Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990.
11
Gorbatsjov Sovétforseti veröur líklega einn í kjöri til leiðtogaembættis flokksins i næstu viku. Sfmamynd Reuter
Fyrirhuguð kosning um leiðtoga sovéska kommúnistaflokksins:
Gorbatsjov líklega
sjálfkjörinn
Gorbatsjov Sovétforseti hefur
hvatt hópa inna sovéska kommún-
istaflokksins til aö vinna saman til
að bjarga umbótastefnu sinni, per-
estrojku, á þingi flokksins sem nú fer
fram í Moskvu. Umbótastefnan hefur
verið harðlega gagnrýnd á þessu
þingi, sérstaklega af harðhnumönn-
um sem eru þar í miklum meiri-
hluta. En forsetinn er sem milli
steins og sleggju á þessu þingi, rót-
tækir umbótasinnar gagnrýna hann
fyrir seinagang í umbótum en harð-
línumenn segja hann ganga of langt.
Áform sovésku stjómarinnar á
þann veg að innleiða markaðshag-
kerfi er afar óvinsæl meðal sovéskra
borgara sem óttast að þau muni hafa
í fór með sér verðhækkanir og at-
vinnuleysi.
En hvaö sem líður gagnrýni á
stefnu forsetans í efnahagsmálum er
tahð líklegt að Gorbatsjov, sem er
einnig leiðtogi flokksins, verði end-
urkosinn í leiðtogaembættið þegar
kosning fer fram í næstu viku. Líkur
benda til að Gorbatsjov fái ekki mót-
framboö. „Við höfum aðeins verið
að ræða um einn frambjóðanda, þ.e.
Mikhail Gorbatsjov,“ sagði Alfreds
Rubiks, leiðtogi kommúnistaflokks
Lettlands.
Stuðningur við leiðtogann er bæði
meðal haröhnumanna sem greini-
lega óttast að áhrif kommúnista-
flokksins kunni að dvína enn frekar
hverfl Gorbatsjov af sjónarsviðinu.
Reuter
Olíuborpallamir á Norðursjó:
Verkföllum að Ijúka
Verkfohum á norsku olíubor-
pöllunum á Norðursjó er að
nokkru leyti lokið en hluti verka-
manna á pöllunum hóf aftur störf
í gær.
Verkamenn á þremur olíubor-
pöhum ákváðu að taka tillit til
beiðnar ríkisstjórnar Noregs og
verkalýðsfélga um að hefja aftur
störf. 011 ohu- og gasframleiðsla í
Noregi hefur legið niðri þá daga
sem verkfahið hefur staðiö yfir.
En enn eru nokkur hundruð
verkamenn á öðrum borpöhum í
verkfahi. Það að endi sé bundinn á
verkfah á þremur borpöllum þýðir
að ohuframleiðsla Noregs tekur
aftur mikinn kipp. Noregur er ann-
að mesta ohuframleiðsluríki í Vest-
ur-Evrópu.
Reuter
Tékkóslóvakía:
Vaclav Havel kjörinn forseti
Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvak-
íu, náöi í gær kosningu til áfram-
haldandi setu í embætti eftir fyrstu
frjálsu forsetakosningarnar þar í
landi í 55 ár. Kosningarnar eru eitt
af fyrstu raunverulegu táknum um
lýðræöislegar umbætur í landinu.
Havel sagði eftir úrshtin í gær að
hann myndi gera aht hvað hann
gæti til að leiða land sitt og þjóð í átt
til betri vegar í framtíðinni.
Það voru 300 þingmenn tékkneska
þingsins sem höfðu atkvæðisrétt í
kosningimum. Havel hlaut 234 at-
kvæði þeirra 284 þingmanna sem við-
staddir voru kosninguna. Þing
Tékkóslóvakíu var kjörið í síðasta
mánuði í fyrstu lýðræðislegu kosn-
ingum í landinu í 46 ár.
Leikritaskáldið Vaclav Havel var í
desember kjörinn forseti landsins til
bráðabirgða eða þar til nýtt þing
kæmi saman og kysi nýjan forseta.
Havel, sem var einn í framboði, var
nú kosinn til næstu tveggja ára.
Hinn nýkjörni forseti sagðist
ánægður með að kosningamar hefðu
verið leynilegar og að hann hefði
ekki hlotið öh greidd atkvæði. Taldi
hann þá staöreynd merki þess að
kosningin hefði verið lýðræðisleg.
Reuter
Hinn nýkjörni forseti Tékkóslóvakíu, Vaclav Havel, sést hér fagna kosning-
unnl ásamt forsætisráðherra landsins, Marian Calfa. Símamynd Reuter
Útlönd
Breytinga að vænta í Nígeríu?
Kosningar til forystu tveggja
stjórmnálaflokka sem herstjóm
Nígeríu hefur komið á laggirnar
fara fram á laugardag. Þá munu
líklega koma fram í sviösljósið
hugsanlegir framtíðarleiðtogar
þessa fjölmennasta ríkis Afríku
sem leiða munu þaö til lýðræðis.
Það verður á þingum flókkanna
tveggja, Jafhaðarmannaflokksins
og Rebúbhkanallokksins. í öllum
fylkjum landsins þar sem forysta
flokkanna verður kosin. Þá mun
hggja fyrir hverjir bjóða sig fram í
kosningum um fylkisstjóra allra 21
fylkja landsins á næsta ári. í des-
ember er fyrirhugað aö halda sveit-
arstjórnarkosmngar og kosningar
til fyUtisþinga á næsta ári.
Árið 1992 verða svo haldnar kosningar tfl löggjafarþings landsins og á
þá að Ijúka hersijóminni sem verið hefur við völd siðustu tuttugu og eitt
ár af þrjátiu. Ekki em þó ahir vissir um að ró haldist í Nígeríu þar iil
árið 1992. Margir óttast valdaránstilraun en misheppnaðar valdaránstU-
raunir og aðrar skærur hafa ýtt undir ótta manna um að óánægðir her-
menn muni enn á ný reyna að hrifsa völdin áður en borgaraleg stjórn á
að taka við.
Besti vinur mannsins
Sænskur dómstóU hefúr komist að þeirri niðurstöðu að yfirvöld skuli
borga vistunarkostnað fyrir hunda ef eigendur þeirra þurfi aö afplána
dóm í fangelsi. Tryggingastofnun í bænum Alvsborg í Vestur-Svíþjóð
hafði samþykkt að borga það hugsanlega tjón sem tveir hundar fánga þar
í bæ gætu valdið á vistunarstofnuninni sem þeim var komiö fyrir á, en
annað yrði eigandinn að borga.
En nú hefur dómstóllinn dæmt tryggingastofhunina tfl að borga vistun-
argjald fyrir hundana tvo og aUt uppihald í þá þrjá mánuði sem eigandi
þeirra situr í fangelsi.
Enn þrengir að Barry
Marion Barry, borgarstjóri Washington, ásamt eiginkonu sinni, Efti.
Simamynd Reuter
Fyrrym sýningarstúlka skýröi frá því í gær að hún hefði neytt fikni-
efna með Marion Barry, borgarstjóra Washington, höfuðborgar Banda-
ríHjanna. Þetta kom fram í réttarhöldunum yfir borgarstjóranum en þau
standa nú yfir. Barry er sakaður um brot á fíkniefnalöggjöfinni sem og
meinsæri.
Stúlkan, Carol Jackson, sagði einnig aö borgarstjórinn hefði sýnt henni
ástleitní en að hún heföi varist honum. Jackson sagði aö hún hefði neytt
kókaíns með Barry og fyrrum ástkonu hans, Rasheedu Moore, sumarið
1986. Þegar hún var spurð hvort hún væri fuUviss um aö borgarstjórinn
heföi sjálfur neytt Ðkniefna svaraöi hún því játandi. Carol Jackson er
önnur konan sem skýrir frá því við þessi réttarhöld aö hún hafi neytt
fíkniefna með Barry, einum litríkasta og umdeildasta stjórnmálamanni
Bandaríkjanna.
Árás á búðir Palestínumanna
ísraelskar orrustuþotur gerðu í morgun árás á búöir Palestínumanna
í austurhluta Líbanons, að því er heimUdarmenn skýrðu frá. Snemma i
morgun var ekki vitað um að neinn hefði sakað.
Sjónarvottar segja að þoturnar hafi skotið mörgum flugskeytum að
búöunum. „Það var reykur yfir öUu,“ sagði einn þeirra. Þetta var þrett-
ánda árás ísraelsmanna á búðir Palestínumanna þaö sem af er ári en í
þeim hafa alls eUefu manns látist og rúmlega sextíu slasast.
Alberti Fujimori, nýkjörinn forseti Perú, hélt heim á leið í gær eftir vel
heppnaða heimsókn til Japans. Fujimori, sem er japanskrar ættar, fór
fram á viö japönsk yfirvöld að þau veiti Perú efnahagslega aðstoð upp á
1,8 mUljón bandarískra doUara svo landið getí farið að endurgreiða erlend-
ar lántökur sínar. Japanskir embættismenn hafa ekki látið uppi hvort
japanska stjómin hyggist verða viö þeirri bón en honum var að þessu
sinni veittur rúmlega fjögurra mUIjón doUara styrkur.
Fújimori ræddi meðal annars við forsætisráðherra Japans, ToshUti
Kaifu, og aöra embættisraenn sem og kaupsýslumenn. Japanska rfltis-
stjómin skýrði frá því að fUndi leiðtoganna loknum að ráðgjafenefndir
yrðu sendar tU Perú til að kanna ástand efnahagsins og þarfir þjóðarinnar.