Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1990, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 1990. 39 DV LífsstíU írland er grænt, segja ferðahandbækur, en þar er ýmsa Víða um írland er að finna sögufrægar byggingar. er ®dýrt að fá sér i gogginn. aðra liti að finna. írland: Fögur náttúra og skemmtilegt mannlíf Allar ferðabækur, sem fjalla um írland, halda því á lofti aö eyjan sé græn. Það er ekki alveg rétt því þar má víða greina gula, gráa eða hvita liti í bland við þann græna og þessir fallegu litir brosa við ferðamannin- um á leið hans um eyjuna. Það er landslagið sem stöðugt heill- ar á írlandi, síbreytilegt frá stað til staðar. Frá grýttum Araneyjunum í Atlantshafinu, þar sem birtan líkist miðjarðarhafsbirtu þegar sóhn skín, allt til hinnar regnþrungnu stemmn- ingar í íjöllunum yfir Cliften. Það er svo allt öðruvísi um að litast á bað- ströndunum suövestantil á eynni þar sem hægt er að sitja í skugga pál- matrjáa og horfa á htfögur blóm. Gamlar sögur Gamlar sögur herma að þegar guö skapaði írland hafi hann einnig búið til mikið af tíma. Og það likt og mannlífö endurspegh þessa gömlu sögn því aö íbúamir eru ekki að flýta sér um of og hafa gaman af að spjalla og segja sögur. Á pöbbunum virðist tíminn gjör- samlega standa í stað og þangað safn- ast ungir sem aldnir. Á hinum fræga pöbb O’Donoghue’s í Dublin, þar sem Dubhners voru uppgvötvaðir á sínum tíma, eru seld- ar 8000 bjórkollur á hverju kvöldi. Á daginn er staðurinn rólegur og fáir utan ferðamanna sem hann sækja en á kvöldin yfirfyllist hann af fólki og þjóðlagatónhstin, sem enn ómar á staönum, greinist varla í gegnum skvaldur gestanna sem standa í röð- um og bíða eftir að fá bjórkohuna sína. Það er hins vegar enginn að flýta sér, menn standa og spjalla og segja sögur og ræða þjóðfélagsvandamál. Atvinnuleysi er eitt helsta vanda- málið og margir vhja fara úr landi vegna þess. I Dublin myndast á hveijum degi langar biðraöir fyrir utan bandaríska sendiráöið. Fjöl- mennasti hópurinn í biðröðinni eru ungir atvinnuleysingjar eða lágt launaðir fjölskyldufeöur sem halda að þeir geti haft það betra í Guðs eig- in landi. Alhr ala sömu von í bijósti; að fá atvinnu- og dvalarleyfi vestra. Fæstir eru hins vegar svo heppnir að hafa fengið loforð um vinnu í Bandaríkjunum og fá því einungis venjulega ferðamannaáritun. Það hindar fólk hins vegar ekki í því að fara og treysta á guð og lukkuna. Flestir þekkja einhvern í Ameríku og þeir vona að sá hinn sami geti Unga menn dreymir um að komast til Ameríku. veitt þeim húsaskjól og ef til vih fundið handa þeim svarta vinnu á meðan þeir bíða eftir að fá atvinnu- og dvalarleyfi. Vonin er sú að þeir geti þénað svo mikla peninga að þeir geti á endanum snúið aftur til síns heima, því áð ahir vhja koma heim aftur þó ekki sé nema til að deyja. Sagan segir aö alla íra dreymi um að deyja í föðurlandinu, það er ekki hægt að finna fegurri stað á jarðríki th aö deyja á, segja þeir. Þrátt fyrir atvinnuleysi og mörg önnur þjóð- félagsvandamál elska írar fööurland sitt en fæstir þeirra sem halda utan á annað borð snúa nokkru sinni heim aftur. JamesJoyce Það má finna menjar um hinn fræga rithöfund, James Joyce, sem frægastur er fyrir bók sína Ulysses, í Trinity Cohege í Dublin. Þar er varðveitt eitt eintak af þessari frægu bók, áritað af honum sjálfum í París 1925. í Dun Laoghaire, suður af Dublin, er Joyce tuminn en þar bjó rithöf- undurinn í stuttan tíma og þar hefur nú verið komið upp safni theinkuðu meistaranum. Það er einnig önnur bókmennta- perla sem varðveitt er í Trinity Col- lege, það er The Book of Kells, rituð einhvem tímann á áttundu öld. Það er ýmislegt annað sem er þess virði að skoða í Dublin. Þar má nefna vikingasafnið, Dublinarkastala og ýmislegt fleira. Ódýrtaðferð- astumfrland Það er fremur ódýrt fyrir ferða- menn að ferðast um írland. Gisting og morgunverður í heimagistingu kostar 1500-2000 krónur fyrir tvo og þokkalegt tveggja manna hótelher- bergi kostar í kringum 2.500 krónur. Samloka með skinku og osti kostar á pöbb um 150 krónur en vín er dýrt, ódýrasta borðvínið með mat kostar á bilinu 1200 th 1800 krónur en á móti kemur aö maturinn er ódýr, góð steik kostar í kringum 500 krónur og þriggja rétta máltíð má fá fyrir 1000 th 1200 krónur. Bjórinn er misdýr, ein koha er frá 80 th 120 krónur, enda segja írar að ef þeir heföu ekki efni á að kaupa sér kohu af bjór nokkrum sinnum í viku mundi skapast uppreisnarástand í lýðveldinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.