Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1990, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1990.
Fréttir
Þorsteinn Pálsson um niðurstööu Félagsdóms:
Ber vott um kjánaskap
ríkisstjórnarinnar
„Þessi úrskurður Félagsdóms er
alveg í samræmi viö þann samning
sem ríkisstjómin skrifaði undir,“
sagði Þorsteinn Pálsson um niður-
stöðu Félagsdóms í deilu BHMR og
ríkisins.
„Þegar ríkisstjómin skrifaði undir
þennan samning fyrir rúmu ári
hældu þeir sér mjög af honum og
kölluðu hann tímamótasamning.
Forsætisráðherra hældi sér mikið af
því að loksins hefði tekist að veita
háskólamenntuðum starfsmönnum
Þorleifur Bjömsson:
Kærir lög-
regluyfirvöld
Þorleifur Bjömsson, sem rekið hef-
ur veitingastaðinn Tunghð, hefur
sent dómsmálaráðuneytinu kæru
vegna afskipta lögreglu af rekstri
veitingastaðarins.
í bréfi, sem Þorleifur sendi fjöl-
miðlum, segir meðal annars: „Fjöl-
miðlar hafa fjallað um máiið út frá
sjónarmiðum lögreglunnar.... en ég
'er þeirrar skoðunar að lögregluyfir-
völd hafi farið rangt að í málinu og
skaðað bæði mig og aðstandendur
listahátíðar næturlífsins sem er fé-
lagsskapur ungs fólks sem berst fyrir
bættri skemmtanamenningu.“
Það em þrjú atriði sem Þorleifur
kærir til dómsmálaráðuneytisins:
Bann við vínveitingum, sviptingu
skemmtanaleyfis og aðgerðir lög-
reglunnar þann 20. júlí síðastliðinn.
„Við sendum kæmna til lögreglu-
sfjóra og biðjum um umsögn embætt-
isins á henni. Við eigum von á að það
taki stuttan tíma að fá umsögnina
og í framhaldi af því verður ákveðið
hver framvinda málsins verður,"
segir Hjalti Zóphóniasson, deildar-
stjóri í dómsmálráðuneytinu.
-J.Mar
umframhækkanir sem ekki hefði
verið hægt áður vegna andstöðu
Sjálfstæðisflokksins.
Þessi niðurstaða ber fyrst og fremst
vott um kjánaskap ríkisstjómarinn-
ar. Ríkisstjómin ber aila ábyrgð á
miðurstöðu dómsins. Árásir ráð-
herra á dómstólana em forkastan-
legar og mjög alvarlegar.
Viö þjóðarsáttina var forysta efna-
hagsmála í landinu tekin úr höndum
ríkisstjómarinnar. Ein af forsendum
þeirra samninga var að aðrir fengju
ekki meira. Eftir þá samninga hafði
ríkisstjómin tvo möguleika. Önnur
var að taka upp viðræöur við BHMR
og bjóða þeim að taka þátt í þjóðar-
sáttinni. Hin var að styrkja laga-
grundvöli samningsins eöa taka
hann til endurskoðunar. Ríkisstjóm-
in gerði hvoragt.
Aðalatriöið nú er að freista þess að
halda þeim árangri sem aðilar vinnu-
markaðarins náðu með þjóðarsátt-
inni við að draga niður verðbólgu og
koma á stöðugleika. Þrátt fyrir þann
árangur sem þá náðist hefur ríkis-
stjómin gert lítið til þess að halda
því verki áfram.
Ég hef ekki tekið afstöðu til þess
hvað beri að gera nú. í upphafi bent-
um við á leiðir til þess að ríkisstjóm-
in kæmist ekki í þann hnút sem hún
er nú komin í. Það er þeirra að leysa
þann hnút.“
-pj
gmndvöllur sé fyrir aö höfða
meiöyrðamál á hendur Signýju
Sen og Elinu Hallvarðsdóttur,
fúUtnium lögreglustjóra, vegna
ummæla sem þær viðhöfðu í
þættinum Reykjavík síðdegis á
mánudag," segir Araór Bjöms-
son, einn af aðstandendum lista-
hátíöar næturlífsins.
í þættinum segir Signý Sen
meöal annars: „Varst þú ekki aö
segja okkur frá lögregluaögerö-
um í Englandi?" og þá grípur Elfn
fram í og segir „út af kollegum
ykkar þar.“ Signý heldur áfram
og segir: „Af því þú ert að tala
um lögregluafskipti hér á ís-
landi...“ þá kemur annaö inn-
skot frá Elínu „þar vom teknir
ax>0 manns, ykkar kollegar í
Bretlandi, fyrir fíkniefnanotk-
un.“
í ummælum sínum eru fulltrú-
ar lögregluembættisins meðal
annars að vísa til fréttar sem les-
in hafði verið á Bylgjunni og
greindi frá að lögregla heföi ráð-
ist inn á diskótek í pakkhúsi í
borginni Leeds á Englandi og
handtekið þar 800 af 2000 gestum
diskóteksins fyrir annaðhvort aö
selja eiturlyf eða vera undir
áhrifum þeirra.
„Okkur finnst mjög sorglegt ef
lögregluyfirvöld hafa tekið þá af-
stöðu til samtakanna26. maí, sem
í era um 2000 ungmenni, að
kenna þau við eiturlyfjaneyslu,
sérstaklega með tilliti til þess að
við höfum að leiðarljósi að beij-
ast fyrir bættu og vimuefnalausu
næturlífi," segir Arnór.
Haft var samband viö Signýju
og Elínu vegna þessa máls. „Það
verður hver að álykta fyrir sig,“
var svar Signýjar. Elín sagði hins
vegar: „Ég hafði ekki tök á aö
hlusta á þessa frétt en við sem
komum ftam i þættinum vorum
aö ræða hana ásamt grein sem
birtist í Newsweek og greinir frá
hliðstæðura samtökum í Bret-
landi og starfa hér á landi. Og
mér fannst sem samtökin hér
væra angi af þessari sömu bylgju.
Þessí ummæli vora í framhaldi
af því sem við vorum aö ræða
fyrirþáttinn.“ -J.Mar
Útgerðin er dans á rósum en allar rósir hafa þyrna. Þeir urðu greinilega varir við það þessir. Rokkurinn hefur
greinilega ekki gengið eins og til var ætlast - en trúlega eru mennirnir tveir vandanum vaxnir og ráða fram úr
þeim erfiöleikum sem þeir standa frammi fyrir. DV-mynd JAK
Félagsdómur er ábyrgur
Nú hefur það heldur betur sann-
ast hvað það er vitlaust aö treysta
á dómstóla. Þaö blasir við öllum
að Félagsdómur hefur ekkert vit á
lögum og ennþá minna vit á efna-
hagsmálum og dómurinn er hættu-
legasti óvinurinn í viðleitni þjóðar-
innar til að ráða niðurlögum verð-
bólgunnar.
Félagsdómur komst að þeirri nið-
urstöðu að háskólamenntaðir rík-
isstarfsmenn eigi rétt á 4,5% launa-
hækkun frá og með 1. júli sl. Allir
málsmetandi og ábyrgir aöilar í
þjóðlifinu era um þaö sammála að
þessi dómur þýði í reynd að verð-
bólgan kemst á fulla ferð. Bæði
vinnuveitendur og verkalýðsfor-
ingjar era klárir á því að nú mun
skriða launahækkana og verð-
hækkana fylgja í kjölfarið og ekki
verði við neitt ráöiö. Ráöherrar og
efnahagssérfræðingar taka í sama
streng. Landið verður stjómlaust
rekald og hver hækkunin rekur
aöra þar til verðbólgan verður
komin í nýjar hæðir. Þjóðarsáttin
er fyrir bí, kollsteypan er framund-
an og allar bjargir bannaðar.
Lengi vel var búið að vara við
launasamningi BHMR. Vinnuveit-
endur kölluðu hann tímasprengju,
verkalýðsforystan hjá ASÍ var búin
að segja að hún krefðist sömu
hækkana ef háskólamenn fengju
sitt og ráðherrar í ríkisstjóminni
vora svo hræddir við þennan
samning, sem þeir höfðu skrifað
undir, að þeir frestuðu að greiöa
umsamdar launahækkanir. Það
var eiginlega enginn nema Páll
Halldórsson og hans nánustu
skæruliöar sem hvöttu til þess að
staðið yrði við samninginn á þeirri
forsendu að hann væri öðrum að
meinalausu.
Auk samningsins sjálfs var varað
við ýmsu öðra. Talsmenn launa-
fólks vöraðu við því ef launafólk
fengi kauphækkanir. Vinnuveit-
endur vöraöu við vinnuveitendum
sem mundu hækka framleiöslu
sína ef laun hækkuðu og ríkis-
stjómin varaði alla við þeim afleið-
ingum sem samningur hennar við
háskólamenn kynni að leiða af sér.
Allir vöraðu svo við Páli Halldórs-
syni nema helst Páll sjálfur sem
var svo viss í sinni sök að hann
gekk út af miðstjómarfundi Al-
þýðubandalagsins þegar allabaUar
vildu ekki vara við því að menn
væra að vara við samningnum sem
ráðherramir hafa verið að vara
við.
Nú hefur hins vegar komið í Ijós
að það var ekki samningurinn sem
ástæða var til að vara við. Verka-
lýður og vinnuveitendur era ekki
blórabögglamir, heldur ekki Páll
Halldórsson og heldur ekki ríkis-
stjómin sem var í góðri trú um að
hún gæti stöðvað samninginn sem
hún hafði undirskrifað. Það hefur
sem sé komið í ljós að það er ekk-
ert athugavert við þennan samn-
ing. Það sem er varhugavert í stöð-
unni og hættulegt þjóðinni er Fé-
lagsdómur sem hefur kveðið upp
dóm sem að mati ábyrgra manna
er vitlaus dómur og skaðar hags-
muni lands og þjóðar. Þaö er dóm-
urinn sem ógnar sjálfum efnahags-
grandvellinum og leyfir sér þann
ósóma og það ábyrgðarleysi að
hundsa skoðanir fiármálaráðherra
og hættumar af verðbólgunni. Það
er Félagsdómur og Félagsdómur
einn sem er sökudólgurinn í vænt-
anlegum hrunadansi launa og
verðlags.
Dagfari hefur alltaf sagt að dóm-
stólar séu varasamir. Nú hefur það
sannast. Best væri auðvitað að nota
tækifærið og afnema alla dómstóla
sem koma í veg fyrir að löglega
kjörin stjómvöld geti farið sínu
fram. Það á að banna dómstóla sem
kveða upp dóma um að samningar
skuli standa. Það á aö ákveða með
lögum að ríkisstjómir geti svikið
sína eigin samninga og að þær
megi vara við samningum sem þær
gera.
Það góða við þetta ástand er þó
hitt að í næstu kosningum geta
væntanlega allir flokkar, verka-
lýðshreyfingin og vinnuveitenda-
sambandið sameinast í því átaki
aö leggja niður dómstólana. Þegar
verðbólgan verður komin á fullt
skriö og enginn ræður neitt við
neitt verður það kristalklárt aö
efnahagsglundroðinn er ekki ríkis-
stjóminni, samningsaðilum eða
stjómmálamönnum að kenna. Sök-
in liggur hjá Félagsdómi sem hefur
verið að skipta sér af pólitík og
samningum sem allir málsmetandi
aðilar vora búnir að vara við. Slag-
orðið verður: Niður með Félags-
dóm!
Dagfari