Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1990, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1990, Side 24
48 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1990. Smáauglýsingar Menning MMC Space Wagon, 4x4, árg. '88 til sölu, ekinn 28 þús. km, ljósgrár, sæti fyrir 7 manns, skipti ath. á ódýrari. Uppl. hjá hílasölunni Bílaporti, Skeifunni 11, sími 91-688688. Tll sölu M. Benz 0309 79, 6 cyl., há- þekja, lofthurð, mikið yfirfarinn. Uppl. í síma 94-2636 og 985-28905. M Fallegur MMC Colt turbo ECi, árg. ’88, rauður, ekinn 43.000 km, rafm. í öllu, verð ca kr. 890.000, skipti ath. á ódýr- ari bíl eða dýrari MMC L-300 4x4 eða Toyota Hilux. Uppl. í síma 91-72986 eftir kl. 18, Erlingur. 70 Camaro RS 454. Einstakur á Is- landi, óhemjumikið af sérstökum bún- aði, ekinn aðeins 36 þús. mílur. Til sýnis og sölu í kvöld kl. 18-20 á Skemmuvegi 22, Kópavogi, sími 91-73287. Fiat 127, 900 Super, árg. ’83, til sölu, ekinn 76 þús. km, gott eintak, verð 95 þús. Uppl. í síma 40519 e.kl. 17. Tll sölu BMW 316, árg. '88, ekinn aöeins 19 þús. km, 5 gíra, litað gler, stereo. Verð 1060.000.- Uppl. hjá Bílasölunni Blik. S: 686477. Pontiac 6000, árg. ’85, ekinn 50.000 km, til sölu. Glæsivagn, vel með farinn, innfluttur, einn með öllu, hvítur, verð kr. 850.000 kr. 700.000 stgr. Uppl. í síma 91-51545. Tll sölu Chevrolet plckup, '84, custom De Luxe, 4x4, 6.2 1. dísil, 4ra gíra, ekinn 70 þús. mílur. Verð 1080.000. Uppl. hjá Bílasölunni Blik, s. 686477. Surnarbústaðir Seljum norsk heilsárshús, stærðir 24-102 fin. Verð frá kr. 1.280.000. Sýn- ingarhús, myndir og teikningar fyrir- liggjandi. Húsin eru samþykkt af Rannsóknast. byggingariðn. R.C. & Co hf., s. 91-670470 og fax 91-670474. Hjónaspil Freyr Sigurjónsson flautuleikari og eiginkona hans, Margarita Lorenzo de Reizabal píanóleik- ari, héldu tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafs- sonar í gærkvöldi. Troðfullt var út úr dyrum og urðu sumir að standa en sumir frá að hverfa og er ekki ofsögum sagt af vinsældum tónleika- halds í Laugarnesi. Þeim flölgar sífellt íslenskum tónlistarmönn- unum sem hasla sér völl erlendis að námi lo- knu. Er það að sönnu gleðiefni hve mörgum þeirra virðist ganga vel í hinni hörðu sam- keppni margmennisins. Hitt er ekki síður ánægjulegt að flest þessa listafólks sér ástæðu til að koma heim til gamla landsins öðru hverju og leyfa löndunum að njóta ávaxtanna. Fylgja þá gjama með erlendir listamenn, kunningjar viðkomandi, og er þetta mikilvægur liður í fjöl- breytni tónlistarlífsins hér. Tónlist Finnur Torfi Stefánsson Á efnisskrá Freys og Margarítu voru verk eft- ir Reinecke, Enescu og Poulenc. Verk þeirra tveggja fyrrnefndu voru heldur af léttvægara taginu enda þótt þau létu bæði þægilega í eyrum og gerðu á köflum töluverðar kröfur til hljóð- færaleikaranna. Sónata Poulencs er mun bita- stæðari og gullfalleg. Poulenc tilheyrði frægri klíku franskra tónskálda sem lét töluvert til sín taka eftir fyrri heimsstyrjöld og kallaðist „Les Six“. Stefna þeirra var að vera á móti rómant- ísku stefnunni og einkum og sér í lagi Debussy. Sexmenningarnir voru gagnrýndir fyrir að vera oft grófir og groddalegir. Er gaman að hafa þetta í huga þegar hlýtt er á flautusónötuna sem í eyrum nútímamanns hljómar ekki aðeins fín- lega elegant heldur einnig hárómantísk. Flutningur Freys og Margaritu var eins og vera ber hjá hjónakornum ágætlega samrýmdur og léku þau bæði af látlausu öryggi og oft mjög fallega. Tónninn hjá Frey var, einkum þegar á leið, mjög þéttur og áferðargóður. Því miður gat gagnrýnandi DV ekki fyllilega notið þessa þar sem hann varð að sitja frammi á gangi og leið þar fyrir að hafa ekki mætt nema tíu mínútum fyrir tónleikana en þá voru öll innri sæti full- skipuð. Næst þegar tónleikar verða í Laugar- nesi ætlar fulltrúi DV að mæta tuttugu mínútum fyrir auglýstan tíma í þeirri frómu von að engum öðrum detti í hug það sama. Ljósið langt og mjótt Myndir Helga Valgeirssonar, sem sýnir í Ás- mundarsal, segja sennilega talsvert um viðhorf nýrrar kynslóðar íslenskra myndhstarmanna, kynslóðar tíunda áratugarins, til miðils síns. Þessi kynslóð virðist að mestu hafa snúið baki við hömlulausri sálkönnun og mýtumálun ný- expressjónismans, svo og ívitnunarstefnu og þverstæðum póstmódernismans. Þess í stað leit- ar hún sér kjölfestu og sjalfsímyndar í nánasta umhverfi sínu, oft með viðkomu í eldri myndhst. Það er einum of auðvelt að kenna myndlist af þessu tagi við listræna kyrrstöðu eða íhalds- semi. Hún gefur mönnum kost á að staldra við og leggja mat á viðtekin gfldi, gera upp við sig gagnsemd þeirra. Listasagan segir hana nauð- synlegan undanfara allra viðhorfsbreytinga. Kjarni hins séða Þótt Helgi Valgeirsson sé að sönnu ekki full- veðja myndlistarmaður virðist hann þegar hafa markað sér nokkuö gæfulega stefnu. í verkum hans virðast fara saman stórbrotið en þó ljóð- rænt raunsæi Hrings Jóhannessonar og hið „metafýsíska” viðhorf til landslags eins og það birtist skýrast í verkum Georgs Guðna. Verður á köflum nokkur togstreita milli þessara tveggja sjónarmiða í verkum Helga þar sem hið fyrra grundvallast á trúnaði við hið séða, þó svo það veiti ákveðið svigrúm til túlkunar, en hið síðara byggist á því að finna altækan kjama hins séða með því að yfirstíga það. Þaö er kannski í meðhöndlun sinni á birtu og þar með á htrófinu sem Helgi kemst næst því að samræma þessi tvö sjónarmið. Birtan er hon- um stundum eins og gegnheill massi, áþreifan- legri en málningin á striganum (myndir 10-12, Helgi Valgeirsson - Kemur Ijósið langt og mjótt?, olia á striga (nr. 6). Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson 25 o.fl.), stundum mettar hún andrúm mynd- anna, breytir gufustróki í massa (2 og 3) og massa í gufu (4). Iflýti Þetta er þriðja einkasýning Helga sem útskrif- aðist úr Myndhsta- og handíðaskólanum fyrir aðeins fjórum árum. Oþarfi er fyrir svo ungan hstamann að flýta sér svona mikið. Mætti hann einnig taka verðlagningu sína tfl endurskoðun- ar en hún virðist miðuð við það sem langreynd- ir atvinnumenn í hstinni bera úr býtum fyrir verk sín. Fréttir Þingeyri: Sigraði á 19 ára gamalli drossíu Sigurvegarar I karla- og kvennariðli standa hér við hliðina á 19 ára gamalli drossíu af gerðinni Ford Galaxy. Brynjar M. Valdimars., DV-ökuleikni '90: Ökuleikni ’90 fór fram á aðalgötu Þingeyrar þar sem nokkur fjöldi áhorfenda og keppenda var saman kominn í blíðskaparveðri. Keppni var spennandi, sérstaklega í kvennariðh þar sem aðeins fjögur refsistig skfldu að fyrsta og annan keppanda. Fyrst varð Hrönn Magn- úsdóttir með 252 refsistig en hún ók á stærsta bílnum sem var dross- ía í fullri stærð af gerðinni Ford Galaxy, nítján ára gömul en sem ný að sjá. Onnur varð Þóra Björk Magnúsdóttir með 256 refsistig. í karlariðh sigraði Sigurður Kristjánsson með 152 refsistig, ann- ar varð Sævar Gunnarsson með 177 refsistig og þriðji Friðfmnur Sig- urðsson með 200 refsistig. í riðh byrjenda varð Ehas Þórarinn Jó- hannsson efstur með 222 refsistig. Áður en keppendur í ökuleikni óku brautina fór fram keppni á reiðhjólum. í eldri riðli sigraði Ey- þór Fannar Valgeirsson með 67 refsistig og önnur varð Særún Lind með 90 refsistig. í yngri riðli sigr- aði Einar Aðalsteinsson með 59 refsistig, í öðru tfl þriðja sæti urðu Jón Þorsteinn Sigurðsson og Urður Skúladóttir með 63 refsistig. Gefandi verðlauna var Kaupfélag Dýrfirðinga. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.