Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1990, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1990, Blaðsíða 38
50 LAUGARDAGUR 25. AGÚST 1990. Tilkynningar Ferðaþjónustubæir sem bjóða upp á berjatínslu Brennistaðir í Flókadal: Ágætis spretta, aðallega krækiber. Ókeypis fyrir gesti. Garðar í Staðarsveit: Mjög góð berja- spretta, allar tegundir af berjum en mest af krækiberjum. Ókeypis fyrir gesti. Lýsuhóll í Staðarsveit: Góð beija- spretta, krækiber, bláber og aðalbláber. Suður-Bár í Eyrarsveit: Góð beija- spretta, krækiber og bláber. Stóra-Vatnshorn í Haukadal: Góð beijaspretta, krækiber og aðalbláber. Staður í Reykhólahreppi: Mjög mikið af beijum, allar tegundir. Fossá á Barðaströnd: Ágætt beijaland, allar tegundir. Alviðra í Dýrafirði: GÓÖ beijaspretta, aðaUega krækiber. Rauðamýri við Djúp: Ágætis spretta, mest af aðalblábeijum. Melstaður í Miðfirði: Ágætis beijaland, mest af blábeijum. Syðri-Hagi á Árskógsströnd: Gott beija- land, mikið af blábeijum en ekki full- þroskuð fyrr en í endaðan ágúst. Ytri-Vík á Árskógsströnd: Mjög góð beijalönd, mest af blábeijum og aðalblá- beijum. Fosshóll í Bárðardal: Mjög góð spretta, aUar tegundir, en mest af krækibeijum. Narfastaðir í Reykjadal: Mikið af öllum tegundum af beijum. Rauðaskriða í Aðaldal: MikU berja- spretta, krækiber, bláber og aðalbláber. Ókeypis fyrir gesti. Hraunbær í Aðaldal: Mikið af beijum í næsta nágrenni, leyfi seld á næsta bæ (Ódýrt). Skúlagarður í Kelduhverfi: Ágæt spretta, aðaUega krækiber. Fell i Bakkafirði: Góð spretta, mest af krækibeijum en mikið af blábeijum og einnig aðalblábeijum. Syðri-Vík í Vopnafirði: Þónokkuð af beijum í firðinum, bæði krækiber og blá- ber. Stapi í Borgarfirði eystri: Ágætis spretta, mest af krækibeijum og bláberj- um. Skipalækur í Fellum: Ágætis beija- spretta, aðaUega krækiber. Haugar í Skriðdal: SæmUeg spretta, aU- ar tegundir af beijum. Fell í Breiðdai: Ágætt beijaland, kræki- ber og bláber. tlŒTUfí KLOBBUFUnn Boigartúni 32. ® 29670 Gistiheimilið Sólbrekka í Mjóafirði: Mjög góð beijaspretta, aUar tegundir en mest af krækibeijum. Brattholt í Biskupstungum: Mikið af beijum, krækiber og bláber. Fundir Aglow, kristileg samtök kvenna verða með fund í kaffisal Bústaðakirkju mánudaginn 27. ágúst. Björg Davíðsdóttir og Guðlaug Hanssen verða ræðukonur fimdarins sem hefst með kaffiveitingum kl. 20. Fundurinn er öUum konum opinn. Aglow er alþjóöleg samtök kvenna úr mörgum kirkjudeUdum. Á mánaðarleg- um fundum samtakanna hittast konur og eiga ánægjulega og notalega stund um leið og þær lofa guð saman, hlusta á vitn- isburð og einnig er boðið upp á fyrirbæn- ir. Eins og áður sagði eru aUar konur velkomnar og þær hvattar tíl að kynna sér starfið. Ferðalög Útivistarferðir Sunnudagur 26. ágúst Dagsferð í Bása á Goðalandi kl. 08. Þórsmerkurgangan, 14. áfangi kl. 08. Lambey - Aurasel - Stóri Dímon. Gengið verður um Aurana að Stóra Dím- oni, síðan eftir vamargarðinum að Mark- arfljótsbrú. Skemmtileg gönguferð með stórbrotnu útsýni. Staöfróður Rangæing- ur vérður með í for. Brottfor frá BSÍ, bensínsölu að venju. Stansað verður við Árbæjarsafn, á Selfossi við Fossnesti kl. 09, á HeUu við GriUskálann kl. 9.30. Ingólfsfjall Fjallahringsgöngur Útivistar, 8. ferðin. Brottför frá BSI, bensínsölu kl. 13. Hjólreiðaferð kl. 13.30. Hjólað verður um götur og hestastiga við EUiðavatn, stutt leið í hijúfu landslagi. Ferðafélag íslands Dagsferðir sunnudaginn 26. ágúst 1. kl. 08 Þórsmörk - dagsferð. Verð kr. 2.000. Enn er ástæða til að huga að sumar- leyfisdvöl hjá Ferðafélaginu í Þórsmörk. Kannið tUboðsferð á lengri dvöl. 2. Kl. 9 Geysir - Hólar - Sandá. (Af- mæhsgangan 10. ferð). Gangan hefst við Geysi og Uggur leiðin í grennd við þjóð- veginn aUt að Tungufljóti en þaðan verð- ur gengið frá Kjóastöðum vestan vegar að Sandá. Verð kr. 1.700. 3. Kl. 9 Hagavatn - ökuferð. Hagavatn er stöðuvatn, austan undir HagafeUi í LangjökU. Gengið verður að vatninu og Utast um. Göngubrú er yfir. Farið við útfaU vatnsins. Verð kr. 2.000. Brottfór frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bU. Frítt fyrir böm að 15 ára aldri í fylgd fuUorðinna. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins 1. 24.-24. ágúst. Síðasta skipulagða gönguferðin um „Laugaveginn" á þessu sumri. Gengið frá Landmanna- laugum til Þórsmerkur. Nokkur sæti laus. 2. 30. ágúst til 2. september. Milli Hvítár og Þjórsár. Ökuferð með göngustigum um afrétti Gnúpveija- og Hrunamanna. Litast um í Leppistungum, Kerlingargljúfri og Gljúf- uríeit. Svefnpokagisting. Farastjóri: Kristján M. Baldursson. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu FI, Öldugötu 3. Pantið tímanlega. AUir velkomnir í ferðir Ferðafélagsins. Nemendur í Háskóla íslands, athugið! Þeir sem hafa hug á að taka þátt í stúdentaskiptum á vegum Nordplus-áætlunarinnar á vormisseri 1991 snúi sér til Alþjóðaskrifstofu HÍ, aðalbyggingu, sími 694311, eigi síðar en 7. september nk. FÉLAGSRÁÐGJAFI - UNGLINGARÁÐGJÖF Starf félagsráðgjafa við unglingaráðgjöfina er laust til umsóknar frá 1. október næstkomandi. Unglinga- ráðgjöfin er deild innan Unglingaheimilis ríkisins. Starfið felst í meðferðarvinnu á göngudeild og ráð- gjöf og handleiðslu við starfsfólk annarra deilda Unglingaheimilis ríkisins. Viðkomandi þarf að hafa lokið félagsráðgjafaprófi og hafa reynslu af meðferðarstarfi og ráðgjöf. Umsóknarfrestur er til 7. september næstkomandi. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Ungl- ingaheimilis ríkisins, Síðumúla 13, 3. hæð. Nánari upplýsingar í síma 689270. Forstjóri Afmæli Brynjólfur Þorsteinsson Brynjólfur Þorsteinsson bóndi, Hreiðurborg, Sandvíkurhreppi, Ár- nessýslu, verður sjötugur mánudag- inn27. ágúst. Brynjólfur er fæddur í Stykkis- hólmi og bjó þar fyrstu tvö ár ævinnar. Hann ólst upp í Helgafells- sveit og að Reykhólum. Brynjólfur lærði hjá Árehusi Níelssyni á Stað í Reykbólasveit í fimm mánuði vet- urinn 1940. Aðra menntun hefur hann orðið sér úti um af eigin rammleik, með lestri bóka og í skóla lífsins. Brynjólfur flutti að Hreiður- borg 8. júní 1944 með foreldrum sín- um og tók við búinu árið 1954. Hann hefur veri í hreppsnefnd í rúm 20 ár og verið forðagæslumaður í 25 ár. Brynjólfur kvæntist 7. desember 1952 Önnu Guðrúnu Guðmunds- dóttur, bónda og húsmóður, f. 16. júlí 1932. Anna Guðrún er dóttir Guðmundar Jóhannessonar, sem er látinn, og Amfríðar Vilhjálmsdótt- ur, húsmóður í Reykjavík. Börn Brynjólfs og Önnu Guðrúnar eru: Herdís Kristín, f. 14. september 1954, yfirkennari Laugarbakkaskóla og hótelstýra, gift Pétri Hermanns- syni, matreiðslumanni og verslun- areiganda, böm þeirra eru Alda og Ægir; Amar, f. 17. janúar 1956, bú- fræðingur frá Hvanneyri, starfandi flutningabílstjóri, kvæntur Hildi Björnsdóttur, þau em búsett í Reykjavík og börn þeirra em Rut, Eva og Bjöm Bragi; Þorsteinn Júl- íus Jóhann, f. 11. september 1959, bifvélavirki, býr í Hreiðurborg, sambýliskona hans er Sigurlaug Unnsteinsdóttur stúdent og synir þeirra em Brynjólfur ogUnnsteinn; Magga Sigurbjörg, f. 11. október 1964, búfræðingur frá Hvanneyri, bóndi á Túnsbergi, Hranamanna- hreppi, sambýlismaður hennar er Gunnari Eiríksson, búfræðingur frá Hvanneyri, börn þeirra eru Atli Örn og Elvar; Guðmundur Helgi, f. 3. ágúst 1967, vélvirki, sambýliskona hans er Bergljót Sævarsdóttir, þau búa á Selfossi, hann á einadóttur, Hrafnhildi, með Elínu Hallgríms- dóttur, og Hulda, f. 3. ágúst 1967, stúdent og búfræðingur frá Hólum, búsett á Hreiðurborg. Systir Brynjólfs er: Karólína, f. 27. janúar 1928, verslunarmaður, gift Garðari Eymundssyni trésmíða- meistara, þau eru búsett á Seyðis- firði, börn þeirra eru Ómar, Sævar, Gréta og Júlíana, og systir Brynjólfs sammæðra er Ragnheiður, búsett í Reykjavík. Foreldrar Brynjólfs voru Þor- steinn Brynjólfsson, f. 8. júní 1887, d. 16. apríl 1961, b. í Hreiðurborg, og kona hans, Júlíana Jóhanna Sturlaugsdóttir, f. 3. september 1890, d. 29. nóvember 1979. Þorsteinn var sonur Brynjólfs, b. á Broddanesi í Kollafirði, Jónssonar, b. á Skriðnes- enni, Jónssonar, b. á Skriðnesenni, Andréssonar, b. á Skriðnesenni, Sigmundssonar, ættföður Ennisætt- arinnar. Móðir Þorsteins var Ragn- heiður, systir Bjöms, prófasts á Miklabæ, afa prestanna Björns Jónssonar, Jóns Bjarmans, Stefáns Lámssonar og Ragnars Fjalars Lár- ussonar, fóður Þórsteins, prests Óháða safnaðarins í Rvík. Ragn- Brynjólfur Þorsteinsson. heiður var dóttir Jóns, b. og hrepp- stjóra á Broddanesi, Magnússonar og konu hans, Guðbjargar Bjöms- dóttur. Júlíana Jóhanna var dóttir Stur- laugs, b. í Ytri-Fagradal á Skarðs- strönd, Tómassonar, b. á Vaðli á Barðaströnd, Jónssonar. Móðir Sturlaugs var Jóhanna Jóhanns- dóttir, prests í Garpsdal, Bergsteins- sonar. Móðir Júlíönu var Herdís Kristín Jónsdóttir, Vestmanns, smiðs í Skriðukoti í Haukadal, Jóns- sonar, b. á Bakka á Langadals- strönd, Jónssonar. Móðir Herdísar var Ástríður Einarsdóttir, b. í Skriðukoti, Jónssonar og konu hans, Ingibjargar Helgadóttur. Brynjólfur verður heima á afmælis- daginn og tekur á móti gestum. Ami Oddgeir Gudmundsson Ami Oddgeir Guðmundsson, tré- smiður og bifreiðastjóri, Miðengi 20, Selfossi, er fertugur í dag. Árni Oddgeir fæddist að Oddgeirs- hólum í Hraungerðishreppi, Árnes- sýslu, og ólst þar upp. Hann lærði trésmíði hjá Sigurði Guðmundssyni á Selfossi og útskrifaðist úr Iðnskóla Selfoss. Sem unglingur var hann til sjós í tvö til þrjú ár. Hann hefur starfað við trésmíðar á Selfossi þar til fyrir ijóram árum er hann keypti vörubíl sem hann gerir út. Ami flutti úr foreldrahúsum til Selfoss þar sem hann býr nú. Hann hefur töluvert starfað að félagsmál- um, meðal annars verið formaður Framsóknarfélags Selfoss, stjómar- maður í hestamannafélaginu Sleipni og er nú stjómarmaður í bílstjórafé- laginu Mjölni í Ámessýslu. Þann 26. ágúst 1972 kvæntist Árni Guðrúnu Guðmundsdóttur, f. 16. janúar 1946. Guðrún vinnur við verslunarstörf í Kaupfélagi Árnes- inga. Hún er af Bergsætt en foreldr- ar hennar eru Guðmundur Elías Guðmundsson, verkamaður og skeifusmiður, og kona hans, Katrín Ólafsdóttir. Þau búa á Selfossi. Börn Áma og Guðrúnar erh þrjú: Guðmundur, f. 14. ágúst 1971, d. 16. september 1988; Jóhann, f. 7. apríl 1973, og Árný Ilse, f. 3. maí 1984. Systkini Árna eru: Magnús, f. 7. nóvember 1951, bóndi í Oddgeirs- hólum, kvæntur Margréti Einars- dóttur, f. 16. mars 1951, og eiga þau fjögur börn; Steinþór, f. 12. ágúst 1953, bóndi í Oddgeirshólum, kvæntur Þuríði Einarsdóttur, f. 14. desember 1958, og eiga þau eina fóst- urdóttur, og systir Árna, sam- mæðra, er Angelíka, f. 17. júní 1947 í Þýskalandi, hárskeri, giftÁsgeiri Gunnarssyni, vatnamælingamanni hjá Orkustofnun, þau búa á Egils- stöðum og eiga fjögur börn. Faðir Áma er Guðmundur Áma- son, bóndi í Oddgeirshólum í Hraungerðishreppi, f. 27. ágúst 1916, og móðir Árna er Ilse W. Árnason, f. 13. febrúar 1922 í Travemunde í Þýskalandi. Guömundur og Ilse búa Árni Oddgeir Guðmundsson. í Oddgeirshólum. Guðmundur er sonur Árna Ámasonar í Hörgsholti í Hrunamannahreppi og Elínar Steinþórsdóttur Briem en þau bjuggu í Oddgeirshólum. Elín var dóttir Steinþórs Briem, prests í Hruna í Hrunamannahreppi, og konu hans, KamiHu Briem, en þau bjuggu í Hruna 1874 tfi 1904. Til hamingjju með afmælið 25. ágúst Björg Jónsdóttir, Álftamýri 16, Reykjavík. Jón Hall Magnússon, Kríuhólum 2, Reykjavík. Rósa Sigurðardóttir, Jaðarsbraut 29, Akranesi. Bjargey Lilja Sigvaldadóttir, Flúðaseli 74, Reykjavík. Guðrún Pálsdóttir, Tungusíðu 8, Akureyri. Hún verð- ur að heiman á afmæHsdaginn. Gissur Guðmundsson, Háaleitisbraut 155, Reykjavík. Guðfinnur Ottósson, Brekkholti, Stokkseyri. Sveinbjörn Snæbjörnsson, Kirkjuvegi 66, Vestmannaeyjum. Hlaðbæ 5, Reykjavík. Birna Aðalsteinsdóttir, Sigtúni, Borgarfirði eystra. Sólveig Árnadóttir, Aðalbjörg Ingólfsdóttir, Heiðarhrauni 14, Grindavík. Stórhóli, Geithelinahreppi. ___ Hulda Jónsdóttir, 40 STð Barðavogi 7, Reykjavík. ------:------------------------- Ástríður Guðmundsdóttir, Skúli ísleifsson, Dunhaga 20, Reykjavík. Hún tekur Melgeröi 13, Kópavogi. á móti vinum og vandamönnum í Gunnar Guðmundsson, félagsheimili stafsmannafélags Daltúni 7, Kópavogi. Flugleiöa, Síðumúla 11, á afmælis- Una Steinþórsdóttir, daginnmiUiklukkanl7og20. Barmahlíð7,Reykjavik. Árni Ólafsson, Egill Stefánsson, Hraunbraut 30. Kópavogi. 7 Hábergi 6, Reykjavík. Svavar Guðni Guðnason, Kári Viðar Árnason, Stórageröi 8, Reykjavík. HaUbjarnarstóðum 4, Tjornes- : Kristján Sigurðsson, hreppi. Höskuldsstöðum, Vindhælis- Aðalsteinn S. Guðmundsson, hreppi. JakaseU40,Reykjavík. _______________________________ Ingeborg W. Jóhannsson, Óðínsgötu ll, Reykjavík. 50 ára Guðbjörg Gísladóttir,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.