Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990.
Fréttir
Hver gefur út heilbrigðis-
vottorð á Gunnarsholti?
Eg, undirritaöur, leyfi mér hér
með að gera stutta athugasemd við
ummæli forstöðumanns Gæslu-
vistarhælisins að Gunnarsholti,
Þorsteins Sigfússonar, í DV hinn
4. júlí sl.
Máhð er mér m.a. skylt af þeirri
ástæðu að snemma í vor komu
nokkrir fyrrverandi vistmenn hæl-
isins að máli við mig og fóru fram
á aðstoð við samningu greinargerð-
ar með beiðni um rannsókn á
rekstri og starfsemi gæsluvistar-
hæhsins.
Ég varð við þessari beiðni og tek
því að minu leyti á mig aha höfund-
arábyrgð á þeirri skýrslu er hratt
af stað þeirri rannsókn er nú stend-
ur yfir og greint var frá í ríkissjón-
varpinu hinn 3. júlí sl. og í DV dag-
inn eftir.
Hvað svo sem verða kann, úr því
sem nú er komið, þá var það ekki,
og er ekki enn, hugmynd mín aö
ræða umrædda skýrslu opinber-
lega í smáatriðum. Ég get þó ekki
látið því ómótmælt þegar forstöðu-
maöur hæhsins lætur hafa eftir sér
órökstuddar dylgjur um skjólstæð-
inga mína.
Orðrétt segir í DV og er haft eftir
forstöðumanninum innan tilvísun-
armerkja:
„Ég tel að þetta sé komið frá fólki
sem hefur verið vísað héðan vegna
síendurtekinna brota á heimilis-
reglum. Þetta er mjög veikt fólk.“
Ég er að vísu ekki læknisfróður
maður frekar en Þorsteinn Sigfús-
son en ég leyfi mér þó að fullyrða
að þrátt fyrir langvarandi vímu-
efnavandamál eru þessir menn í
dag jafn andlega hehbrigðir og al-
mennt gerist um fólk, hvort heldur
er í Reykjavík eða austur á Rangár-
völlum.
Ég ætlast ekki til þess að Þor-
steinn fari sjálfur að rökstyöja of-
angreint læknisfræðilegt áht sitt
en óneitanlega væri fróðlegt að fá
mat þeirra lækna, sem meö vist-
menn hafa að gera, á áhtsgerð Þor-
steins.
Hins ætlast ég til að forstöðumað-
urinn skýri nánar hvenær um-
ræddum mönnum var vísað af
Gunnarsholti og í hverju hin síend-
urteknu brot þeirra á heimhisregl-
um lágu.
Eins og áður sagði ætla ég ekki,
að svo komnu máli, aö ræða
skýrslu skjólstæðinga minna í
smáatriðum. Þó mega Þorsteinn
Sigfússon, og fleiri er máhð varðar,
vita að þeir höfðu margt að segja
er ég lét ekki koma fram í skýrsl-
unni. Bæði af þeirri ástæðu aö mér
fannst nóg að gert í bih og eins af
hinu að oft er erfitt að henda reiður
á orðum manna í einkasamtölum,
persónulegu viðhorfi þeirra og
mati, og þá betra að van sé sagt en
of.
Þessa viðhorfs míns nutu Þor-
steinn og fleiri í umræddri greinar-
gerð. Þegar menn hins vegar rjúka
upp með dylgjur og óþverraskap í
opinberum fjölmiðli njóta þeir að
sjálfsögðu ekki þeirra fríðinda
lengur að erfitt sé að herma upp á
þá.
Það er skýlaus og óafturkahanleg
krafa min og skjólstæðinga minna
aö forstöðumaður Gæsluvistar-
hæhsins að Gunnarsholti rökstyðji
á hreinskhinn og heiðarlegan hátt
ofanritaða umsögn sína um þá eða
éti hana ofan í sig, skítuga eins og
hún er, og verði af ennþá minni en
hann áður var.
Ég vh að lokum geta þess að ég
hef í dag skrifað Skrifstofu Ríkissp-
ítalanna og beðið um upplýsingar
um hvort og þá hvenær einhver
skjólstæðinga minna hefur verið
rekinn af Gæsluvistarhæhnu að
Gunnarsholti og sé svo þá fyrir
hvaða brot. Að fengnu því svari
mun ég sjálfur, með samþykki
skjólstæöinga minna, upplýsa mál-
ið, verði Þorsteinn Sigfússon ekki
maður th þess.
Reykjavík 5. júlí 1990
Hafsteinn Einarsson lögfræðingur
Andlát
Haraldur Þorsteinsson, Kleppsvegi
76, andaðist að kvöldi 3. júh í Borgar-
spítalanum.
Vilhjálmur Hans Alfreð Schröder
framreiðslumaður, Hringbraut 92c,
Keflavík, andaðist í Landakotsspítala
þann 4. júh.
Margrét Jónsdóttir hattari, Löngu-
hhð 13, lést á Elliheimilinu Grund
4. júh.
Unnur Jónsdóttir andaöist í sjúkra-
húsi Seyöisfjarðar 4. júh.
Jardarfarir
ýmis trúnaðarstörf allt til æviloka,
auk þess sem hann átti sæti í fjöl-
mörgum nefndum og ráðum á vegum
landssambandins. Hann var einn af
stofnendum Sjálfsbjargar, félags fatl-
aðra á ísafirði og fyrsti formaður
þess, og 1983-1989 gegndi hann for-
mennsku í Sjálfsbjörgu, félagi fatl-
aðra í Reykjavík og nágrenni.
Trausti var giftur Helgu Hermanns-
dóttur og áttu þau eina dóttur. Útfór
Trausta verður gerð frá Hallgríms-
kirkju í dag kl. 13.30.
Benedikt G. Óskarsson, , Hraunbæ
110, Reykjavík, lést 29. júní. Benedikt
fæddist í Reykjavík þann 7. nóv. 1930,
sonur hjónanna Bentinu Benedikts-
dóttur og Óskars Guðbrandssonar.
Benedikt var bílamálarameistari og
starfaði lengst af við bílamálun. A
seinni árum starfaði hann hjá Pósti
og síma á Jörva sem birgðavörður.
Benedikt giftist Sigríði Hauksdóttur
og eignuðust þau fjögur börn. Útfór
Benedikts verður gerð frá Árbæjar-
kirkju í dag kl. 15.
Útför Karls Jóhanns Ólafssonar
framkvæmdastjóra, Brúnalandi 19,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík þriðjudaginn 10. júlí kl. 15.
Bergur Atlason er látinn. Útför hans
verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju
laugardaginn 7. júh kl. 14. Minning-
arathöfn fer fram í Langholtskirkju
þriðjudaginn 10. júlí.
Bjarnheiður S. Daníelsdóttir frá
Auðunsholti, Grindavík, Hamrahlíð
17, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Grindavíkurkirkju laugardaginn 7.
júlí kl. 14.
Kristín Ögmundsdóttir frá Syðri-
Reykjum, th heimihs á sambýlinu
Sjólbraut la, Kópavogi, sem lést í
Landspítalanum sunnudaginn 24.
júní, verður jarðsett frá Langholts-
kirkju mánudaginn 9. júh kl. 15.
Tilkynningar
Frá Félagi eldri borgara
Farið verður í haustferðir sem hér segir:
Mallorca, 6 vikur, 19. sept. Mallorca, 4
vikur, 5. okt. Portúgal, 3 vikur, 5. sept.
Benidorm, 3 vikur, 11. okt. Flórída, 3 vik-
ur, 11. okt., 20. nóv. og 11. des. Allar nán-
ari upplýsingar á skrifstofunni, sími
28812.
Leiðrétting vegna
hjálparstarfs Ananda Marga
Miðvikudaginn 4. júlí misritaðist númer
á tékkareikningi hjálparstarfs Ananda
Marga þar sem tekið er á móti fjárfram-
lögum. Rétt númer á tékkareikningnum
í miðbæjarútibúi Búnaðarbankans,
Laugavegj 3, er 180 en ekki 189 eins og
sagt var.
Nýtt rit um upplýsingamál
Nýlega kom út ritið Upplýsingar eru auð-
lind. Að útgáfunni stendur samstarfs-
nefnd um upplýsingamál sem skipuð er
af menntamálaráðherra og hefur starfað
síðan 1979. í bókinni, sem er 300 blaðsíð-
ur, eru 24 greinar eftir 17 höfunda: há-
skólakennara, bókaverði og sérfræðinga
á ýmsum sviðum upplýsingatækni og
upplýsingamiðlunar. Meðal efnis má
nefna eftirfarandi: Löggjöf og skipulags-
mál á sviði upplýsingamála hérlendis;
Skipulagsmál annars staðar á Norður-
löndum og atbeini Evrópubandalagsins á
upplýsingasviðinu; Upplýsingatækni og
nýting hennar. Staðlar: Fjarskipta- og
upplýsinganet; Gagnaflutningar; Mennt-
un og rannsóknir á sviði upplýsinga-
mála; Bókasöfn, skjalasöfn og aðrar
stofnanir sem geyma gögn; Vamarað-
gerðir gegn hrömun og eyðileggingu
pappírs; Uppbygging íslenskra bókfræði-
gagnasafna; Hlutur einkaaðila í upplýs-
ingastarfsemi; Nýting erlendra gagna-
banka; Fjarvinnustofur og fjarkennsla.
Heiti ritsins, Upplýsingar em auðlind, á
að undirstrika það gildi sem upplýsinga-
iðjan hefur fyrir þjóðfélagiö, ekki einung-
is menningarlega heldur einnig efna-
hagslega. Aðaldreifmgaraðili er Þjón-
ustumiöstöð bókasafna, Austurströnd 12,
. 170 Seltjamamesi, sími 612130.
Safnaðarferð
Laugarnessóknar
Sunnudaginn 8. júlí verður farið í safnað-
arferð á vegum Laugamessóknar í
Reykjavík. Lagt verður af stað frá Laug-
ameskirkju kl. 10 f.h. Ekiö verður í Þjórs-
árdal og komið við m.a. í Sögualdarbæn-
um og í Búrfelli. Á heimleið verður stutt
helgistund í Mosfellskirkju í Grímsnesi.
Þá verða Sólheimar í Grímsnesi sóttir
heim en það er heimili fyrir þroskahefta
og á það 60 ára afmæli um þessar mund-
ir. Þátttakendur hafi með sér nesti fyrir
hádegismat en í Sólheimum verður boðið
upp á kaffl. Ekki er þörf á að skrá sig
fyrirfram, aöeins mæta stundvíslega kl.
10 f.h. Verði ferðarinnar er stillt í hóf og
kostar kr. 1000. Reiknað er með heim-
komu um kl. 18.
Nýr Teningur kominn út
Út er komið 9. tölublað lista- og bók-
menntatímaritsins Tenings, sem AI-
menna bókafélagið gefur út. Að
venju kennir ýmissa grasa í umfjöll-
un blaðsins sem spannar frásagnar-
list, ljóðlist, myndlist og kvikmyndir.
Af efni 9. tölublaðs má nefna áfram-
haldandi umfjöllun og kynningu á
ungum breskum rithöfundum og
dönskum ljóðskáldum. íslenskt efni
er þó mjög áberandi, sérstaklega
koma ljóðskáld mikið við sögu. Má
þar nefna ljóð eftir Megas, Jón Hall
Stefánsson og Magnús Gezzon. í
myndlistarumfjöllun koma við sögu
Kees Visser, Franz Graf og Marcel
Ducamp. Áskriftarverð að Teningi
er 690 kr. en verð í lausasölu 890 kr.
Tónleikar
Ásthildur Haraldsdóttir flautuleikari og
Love Derwinger munu halda tónleika í
sal tónlistarskólans á Akureyri, Hafnar-
stræti, mánudaginn 9. júli kl. 20.30. Ást-
hildur og Love munu meðal annars leika
tónlist eftir Fauré, Gaubert, Dutilleux og
Poulenc en auk þess munu þau flytja
verk fyrir tvær flautur og píanó effir
Doppler sem Kristín Guðmundsdóttir
flautuleikari, gestur tónleikanna, leikur
með í. Meginuppistaða tónleikanna verð-
ur frönsk tónlist fyrir flautu og píanó sem
Ásthildur og Love munu leika inn á
geisladisk í Svíþjóð að tónleikaferðinni
lokinni.
Sýningar
Sumarsýning í Reykholti
Samsýning borgfirskra myndlistar-
manna, á vegum menntamálaráðuneytis-
ins og M-hátíðarnefndar í Borgarfirði,
var opnuð í Reykholti hinn 1. júli. Sýn-
ingin stendur tÚ 6. ágúst og verður opin
daglega frá kl. 13-18. í Borgarfirði búa
og starfa margir myndhstarmenn sem
oftast leita til höfuðstaðarins til að halda
sýningar á afrakstri vinnu sinnar. M-
hátíðamefnd í Borgarfirði ákvað að snúa
dæminu við og standa fyrir samsýningu
í Reykholti. Ákveðið var að bjóða þeim
myndlistarmönnum, sem starfa í hérað-
inu, að taka þátt í sýningunni en einnig
að kalla til leiks myndlistarmenn sem
tengjast Borgarfirði á ýmsan annan hátt.
Þátttakendur eru alls 19 myndlistannenn
en þeir eru: Ásgerður Búadóttir, Áslaug
Jónsdóttir, Bjami Þór Bjarnason, Elín
Magnúsdóttir, Elísabet Haraldsdóttir,
Guttormur Jónsson, Helena Guttorms-
dóttir, Helga Magnúsdóttir, Hreinn Elías-
son, Hrönn Eggertsdóttir, Jónina Guðna-
dóttir, Kristin María Ingimarsdóttir,
Magnús Tómasson, Marlies Wechner,
Ólöf Erla Bjamadóttir, Páll Guðmunds-
son, Sigríður Ásgeirsdóttir, Svanborg
Matthíasdóttir og Vignir Jóhannesson. I
Reykholti er ágæt aðstaða til sýningar-
halds og á staðnum er einnig rekið Eddu-
hótel og veitingasala. Umsjónarmaður
sýningarinnar er Pétur Önundur Andr-
ésson, kennari í Reykholti.
Fjölmiðlar
Trausti Sigurlaugsson, fyrrverandi
formaður Sjálfsbjargar, félags fatl-
aðra í Reykjavík, lést þann 30. júní
sl. Trausti fæddist 19. júlí 1934 á
ísafirði, sonur hjónanna Sigurlaugs
Þorleifs Sigurlaugssonar og Karítas-
ar Ingibjargar Rósinkarsdóttur.
Hann hóf störf þjá Landssambandi
fatlaöra árið 1969 þar vann hann
Jens Hansson skipstjóri lést þann 26.
júní sl. Jens fæddist á Rifi á Snæfells-
nesi þann 20 okt. 1910 og voru for-
eldrar hans Hans Jensson og Þóra
Sigurbjörnsdóttir. Jens lauk námi í
Stýrimannaskólanum og var skip-
stjóri á bátum víða um land. Einnig
stundaði hann vinnu í Landssmiöj-
unni og Vélsmiðjunni Sindra. Jens
giftist Jónínu Maríu Þorbergsdóttur
og eignuðust þau íjögur börn. Útför
Jens verður gerö frá Bústaðakirkju
í dag kl. 14.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA Á\
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Umkvörtun og afskiptasemi
í beinni útsendingu
Ein er sú dagskrárgerðin sem
heldur betur hefur dafnaö eftir að
útvarpsrekstur var gefinn f'rjáls hér
á landi. Það eru umkvartanir og af-
skiptasemi hins almennaborgara
af öllum sköpuðum hlutum í beinni
útsendingu. „Þjóðfundur“ er settur
og „þjóðarsálin" sest á rökstóla við
sjálfa síg með hiálp rauðglóandi
símtóla útvarpsstöðvanna. Sá sem
einu sinni hefur hlustað á þessar
hamfarir hlýtur að sannfærast um
það aö hér sé fundin hin eina og
sanna þjóðaríþrótt íslendinga - sá
Mímisbrunnur sem seint verður
þurrausinn.
Að vísu skilst raér að s vona þras-
þættir hafi lengi verið við lýði vest-
an hafs og jafnvel víðar í veröldinni
en ég eta samt að nokkur þjóð kvarti
og kveini og relli og rifist í útvarp
tiljafnsviðokkur.
Sennilega er skýringin á þessari
taumlausu málgleði fólgin i þeirri
kenningu að islendingar hafi aldrei
haft vit né áhuga á almennum
grundvaUarreglum um mannlifið.
Siðfræði hefur aldrei veriö okkar
sterkasta hlið og mannréttindi eru
hér að meira eða minna leyti orðin
tóm sem við þáöum frá dönskum
kóngi án þess að hafa nokkurn tíma
kunnað að meta þá gjöf.
Afþessu leiðir að skoðanir íslend-
inga á einstökum afmörkuðum
álitamálum mannlífsins eru ein-
faldlega einkatilfinningar hvers og
eins án tillits til heildarinnar og án
nokkurrar viðleitni til að smætta
vandann til almennrar grundvallar-
reglu.
Þegar íslendingar þrátta um þaö
hvort leyfa skuli hundahald í þétt-
býli eru þeir einíaldlega að greina
frá því hvort þeir vilji sjólfir eiga
hund. Annað kemur þeim ekki við.
Það hvarflar td. ekki að þeim að
bann viö hundahaldi kunni að vera
brot á mannréttindum.
Þjóð sem svona hugsar um mann-
líf sitt á eftir aö þrátta um alla skap-
aöa hluti til eilífðar nóns án þess
aö nokkur verði nokkru nær um
eðli vandans.
Kjartan Gunnar Kjartansson