Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 9. JTJLÍ 1990. Fréttir Langur biðtími 1 húsbréfakerfinu: Sprenging í umsóknum aðeins flórðungur umsækjenda kaupir fasteign Nokknrrar óánægju hefur gætt með þann seinagang sem verið hef- ur í húsbréfakerfinu að undan- fomu. Fólk hefur þurft að bíða miklu lengur en sagt var í upphafi, bæði eftir umsögninni og samþykkt á skuldabréfaskipti. „Það er ekkert óeðlilegt við þetta," sagði Sigurður Geirsson, forstöðumaður húsbréfadeildar Húsnæðisstofnunar. „Áður en húsbréfakerfið var opn- að vora örfáir umsækendur. í apríl var t.d. 81, sem sótti um, en í maí voru þeir 1019 og í júní 603. Yfir áriö er tahð eðlilegt að 4000 fast- eignasölur fari fram um land allt eða aö meðaltali 300-400 á mánuði. Á tveimur fyrstu mánuðum hús- bréfakerfisins eru hins vegar yfir 1600 umsóknir eða hátt í hálfs árs sala. Þetta er 40-50% meira en við reiknuðum með. Að hluta til er þetta uppsafnaður vandi, fólk hefur verið að bíða eftir að komast inn. Ég stórefast um að þessi aukning skili sér í meiri íbúðakaupum. í raun er það þannig að af öllum þessum umsækjendum eru aðeins 25% sem fara adla leið, þ.e. kaupa fasteign. Mér skilst að þetta sé orðin nokk- urs konar tíska núna aö láta meta greiðslugetu sína. Umsóknin gildir aðeins í fjóra mánuði og ef fólk hefur ekki keypt þá verður að gera nýtt greiðslumat. Einnig eru marg- ir sem ekki vilja kaupa fyrr en þeir hafa selt. Þeir ná síðan ekki að selja áður en gildistíminn rennur út.“ Þetta gengur þannig fyrir sig að fyrst koma væntanlegir kaupendur með umsókn um umsögn á greiðslumati viðkomandi. Nú tekur um 5-6 vikur að bíða eftir greiðslu- matinu en á að verða um 2 vikur þegar þetta hjaðnar. Þegar kauptil- boð hefur verið gert er þetta metið á ný og ef allt er í lagi eru skulda- bréfaskiptin samþykkt. Þetta tekur nú um 2-3 vikur en á að taka 1 viku þegar eðlilegt ástand kemst á. „Við reiknum ekki með að þetta hjaðni fyrr en í fyrsta lagi með haustinu. Núna er sumartími, fólk í sumarfríum og annað. Einnig er þetta fyrsta árið ennþá og við reiknum ekki með að jafnvægi komist á fyrr en á næsta ári. 15. nóvember verða nýbyggingamar einnig teknar inn í kerfið, auk þess sem bráðabirgðaákvæði falla smám saman úr gildi.“ -Pj Þaö hefur verið suörænn stíll á mlöbæ Vestmannaeyja síðustu daga, karniv- al sem konurnar I kvenfélaginu Líkn hafa slegið upp. Þeim hefur svo sannar- lega tekist að gleöja bæjarbúa sem slöppuðu af I góöa veðrinu. Trúöar skemmtu börnum og Ámi Johnsen spilaði og söng. Svæðið var skreytt við hæfi og konurnar framreiddu veitingar. DV-myndir Ómar Garðarsson Kosningu f ulltrúa á kirkjuþing lokið Búið er að kjósa fulltrúa sem sitja næsta kirkjuþing en þingið verður haldið í haust. Auk þeirra sem kosn- ir hafa verið sitja þingiö ráöherra eða fulltrúi hans,' kirkjuráðsmenn, vígslubiskupar og biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, en hann er forseti þingsins. Efirtaldir prestar og leikmenn hafa hlotið kjör á kirkjuþing: Séra Karl Sigurbjömsson, séra Hreinn Hjartarson, Hólmfríður Pét- ursdóttir og Jóhann Bjömsson frá Reykjavik. Séra Gunnar Kristjánsson og Helgi Hjálmsson úr Kjalarnesprófasts- dæmi. Séra Jón Einarsson og Halldór Finnsson úr Borgaríjarðar-, Snæ- fellsnes- og Dalaprófastsdæmi. Séra Gunnar Hauksson og Gunn- laugur Jónsson úr Barðastrandar- og Isafjarðarprófastsdæmi. Séra Árni Sigurðsson og Margrét K. Jónsdóttir úr Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Séra Þórhallur Höskuldsson og Halldóra Jónsdóttir úr Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Séra Gunnlaugur Kristinsson og Guðmundur Ágústsson úr Múla- og Austfjarðaprófastsdæmi. Séra Siguijón Einarsson og Jón Guðmundsspn úr Skaftafells-, Rang- árvalla- og Ámesprófastsdæmi. Séra Jón Bjarman úr hópi guð- fræðinga og presta sem hafa önnur verkefni en vera sóknarprestar. Björn Björnsson frá guðfræðideild Háskóla Islands. -sme Mikill erill lögreglu á landsmóti hestamanna: „Betra en „Þetta er búið að vera mun betra en við þorðum að vona. Við vissum aö það yrði erill og í ýmsu að snúast og vissulega hefur veriö meira en nóg að gera. Menn era ekki aö koma í neinn kirkjugarð þegar þeir mæta á landsmót hestamanna. En mótið hef- ur sem betur fer gengið stórslysa- laust fyrir sig. Við emm því ánægð- ir,“ sagði talsmaður lögreglunnar á Sauðárkróki í samtah við DV. við þorðum Mikið var um ölvun á landsmótinu. Skarst oft í odda með mönnum en lögregla gat oftast leyst máhn á staðnum. Engin stórslys hlutust af stimpingum manna en einu sinni slasaðist maöur þó illa þegar hann fékk flösku í höfuðið og var hann fluttur th Reykjavíkur. Margar skýrslur voru teknar vegna þjófn- aða. Böh vom með rólegasta móti og munu aöeins um 60 manns hafa að vona“ mætt í Miögarð þar sem iðulega er húsfyllir á böhum. Var aðalfjörið á mótssvæðinu sjálfu. Um miðjan dag í gær hafði lögregl- an tekið vel á annan tug ökumanna fyrir ölvunarakstur. Mikh umferö hefur verið í tengslum við landsmót- ið og búast menn viö að hún nái há- marki í dag. -hlh í dag mælir Dagfari ______________ Hafskip í höfn Þá er Hafskipsmálaferlunum lokið. Að minnsta kosti í bhi. Niöurstað- an varð sú að málaferhn vom út í bláinn. Sakbomingamir vom sýknaðir af öhum þeim tvö hundr- uð og fimmtíu ákæram, sem fram voru bomar, en á móti fundust þrjú eða fjögur prakkarastrik eða yfirsjónir sem dómurinn féhst á að refsa mætti fyrir. FjaUið tók sem sagt jóðsótt og fæddist Uth mús. Rannsókn, ákæmr og málflutn- ingur í þessu umfangsmikla máh, hefur tekið fimm ár. Sautján ein- staklingar hafa ýmist setið inni eða setið á sakabekk og beðið eftir aö vita hvaö það væri sem réttarkerfið hefði við það að athuga sem þeir höfðu gert. Flestir hinna ákærðu höfðu haft það fyrir atvinnu að stýra stóra skipafélagi sem átti í bash með reksturinn. Aðrir höfðu setið í bankastjóm og bankaráði gamla Útvegsbankans og haft það fyrir atvinnu að lána fé til Hafskips og annarra fyrirtækja í landinu sem þurftu á lánsfé að halda. Þeir hjá Hafskip vissu ekki betur en aö þeir hefðu gert sitt besta th að halda Hafskip gangandi og vissu heldur ekki annað en að bankamir væra th að lána fyrirtækjum og einstaklingum sem þurfa á lánum aö halda. Það sama héldu banka- stjóramir. Th hvers era bankar nema th að lána? Og svo lánuðu þeir Hafskipi vegna þess að Hafskip bað um lán. Þaö biður enginn um lán sem hefur nóga peninga og þess vegna verður að lána þeim peninga sem þurfa á peningum að halda. Annars gengju ekki fyrirtækin og annars gengi ekki bankinn. Hann lifir á að lána. En svo sögðu rannsóknarlögregl- an og ríkissaksóknari allt í einu að þetta hefði veriö ólögleg starfsemi og bankinn hefði ekki átt að lána Hafskipi og Hafskip hefði ekki átt aö fá lánað hjá Útvegsbankanum og þetta var aht saman orðiö krim- inelt. Vesalings mennimir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið enda höfðu þeir ekki hugmynd um að réttarkerfið og lögin hefðu bannað mönnum að stunda viðskipti og slá lán. Það var líka orðiö saknæmt að veita lán. Nema hvað, sumum var stungiö inn, alhr vora þeir settir út af sakramentinu og nú hafa þeir sem sagt mátt bíða eftir því í fimm ár að sakadómur kæmist að þeirri niðurstöðu aö réttarkerfið og lögin hafi ekkert við það að athuga að menn stundi viöskipti og slái lán. Ekki heldur að veita lán. Auðvitað eru alhr harla glaðir með þessa útkomu. Sakboming- amir eru sýknaðir, lögfræðingam- ir fá greidd laun úr ríkissjóði og sakadómarar fá lof fyrir góðan dóm. Eini maðurinn, sem hefur móral og samviskubit út af þessu máh, er sjálfur ríkissaksóknari sem er svo miður sín að hann hefur ákveðið að biðja um lausn frá starfi. Eftir aht írafárið, ásakanim- ir og ofsóknimar stendur það eitt eftir að þaö er ekki nema einn maður sem þarf að skammast sín. Það er saksóknari ríkisins. En hann var sem betur fer ekki ákærð- ur og þótt hann sitji eftir með sárt ennið þarf hann samt ekki að kvíða því að sitja inni með samvisku sína og sekt. Það eina, sem kvarta má undan vegna þessara málaloka, er sú stað- reynd að dómurinn er kveðinn upp fimm áram of seint. Hafskip er far- ið á hausinn, Útvegsbankinn hefur verið lagður niður og hinir meintu sakbomingar eru flestir hveijir búnir að missa vinnuna. Aht fyrir misskhning. Næst er auðvitað eðU- legast að embætti saksóknara verði lagt niður í kjölfarið á dómnum, enda ljóst að embætti, sem leggur fram tvö hundrað og fimmtíu ákærar út í bláinn, hefur ekki er- indi sem erfiði. Saksóknari hefur gert sitt besta th að sýna fram á að þaö er refsi- vert að stunda skipaflutninga og það er kriminelt að stunda banka- viðskipti og þegar sakadómur getur ekki fundið nein lagaákvæði, sem banna sUka atvinnustarfsemi, er ekki lengur þörf á saksóknaraemb- ætti th að kæra menn fyrir að fara að lögum. Dagfari vorkennir auð- vitað saksóknara að hafa yfirsést þannig, er hann las lögin, að sjá ekki að það er ekkert í lögunum sem bannar mönnum að fara að lögum en þá er Uka á það að líta að enginn getur ætlast til að menn, sem hafa það aö atvinnu að kenna lögfræöi, geti áttað sig á því hvem- ig lögin líta út þegar menn þurfa að fara eftir þeim. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.