Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Page 15
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 1990. 15 Hvað geta margir búið á íslandi? Lesandi góður. Fyrir nokkrum árum hitti ég á förnum vegi erlend- an mann sem þekkti vel til efna- hagsmála í Færeyjum. Hann sagöi að allan efnahagsvanda þeirra Færeyinga mætti rekja til þess að fólksfjöldinn þar væri einfaldlega of mikill!? „Færeyjar geta ekki framfleytt nema tæplega 40.000 manns miðað við þær kröfur sem nútímafólk gerir til lífskjara! Þetta efnahagsdæmi þeirra Færeyinga gengur einfaldiega aldrei upp nema fólksfjöldinn í Færeyjum sé innan við 40.000 manns!“ sagði þessi ágæti maöur. Ekki ætla ég að leggja mat á það hversu raunhæfar þessar fullyrð- ingar viðmælanda míns voru. En þær voru afar sláandi og komu mér í opna skjöldu. En svo komu óþægi- legar spumingar í kjölfarið: Hvem- ig er þessu varið á íslandi? Hvað eru íbúar þar margir? Hvað getur þessi eyja brauðfætt marga miðað við þær kröfur sem nútímafólk ger- ir til lífskjara? Eða eru hagkerfi íslands og Færeyja ekki hliðstæð í öllum aðalatriðum? Fólksfjöldinn og lífskjörin Við íslendingar eigum því ekki að venjast að efnahagsmál þjóðar- innar séu skoðuð út frá þessum sjónarhóli. Samt hggur það fyrir að verðmætasköpun þessa þjóð- félags takmarkast verulega við út- flutning sjávarafurða, áls og járn- KjaHarinn Brynjólfur Jónsson hagfræðingur blendis. Það segir sig sjálft að þess- ar takmarkanir, sem tengjast verð- mætasköpun í landinu, hljóta aö leiða til þess að einhvers staðar myndast takmörk fyrir þvi hversu marga íslendinga þetta þjóðfélag getur brauðfætt miðað við einhver ákveðin lífskjör. Aukning á fólks- fjölda í landinu leiðir nefnilega ekki til aukinna útflutningsverð- mæta að sama skapi, því miður, eins og ástandið er í dag. Aukinn fólksfjöldi í landinu við núverandi aöstæður leiöir til lakari lífskjara að jafnaði fyrir hvem og einn íslending - og fækkun fólks í landinu til bættra lífskjara að jafn- aði. Þetta era hrikalegar stað- reyndir og þessu verður að breyta. Við þessar kringumstæður er ósköp „eðlilegt" að umsvif ríkisins fari vaxandi ár frá ári, eins og gerst hefur hér hin síðustu ár. Æ erf- iðara veröur líka að halda viðskipt- um við útlönd í jafnvægi. Þessar staðreyndir eru líka martröð fyrir alla hugsun sem tengist hjöðnun verðbólgu til lengri tíma litið. Það er í raun sama hvernig á þetta vandamál er litið, það er bæði stórt og vont. En hvað er til ráða? Mikilvægi samkeppnisiðnaðar Svarið er einfalt. Það verður að fjölga hlutfallslega því fólki sem vinnur við gjaldeyrisskapandi störf og þau störf sem leiða af sér minnk- un á innflutningi í þessu þjóðfé- lagi. Viö þaö fækkar hlutfallslega þeim sem vinna þjónustustörf, bæði hjá hinu opinbera og annars staðar. - En hvernig má það ger- ast? Jú, meðal annars með eflingu íslensks iðnaðar og með eflingu ís- lenskra útflutningsatvinnuvega al- mennt. En íslenskir útflutningsatvinnu- vegir og íslenskur iðnaður eflast ekki nema stjórnvöld sjái til þess að þessar atvinnugreinar séu sam- keppnisfærar við hhðstæðar at- vinnugreinar erlendis til lengri tíma séð. Að búa íslenskum út- flutningsatvinnuvegum „stund- um“ samkeppnishæfan gmndvöll og „stundum" ekki er nánast verra en að gera það aldrei. En þannig hefur því miður verið staðið að málum á undanfömum árum og áratugum. Stjórnvöld verða einfaldlega að tryggja viðun- andi samkeppnisgmndvöll fyrir iðnað og útflutningsatvinnuvegi tíl lengri tíma séð í þessu landi ef ekki á að veröa hér áframhaldandi sam- dráttur í lífskjörum og landflótti. í dag er mest áríðandi að fljótt og vel takist til með samninga um nýtt álver á íslandi. Ekkert einstakt „Aukinn fólksfjöldi 1 landinu við nú- verandi aðstæður leiðir til lakari lífs- kjara að jafnaði fyrir hvern og einn íslending.“ Eins og ástandið er i dag er fólks- fjöldi hér meiri en þetta land ber, miðað við kröfur um lífskjör, segir greinarhöfundur m.a. mál myndi hafa jafnskjót qg góð áhrif á efnahagslíf okkar íslend- inga og skjót og góð lausn á þeim álviðræöum sem nú standa yfir. Lesandi góður. Á íslandi búa um 250.000 manns. Eins og ástandið er í dag er sá fólksfjöldi meiri en þetta land ber miðað við þær kröfur sem nútímafólk gerir til lífskjara. En hversu margir gætu búið hér á landi og látið sér hða vel fer alfarið eftir því hvemig stjómmálamenn þessa lands búa að iðnaði og út- flutningsatvinnuvegum í nútíð og framtíö. Brynjólfur Jónsson Deila háskólamanna og rikisins: Heimskuleg hagfræði Vart er hægt að hafa önnur orð um upphlaup háskólamanna vegna meintra svika ríkisins á samning- um við þá. Á það hefur verið bent að umrædd hækkun launa þeirra myndi valda sprengingu á um- sömdu rauðu striki í margrómaðri þjóðarsátt um kjaramál launafólks í landinu. Ekki hef ég séð nein skrif eða andsvör háskólamanna gegn áður- nefndi fullyrðingu. Þögn þeirra hlýtur því að skoðast sem sam- þykki þeirra á tilgreindum afleið- ingum hækkana sem til þeirra væra samþykktar. Hvað segir þetta okkur í raun? Jú, þetta segir okkur að þessir menn eru tilbúnir aö fóma afkomugrundvelh allra ann- arra launamanna í landinu til þess að geta fengið lítils háttar fleiri krónur útborgaðar um mánaða- mót. Afleiðing heimskunnar Það er nokkuð aumt þegar mað- ur, sem aldrei hefur í háskóla sefið, verður að rassskeha þá stétt manna opinberlega - en hjá því verður vart komist ef afkomu heimhanna í landinu á ekki að fóma á altari fégrægði. Ágætu háskólamenn. Mikill fjöldi ykkar er skuldum vafmn, í formi námslána og annarra lána er tengj- ast aðstöðu ykkar í þjóðfélaginu. Þið hafið menntað ykkur á niður- greiddum lánum sem fjármögnuð hafa verið að hluta með skattfé al- mennings í landinu. Hluti þessara KjaUaiirin Guðbjörn Jónsson framkvæmdastjóri G-samtakanna lána er verðtryggður en þið hafið alveg verið stikkfrí í deilum undan- farinna ára, milh atvinnulífs og heimila annars vegar og stjóm- valda og bankakerfis hins vegar, um vaxtamál. Ástæðan er einföld. Ykkar aðal- skuldasöfnun (námslánin) hefur verið vaxtafrí fram að þessu. Þið hafið hins vegar þurft að horfast í augu við hækkandi skuldastöðu vegna verðtryggingar (lánskjara- vísitölu). Vegna þessara stað- reynda furðar mig á dómgreindar- bresti ykkar á stöðunni í umræddri deilu ykkar við ríkið. Er ykkur virkilega ekki ljóst að ef ykkur tekst að knýja fram þessa hækkun emð þið að kalla yfir ykkur og alla aöra skuldara hér á landi mun meiri greiöslur í formi verðbóta en nemur þeim kauphækkunum sem þið sækið svo fast? Ég neita alfarið að trúa því að skattfé launafólks í landinu hafi verið variö í skólasetu fólks sem ekki hefur hærri greind en fram kemur í þessum vinnubrögðum ykkar. Markmið og leiðir Ekki dreg ég í efa að markmið okkar ahra er betri afkoma til handa komandi kynslóðum þessa lands. Hitt er orðið ljóst að leiðir okkar að þessu marki eru mjög ólíkar. Mér finnst miklu vænlegra til árangurs að leggja rækt við grundvölhnn, sem við lifum á, en afla mér sjálfum fáeinna króna meira í veltu sem skila engu í bættri afkomu. Kannski er þama kominn í hnot- skurn vandi sá er þjóðfélagið hefur verið að safna upp undanfarin upp- gangsár í tekjum þjóðfélagsins én þrátt fyrir það vaxandi skuldasöfn- un. Þvi verður ekki neitað að for- sendur fyrir bættri afkomu þjóð- félagsins hafa í auknum mæh verið sóttar til manna með „menntun“ sem tryggja áttu ráðvanda stjórnun þessa þjóðfélags. Árangurinn hefur verið mjög nei- kvæður miðað við það fjármagn sem þjóðfélagið hefur verið í „menntun“ þessara manna. Mér heföi þótt eðlilegra af hálfu þetta „menntaðra" manna að sjá ábend- ingar um leiðir til allsheijarlaun- hækkunar í landinu, sem ekki hef- ur í fór með sér hækkun verðlags eöa lánskjara, en þau heimskulegu kröfuspjöld sem auðkennt hafa þessa baráttu. Ábyrgð á vinnugæðum Sífellt fara vaxandi í þjóðfélagi okkar ummæli „menntaðra" manna um ástand og horfur í þjóð- arbúskap okkar. Ekki em sparaðir í þessum ummælum titlar og menntagráður. Ég ætla ekki heldur að draga í efa að einhveijar formúl- ur kunni þeir flestir er tryggi þeim tilgreinda menntatitla. Hitt heföi verið þjóðfélagslega hagstæðara að þeir öfluðu sér meiri þekkingar á samfélagi okkar til þess að fylla í þessar formúlur sínar svo að þær yrðu ekki þjóðfélaginu til skaða. Nú er vert að geta þess að hér er fyrst og fremst verið að fjalla um þá „menntamenn" sem mest em í sviösljósi aðstæðna. Eins og allar stéttir eiga „menntamenn“ sína sönnu og óve- fengjanlegu fræðimenn. Þar eru i ferðinni menn sem leggja ekki nafn sitt við hvað sem er. Þeim fmnst vænlegra að nafn þeirra tengist raunverulegri framþróun til bættr- ar framtíðar en augnabliks auglýs- ingu sem verður smán að fáum árum hðnum. Þar á ég fyrst og fremst við aðför ákveðinnar stéttar menntamanna að undirstöðugrein- um sjálfstæðs þjóðfélags hér á landi. Fjalla nánar um það síðar. Guðbjörn Jónsson „Mér hefði þótt eðlilegra af hálfu þetta „menntaðra“ manna að sjá ábendingar um leiðir til allsherjarlaunahækkunar í landinu...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.