Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990. 13 Lesendur Yfirvigt frá Keflavík til Bankok Þráinn H. Jónsson skrifar: Ég lenti í einkennilegu máli fyrir skömmu, nánar tiltekiö 4. apríl sl. Ég var aö fara ásamt þremur öðrum frá Keflavík meö Flugleiðum áleiöis til Bankok. Viö héldum hópinn og settum farangur okkar allan á vigt- ina við komu og innritun í Leifsstöð. Hver farþegi má vera með 20 kílóa farangur svo viö héldum þaö vera í lagi aö setja allt saman þar eö við vorum ekki meö svo mikinn farang- ur. Vigt þeirra Flugleiðamanna sýndi 94 kíló og þar meö var ljóst aö við vorum meö 14 kíló í yfirvigt. Af- greiöslumaðurinn afhenti okkur að- eins þrjú brottfararspjöld og sagði aö þaö fjórða fengjum viö ekki fyrr en viö værum búin að greiða fyrir yfirvigtina. Þannig þurftum viö aö fara aö ööru afgreiðsluborði þar sem kona ein byrjaði að reikna út yfir- vigtina hjá okkur. Niöurstaðan varö sú að viö þyrft- um að greiða 49.000 kr. Þaö fannst okkur fullmikið og tókum ekki í mál aö greiða þessa upphæö enda slagaði hún hátt upp í verð eins flugmiða. - Eftir mikið þóf og langa bið fengum við loks aö tala við vaktstjóra, konu sem var öll hin elskulegasta. Hún lagði til að breytt yrði merk- ingu á töskunum. En töskurnar áttu allar að fara beina leið til Bankok, án viðkomu í Kaupmannahöfn, sem skýrir að hluta til hið háa verð á yfir- vigtinni. - Þetta var síðan gert og voru töskurnar svo þannig merktar að við tækjum þær af í Kaupmanna- höfn. Allt var þetta búið aö taka óra- tíma og máttum við hafa okkur öll við að komast út í vél svo að við misstum ekki af henni. Við bjuggumst við að sama sagan endurtæki sig er við kæmum til Kaupmannahafnar. - En viti menn. Vigt þeirra SAS-manna sýndi svo ekki varð um villst aö farangurinn okkar, sem var 94 kíló í Keflavík, var aðeins 79 kíló í Kaupmannahöfn! Við spurðum sjálf okkur hvort töskumar hefðu lést á leiðinni eða vigtin í Keflavík verið svona óná- kvæm, viljandi eða óviljandi! Þessi mikla töf í Keflavík var heldur óskemmtilegt upphaf á langferð. Hins vegar hlýtur einhver skýring að vera á þessum mikla mun á vigtun þeirra Flugleiða- og SAS-manna. - Ég myndi hins vegar líklega ekki fljúga með Flugleiðum næst ef ég ætti annars kost. w Svar frá Flugleiöum hf.: Utskýringar vegna yfirvigtar Einar Sigurðsson blaðafulltrúi skrif- ar: Ég þakka fyrir að fá að svara bréfi ferðalangs á lesendasíðu þar sem hann beinir spumingum til Flugleiða vegna yfirvigtar. Tvennt þarfnast útskýringa. í fyrsta lagi afgreiðslu- hættir í Keflavík þegar um yfirvigt er að ræða og í öðm lagi hvort hugs- anlegt sé misræmi á milli farangurs- vogar í Keflavík og Kastmp. Allur framgangur okkar fólks í Keflavík sýnist mér hafa verið eftir settum reglum í því dæmi sem hér er tilgreint. Hveijum farmiða á al- mennu farrými fylgir heimild til aö hafa allt að 20 kg af farangri með í ferð. Fyrir hvert kíló umfram er greitt sérstaklega og því lengra sem flogið er þeim mun hærri verður upphæðin. - Starfsfólk allra flugvaUa vinnur eftir svipuðum reglum, og ég hef sjálfur reynt að þeim er fylgt með svipuðum hætti annars staðar og hér er greint frá. Þeir farþegar sem hér um ræðir vom á leið til Bankok í Thailandi með SAS eftir því sem ráða má af bréfinu. Flugfélög hafa með sér samninga og innheimta yfirvigtar- gjald hvert fyrir annað ef töskur eru skráðar „í gegn“ eins og það er kall- að þegar farangur er fluttur á milli flugvéla á tengiflugvelli erlendis, án þess að farþeginn komi þar nærri. - Flugleiðir hefðu því þurft að greiða SAS fyrir þau 14 kg af yfirvigt sem þarna voru vegin á flugleiðinni Kaupmannahöfn-Bankok. Það er vitaskuld slæmt ef það hefur komið þessum ferðalöngum á óvart hveria yfirvigt þeir höfðu og hvað kostar fyrir hana á þessari löngu flugleið. - Það er ástæða til að hvetja fólk til að fylgjast vel með þyngdinni á farangrinum þegar pakkað er niður fyrir langferð. Hitt er svo annað mál hvemig á því hefur staðið að niðurstöður af vigtun farangurs hér í Keflavík hafa verið með öðrum hætti en niðurstöð- ur í Kaupmannahöfn. Það er rétt að taka það fram að farangursvogir í Leifsstöð em í eigu stöðvarinnar, en ekki Flugleiða. Þær em skoðaðar reglulega af opinberum eftirhts- mönnum sem gefa hverri vog fyrir sig löggildingaistimpil. Ég á von á því að svipað fyrirkomulag sé í Kaup- mannahöfn. Það er auðvitað til í dæminu að þessi tæki bili eins og önnur og þá getur það gerst hvort heldur er á íslandi eða í Danmörku. í bréfinu slær bréfritari því hins veg- ar fostu að vogin í Keflavík hafi ver- ið vitlaus eins og hann orðar það. Ég tel ekki svara verða þá ósmekk- legu aðdróttun að shkt gæti verið viljandi gert. Flugleiðir taka vitaskuld mjög al- varlega ahar ábendingar um að mis- ræmi eins og þetta hafi komið upp. Vegna bréfs þessa ferðalangs höfum við borið saman vogir í Keflavík og þær virðast ahar nákvæmlega stillt- ar. Það er því ómögulegt að segja til um hvernig stendur á misræmi milh vigtunar í Keflavík og á Kastrup, hvort um er að ræða mistök eða bh- aða vog á öðrum hvorum staðnum. - Hvernig sem í málinu hggur, þykir Flugleiðum vitaskuld leitt ef það hef- ur valdið þessum farþegum óþægind- um. SUMAR SÝNING UM HELGINA LAUGARDAG KL. 11-16, SUNNUDAG KL. 12-16 TJALDVAGNARNIR KOMNIR TJALDVAGNAR Innifalið í verðí vagnsins er: Stórt fortjald Botn í fortjald Eldavél með 3 hellum Gasjafnarí • gardínur Borð • varadekk TOP VOLUME fyrír allar árstíðir allur hugsanlegur útbúnaður í vagnínum reistur á 15 sek. Opið allar helgar í sumar SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJASLOÐ 7 - SIMI 62-17-80 Hringið í síma 27022 milli kl. 14 og 16 eða skrifið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.