Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1990, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1990.
13
Lesendur
Geðveikir aíbrotamenn:
III medferð
á Utla-Hrauni
Formaður trúnaðarráðs fanga á
Litla-Hrauni skrifar:
Tilgangurinn með þessu bréfi er
sá einn að koma á framfæri mót-
mælum fanga á Litla-Hrauni vegna
þeirrar meðferðar sem geðveikir
aíbrotamenn eru látnir þola. - Ég
tek fram að innihald bréfsins er
allt á mína ábyrgð og mun ég
standa við allt sem þar er ritað.
Þeir einstaklingar, sem eru svo
ógæfusamir að hafa orðið fóm-
arlömb geðveikinnar og hafa í
beinu framhaldi af því gerst brot-
legir við landslög, ættu að hafa sið-
ferðilegan og lagalegan rétt á því
að yfirvöld í landinu sýni þeim
samúð og skilning. En það er öðru
nær. Þó hefur örlað á því að lands-
feðurnir lýsi hryggð sinni vegna
slæmrar stöðu þessara mála. En
raunar hafa þeir nú verið afar
hryggir allir með tölu sl. 100 ár eða
svo. En hryggðin hefur líka verið
það eina sem þeir hafa sýnt.
Sannleikurinn er sá að geðveikir,
og þá sérstaklega þeir sem hafa
fengið stimpilinn „geðveikir af-
brotamenn", njóta engrar samúðar
eða skilnings nema frá þeim sem
daglega hafa við þá samskipti. -
Kannski skiljanlegt þar sem fang-
elsismál eru svo mikið feimnismál
að flestum finnst best að hafa þar
sem minnst afskipti.
Við sem berum stimpilinn „af-
brotamaður" stöndum a.m.k. fram-
ar hinum háu herrum þessarar
þjóðar að því leyti að við höfum
samúð með veikum meðbræðrum
okkar sem þjást og kveljast daglega
fyrir augum okkar. Við höfum látið
nægja að reyna að vekja athygli
yfirvalda með orðum og með bréfa-
sendingum en nú er svo komið að
ekki verður lengur við unað.
Það sem nú er að gerast hér á
Litla-Hrauni verður ekki lengur
þolað. Við tökum ekki lengur mark
á yfirlýsingum yfirvalda um að
þessi mál séu til „umfjöllunar". -
Við krefjumst þess í nafni réttlætis
og mannúðar aö geðveikir menn
verði vistaðir á þeim stofnunum
þar sem þeir geta fengið þá umönn-
un og aðhlynningu sem þeir eiga
rétt á. Skelli yfirvöld skoilaeyrum
við þessari kröfu lýsum við ábyrgð
á hendur þeim og allir vita að und-
ir þeirri ábyrgð standa þeir ekki.
Eg hefi ekki leyfi til að greina frá
málum einstakra manna en sann-
ast sagna þjást þessir menn mikið,
einfaldlega vegna þess að ekki er
gert ráð fyrir að slíkir menn séu
vistaðir hér. Starfsfólk og sam-
fangar þessara manna hafa sýnt
þessum mönnum umburðarlyndi
og skilning, raunar miklu meiri en
hægt er að krefjast af þeim.
Ég vil að lokum varpa spurningu
til allra félaga sem hafa mannúð
og mannréttindi á stefnuskrá sinni,
t.d. forstöðumanna kristinna safn-
aða, hvort ekki sé nú tími til kom-
inn að taka þetta málefni sérstak-
lega fyrir og beita áhrifum sínum
til hjálpar þessum mönnum. - Ef
ekki verður eitthvað raunhæft gert
strax verður þessu máli snúið til
mannréttindadómstóls með ein-
hverjum ráðum. Við fangar hér
skorum á alla þá sem þetta bréf
lesa að ljá málinu lið, hver og einn
á þann hátt sem honum finnst best
henta.
Enginn skortur á nöfhum til forsetaframboðs:
Óáfengt „vín“ fyrir spjátrunga? - Fjármálaráðherra sýnir forstjóra ÁTVR
(t.v.) hvernig opna á flösku með spjátrungsvíni.
Vín án vínanda?:
Einskær
Fleiri tilnefningar
Halldór Gíslason skrifar:
Ég hef séð að farið er að huga að
líklegum mönnum sem hugsanlega
myndu vilja gefa kost á sér til fram-
boðs í forsetaembætti þegar kosið
verður næst um það embætti, en þaö
er eftir tæp tvö ár. - í því tilefni vil
ég geta þess að auk þeirra nafna sem
hingað til hafa verið nefnd í blöðum
(t.d. í Frjálsri verslun og DV) nýlega,
þá hafa menn verið að reyna að auka
við og endurbæta þann hsta. Mér
skilst að þegar séu komin nöfn 9 að-
ila sem telja verður mjög frambæri-
lega, þótt ekki séu þeir alhr jafnhk-
legir til að fá meirihluta atkvæða
hinna kjörgengu.
Meðal nafna sem menn hafa rætt
að undanfömu, auk hinna sem þegar
hafa verið birt, er t.d. séra Heimir
Steinsson þjóðgarðsvörður á Þing-
völlum, maður sem hefur mikla
þekkingu á sögu lands og þjóðar og
hefur tekið á móti flestum þjóðhöfð-
ingjum sem hingað hafa komið og
leitt þá um mesta sögustað þjóðar
okkar. Einnig hefur nafn Ólafs Ragn-
arssonar, bókaútgefanda og fyrrv.
sjónvarpsfréttamanns, verið til um-
ræðu, Þuríðar Pálsdóttur söngkonu,
Víkings H. Arnórssonar læknis og
Guðmundar Jónssonar, forseta
Hæstaréttar.
Aht eru þetta þekkt nöfn hér á
landi og óþarfi er að amast við því
þótt menn geri sér það th dægrastytt-
ingar að finna nöfn og persónur sem
hugsanlega vildu gangast undir dóm
þjóðarinnar í forsetakosningum. -
Ég er hins vegar sammála því sem
fram hefur komið áður að menn, sem
tengjast stjórnmálum beint eða hafa
verið framámenn í póhtískum flokki,
eru ekki endilega þeir sem höfða til
fólks þegar kemur að æðsta embætti
þjóðarinnar. Og enn má örugglega
fmna fleiri góða og gegna íslendinga
sem eru frambærilegir í hið háa
embætti þegar þar að kemur.
Lesendasíða DV vill að gefnu tilefni
endurtaka þau nöfn sem þegar hafa
verið orðuð við hugsanlegt forseta-
framboð og voru birt í tímaritinu
Fijálsri verslun og einnig í þessum
dálkum. - Nöfnin voru Steingrímur
Hermannsson, Albert Guðmunds-
son, Guðrún Agnarsdóttir, Valur
Arnþórsson, Matthías Johannessen,
Bera Nordal, Davíð Scheving Thor-
steinsson, Sigmundur Guðbjamason
og Sveinn Einarsson.
Þetta er orðinn áhtlegur hópur
fólks, en lesendasíða telur ekki efni
standa til að birta fleiri uppástungur
að sinni, nema ef vera kynni að sér-
stakir undirskriftalistar bærust með
áskorun á thtekna eða thteknar per-
sónur um að gefa kost á sér th fram-
boðs á sínum tíma.
Fréttir af landsmótum
Steini skrifar:
Mig langar th að koma á fram-
færi þökkum til íþróttafrétta-
mahna Ríkisútvarpsins og Sjón-
varpsins fyrir mhdar og góðar
fréttir frá landsmóti UMFÍ. Þetta
landsmót er einn merkasti við-
burðurinn í íþróttalífi landsmanna.
Auk þess sem hann hefur mikla
þýðingu félagslega séð.
Því miður komst ég ekki á lands-
mót að þessu sinni en naut þess í
staðinn að horfa á beina útsend-
ingu í sjónvarpinu. Það hvarflaði
að mér að þessi ágæta kynning á
ungmennafélagshreyfingunni
bætti jafnvel aö vissu leyti upp þau
leiðindi sem einstök héraðssam-
bönd hafa mátt þola stundum af
hendi fjölmiðla vegna sámkomu-
halds á sumrin.
Ég hef heyrt út undan mér að
hestamönnum finnist leitt að
þeirra landsmót hafi ekki fengið
eins mikla umfjöllun. Hestamenn
eru ahs góðs maklegir en það er
varla hægt að ætlast til aö lands-
mót í einni íþróttagrein fái jafn-
mikla umfjöhun og mót þar sem
keppt er í tugum greina og sem
höfðar th fjölda fólks meö hin ólík-
legustu áhugamál.
Það er þó eitt sem mig langar til
að benda hestamönnum á og sem
gæti vakið ýmsa th umhugsunar. -
Ef mér dytti í hug að drekka mig
fullan á hestamannamóti er það
einfaldlega mitt mál og það er ég
sem er aumingi. - Ef ég hins vegar
ætla að haga mér á sama hátt á
útihátíð hjá einhveiju ungmenna-
félagi eða héraðssambandi er það
mótshaldarinn sem er ábyrgur fyr-
ir eymd minni og alveg „voðalegt
að svona mót skuh vera haldin" til
að fleka saklaust fólk.
Fjölmiðlar eru vanir aö tína th
allt neikvætt á ungmennafélags-
mótum og jafnvel ýkja svohtið en
á hestamannamótum er horft fram
hjá öhu sem miður fer og síst af
öhu verið að kenna mótshaldaran-
um um. Þessa sanngirni mega
hestamenn virða við fjölmiðlana. -
Svo óska ég bæði hestamönnum og
ungmennafélögum alls góðs og
vona að skemmtanir þeirra og mót
megi takast vel og njóta hlutlausrar
og sanngjarnrar umfjöhunar.
fíflaháttur
Þórður Magnússon hringdi:
Það nýjasta í sölumálum Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins, þessa
góðgerðarfyrirtækis þjóðarbúsins -
eða hitt þó heldur - er að nú hefur
hún „komið th móts við óskir við-
skiptavina sem vhja geta boðið óá-
feng vín“ eins og það er svo snyrti-
lega orðað í fréttum.
Þessi svokölluðu áfengislausu vín
hafa th þessa fengist í flestum mat-
vöruverslunum og ekki þjónað mikl-
um thgangi því fáir hafa keypt þau,
enda bragðvond með afbrigðum og
þjóna auk þess engum thgangi nema
að koma th móts við þá sem eru það
mikhr „hérar“ í samkvæmum að
geta ekki hreinlega beðið um óáfeng-
an drykk, sé hann ekki boðinn jafn-
hhða hinum áfengu. - Hingað til hef-
ur þótt nægja að bjóða gosdrykki sem
óáfenga drykki og hefur engum þótt
tiltökumál að skála í þeim við þá sem
halda á kampavínsglasi eða öðru úr
áfengisríkinu.
Að bjóöa fólki upp á þá heimsku
að segja „gjörið svo vel, nú eru á
boðstólum vín án vínanda" er ein-
skær fíflaháttur og ekkert annað.
Enda eru engin vín án vínanda. -
Þetta er jafnmikhl fíflaháttur og að
bjóöa ætti th sölu tóbak án nikótíns.
Hvaða manngerð keypti slíka vöru?
Það væru þá einungis spjátrungar
sem vhdu sýnast vera tóbaksmenn
en reyktu svo thbúið gervitóbak -
rétt th að „geta verið með“. - Sama
er uppi á teningnum hvað varðar
„óáfengt“ vín. það drekkur enginn
nema spjátrungur og hann íslenskur.
Létt vín
í vere Kristbjörn skrifar: Mig langar th að koma þeirri beiðni til viðkomandi yfirvalda að slanir þess að ekki komi allar breytingar yfir okkur eins og holskefla, e.t.v. á emum mánuði. - Satt að segja er
og áfengt öl verði th sölu í matvöru- mörkuðum landsins. í sambandi við thhomu svokallaðs léttvíns í hnftr > ÁTHrP cVxrfiiv hoA eltnlfl/n íslendingar skulum búa við allt aðrar og úreltar reglur hvað varðar sölu áfengis en gerist með öðrum
við að ÁTVR skuh helja sölu á óá- fengum drykkjum en raatvöru- verslunum meinað að selja létt vín Ég skora á yfirvöld að taka nú rögg á sig og endurskoða þessar úreltu reglur einmitt núna þegar
jafnrceði með hinu opinbera og venu er gera oAA-monnuiu og öðrum fráhverfum notendum
Hvað ætlum við að gera þegar við höfum gengið í Evrópubandalagið? Viö skulum gera okkm- grein fyrir um með því að hafa óáfeng vín til sölu bæði í Ríkmu og á fijálsum markaöi. Það er meira en gert er
því að þá munu ghda hér aht aðrar og breyttar reglur um áfengissölu en nú er. Það ætti því aö koma á breyttu skipulagi á þessi mál áður en við göngum í það bandalag th fyrir aðra og óbreytta landsmenn sem vilja geta keypt sitt vín i al- mennum verslunum eins og siðaöri þjóð sæmir.