
spymustórveldisins Juventus - sam-
kvæmt frétt í stærsta dagblaði Belgíu,
Het f'íieuwsblad, í gær.
Arnór er þar talinn upp sem einn af
fimm leikmönnum sem Juventus hefur
áhuga á að kaupa. Hinir eru belgísku
landsliðsmennirnir Patrick Vervoort og
Marc Emmers og hohensku landsliðs-
mennirnir Barry Van Aerle og Jan
Wouters.
Forráðamenn Juventus ætla ekki að
gera upp hug sinn fyrr en aö lokinni
heimsmeistarakeppninni á Ítalíu. Það
dregur óneitanlega úr möguleikum Ar-
nórs því að hinir fjórir keppinautar
hans verða alhr á Ítalíu og fá þar tæk-
ifæri th að láta ljós sitt skína.
• „Ég hef lengi haft áhuga á því að
leika í ítölsku knattspyrnunni og hef
enn áhuga á því. Og auðvitað hefði ég
ekkert á móti því að fara til Juventus.
Annars á ég ekki von á því að neitt
markvert gerist í mínum málum fyrr
en að heimsmeistarakeppninni lok-
inni,“ sagði Arnór Guðjohnsen í sam-
tahviðDVígær. -SK/KBBelgíu
• Arnór Guöjohnsen.
Skylmingafélag
Reykjavíkur
(áður Hið íslenzka skylmingafélag)
auglýsir ný námskeið
í ólympískum skylmingum.
Æfingar í sumar:
Byrjendaflokkur: Miðvikud. 20.00-21.00.
Laugard. 13.00—15.00. Byrjendur (10-16 ára):
Þriðjud. 17.30-19.00. Fimmtud. 17.30-19.00.
Þjálfari: Brynjar Karlsson íslandsmeistari.
Framhaldsflokkur: Þriðjudagskvöld,
fimmtudagskvöld. Æfingar eru í gamla ÍR-húsinu
v/Túngötu. Uppl. og skráning á staðnum eða í
síma 1 43 87 á kvöldin. OPIÐ HÚS Laugard.
9.6. 1990 frá kl. 13.00.
Forráðamenn
J u ventus hafa
áhuga á Amóri
- hann er einn af flmm knattspymumönnum á óskalista Juventus
Enn einn Svíi
tiiBenfica
Sænski landshðsmað-
urinn í knattspymu,
: Stefan Schwárz, heftír
skrifað undir þriggja
ára samning við portúgalskaliðið
Benfica. Schwarz hefur leikið
með Malmö í Svíþjóð og er einn
af lykilmönnum sænska lands-
hðsins í stöðu vamannanns.
Hann verður því fjóröi Svíinn í
herbuðum Benfica á næsta
keppnistimabili en fyrir era
markakóngurinn Mats Magnus-
son, Jonas Them og Sven Göran
Eriksson þjálfari.
Hysen ekki með
gegn Brasiiíu
Nú eru taldar litlar líkur á að
Glen Hysen leiki fyrsta leik Svía
í heimsmeistarakeppniimi gegn
Brasihu á sunnudaginn. Hysen
hefur átt við meiðsli í kálfa að
striða og hefur ekkert getað leikið
síðan keppnistímabilinu á Eng-
landi lauk í byrjun mai. Svíar em
nokkuð áhyggjufullir vegna
þessa því Hysen hefiu' verið ein
styrkasta stoð sænska landshðs-
ins undanfarin ár.
Sigurjón sigraði
á Sanyo-mótinu
Sanyo-mótið í golfi fór
fram um síðustu helgi
hjá Gohklúbbi Reykja-
víkur á Grafarholt-
sveUi. Það nýmæh var í þessu
móti, sem Sanyo verksmiðjan
styrkti, að leikið var á fóstudegi
og laugardegi í stað laugardags
og sunnudags og mæltist það vel
fjTir hjá keppendum. Úrsht urðu
þessi:
Án forgjafar
1. Sigurjón Arnarsson, GR.150
2. Tryggvi Traustason, GK.151
3. Magnús Birgisson, GK...156
Með forgjöf
1. Kristirm Guðjónsson, GR.139
2. HinrikHilmarsson, GR...141
3. Leifur Bjarnason, GR...142
Opið kvennamót i golfi
Opið kvennamót í golfi, Weha-
mótið, verður haldiö á Hvaleyr-
arvelli í Hafnarfirði á morgun,
laugardag. Keppendur verða
ræstir út kl. 9 en nánari upplýs-
ingar um mótið er í síma 53360.
Kappamót öldunga
Kappamót öldunga í frjálsum
íþróttum fer fram á Valbjamar-
velh í Laugardal á morgun, laug-
ardag. Keppnin hefst klukkan
13.30 og á dagskrá eru allar lands-
keppnisgreinar. Flestir bestu
frjálsíþróttamenn landsins í eldri
aldursflokkunum mæta til leiks.
Blikar áfram i bikarnum
Síðasti leikurinn í 1.
umferð bikarkeppn-
imii í knattspyrnu fór
fram í gærkvöldi.
Breiðablik tók þá á raóti Snæfelh
og sigraði, 3-0. Wihum Þór Þórs-
son skoraði tvö mörk og Grétar
Steindórsson eitt. Þá sigraöi HK
hð Stokkseyri í 4. deild karla, 5-0.
Róbert Haraldsson og Bjami
Frostason skoruöu tvö mörk hver
og eitt raark var glæsilegt sjálfs-
mark Stokkseyringa.
Fram í 5. gír
- meistarar KA teknir í kennslustund í Laugardalnum